Morgunblaðið - 23.12.1956, Síða 2

Morgunblaðið - 23.12.1956, Síða 2
2 MORCUNBIAÐIÐ Sunnudagur 23. ctes. 1956 Rússneska herstjórnin í Ung- verjalandi hótar liðhlaupum hörðum refsingum VÍNARBORG, skv. frásögn Daily Telegraph TII, VÍNARBORGAR hafa nú borizt blöð sem gefin eru út af rússneska hernámsliðinu í Ungverjalandi til dreif- ingar meðal hermannanna. Er í blöðum þessum viðurkennt, að hermenn hafi hlaupið úr liði og eru greinar um þetta skrifaðar í þeim anda að svo virðist sem rússneska her- stjórnin óttist liðhlaup mjög. Eru birtar hótanir til lið- hlaups og hrollvekjandi frásagnir af því að liðhlaupar séu tafarlaust skotnir. Átfi að rœna börnunum „HVÍSLSÖGUR" í einu þessara blaða er athygl- isverð grein, þar sem rússneskir hermenn eru hvattir til að trúa ekki „hvíslsögum“ tmgverskra afturhaldssinna og andbyltingar- manna um að verkalýður Ung- verjalands berjast gegn rússn- esku hersveitunum og að öll ung- verska þjóðin sé fjandsamleg rússneskri íhlutun. LIÐHLAUP RÚSSA Eins og kunnugt er ganga fregn ir um það í Ungverjalandi, að heilir rússneskir herflokkar hafi gengið í lið með uppreisnarmönn um. Þetta hafa rússnesk hernað- aryfirvöld þó ekki viðurkennt ea greint er frá því m.a. að ein Jólaguðsþjóniista fyrir börn 1 Dóm- kirkjunni í dag Jólabarnaguðsþjónusta verður í Dómkirkjunni kl. II árdegis í ðag. Drengjakór úr Mglaskólan- um syngur undir stjórn frú Guð- rúnar Pálsdóttur. Þá leikur hljóm sveit barna, undir stjórn Karls Ó. Runólfssonar, og séra Jón Auðuns mun tala við börnin, og segja þeim jóiasögu. Öll böra eru vel- komin og fullorðnir meðan rúm legrfir. Skók-keppnin 1. BORÐ Svart: Akureyri (Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss.) abcdefgh ABCDEFGH Hvítt: Reykjavik (Ingi R. Jóhannsson) 9..Rc6xe5 2. BORÐ Svart: Reykjavík (Björn Jóhanness.- Sv. Kristinss.) abcdefgh abcdefgh Hvítt: Akureyri (Ingirnár Jónss. - Kristinn Jónss.) 9. b2xBc3 rússnesk skriðdrekasveit og ein sveit fótgönguliðsmanna, sem átti að gæta brúar hafi snúizt í lið með andbyltingarmönnum Æðsti rússneski hermaðurinn, sem viðurkennt er að hafi snúizt á sveif með Ungverjum var col- onel að tign og var hann skot- inn. Annars virðast Ungverjar ekki að jafnaði hafa þegið fylgi rússn- eskra hermanna. Oftar hefur það gerzt, að þeir hafa þegið skrið- dreka og vopn Rússanna, en ráð- lagt þeim síðan að hverfa. MONGÓLAR OG UKRAINU- MENN Mikill hlu,ti rússneska hersins í Ungverjalandi eru Mongólar frá Asíulöndum Sovétríkjanna. Það- an eru þó ekki allar hersveitim- ar, heldur er talsvert af úkraínsk um hersveitum innan um, m.a. setulið frá borginni Tarnopol. í Á naesta ári er ráðgert að end- urbyggja rafkerfi bæjarins og tengja hann algjörlega við ríkis- veituna, svo og alla sveitina. — Samþykkti bæjarstjórn að athuga um útvegun hagstæðs láns fyrir sveitabændur til greiðslu kostn- aðar þeirrar tengingu línunnar. DRÁTTARBRAUT Á AKUR- EYRI Samþykkti bæjarstjóm áskor- un til Alþingis um að styðja að því, að koroið verði upp það stórri dráttarbraut á Akureyri að hægt verði að setja þar upp stærstu togara. Á