Morgunblaðið - 13.11.1956, Síða 24
Veðrið
V og síðan NV stinningskaldi.
Éljaveður.
261. tbl. — Þriðjudagur 13. nóvember 1956
íþrótfir
á blaðsíðu 5.
Drengur stórslasaðist í
jeppa sem f ór í gljúfu1"
Slys viS Skjálfandafljóbbrt
Húsavík, 12. nóv.
ÍTILL drengur, Páll Þorlákur
Pálsson, slasaðist illa síðast-
liðinn laugardag, er bíll valt nið-
ur í gljúfrið sunnan Skjálfanda-
fljótsbrúar, neðan við Goðafoss.
Foreldrar drengsins, Rannveig
Kristj ánsdóttir og Páll H. Jóns-
son, kennari að Laugum, voru að
koma með áætlunarbíl frá Akur-
eyri, en konan hafði legið þar í
sjúkrahúsi. Faðir Rannveigar,
Kristján Jónsson, bóndi, Fremsta-
felli, ætlaði að sækja hjónin að
Fosshóli, og fór með jeppabíl
ásamt bílstjóra og með þeim fór
6 ára d'rengur hjónanna, Páll
Þorlákur.
Þegar jeppinn kom að Fosshóli,
stöðvaði bílstjórinn bílinn þar á
hlaðinu. Telur hann sig hafa sett
handbremsuna á. Hlaðið við
Fosshól virðist vera lárétt.
Bílstjórinn fór inn í hótelið og
ætlaði að vita hvað áætlunar-
bílnum liði, því hann var ókom-
inn. En á meðan hann er inni,
ran jeppinn af stað. Er orsök
þess talin að bíllinn hafi skropp-
ið úr bremsu og vindhviða komið
honum af stað, en allhvasst var
og byljótt.
Rétt áður en billinn rann ofan
í gljúfrið var drengurinn kominn
í framsæti bílsins, en hafði sig
ekki út, enda var mikil ferð kom-
in á jeppann.
10 M HÁTT FALL
Bílstjórinn kom að í því að
bíllinn var að renna af stað og
hljóp á eftir honum til að reyna
að stöðva hann, en náði honum
ekki áður en hann rann niður
í bratt gljúfrið. Bílstjórinn fór
þegar niður á eftir bílnum og
mikil mildi talin að hann skyldi
komast ómeiddur úr þeirri ferð.
Þar sem bíllinn fór niður í gljúfr-
ið er bergið og skriðan um 10 m
hátt, en neðan við þar sem bíll-
inn staðnæmdist stórgrýtisurð.
Það er ekki gott að gera sér grein
fyrir því hve margar veltur jepp-
inn fór með drenginn, en jepp-
inn fór þarna niður í loftköstum
og féll síðast fram af 4 m háu
bergi og kom á hjólin. Bílstjórinn
sem farið hafði viðstöðulaust nið-
ur gljúfrið, fann drenginn illa
skorðaðann framan við framsæt-
in og var hann mikið meiddur á
höfði en þó ekki meðvitundar-
laus.
Myndin er tekin er Olympíueldurinn hafði verið tendraður af
sólarljósi suður í Grikklandi. Nú er hlaupið xneð blysió um Ástralíu-
strönd — áleiðis til Melbourne. ;i.,r-.:.; ..-m.
Fólki gefst kostur
á að sýna liug sinn
í HAUST er byrjað var að bólu-
setja gegn lömunarveiki börn inn
an skólaskyldualdurs í Heilsu-
verndarstöðinni, hreyfði einn af
læknum Landsspítalans mjög at-
hyglisverðri hugmynd. Efnislega
var hún á þá leið, að margir væru
þeir foreldrar hér í bænum, sem
hefðu hug á því að láta í ljós
sérstakan þakklætisvott fyrir að
fá börn sín bólusett gegn þessari
ægilegu veiki. Myndu þá flestir
hugsa til Félags fatlaðra og lam-
aðra.
Nú hefur félagið látið þetta
mál til sín taka. Það hefur látið
gera peningakassa, merkta félag-
inu og standa þeir við aðaldyrn-
ar og eins þar sem borgað er fyrir
bólusetninguna. — Það er hug-
mynd okkar, sagði Svavar Páls-
son, að þeir sem vildu sýna hug
sinn til félagsins, leggi peninga
í þessa kassa, hver eftir eigin
ósk og fjárhagslegri getu. Fé-
lagið er Friðrik lækni þakklátt
fyrir hans mikla áhuga á starf-
semi félagsins og góðu hugmynd
og við þökkum fyrirfram fyrir
þann stuðning er okkur kann að
verða sýndur, sagði Svavar Páls-
son að lokum.
tn.
