Morgunblaðið - 23.12.1956, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 23.12.1956, Qupperneq 12
t* MORGUNRLAÐIÐ Stmnudagai- 28. de«. 195« Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavik PraísUtvœindastjóri: Sigfús Jónss’un. Aöak-itartjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigiur. Einar Ásmundsson. Lesbó-k: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sími 1600. Áskriftargjald kr. 25.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. heimiíin HVERJU byggðu bóli á Islandi búast menn til há- ttðar og tjalda sínu fegursta hið iimra og ytra, prýða hí- býli sín og kappkosta að kom- ast í hið rétta jólaskap. Um attt ísland ganga menn frá verki, þar sem það er komið, leggja frá sér verkfærin, skriflólin, hálfriðin netin, jafnvel dægurþrasið er lagt á htlktna. Á föstudaghui voru sól- stöður. SóHn var komin í lœgstu stöðu og nú þurfti að- eins lítið átak til þess, að hún hæfi göngu stna á himininn, ofurlítið hærra, og síðan enn hærra, unz skammdegið er á flótta rekið um alian himin. Kringum sólstöður er sem berjist ljós og myrkur, það er ekki að vita, hvernig þeim bardaga lyktar, getur brugðið til beggja vona. Fernþjóðirnar hugsuðu sér sólina lífi gædda, og ætti hún í stríði við myrkr- ið, sem hún sigraði að lokum, er hún brauzt upp á himininn í glóandi mætti sínum. Oll þjóðin sameinast í jóla- haldi, kristin þjóð, sem vill halda hátíðlega komu sólar ljóssins á himm vorn: „í niða- myrkrum nætur svörtum / upp náðar rennur sól“. Hún viil halda hátíðlega fæðingu Frelsararans, því að „sá Guð, or öll á hhnins hnoss, / varð hold á jörðu og býr með oss.“ Island á engan auð meiri en börnin í landinu. Þeirra er framtíðin og þau eiera að erfa landið. Þegar fennt er yfir harðsporann eftir okkur, fara þau í sporin og ávaxta það pund, sem við látum þeim eft- ir, með einhverju móti, vel eða ilia. Allt yfirbragð lifaðs lífs í landi þessu á komandi tíma verður af þeim mótað og myndað, sem nú eru börn. Allur blær, sem á kann að verða, öll menning, mannúð, dugur og drengskapur, sem vaxa kann og dafna í landinu okkar, fer eftir því, hverju við sáum í barnshugina í dag, og það sem hver einn sáir, það mun hann upp skera. Hugur barnsins er hel«-i- dómur, og þau vé má ekki .spjalla. Jurtir þær, sem vaxa á hugarakri barnsins, eru bæði fagrar og viðkvæmar eins og öll blóm, sem vökvast af dögg morgunroðans. í huga barnsins búa frjóangar alls þess hezta, sem með þjóð okkar mun gróa og fram spretta á komandi árum, fyrsta spíra hins volduga meiðs þjóðlífs, sem gnæfa mun yfir mörkina á landi framtíðarinnar, íslandi ókom- tnna ára. Það er ekkert mik- ilsverðara en að hlúa vel og af natni og umhyggju að þeim frjóhnúðum. Þegar barnshug- urinn gleðst við jólaljósið og barnsaugun ljóma af heilög- um hughrifum við lestur og frásögn helgrar jólasögu, er sáð hinttm fyrstu frækornum mjúklætis og mannkærleika og alls hins fegursta, s«ih að- greinir líf manna og skyn- lausra skepnanna og getur reynzt fært um að beizla með mannviti hma djúplægu og „dýrslegu“ þætti mannlífsins, breytt þeim í orku, sem knýr áfram líf starfs og athafna, prýtt fögrum siðiun og fáguðu hátterni. Við skulum ekki taka frá barninu hina heilögu, saklausu gleði, er það slæst í för með hirðunum, fylgir á veg vitringunum og fyllist undrun og heilagri lotningu, er þeir bera fram dýrindis gjafir sínar, undrast skært skin Bctlehemsstjörnunnar og horfir af forvitni á baulandi og jarmandi búféð í gripa- húsinu, og innan um alit þetta náttúrulíf þau Jósef og Maríu með barnið vafið reif- um, — „hann hvílir nú í dýra- stalli lágum.“ Og engum er Jesúbarnið nákomnara en börnunum, hann er bróðir og vinur, deilir kjörum þeirra, er lítið barn eins og þau. Þau taka hann sér til fyrirmynd- ar, vilja af honum læra, og eins og sveinninn ungi, vilja þau þroskast „að vizku og vexti og náð hjá Guði og mönnum.