Morgunblaðið - 11.12.1956, Blaðsíða 24
Veðrið
-Skinnan og suðvestan atinings
kaldi, él.
orðwnMaíiíiií
295. tbl. — Þriðjudagur 11. desember 1956
dagar
til SÓLA
Eisenhower neitar að samþykkja
hækkun fisktolla í Bandaríkjunum
Efnahagslegur styrkleiki vinafjjóðanna
hefur mikla þýðingu í baráttunni
gegn kommúnismanum
Washington, 10. desember.
P^ISENHOWER forseti neitaði í dag að heimila tollahækk-
anir á fiskflökum, sem aðallega eru flutt inn til Banda-
ríkjanna frá Kanada, íslandi og Noregi. Forsetinn tók þessa
ákvörðun þrátt fyrir einróma meðmæli bandarísku tolla-
nefndarinnar um að fisktollur þessi yrði hækkaður til
verndar innlendum fiskveiðum og fiskiðnaði.
STUÐLAR AÐ AUKNUM
VIÐSKIPTUM
í greinargerð fyrir þessari
ákvörðun sinni segir Eisen-
hower forseti, að hann geti
ekki fallizt á það, að tolla-
hækkunin sé skynsamleg ráð-
stöfun til að leysa vandamál
bandarísks sjávarútvegs. —
Hann sagði það stefnu Banda-
ríkjanna, að stuðla að aukn-
ingu hagkvæmra verzlunar-
viðskipta meðal frjálsra þjóða
og sagði síðan orðrétt:
VINVEITTAR ÞJÓÐIR
Ég er ófús að setja höft
á verzlun vinveittra þjóða
við okkur, nema þá að slík-
ar aðgerðir séu nauðsyn-
legar og muni augljóslega
gefa jákvæðan árangur í
framleiðslu þess atvinnu-
vegar, sem í hlut á.
Tregða mín á að setja á
slík höft verður þeim mun
meiri í þessu máli fyrir það
að þær þjóðir, sem hér eiga
hlut að máli eru nánir vin-
Verð á fiski fil U5A
hœrra en til Rússlands
enda meira unnin vara
ÞEGAR umræður stóðu fyrir nokkru í bæjarstjórn Reykjavíkur
um lántöku til Sogsvirkjunar og um það að fáanlegt væri lán
í Bandaríkjunum stóðu þar upp fulltrúar kommúnista og sögðu
að hagkvæmara væri að taka slík lán í Sovétríkjunum. Sögðu þeir
m a. að auðveldara væri að greiða upp sovézk lán vegna þess að
íelenzki fiskurinn seldist á hærra verði til Sovétríkjanna. Þetta
ei alrangt eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna, sem blaðinu hefur borizt og hljóðar á þessa
leið:
í sambandi við umræður, sem
urðu nýlega á fundi í bæjarstjóm
Reykjavíkur um erlendar lántök-
ur og um markaðsverð á fiski í
Bandaríkjunum og Sovétríkjun-
um, óskar Sölumiðstöð hraðfrysti
húsanna að taka fram eftirfar-
aadi, svo að það komi fram, sem
sannast er:
Verð á hraðfrystum fiski til
þessara tveggja markaðslanda er
sem hér segir skv. söluáætlun
S.H. fyrir næsta ár:
Fob-verð á hraðfrystum þorski
tii Bandaríkjanna kr. 5580.00
fyrir hverja smálest.
Til Rússlands er fob-verð mið-
að við árið sem er að líða kr.
5326.00 fyrir hverja smálest.
Fob-verð á hraðfrystum karfa-
flökum er sem hér segir:
Til Bandarikjanna kr. 5755
fyrir hverja smálest.
Til xRússlands kr. 5203 fyrir
hverja smálest.
Þar að auki er rétt að geta
þess, að allur steinbítur og nærri
»11 ýsa fer á Bandaríkjamarkað
fyrir mikið hærra verð en hinar
tegundimar. Fæst hærra verð
fi'rir hraðfryst ýsuflök í Banda-
ríkjunum en í nokkru öðru landi.
Frá þessu þykir rétt að skýra
vegna . villandi ummæla, sem
birzt hafa um verð á freðfiski
til hinna ýmsu markaðslanda.
