Morgunblaðið - 17.11.1956, Page 16
265. tbl. — Laugardagur 17. nóvember 1956
Launamálin efst á baugi
með starfsmönnum ríkis
c j bœja
Þirag þeirra var sett í gær
IGÆR var sett 18. þing Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja. Var þingið sett í Melaskólanum, en þar fer það
fram. Ólafur Björnsson prófessor formaður sambandsins
setti þingið og bauð alla fulltrúa velkomna til starfa.
ieppfnn sem fór í gljúfrið
með drenginn
Sl. laugardag varð slys við
brúna á Skjálfandafljóti, er jeppi
rann stjórnlaus niður í gljúfur
við brúna, Var lítill drengur í
bílnum, Páll Þorlákur Pálsson,
frá Laugum, sem stórskaddaðist
á höfði og liggur nú í Akureyrar-
spítala. Myndin að ofan sýnir
slysstaðinn og bílinn niðri í
gljúfrinu. Hin myndin sýnir
hvernig bíllinn var útleikinn eft-
ir að hann hafði farið í loftköst-
um niður skriðu sem liggur ofan
af gljúfurbarmi og niður á 4 m
hátt berg, en bíllinn valt fram af
því og kom réttur á hjólin niður
í stórgrýtið. Þar var litli dreng-
urinn tekinn út úr flaki bílsins.
Má það teljast furðulegt að hann
skyldi sleppa lifandi, því ekki
var það vitað fyrr en nú, að
engin yfirbygging var á bílnum,
heldur aðeins tjaldhús.
Færeybgar vifija fara a5
*
dæmi Islendinga
KVEÐJA FRÁ
BANKAMÖNNUM
í upphafi fundarins gat Ólafur
Bjömsson þess að fulltrúi frá
sambandi bankamanna sæti þing
ið sem áheyrnarfulltrúi. Er það
Einvarður Hallvarðsso-n. Flutti
hann þinginu kveðjur frá félagi
sínu og ræddi um vandamál þau
sem framundan væru í efnahags-
málum landsmanna. Kvaðst hann
vonast til þess að ríkisstjómin
hefði náið samstarf við BSRB um
lausn erfiðleika þeirra sem að
steðjuðu.
200 FULUTRÚAR
Þá var flutt álit kjörbréfa-
nefndar og voru kemin fram
kjörbréf frá 108 aðalfulltrúum
og 94 varafulltrúum frá alls 24
sambandsfélögurn. Voru þau öll
samþykkt umræðulaust. Að því
loknu lá fyrir að kjósa embætt-
ismenn.
Formaður sambandsins, Ólafur
Björnsson, skýrði frá þvi að
Helgi Hallgrímsson, sem setið
hefir alla fundi sambandsins
nema hinna fyrstu og jafnan
verið forseti þess, gæti nú ekki
sótt þingið að þessu sinni. Las
hann upp bréf frá Helga þar
sem hann þakkaði þingmönnum
ágætt samstarf á liðnum árum og
ámaði þeim heilla í starfi sínu.
Samþykkti þingið að senda Helga
þakkarskeyti.
Þá vcru kjörnir forsetar þings-
ins og hafði stjómin gert tillögur
um þessa menn:
Björn L. Jónsson
Júlíus Björnsson
Maríus Helgason.
Ritarar:
Guðjón Gunnarsson
Ársæll Sigurðsson
Karl Halldórsson
Aðalsteinn Nordal.
SKÝRSLA STJÓRNAR
Að lokinni kosningu embættis-
um starfið á liðna árinu, en að
því loknu var kosið í nefndir
þingsins sem em allmargar. —
Munu þær starfa á morgun en
í gærkvöldi var ekki fullráðið
manna gaf stjórnin skýrslu sína
hvort aðeins yrðu nefndafundir
í dag eða einnig þingfundir.
Aðalefni skýrslu stjómarinn-
ar um starfið á árinu fer hér á
eftir:
LAUNAMÁLIÐ
Frá því er síðasta aukaþingi
bandalagsins lauk í maí 1955 hef-
ir launamálið verið mikilvægasta
málið, er stjóm bandalagsins
hefir haft til meðferðar.
Nefnd sú er ríkisstjórnin skip-
aði haustið 1954 til þess að undir-
búa setningu nýrra launalaga,
skilaði áliti sínu í sept. 1955.