“ Þetta eru heilagir hlutir, og ef við viljum vanda upp- eldi og þroska barna okkar, þá er þessi byrjunin: að gefa þeim gleðileg jól, að hafa þann brag á heimilinu, sem allur mótast af hátíðinni og tilefni hennar. Jólaguðspjall- ið í 2. kapítula Lúkasarguð- spjalls er ljóðræn, barnsleg frásaga, tær og fögur í ein- faldleik sínum, sem engin augu sjá betur en augu barn- anna. Gleðileg jól! JÓLASIÐIR JÓLASIÐIRNIR eiga allir sína sögu, margir hverjir langa, því að ýmsir þessir siðir eru orðn- ir til löngu fyrir Krists burð. Þeir hafa tekið breytingum á aldanna rás, uppruni þéirra er óljós og for- saga þeirra kafnar í þeim óhóf- lega íburði, sem nú einkennir jóla hald margra. Við fögnum fæðingu frelsarans með bsenum og sálma- söng, en skrautið, veizluhöldin og gjafirnar höfum við frá heiðn- um forfeðrum okkar. JÓLAHÁTÍÐIN Ekki er vitað nákvæmlega hvaða dag eða hvaða ár Kristur fæddist — sennilega vegna þess að mönnum kom ekki í hug að halda fæðingardag hans hátíð- legan, fyrr en fjórum öldum eft- ir krossfestingu hans. Kristnir menn komu sér saman um að fagna fæðingu hans á þessum tíma árs til að vinna á móti áhrif- um þeirra miklu hátíðahalda, sem Rómverjar stofnuðu til vik- una 17.—24 desember til heiðurs guðinum Satúrnusi. Sú var tíð, að 25. desember var hátíðardag- ur persneska sólarguðsins Mi- þrasar. Mikið var um dýrðir, er akur- yrkjuguðinum Satúrnusi var haldin hátíð um vetrarsólstöður. Veizluhöldin voru íburðarmikil, og kristnir menn höfðu mestu óbeit á öllu því óhófi. Jólasiðir kristinna manna voru upphaf- lega mjög einfaldir, jólin voru eingöngu trúarhátíð. Þá var það siður með hinum lítt siðuðu þjóðum N.-Evrópu að fagna komu hækkandi sólar með miklum hátíðarhöldum á miðj- um vetri. Kynnt var undir kjöt- kötlunum, og mun eftirlætis jóla- rétturinn hafa verið villigaltar- kjöt. En Hákon góði Noregskon- ungur mælti svo fyrir, að jól í ríki hans skyldu haldin hátíðleg á sama tíma og jól [ kristinna manna. — í Heimskringlu segir: Hákon konungr var vel kristinn, er hann kom í Nóreg. En fyrir því at þar var land allt heiðit og blótskapr mikill ok stórmenni mart, en hann þóttisk liðs þurfa mjök ok alþýðuvinsæld, þá tók hann þat ráð at fara leynilega með kristn- inni, helt sunnudaga ok frjádaga föstu. Hann setti þat í lögum at hefja jólahald þann tíma sem kristnir menn, ok skyldi þá hverr maðr eiga mælis öl, en gjalda fé ella, ok halda heilagt, meðan öl ynnisk. En áðr var jólahald hafit hökunótt, þat var miðsvetr- arnótt, ok haldin þriggja nátta jól. JÓLABRANDURINN Hin fornu norrænu jól voru heimilishátíð. Á arninum, sem var tákn heimilishlýjunnar, varð að lifa eldur alla hátíðardagana, því að ekki mátti tendra eld á jólahátíðinni. Varð því að gæta þess vandlega, að eldurinn slokkn aði ekki. Þaðan mun runninn sá siður, sem tiðk- ast víða enn, að kveikja í jóla- brandinum (sbr. branda- jól) á arninum á aðfangadags- kvöld. Venju- lega var kveikt í brandinum með logandi skíði úr jóla- brandinum frá fyrra ári. Átti að brenna brand- inn smám saman fram á þrett- ándann. Var þá öskunni dreift yfir akrana til að tryggja góða uppskeru. í Norður-Evrópu er eik notuð í jólabrandinn ,en í Suður-Evrópu £iskur, og sagt er, að sú venja sé runnin frá sögunni um, að hirðingjarnir hafi kveikt eld úr askviði til að ylja Jesúbarninu. sinni. Hann braut grein af tré, gróðursetti hana og lét svo um- mælt, að tréð myndi bera ávöxt á jólum hvert ár. Jólatré voru fyrst í stað skreytt hnetum og ávöxtum eingöngu. JÓLASPILIN Spil voru upphaflega „jóla- spil“. Hinrik VII. Bretakonjung- ur mælti svo fyrir, að aðeins skyldi spilað á spil á jólunum. Spilamönnum þess tíma mun lík- lega hafa þótt það hart aðgöngu. En ekki munu Bretar hafa verið með hýrari há, er hreintrúarmað- urinn Oliver Cromwell bannaði hátíðarhöld á jólunum, þar sem honum þótti hátíðarhöldin róstu- söm. JATAN Heilagur Franz af Assisi tók upp þann sið að skreyta kirkju sína með því að setja a svið i smáum stíl fæð ingu Krists. — Fyrst í stað tíðkaðist þessi