Það kemur í ljós af þessari til-
kynningu Sölumiðstöðvarinnar,
*ð fiskurinn til Bandaríkjanna
eelst fyrir hærra verð en fiskur-
inn til Sovétríkjanna. Pakkning-
ar fisksins munu þó ekki vera
alveg sambærilegar til þessara
tveggja landa. Er mismunurinn á
verði m. a. fólginn í því að fiskur-
inn til Bandaríkjanna er meira
unninn og pakkning og frágangur
meiri.
ir okkar og að efnahagsleg-
ur styrkleiki þeirra hefur
stórvægilega þýðingu í
áframhaldandi baráttu okk
ar gegn ógnum heimskomm
únismans.
Það þarf varla að taka það
fram, að þessari ákvörðun Eisen-
howers forseta er fagnað hér á
landi, því að íslenzkur sjávarút-
vegur á mikið undir því komið,
að fisksölur til Bandaríkjanna
geti haldið áfram.
Skemmdir í rokinu
í fyrrinótt
I fyrrinótt gerði afspyrnurok
hér um sHðvestanvert landið. Á
Kjalarnesi varð veðurhæöin slík
að talið er með fádæmum.
Skemmdir urðu á mannvirkjum
þar efra. Fauk þak af hlöðu í
Lykkju en í hlöðunni voru 1200
hestar af heyi, en litlar skemmdir
lurðu á því. Uppborið hey, sem
stóð úti á Sjávarhólum fauk
einnig.
Ný umferðarlög
á döfinni
Á FUNDI með blaðamönnum
í gærdag skýrði Sigurjón Sig-
urðsson, lögreglustjóri frá
því, að nefnd sú, undir lians
forsæti, er kjörin var til þess
að semja umferðarlög, hefði
fyrir nokkru skiiað frumvarpi
sínu til dómsmálaráðuneytis-
ins. Þar væri verið að leggja
hönd að því, og búa það und-
ir flutnmg á Alþingi.
Lögreglustjóri kvaðst af
skiljanlegum ástæðum ekki
geta rætt uin í.-umvarp nefnd-
arinnar nú, en þar væri mý-
margt nýjunga, því að þótt
núgildandi umferðarlög væru
ekki gömul að árum, væru þam
orðin mjög úrelt.
Ríkisstjórnin ber
ábyrgð á milljóna-
tjóni í sambandi við
olíuflutningana
INGÓLFUR JÓNSSON frv. viðskiptamálaráðherra birti
grein hér í bláðinu s.l. sunnudag þar sem hann tekur
til meðferðar þá yfirsjón rikisstjórnarinnar að neita olíu-
félögunum um að leigja 15 þús. tonna skip fyrir 120 shill-
inga pr. smálest. Afleiðingin af neituninni var sú, að leigja
varð skip fyrir 220 sh. tonnið. Beint tjón vegna þessara mis-
taka ríkisstjórnarinnar er því 100 shillingar á tonn, miðað
við 15 þús. tonna skip eða hátt á 4. milljón króna.
„Ber ríkisstjórnin öll á herðum sér þann syndabagga, sem
af því leiðir, að togaraolían hækkar hátt á 3. hundrað kr.
tonnið og reksturskostnaður togaranna um 2 þús. kr. á dag,“
segir Ingólfur Jónsson.
Þannig er þá ráðsmennska ríkisstjórnarinnar. Hún neitar
að taka tillit til þeirrar staðreyndar að vegna Súez-deilunn-
ar var skipamarkaðurinn ört hækkandi, neitaði að hlusta
á leiðbciningar þeirra, sem vit höfðu á málunum og afleið-
ingin var svo stórtjón, sem lendir á útgerðinni, og þar með
á öllum aimenningi í landinu. Eí þessi ríkisstjórn tórir eitt-
hvað verður þetta vafalaust ekki seinasta glappaskot hennar,
sem almenningi verður að blæða fyrir.
Olíuskipið Hamrafell liggur á Skerjafirði. Stærsta skip isl. flotana.
