Morgunblaðið - 11.12.1956, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 11.12.1956, Qupperneq 10
10 MORGV iSBLAÐIfí Þriðjudagur 11. des. 1956 Ný íslenzk skdldsaga eftir Eggert Ö. Brim * Skáldsagan Sæunn og Sighvatur, sem nú birtist hér í fyrsta sinn á prenti, segir meðal annars frá ungri stúlku, sem grunuð er um að vera völd að dauða foreldra sinna og verður því að fara huldu höfði þangað til upp komast svik um síðir. Sagan er skemmtileg afiestrar og í henni eru góðar lýsingar á hugsunarhætti og lífi fólks á þeim tíma, er hún gerist, og sennilegt að hún verði ekki síður vinsæl af lesendum en skáldsagan Aðalsteinn, eftir séra Pál Sig- urðsson, sem Bókaútgáfan Fjölnir gaf út í fyrra. Bókaútgáfan Fjölnir ♦» T T t f t t t ♦♦♦ HÚSGÖGN Stofuskápar, sófaborð, — margar gerðir. Útvarpsborð og fleira. — Trésmiðjan Nesvegi 14. ATVINNA Ungur maður getur fengið hreinlega atvinnu fram að jólum. Nafn og heimilisfang sendist afgr. Mbl. fyrir kl. 6 í dag merkt: „Atvinna 10 — 7350“. ÉG KAUPI mín glcraugu hjá T ¥ L I, Austurstræti 20, því þau eru bæði góð og ódýr. Recept frá öllum læknum afgreidd. Vestur-islenzka skáldkonan kynnt v MGS VERBA HJÚIN V(S“ Nokkrar smásögur eftir Arnrúnu frá Felli Helgi Sæmundsson, ritstjóri, skrifar unt þessa bók: Góð og skemmti- leg bók Vinnubrögð Arnrúnar frá Felli leiða í ljós, að hún er víð- lesin og nákunnug erlendri smásagnagerð. Skáldkonan kann prýðilega að segja sögu......Arnrún frá Felli gerist oft hreinskilin og opinská, fjallar af nærfærni og innileik um mannleg örlög, rekur leit sögufólksins að hamingju og gleði, fjallar um ástir og sálræn vandamál og hefur yndi af að segja frá, svo að vinátta tekst með henni og lesand- anum. Hún ræður yfir tækni, sem hentar smásögunni....... Undirritaður sér ekki betur en Arnrún frá Felli beri sæti meðal beztu kvenrithöfunda okkar, er smásögur hafa samið undanfarna áratugi. Guðrún Tómasdóttir, sem kallar sig að höfundarnafni Arnrún frá Felli, er- borin og barnfædd heima á íslandi, Árnesingur að ætt, fæddist árið 1886, hjúkrunarkona að menntun, en fluttist til Bandaríkjanna 1917, giftist þar háskólakennara af íslenzku kyni, Charles F. Bjarnason, en er nú ekkja. Ung hóf hún ritstörf og kvaddi sér hljóðs á 'skáldaþinginu fyrir vesturförina með smásögum í Eimreið- inni og Iðunni. Vöktu þær athygli og þóttu spá góðu. Eftir að skáldkonan fluttist til Ameríku hafa birzt eftir hana smásögur í tímariti þjóðræknisfélags íslendinga, en bók frá hennar hendi kemur fyrst nú — og því ekki vonum fyrr. Bezt að auglýsa í MORGUNBLAÐINU ATHUGID Síðasta blaðið fyrir jól kemur út á Þorláksmessu (sunnudagur) Handrit að stórum auglýsingum sem birtast eiga í því blaði þurfa að berast auglýsingaskrifstof- unni sem allra fyrst og í síðasta lagi nk. föstudag 14. þ. m. 3ezt að auglýsa i Morgunbladinu — Stúlka óskast til skrifstofustarfa hjá iðnfyrirtæki hálfan eða allan daginn. Vélritunarkunnátta nauðsynleg og helzt einhver þjálfun í skrifstofustörfum. — Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgr. Mbl. fyrir miðvikudagskvöld, merkt: „Framtíð — 7353“. Nýjar gerðir SKRIFBORÐ SPILABORÐ TÆKIFÆRISBORÐ HÚSGAGNAVERZLUNIN Laugaveg 36 — Sími 3131

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.