Morgunblaðið - 29.12.1956, Page 3

Morgunblaðið - 29.12.1956, Page 3
Laugardagur 29. des. 1956 MORCUIV BLAÐIÐ 3 Komið var uð kvöldi og yngstu flóttamenniriiir v oru háttaðir. Framtíðin bíður þeirra — í nýju landi, Hervarnir og fishtollar BANDARÍSKA stórblaðið „New York Times“ skýrði frá því 12. des. s. 1., að sjómenn og fisk- framleiðendur á austurströnd Bandaríkjanna séu óánægðir með þá ákvörðun Eisenhowers forseta að hækka ekki tolla á innfluttum fiskflökum. Tollanefndin hafði mælt með slíkri hækkun, en Eisen hower neitaði að verða við til- mælum hennar. Á fyrstu 10 mán- uðum þessa árs voru íslendingar annar stærsti innflytjandi á fisk- flökum til Bandaríkjanna. Leverett Saltonstall, hinn kunni öldungadeildarþingmað- ur Republikana frá Massachus etts, lét svo uminælt, að lík- lega væri „samband milli ný- afstaðinna samninga við ísland og þeirrar ákvörðunar forset- ans að hækka ekki tolla á inn- fluttum fiskflökum". Átti hann þar við samningana um áfram- haldandi hersetu Bandaríkja- manna á íslandi. Kvaðst þing- maðurinn hafa orðið fyrir mikl um vonbrigðum af ákvörðun forsetans. Victor Turpin frá New Bedford, sem er ritari og gjaldkeri Sjó- mannasambandsins á Atlantshafs- ströndinni, sagði: „I>að er hlægi- legt að halda því fram, at Kanada og Nýfundnaland verði kommúnismanum að bráð. bara vegna þess að við kaupum ekki allan fisk þeirra; við getum hvort sem er aldrei keypt lönd“. Með þessum orðum var hann að skýr- skota til þeirrar yfirlýsingar Eisenhowers, að hann áliti efna- hagslegan styrkleika þeirra ríkja, sem flyttu inn fisk til Bandaríkj- anna, hafa „stórlega þýðingu 1 áframhaldandi baráttu okkar við ógnun heimskommúnismans". ■— Okkur var kennt það í skól- unum að landið væri fjallaey í norðanverðu Atlantshafi og þjóðin lifði á fiskveiðum. — Og annað vissuð þið ekki? — Nei. Við liöfðum að vísu séð áróðurskvikmyndir, þar sem skýrt var frá því að Is- land væri ekekrt annað en bandarísk herstöð. Þar sáust herflutningar, skriðdrekar o. þ. 1. — Hvaðan skyldu ungverskir kommúnistar hafa fengið þessar m;,ndir, varð einhverjum á að epyrja. Það var þögn. — I.oks er spurt: — Hvað munduð þér segja við þá íslenzku kommúnista sem hr.fa ckki enn læknazt eftir at- burðina í Ungverjalandi? — Farið og kynnist kjörum al- þýðunnar í kommúnistaríkjun- um. Það gæti læknað ykkur. BARÐIST í FJÖLLUNUM VIÐ eigum stutt samtal við 21 árs gamlan iárnbrautarverka- mann og vélaverkfræðing, 26 ára að aldri. — Járnbrautarverkamað urinr. barðist í Stalinvaros og varði leynistöð frelsissveitanna í borginni. Þegar frelsissveitirnar urðu að fiýja borgina, tóku þær upp skæruhernað í fjallahéruðun um í vesturhluta Jngverjalands og þar barðist verkamaðurinn með félögum sínum í 3 sólar- hrmga. Rússum tókst þá að sundra hópnum, svo að þeir á- kváðu að flýja til Austurríkis. Þeir voru 12 saman og fóru með vopn sín með sér. Foreldrar þessa unga manns búa í Ungverjalandi og vita ekki, hvar hann er niður kominn. Þegar við spurðum hann, hvern ig honum litist á sig hér á landi, svaraði hann: — Mér finnst alit fallegt, sem ég hef séð. Og allir, sem ég hef kynnzt eru mjög góðir — eins og flestir heima. Verkfræðingurinn er hér ,neð konu sína með sér. Hann var e.nn af helztu leiðtogum frelsissvcit- anna í sínu héraði og hafði það starf einkum á hendi að eyði- leggja samgönguleiðir Rússa. — Hann segir: — Hinn 7. nóvember kor.iu kommúnistar til mín og kröfðust þess að ég svaraði til saka. Þeir þorðu ekki að taka mig fastan, Síðan ætluðu þeir að handtaka mig. Ég komst á snoðir um það og flýði með konu minni. Við vonumst til að fá atvinnu hér svo að við getum stofnað heimili okkar á ný. í HVERS VEGNA? FLÓTTAMANNAHÓPNUM er 19 ára gömul kona. Hún býð- ur af sér góðan þokka og virðist á yfirborðinu leika á als oddi. En á bak við gáskann er dýpri Surnir tefldu því að ég hafði verið skipaður í verkamannaráð héraðsins, 3nda vann ég í verksmiðju. Verka- mennirnir voru ákveðnir í að leggja niður vinnu, ef verka- rnannaráðið yrði tekið höndum. Settu