skreyting að- eins í kirk j - um. JÓLASÖNGVAR Sálmar hafa ætíð verið snar þáttur í jólafagnaðinum, en Heil- agur Franz mun einnig hafa átt upptökin að því, að ýmiss konar jólasöngvar tóku að tíðkast. Það var skoðun hans, að menn ættu að njóta gleðskapar í hófi á jól- unum. Jólasöngvarnir voru fyrst og fremst fjörlegir, enda sniðnir eftir frönskum danskvæðum. JÓLAKLUKKUR Klukkur og klukknahring- ingar hafa allt- af verið höfuð- tákn jólanna. I ýmsum löndum Evrópu er það siður, að hringd er dán- arhringing í kirkjunum í eina klukku- stund á að- fangadagskvöld og á það að merkja, að sá vondi (Satan) sé dauður. Á miðnætti er hins vegar hringd hátíðarhringing til að fagna fæðingu Krists. ENGLAHÁR En hvernig er sá siður til orð- inn að skreyta með englahári? Sagan segir, að kona nokkur, sem unnið hafði af kappi að undir- búningi jólanna, hafi á aðfanga- dagskvöld uppgötvað sér til skelf ingar, að jólatréð hennar var þakið köngullóarvef. Henni féll- ust hendur, og hún gekk mædd til .sængur. En er hún reis úr rekkju næsta morgun, hafði Kristur breytt köngullóarvefnum í glitrandi englahár. JÓLALJÓSIN Ljósadýrð hefur ætíð einkennt hátíðahöld að vetri til — líka jólin, og kristnir menn munu einnig í þessu efni hafa orðið fyrir áhrifum tlj frá „ljósahátíð" Gyðinga. Það var siður með Ítölum og Bret um á miðöld- um að gefa kerti á jólun- um. Á Xrlandi settu menn kerti í glugga- kistur til að lýsa Jesúbarninu og Maríu Guðsmóður. Á Norður- löndum var kveikt á kertum á jólakökunni. Þaðan mun senni- lega runninn sá siður að hafa kertaljós á afmæliskökum. JÓLAGJAFIR Á Satúrnusarhátíðinni gáfu Rómverjar gjafir, og tóku kristn- ir menn upp þennan sið á jóla- hátíðinni. Þjóðhöfðingjar, aðals- menn og klerkar væntu þess jafnan, að leiguliðar þeirra færðu þeim gjafir á jólunum. — JÓLAKORT Jólakort komust fyrst í tízku skömmu fyrir miðja 19. öld í Eng landi, en menn greinir á um, hver hafi átt upptökin að þeirri venju að senda jólakort. En hug- myndin mun fengin frá þeim sið, að börn skrifuðu jólaljóð á arkir, sem skreyttar voru teikningum úr fæðingarsögu Frelsarans. JÓLAGREINAR Það var siður með Rómverjum að skreyta hús sín með grænum greinum á Satúrnusarhátiðinni. Kristnir menn vildu ekki taka upp þennan sið fyrst í stað, en hurfu samt að því síðar til að reyna að komast hjá ofsóknum. Grænar greinar af ýmsum gerð- um eru nú mikið notaðar sem jólaskraut. JÓLATRÉD Vinsælasta tákn jólanna — hið skreytta, lýsta jólatré — er til- tölulega ungt að árum. Jólatré komu fyrst til sögunnar á 19. öldinni í Þýzkalandi. Sú saga er þó sögð, að Marteinn Lúther hafi fyrstur kveikt Ijós á tré á jólunum, og vildi hann með því tákna feg- urð stjörnskins á vetrarnóttu. — Fjölmargar sagnir eru um tilkomu jóla- trésins. — Ein hljóðar svo, að barn hafi barið að dyrum á fátæklegu hreysi á aðfangadagskvöld. íbúarnir tóku barninu vel og gáfu því að borða. Næsta morgun heyrðist engla- söngur, og Kristur birtist í dýrð Mikill doðafaraldur í Árneshreppi GJÖGRI, Strandasýslu, 21. des- ember. — Upp á síðkastið hefur mikið borið á doða í kúm hér í hreppnum. Hafa flestar kýr, sem borið hafa í haust og það, sem af er vetrinum, tekið veikina og orðið illa úti. Margar þeirra hafa drepizt, en þær sem lafð hafa doðann af, hafa verið til lítils gagns. Mönnum hér er þessi doðafar- aldur óskiljanlegur, því hér hef- ur yfirleitt mjög lítið borið á doða fyrr, rétt í einstaka tilfelli. Samband hefur verið haft við dýralækni, sem hefur útvegað meðul. Hafa þau lítið sem ekk- ert komið að gagni. Eru bændur að láta sér detta í hug, að ef til vill stafi þessi veiki af hinum íslenzka áburði, sem notaður var á túnin í vor, þótt engin vissa sé feg-nin íyrir að svo sé. •—Regína. ÞÚFUM, ísafjarðardjúpi, 21. des.: — Barnaskólanum í Reykjanesi var slitið 18. þessa mánaðar. Strax upp úr áramótum byrjar héraðsskólinn, sem verður full- skipaður. — Páll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.