Olíuskipið Hamrafell
komið í höfn frá Japan
Stærsta skip íslenzka flotans
17.000 lestir
NÝLEGA er komið til landsins olíuskip SÍS og Olíufélagsins,
Hamrafell, en það er stærsta skip íslenzka flotans eða um 17000
smálestir. Skip þetta getur annað um helmingi af olíuflutningum
til landsins eða i’lutt um 160.000 lestir á ári. Það er keypt frá Noregi,
en komið hingað frá Japan, þar sem það var í leigu. Tók ferðin yfir
2 mánuði. ísleuzk skipshöfn sigldi skipinu en skipstjóri þess er
Sverrir Þór.
MIKIÐ SKIP
Hamrafell er byggt 1952 í Ham
borg. Það er 11.488 brúttólestir
og skríður 14 mílur. Flutt getur
það 15.500 lestir af olíu í hverri
ferð.
Geysistór díselvél knýr skipið
og er olíuþörf hennar 23 lestir á
sólarhring. Skipið er búið nýj-
ustu siglingatækjum, ratsjá, mið-
unarstöð, dýptarmæli og gyro-
áttavita. Skipshöfn telur um 40
manns og eru allir skipverjar ís-
lenzkir.
MIKIL VERÐHÆKKUN
Hamrafell er 7. skip skipadeild-
ar SÍS. Það er keypt af norskum
útgerðarmanni og voru samning-
ar undirritaðir í Noregi í vor. Var
SÍS og Olíufélagið sérlega hepp-
ið með kaupin, þar sem verð olíu-
skipa hækkaði gífurlega skömmu
eftir að samningar voru undirrit-
aðir, en nú er svo málum komið
að engin olíuskip eru á markaðn-
um sökum Súezdeilunnar. Kaup-
verð skipsins er um 45 millj. kr.
80% af þeirri upphæð lánaði við-
skiptabanki SÍS í New York,
National City Bank, en 20% lán-
aði norski útgerðarmaðurinn sem
seldi skipið. Lánin eru til 5 ára
en samkvæmt íslenzkum lögum
má afskrifa skip á 5 árum.
í viðtali við blaðamenn í gær
lagði Erlendur Einarsson, forstj.
SÍS, áherzlu á það að lán þessi
hefðu fyrst og'fremst fengizt slík
vegna þess að til skipakaupanna
er stofnað á breiðum grundvelli.
Eigendur skipsins eru Skipadeild
SÍS og Olíufélagið en að þvi
standa mörg einkafyrirtæki. Gat
Erlendur þess og að engin ríkis-
ábyrgð væri að baki láni þessu.
Hjörtur Hjartar, forstjóri
Skipadeildar SÍS, gat þess í ræðu
í gær, í veizlu, sem kaupendurnir
héldu ýmsum aðilum, sem þeim
eru tengdir að fyrir 20 árum
hefði farmur skips þessa í einni
ferð fullnægt olíuþörf þjóðarinn-
ar. Nú getur skipið flutt um 50%
af olíuneyzlu þjóðarinnar á ári.
Þess má geta, að íslendingar eru
mesta olíuneyzluþjóð í heimi,
rúmlega 2 lestir koma á hvert
mannsbarn. Nú eru til 3.600 olíu-
skip í veröldinni, samtals um 44
millj. lesta. Ein lest af hverjum
tveimur sem flutt er til landsins
er olía og gildir hið sama er-
lendis þannig, að um 50% af öll-
um flutningi á sjó er olía.
KEYPT Á RÉTTUM TÍMA
Erlendur Einarsson gat þess að
sérstök heppni hefti verið um
þessi skipakaup, þar sem verS
oliuskipa hefði hækkað gífurlega
skömmu eftir að samningar voru
gerðir, vegna Súez-deilunnar,
svo og allar olíufragtir, en þær
eru nú um 220 shillingar á lest-
ina.
í hófi því sem skipseigendur
héldu í gær fluttu m.a. Eysteinn
Jónsson, fjármálaráðherra, og
Vilhjálmur Þór, bankastjóri,
,ræður og óskuðu eigendum hina
nýja skips allra heilla.
Skók-keppnin
1. BORÐ
Svart: Akureyrl
(Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss-J
ABCDEFGH
Hvítt: Reykjavík
(Ingi R. Jóhannsson)
4. Rbl—c3.
2. BORÐ
Svart: Reykjavík
(Björn Jóhanness.- Sv. KristinsshJ
ABCDEFGH
Hvítt: Akureyri
(Ingimar Jónss. - Kristinn JónssfeJ
............Bf8—b4