Samkvæmt tillögum í.efndarinn-
ar skyldu grunnlaun opinberra
starfsmanna hækka um 9—10%
frá gildandi launalögum að við-
bættri 20% hækltun. Greidd
skyldi ennfremur full dýrtíðar-
uppbót skv. gildandi kaupgialds-
vísitölu á öll laun. Ennfremur
voru nokkrjr starfshópar og ein-
staklingar hækkaðir um 1—2
launaflokka. Frumvarp til launa-
laga var svo sem ráð hafði verið
fyrir gert lagt fyrir Alþingi í
byrjun nóv. 1955. Allmargar ósk-
ir um hækkanir í launaflokkj til
handa starfshópum og einstakl-
ingum bárust fjárhagsnefndum
þingsins frá bandalagsfélögunum.
Var öllum þeim erindum vísað
til launalaganefndar til umsagn-
ar og voru flestar þær hækkunar
beiðnir er nefndin mælti með
teknar til greina með breytingar-
tillögum, er fjárhagsnefndimar
fluttu við frv. Lögin voru endan-
lega samþykkt fyrir jól 1955.
Verður nánari grein gerð fyrir
launalagafrv. og meðferð þess í
framsögu af hálfu bandalags-
stjómarinnar.
ORLOF OPINBERRA
STARFSMANNA
í samningum atvinnurekenda
og verkalýðsfélaga eftir verkfall-
ið 1955 var ákveðið að orlofsfé
skyldi hækka úr 5% í 6% af
greiddu kaupi. Þar sem svo langt
var þá liðið á orlofsárið (er
reiknað er frá 1. júlí til 30. júní),
gerði stjóm bandalagsins ekki
kröfu til lengingar orlofs sumarið
VAR AÐ HAGRÆÐA MÖR
Slysið vildi til laust fyrir kl. 9
um morguninn. Var Skarphéðinn
að hakka mör í vélinni, og var
hann að hagræða honum, er hann
varð fastur í hakkaranum, með
hægri hendi.
AðTörun til bílstjóra
á Vaðlaheiði
HÚSAVÍK, 16. nóvember. —
Slys á þjóðvegum eru nú alltíð
og er því rétt að benda á hættur
sem ástæða er til að bæta úr,
áður en slys hljótast af.
Biíreiðastjórar sem aka um
Vaðlaheiði um þessar mundir,
hafa sérstaklega tekið eftir því,
nú í snjóleysinu, að þar sem
vegbrúnir eru graslausar, sem er
víða vestan í heiðinni, eru ræsi
sem lögð eru gegn um þjóðveg-
ina, miklu mjórri en sjálfur veg-
urinn, en hættumerki eru engin
á þessum stöðum. Þessir vega-
tálmar sjást venjuiega illa, fyrr
en fast er komið að þeim. Fylgir
þessu mikil slysahætta.
Bifreiðaeftirlitið mun hafa
kvartað um þetta við vegamála-
stjóra og vill fá úr þcssu bætt.
Bílstjórar telja hættuna aukast
að mun þá snjóa fer og allt blind-
ast.
Er hér með á þetta bent, í
trausti þess, að úr verði bætt, áð-
ur en slys hljótast af.
Fréttaritari.
1955, en fékk loforð þáverandi
ríkisstjórnar fyrir því, að orlof
opinberra starfsmanna skyldi á
næsta ári lengt til samræmis við
lengingu orlofs á almennum
vinnumarkaði. Á sl. vetri bar
stjóm bandalagsins fram kröfu
um það að öll orlof opinberra
starfsmanna yrðu lengd um 3
daga. í reglugerð um orlof opin-
berra starfsmanna, er út var gef-
in í marz s.l. voru 15 og 18 daga
orlofin lengd um 3 daga, en
lengri orlof látin haldast óbreytt.
Fyrir Alþingi það, er nú situr,
hefir verið lagt frv. til staðfest-
ingar reglugerð þessari. Stjóm
bandalagsins hefir lýst þeirri
skoðun sinni gagnvart ríkisstjóm
inni að hún teldi ákvæði frum-
varpsins ófullnægjandi lausn á
orlofsmálinu og hefir enn eigi
náðst um það samkomulag.
ÞING NORRÆNNA
BÆJASTARFSMENN
í REVKJAVÍK
í lok júnimánaðar sl. var háð
hér í Reykjavík fulltrúaþing nor-
rænna bæastarfsmanna. Annað-
ist stjórn bandalagsins, Starfs-
mannafélög Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar, Reykjavíkurbær
og Hafnarfjarðai'kaupstaður mót-
tökumar. Fulltrúaþingið fór hið
bezta fram og virtust erlendu
fulltrúarnir vera mjög ánægðir
með förina.