þeim fundi voru lagðar fram óskir frá þrem aðilum um að bæjatrstjórnin hlutaðist til um lánsútvegun frá því opinbera til að létta undir með þeim fyrir- huguð skipakaup, en samkvæmt Frderiksberg gefur Hafnarfirði jólairé VINABÆR Hafnarfjarðar í Dan- mörku, Frederiksberg, hefir sent Hafnarfjarðarbæ, jólatré fyrir þessi jól. Er þetta í annað skipti, sem Frederiksberg sendir slíka Kjöf. — Afhending trésins fer fram með hátíðlegri viðhöfn í dag kl. 4 síðdegis, á Thors-planinu við Strandgötu. Mun ambassador Dana á Islandi, Eggert Knuth, af- henda tréð og dönsk kona, sem lengi hefir búið í Hafnarfirði, frú Hansen, kveikja á því. Þá flytja ávörp Stefán Gunnlaugsson bæjar stjóri og séra Garðar Þorsteinsson Lúðrasveit Hafnarf jarðar mun leika og bamaskólakór syngja. þeim hersveitum eru ungir menn, árgangar 1936 og 1937. BJUGGUST VIB NÝRRI HEIMSSTYRJÖLD Það virðist ljóst af opin- berum frásögnum og grein- um, sem koma frá rússnesku herstjórainni, að hermenn- irnir hafa búizt við því að vera framvarðssveitir í þriðju heimsstyrjöldinni. Höfðu þeir búizt miklum vígahug og bjuggust við að komast í kast við bandarískt herlið. Það hef- ur því komið þeim mjög á ó- vart, að þeir eru nú notaðir aðeins til að bæia niður upp- reisn í einu smáríki. Virðist rússneska herstjórnin eiga i nokkrum örðugleikum með að skýra þetta út fyrir hermönn- unum og er hún áhyggjufull yfir óánægju meðal herliðsins í sambandi við þetta. Kjartan Thors heiðraður KONUNGUR Svía hefur sæmt formann Vinnuveitendasambands fslands, Kjartan Thors, stórridd- arakrossi hinnar konunglegu Vasaorðu. Var honum afhent heiðursmerkið í sænska sendiráð- inu á föstudaginn var, segir í fréttatilkynningu frá sænska sendiráðinu. upplýsingum þessara aðila, er fyr ihugað að láta byggja 2 skip 50 —70 smálesta og einn bát 8 lesta. Á fundinum báru fram þeir bæj arstj. og Gottleib Halldórsson svo hljóðandi tillögu: Bæjarstjóm Ólafsfjarðar vottar ungversku þjóðinni fyllstu samúð sína og fordæmir hina lítt skiljanlegu villimannslegu grimmd, er kom- múnistar og rússneska stórveldið beita þessa frelsisunnandi þjóð. Sem hluttekningarvott frá okkar litla bæjarfélagi, til handa hinni ungversku hetjuþjóð, samþykkir bæjarstjórnin að leggja fram til stuðnings ungversku flóttafólki kr. 5 þús. Var tillagan samþykkt með öllum atkv. —J.Ag. J ARB VEGUR FLUTTUR BROTT Það hefur nú komið í ljós, að nær öll holræsi á Porkalaskag- anam eru ónýt af þunga hinna rússnesku skriðdreka. Þá hefur það komið í ljós, að Rússar hafa tekið og ekið burt mold og jarð- vegi, þar sem áður var tún, svo að víða stendur ber klöppin upp úr. Jarðveg þennan hafa þeir notað til að hlaða risastór virki. MESTUR hluti imgverska lands- liðsins í knattspymu hefur nú ákveðið að leita hælis í Vestur- Evrópu sem flóttamenn. Þar á meðal hinn heimsfrægi knatt- spymumaður Puskas og mark- maður liðsins, Gyula Grosics. ★ Markmaðurinn hefur nú búið með fjölskyldu sinni á Hótel Wandel í Vínarborg. Sá atbyrð- ur gerðist nýlega, þegar þau hjónin fóru út í bæ og skildu tvö börn sin eftir í hótelinu, að