Morgunblaðið - 09.12.1956, Blaðsíða 9
Sunnudagur 9. des. 1956.
MORGUHBLAÐ1D
Fimmtugur i dag:
Jón Sigtirlfsson slökkviliðsstjóri
Á MORGUN, mánudaginn 10.
des., á Jón Sigurðsson, slökkvi-
liðsstjóri, fimmtíu ára afmæli. —
Jón er Reykvíkingur, borinn og
barnfæddur. Ekki kann ég ætt
hans að rekja, enda á þetta ekki
«ð vera nein minningargrein um
manninn, heldur verða þetta
nokkur orð um ungan, hugþekk-
an drengskaparmann, eins og ég
þekki hann eftir margra ára
kynni, sem yfirmanns mins og
húsbónda á Slökkvistöð Reykja-
víkur. Jón Sigurðsson er fjölhæf-
um og góðum gáfum gæddur;
hann er vel menntaður verkfræð-
ingur, og var námsferill hans
allur hinn glæsilegasti. Eins og
að líkum lætur, hefur Jón notið
trausts sinna samtíðarmanna, og
á hann hafa hlaðizt mikilvæg og
margvísleg störf í fæðingarborg
hans. Fyrir utan slökkviliðsstjóra
ítarfið hefur hann nú um nokk-
urt skeið gegnt störfum vatns-
veitustjóra og haft á hendi þýð-
ingarmikil störf í loftvarnar-
nefnd. Eru þetta hvort tveggja,
þó ekki fleira sé talið, allumfangs
mikil störf og að nokkru tengd
slökkviliðsstjórastarfinu í fram-
kvæmd.
Jón Sigurðsson er gæddur
góðri skapgerð og á létt með að
blanda geði við þá sem með hon-
um vinna, jafnt háa sem lága, og
á hann fyrir það miklum vin-
sældum að fagna. Honum lætur
vel létt kimni og gamansemi,
jafnt í bundnu sem óbundnu
máli, en allt er það gaman,
sársauka- og græskulaust.
Jón Sigurðsson er mikill
íþróttaunnandi, sérstaklega þó
knattspyrnu, enda vel hlutgengur
þar á yngri árum, og þarf ekki
lengi við manninn að ræða um
þau mál til að vita í hvaða félagi
hann hefur átt heima en það er
í Knattspyrnufélaginu Fram. Jón
hefur oft verið í forystuliði
þeirra, sem haft hafa á hendi mót
tökur erlendra knattspyrnuliða,
enda tungumálamaður ágætur.
Jón Sigurðsson er með afbrigð-
um velviljaður maður, og vill
alH gera sem mögulegt er til að
leysa vandkvæði þeirra, sem til
hans leita hverju sinni í sam-
bandi við störf þau og stofnánir,
»em hann veitir forystu.
Þeir sem eiga Jón Sigurðsson
að yfirmanni finna að þar eiga
þeir veglyndum manni að mæta,
sem í engu vill annan ofríki
beita, en vill stjórna með hðg-
værð og mildi, og veit ég ekki
hvort allir kunna að meta það
eins og vert er, að eiga undir
slíka menn sín mál að sækja við
hin daglegu störf.
Jón Sigurðsson er hugkvæmur
margt, eins og verkfræðing-
*r eiga að vera.
í byrjun starfs síns sem
slökkviliðsstjóri kom hann fljótt
auga á nytsemi háþrýstibíla við
slökkvistörf, og fékk þá strax
einn slíkan bíl á slökkvistöðina.
Hefur sá bíll reynst eins og hann
sá strax fyrir, ómissandi í hverri
raun. Síðar hefur svo annar
bætzt við í þrengslin á okkar
gömlu, góðu slökkvistöð. Nú veit
óg að áhugamál Jóns Sigurðsson-
ar, slökkviliðsstjóra, er bygging
nýrrar slökkvistöðvar, þar sem
rýmra verður um allt og betur
má fara um tæki stöðvai-innar,
hirðu þeirra og nytsemi, og vona
óg að honum verði þar fljótt og
vel ágengt.
Jón Sigurðsson er giftur hinni
mestu ágætiskonu, Karen Guð-
mundsdóttur. Eiga þau hjónin
tvær vel gefnar dætur, Elísabetu
©g Sigríði. Margar hlýjar óskir
munu berast til þeirra hjóna í til-
efni fimmtíu ára afmælis hús-
bóndans, sem nú dvelur erlendis
i erindum þeirra stofnana sem
hann veitir forstöðu, en sú fjar-
lægð mun þó ekki hindra það, að
kveðjur og óskir berist til hans
í blæ þessa desemberdags þang-
að sem hann nú dvelur, frá hin-
um fjölmörgu vinum hans hér
heima og þar vil ég fá að vera
með. Ég þakka svo minum ágæta
yfirmanni fyrir vinsemd alla
mér auðsýnda og óska honum,
fyrir mína hönd og starfsfélag-
anna á slökkvistöðinni, hjartan-
lega tii hamingju með íimmtugs
afmælið. Meigi framtíðin veita
honum og fjölskyldu hans sem
fiestar lífsins gjafir, góðar o
hollar, úr sínum hamingjusjóð
Kjartan Ólafsson.
varðstjóri.
1 l jmbúðapappír 4«—57 cm ■ m r
2 imjorpappir 33 X »4 om — X 7í rm.
i íoiletpappfr 100 rl. í kassa. Hagsteett verð.
i BIAIEBIKTSSOAI H.F. Hafnarhvoll — Sími 1228.
Cocoa
Nýkomið
H. BENEDiKTSSOItl N.F.
Hafnarhvoll — Sími 1228.
Atvinna
Opinber stofnun vill ráða marvn til að annast bókhald,
gjaldkerastörf o. fl. frá og með 1. febrúar næctkomandi.
Umsóknir (merktar ,,S.B.) ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist í pósthólf nr. 160 fyrir
27. desember.
Einkarifari
Stúlka vön skrifstofustörfum, með góða ensku- og
vélritunarkunnáttu, óskast nú þegar eða frá ára-
mótum til starfa sem einkaritari hjá stóru fyrir-
tæki í Reykjavík.
Umsóknir sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 12. þ.
m., merktar: EINKARITARI —7343.
Kœrkomnar
Jólagjafir
Fyrir dömur: Snyrtivörur —
HELENA RUBIN STEIN
YARDLEY
MAX FACTOR
REVLON
NUMBER SEVEN
CUTEX — SANS ÉGAL o. fL
Úrval af
ILMVÖTNUM — STEINKVÖTNUM
GJAFAKASSAR — SNYRTITÆKI
(manicure set)
Fyi'ir herra:
OLD SPICE — gjafakassar
— rakspritt
— rakkrem
— Eau de Cologne
YARDLEY — talcum
— brilantine
— hárvatn
— Eau de Cologne
Veski með snyrtitækjum o. fl.
AUSTURSTRÆTI 16 (Reykjavíkur apóteki)
SIMi: 82666.
( B A LLE RUP)
MASTER
MIXER
P^-Krærivélar
Master Mixer Litli Mixer
Hrærivélarnar, sem aldrei bregðast
Einkaumboðsmenn:
LUDVIG STORR & CO.
Nýkomið ísaumað vatterað
rúmteppaefni
Gardín ub úðin
Laugavegi 18
Forðist slysin
Splflýsandi borðor
og gler — (kattaraugu)
höfum við fyrirliggjandi
fPSle/únssöníf\
/03-sími3*f50