Aöalfundur Hvatar
REYNDI AÐ KOMAST ÚT
Bíllinn rann aftur á bak. Þeg-
ar hann fór af stað reyndi Krist-
ján strax að komast út úr hon-
um og ætlaði að taka drenginn
með sér, en hann var í aftursæt-
inu. En þegar Kristján komst út,
rann bíllinn þannig á hann að
hann féll við, enda var bíllinn þá
kominn á töluverða ferð. Krist-
jáni tókst ekki að ná drengnum.
Voru nú aðeins fáir metrar fram
á brattar skriður niður í gljúfrið,
en að því frá hlaðinu á Fosshól
eru 40—50 m.
Mikið safnast til
Uiigverja
SKRIFSTOFA Rauða krossins
skýrði Mbl. svo frá í gær, að
henni hafi nú borizt 180 þús. kr.
í peningum til Ungverjalands-
söfnunarinnar. Frá RK-deildinni
á Akureyri hefur skrifstofunni
borizt kr. 9450,00. Þessar pen-
ingagjafir eru hinar stærstu er
borizt hafa undanfarna daga: Frá
Völunai 6000 kr., Sölusamb. ísl.
fiskframleiðenda 5000 kr. og
sömu fjárhæð frá Eimskipafél.
Reykjavíkur og Landssamb. ísl.
útvegsmanna. — Ungverjalands-
söfnunni lýkur á fimmtudaginn
kemur.
Miklum peniegem
stolið hér í bæ
AÐFARANÓTT mánudagsins var
framinn hér í bænum allmikill
peningaþjófnaður og hefur rann-
sóknarlögreglan fengið málið til
meðferðar. Var það í skrifstofu
fyrirtækisins Geislahitun í Garða
stræti 6. Eftir að sprengdar höfðu
verið upp tvær hurðir var greið-
ur aðgangur að skrifstofunni og
þar voru peningarnir geymdir í
kassa í skrifborði frá því á laug-
ardaginn, 15—17 þús. kr. — Hafði
þjófurinn þennan kassa á brott
með sér. t
sndurkaus stjórnina
Sjálfstæðiskonur vottuðu
Ungverjum samúð
HAFÐI HÖFUÐKÚPU-
BROTNAÐ
Strax var gert viðvart til Húsa-
víkur og Breiðamýrar og komu
læknarnir frá báðum stöðum á
slysstaðinn og sjúkrabill frá
Akureyri og var drengurinn flutt
ur í Akureyrarspítala. í ljós kom
að Páll litli Þorlákur hefur höfuð
kúpubrotnað og hlotið mikinn
áverka á höfuð. Voru læknar Ak
ureyrarspítala yfir drengnum á
fjórðu klukkustund samfleytt að
gera að hinum alvarlegu meiðsl-
um hans á höfðinu.
í gærdag hafði drengurinn sof-
ið mikið og var líðan hans sögð
vera eftir atvikum.
NÝTT heftl af tímaritinu STEFNI
er komið út, fjölbreytt að vanda.
Er þetta annað hefti þessa árs.
— í þessu hefti er ný smásaga
eftir Indriða G. Þorsteinsson, og
er ekki að efa að mörgum leiki
hugur á að lesa söguna, því að
lítið hefur birzt eftir þennan
unga höfund slðan hann vakti
sem mesta athygli á sér fyrir
„79 af stöðinni“. Þá er viðtal
eftir Valtý Stefánsson ritstjóra,
sem birtist fyrir nokkrum árum
í Lesbók Mbl. Viðtal þetta er við
Tómas Guðmundsson skáld og
sýnir, hvílíkur meistari Valtýr
Stefánsson er í viðtölum. Áform-
að er að Bókfellsútgáfan gefi út
Lesbókarviðtöl Valtýs nú fyrir
jólin, og ætti viðtalið við Tómas
að gefa nokkra hugmynd um
innihald bókarinnar. Þá eru
kvæði í bókinni eftir tvö skáld
sem mikla athygli hafa vakið
undanfarið, þá Jón Dan og Þor-
geir Sveinbjarnarson. Báðir þess-
ir menn eru þekktir að góðum
skáldskap, þótt ekki sé langt síð-
an þeir komu fyrst fram á sjón-
arsviðið, og leikur vafalaust
mörgum forvitni á að lesa nýj-
ustu kvæði þeirra.
Faxasíldar
SKRIFSTOFA Síldarútvegsnefnd
ar skýrði Mbl. svo frá í gær, að
nú væri Faxasíldar-söltunin kom-
in upp í 86—87000 tunnur, en
sem kunnugt er var mikil síld-
veiði í Miðnessjó á laugardaginn
og barst þá mikið magn síldar til
söltunar. í gær komu síldarbát-
arnir aftur að án þess að hafa
getað lagt net sín vegna veðurs.
I gærkvöldi var enn róið en ekki
var búizt við hagstæðu veiðiveðri
á miðum bátanna.