GAT STÖÐVAÐ VÉLINA
SJÁLFUR
Enginn var viðstaddur er slysið
vildi til. Gat Skarphéðinn sjálfur
stöðvað vélina, en hún klippti
sundur handlegginn í einni svip-
an. Gat hann síðan kallað til sam-
starfsmanna sinna, og var þegar
hringt á sjúkrabíl, en hann var
þá ekki viðlátinn. Var þá náð í
aðra bifreið og var búið að flytja
Skarphéðinn til sjúkrahússins að
fimm mínútum liðnum frá því
slysið varð.
LÍÐUR EFTIR ATVIKUM
Á sjúkrahúsinu var þegar í
stað gert að sárum Skarphéðins,
sem ekki eru lífshættuleg. Hon-
um leið í kvöld eftir atvikum
BIRKERÖD, 16. nóv..
Einkaskeyti tii Mbl.:
Er kunnugt varð, að fisk-
löndunarbanninu væri afiétt
í Englandi og sýnt, að Englend
ingar hefðu beygt sig fyrir
kröfum íslendinga um útvíkk
un landhelginnar, fór Djur-
huus lögmaður í Færeyjum
þess á leit við Elkjær Hansen,
ríkisumboðsmann, að hann
gengist fyrir því, að Danir og
Englendingar héldu áfram
sanmingaviðræðum viðvíkj-
andi kröfum Færeyinga um
útvikkun fiskveiðitakmark-
anna. Mun danska stjórnin
verða við kröfum Færeyinga
en mun ekki láta til skarar
skríða fyrr en hún hefur
kynnt sér fyllilega lok ensk-
íslenzku deilunnar.
Franska sendi-
ráðið stefnir blaði
kommúnista
Frá sendiráði Frakka
hér í Reykjavík barst
Mbl. eftirfarandi í gær-
kvöldi:
„í tilefni af því, að starfs-
manni í sendiráði Frakka var
nýlega sagt upp atvinnu, birti
dagbiaðið Þjóðviljinn 13. þ.
m. undir fyrirsögninni „Ó-
sæmileg þátttaka sendiherra
Frakka í æsingum íhaldsins"
grein, sem felur í sér óhæfi-
leg afskipti af starfsemi er-
lends sendiráðs inn á við og
þar að auki, vegna orðalags-
ins, freklega móðgun við
sendiráðherrann persónulega
og við það land, sem hann er
fulltrúi fyrir.
Þar eð slíkt athæfi varðar
við lög á íslandi eins og í öðr-
um menningarlöndum, hefur
sendiherra Frakka ákveðið að
gera nauðsynlegar ráðstafanir
til þess, að mál þetta sæti með
ferð sakmála, eins og lög
standa til, en hjá því telur
hann, að eigi verði komizt.
Reykjavík, 16. nóv. 1956“
vel. — Job.
ÁrskáSáð Sjálislæðis-
félaganna í Keilavík
4RSHÁTÍÐ Sj álfstæðisfélaganna í Keflavík verður haldin í
Ungmennafélagshúsinu í Keflavík n.k. laugardag, 17. þ. m.
kl. 9 síðd. Formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna, Alfreð
Gíslason, bæjarfógeti setur hátíðina, en ræðu flytur þingmaður
kjördæmisins: Ólafur Thors, form. Sjálfstæðisflokksins. — Form.
Sjálfstæðisfélags Keflavíkur, Friðrik Þorsteinsson, stjórnar sam-
komunni.
Þuríður Pálsdóttir og Magnús Jónsson, óperusöngvarar syngja
einsöng og tvísöng og Sigríður Hannesdóttir fer með gamanvísur.
Að síðustu verður stiginn dans.
Aðgöngumiðar að árshátíðinni verða seldir í Ungmennafélags-
b.úsinu í Keflavík í dag kl 4—7 e. h. og frá kL 4 á laugardag.
Ilaiiir á Akureyri missir hendi otf
nokkuð af handlegg í hakkavél
Gaf sjáfifur sfödvað hakkavélina
Akureyri, 16. nóvember.
IMORGUN vildi það slys til hér á Akureyri, að maður lenti
með hendi í kraftmikilli hakkavél í pylsugerð KEA og tók
af hendina og upp að miðjum framhandlegg á manninum. Var
þetta verkstjóri pylsugerðarinnar, Skarphéðinn Karlsson.