tveir ungverskir menn komu á hótelið og báðu um að fá að tala við bömin. * Hótelstjórnin fékk grun um að ekki væri allt með felldu og sendi Á kaffi má leggja 6%. Á mjölvörur ýmsar í lausri vigt og sykur má leggja 7%. Á mjölvörur'•ýmsar í pökkum má leggja 8%. SPREN GJUHLUTAR DREIFÐIR UM ALLT Síðastliðið sumar reyndu bænd urnir, sem fluttu aftur til Pork- ala að nýta grasið á túnunum, en það gekk illa, vegna þess að út um allar merkur er dreif af sprengjuhlutum og allskyns járn klumpum. Sömu erfiðleikar hindr uðu jarðyrkju. eftir lögreglunni. Mennirnir tveir vom handteknir. Fundust í vös- um þeirra litlar flöskur með klóróformi. Kom í ljós við rann- sókn, að menn þessir voru út- sendarar ungversku kommúnista- stjómarinnar. * Mun það hafa verið ætlun þess. ara fúlmenna að nema bömin á brott, flytja þau til Ungverja- lands og nota þau síðan til að þvinga föður þeirra til að hverfa aftur til Ungverjalands. ¥ Meðfylgjandi mynd var tekin eftir þessa atburði af Gyula Gros- ics knattspymumanni og börnun um Anyko 4 ára og Tunde 3 ára. Á allar aðrar matvörur og ný- lenduvörur má leggja 10%. Á ávexti bæði ferska og þurrk- aða má leggja 10%. Þó má leggja 12,5% á sítrónur, vínber og melónur. Á vefnaðarvörur má leggja 10—11%. Á tilbúinn fatnað má leggja 12%. Á olíufatnað og sjóklæði úr gúmmí, gúmmistígvél og skó- hlífar má leggja 9%. Á leir- og glervörur má leggja 16%. Á suðuáhöld má leggja 10%, en á öll önnur búsáhöld, hand- verkfæri, járnvörur, burstavör- ur, rafmagnsrör má leggja 12%. Á bifreiðavarahluti má í einu leggja 35%. Duflið virkt TUNDURDUFLIÐ sem kom 1 vörpu togarans Kaldbaks á dög- unum, var virkt. — Sérfræðingur frá strandgæzlunnl fór um borS í skipið þar sem það lá á után- verðu ísafjarðardjúpl og gerðt duflið óvirkt. Olabfjarðarbær verður allur fengdur raflínu frá Skeiðfossi ÓLAFSFIRDI, 21. des. rHNÐAMAÐUR Morgunbíaðsins á Ólafsfirði innti bæjarstjór- ann, Ásgrím Hartmannsson frétta frá bæjarstjóm Ólafsfjarð- ar í gær. Tilkyimti bæjarstjórinn, að daginn áður, eða 19. des., hefði hluti af bænum verið tengdur við raflínu ríkisveitanna frá Skeiðfossi, en unnið heíur verið að lögn þeirrar línu frá því i vor af miklum dugnaði. Verkstjóri var Sigfús Sigurðsson. Hámarksverð á matvör- um, vefnaðarvÖrum og búsáhöldum Ákvörðun Innflutningsskrifstofunnar INNFLUTNINGSSKRIFSTOFAN hefur ákveðið, að eítirtaldar vörur skuli háðar verðlagsákvæðum í heildsölu, hvort sem þær eru fluttar inn eða framleiddar innanlands, og má álagning ckki vera hærri, en hér segír. Innlendir framleiðendur skuln fá staðfest heildsöluverð á framleiðsln sinni í skrifstofn verðlagseftirtitsins. Rússar ollu stórlegum skemmdum á Porkkala HELSINGFORS, 22. des. — Einkaskeyti frá NTB ERFIÐLEIKAR fólksins, sem fluttist aftur til Porkala skagans eftir brottför rússneska setuliðsins eru meiri en orð fá lýst. Hafa Rússar valdið miklú meiri skemmdum á landinu en virtist við fyrstu sýn. Segir Helsingfors-blaðið Hufudstadsbladet frá þessu í ýtarlegri grein um erfiðleika fólksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.