Af öðru efni í ritinu má nefna:
Þorsteinn Þorsteinsson listmálari
skrifar um málverkasýningar sem
hér hafa verið haldnar undanfar-
ið; Ólafur H. Ólafsson á tvö þýdd
ljóð í hefíinu; þá er grein um
franska ferðalanga á íslandi eftir
L. Tissou; grein um Sarte og af-
skipti hans af franska kommún-
istaflokknum; þá er þáttur eftir
Ragnar Ágústsson frá Svalbarði.
Loks má geta þess að í heftinu
eru nokkrar smásögur og kvæði
eftir ungt fólk í framhaldsskól-
unum. — Stefnir er nú eitt víð-
lesnasta menningartímarit lands-
ins, vandað og fjölbreytt.
IGÆRKVÖLDI var haldinn í
Sjálfstæðishúsinu uðalfundur
Sjálfstæðiskvennaíélagsins Hvat-
ar og var hann fjölmennur.
Formaður félagsins María
Maack gerði grein fyrir marg-
háttuðu starfi félagsins á síðasta
starfsári, en félagsstarfið var
margþætt, því ekki einasta lætur
félagið til sín taka á sviði stjórn-
málanna, heldur og hags-
munamál heimilanna hér í bæn-
um. Stendur hagur félagsins með
miklum blóma. Ýmsar ályktanir
voru gerðar á fundinum, og verð-
ur þeirra getið á morgun. — Við
stjómarkjör var stjórn Hvatar öll
endurkosin ásamt endurskoðend-
um, en í stjórninni eiga sæti:
María Maack, formaður; Guð-
rún Pétursdóttir, varaformaður;
Soffía Jacobsen, gjaldkeri; Auður
Auðuns; Kristín L. Sigurðardótt-
ir; Soffía Ólafsdóttir, ritari; Ólöf
Benediktsdóttir, vara-ritari; Val-
gerður Jónsdóttir, gjaldkeri; Gróa
Pétursdóttir; Ásta Guðjónsdóttir;
Ásta Björnsdóttir.
Endurskoðendur eru þær Jór-
unn ísleifsdóttir; Sesselja Kon-
ráðsdóttir og Ólafía Árnadóttir
(til vara).
Er aðalfundarstörfum var lok-
ið, flutti Bjarni Benediktsson
ræðu, og er hún á bls. 3, en að
ræðu hans lokinni bar stjórn fé-
lagsins upp eftirfarandi tillögu
og var hún samþ. samhljóða:
Fundur, haldinn í Sjálf-
stæðiskvennafélaginu Hvöt
hinn 12. nóvember 1956, vott-
ar samúð sína öllum þjóðum,
sem heyja baráttu fyrir frelsi
sínu og sjálfstæði, gegn of-
beldi og yfirgangi annarra
þjóða.
Sérstaklega lýsir fundurinn
samúð og aðdáun sinni á hinni
hetjulegu baráttu ungversku
þjóðarinnar við hina komm-
únisku, rússnesku helkló, sem
ekki aðeins í Ungverjalandi,
heldur alls staðar, þar sem
færi hefur gefizt, hefur hneppt
i fjötra andlegt og veraldlegt
frelsi.
Fundurinn átelur harðlega,
að á þessum viðsjárverðu tím-
um skuli tveir kommúnistar
sitja í ríkisstjórn fslands.
Jafnframt lýsir fundurinn
cindregnu fylgi við hinar ný-
framkomnu tillögur Sjálfstæð-
ismanna á Alþingi í varnar-
málunum.
SlysiS á Langanesi
MORGUNBLAÐIÐ hefur frétt að
norðan, eftir allgóðum heimild-
um þar, að orsök hins hörmulega
slyss á Langanesi á dögunum
hafi orsakazt af stórlega víta-
verðu framferði þess er ók jepp-
anum sem olli slysinu. — Mun
sá maður hafa verið eitthvað að
gantast við piltinn, sem fyrir
bílnum varð með þeim afleiðing-
um, er kunnar eru, og hafi
maðurinn á jeppanum teflt
svo djarflega, að hann missti
hreinlega stjórnina yfir bílnum
í þessum hættulega leik.
Skýrslan um slys þetta mun
nú vera að komast í hendur yfir-
valdsins á Keflavíkurflugvelli, og
mun þá væntanlega fást úr því
skorið hvort þessi frétt er rétt.
í gærkvöldi fór fram dráffur í bílhappdræffi
SjállsfæÖisflekksins. — Fullfrúi borgarfógefa
annaöisf úfdrátf og kom upp nr. 8000. Þennan
miöa seldi lífil sfúlka á göfunni hér í bænum
2. okióber síðastliöinn.
Nýft fjölbreytt befti af
Sfefni komið út
Saga eftir Indriða G. Þorsteinsson, viðtal við Tómas,
ljóð eftir Þorgeir og Jón Dan o. fl.