þeir þá án þess að ég vissi yfirlýsingu í kommúnistablaðið, þar sem ég er látinn hvetja alla verkamenn að vinna fyrir hina nýju ríkisstjórn Kadars. Með því ætluðu þeir að egna verka- mennina gegn mér og láta þá reka mig úr verkamannaráðinu. Hér sjást fimm flóttamannanna, ctofumaðurinn og unnusta hans m. a. verkfræðingurinn, skrif- og búfræðingurinn (standandi). sorg og meiri þjáningar en nokk- urn getur órað fyrir. Og þegar nánar er að gætt speglast í þessu föla andliti harmsaga þeirrar kynslóðar, sem kommúnisminn hefur svipt sannri gleði og lífs- hamingju. Þegar þið hafið kynnzt sögu hennar, verður ykk- ur áreiðanlega á að spyrja: Hvers vegna? Hvað hefur hún unnið til saka? Hvernig er hægt að leggja slíkar hörmungar á saklausa æsku sem biður aðeins um frið og birtu? — Þessi unga kona lief- ur ekki hugmynd um, hvort mað- ur hennar er iífs eða liðinn og 15 mánaða gamalt barn hennar er ennþá í Búdapest. — Það er telpa, segir hún og bítur' á jaxlinn, og hún er hjá mömmu og pabba. En þau vita ekkert, hvar ég er. . — Ég hef reynt að skrifa — vona að það beri árangur — mig langar til að fá dóttur mína hingað — en — Við vitum ekki, hvort við eigum að halda samtalinu áfram, en hún má ekki heyra á það minnzt, að því verði slitið. Kjarkurinn er óbilandi. Þetta fólk á það sam- merkt að vilja ræða um örlög sín, ef það mætti verða til þess að lcoma einhverju góðu til leið- ar. Unga móðirin heldur áfram: — Ég hef ekkert frétt að heim- an síðan í nóvember. 29. nóv. flýði ég land, en þá hafði ég ekki kojnið heim í 5 daga. Ég vann við að koma dreifimiðum og blöð- um frelsissveitanna út á land. Stolið af leiði KIRKJUGARÐSRÆNINGI, sem er heldur sjaldgæft fyrirbæri hér, hefur verið á ferðinni í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. Um jólin var þar ljós á fjölda leiða þar í garðinum. Voru all- mörg ljós tengd við bílgeyma. í gær var komið til rannsókn- arlögreglunnar og kært yfir því, að af einu leiðanna, þar sem ljós höfðu verið frá bílgeymi, hefði rafgeyminum verið stolið. Ekki er vitað hvenær það var, að kirkjugarðsræninginn nam hann á brott, en á annan dag jóla var þar ljós á leiðinu, en í gær var geymirinn horfinn. Það er aldrei að vita nema ein- hver hafi séð til ferða þessa stór- einkennilega manns, sem hér hef- ur verið að verki. Ef svo er, þá væri ransóknarlögreglunni þökk í því að fá um það ábendingar. En ótrúlegt er að þjófurinn geti haft mikla ánægju af því ljósi nú um hátíðirnar, sem hann fær frá hinum stolna geymi. Maður nokkur, sem heytði um þennan einstaka þjófnað sagði: Hann er ekki hjátrúafullur þessi náuhgi! 32,000 kr. var stolið MEÐAL kunnustu fyrirtækja bæjarins, Feldurinn, varð fyr- ir næturheimsókn í fyrrinótt, er þjófur lagði leið sína i skrifsíofnr fyrirtækisins og stal þar 32,000 krónum i pen- ingum. Skrifstofa Feldsins er í stór- hýsinu Laugavegi 105. Þjófur- inn hefur komizt inn um glugga á húsinu og inn í skrif- stofuna. Þar er meðal annars vandaður skjalaskápur. Þjóf- urinn sprengdi þcnnan skáp upp. Þar voru peningarnir geymdir í litlum peningakassa sem þjófurinn eða þjófarnir, því ekki er vitað hvort einn eða fieiri hafa verið þarna að verki, sprengdu upp og tæmdu. Forráðamenn fyrirtækisins geyma yfirleitt ekki fé í skrif- stofunni. Var hér um nærri því einsdæmi að ræða, að svona mikil fjárhæð skyldi þar geymd næturlangt. Rann- sóknarlögreglan fékk málið i sínar hendur í gær. í fyrrinótt var einnig brot- izt inn í verzlunina Gefjun- Iðunn í Kirkjustræti og stol- ið þar milli 800 og 900 krón- um í peningum. Úthliiliin ÚTHLUTUN skömmtunarseðla í Reykjavík fyrir næstu 3 mánuði fer fram í Góðtemplarahúsinu uppi, 2., 3. og 4. janúar, kl. 10—5 alla dagana. Seðlarnir verða eins og áður afhentir gegn stofnum af fyrri skömmtunarseðlum, — greinilega árituðum. aðrir prjónuðu (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Einu sinni var ég handtekin, þeg- ar ég var að fara með blöðir. og sett í fangelsi. Þar var ég í 4 daga matar- og klæðalítil, en síðan var mér sleppt. Hélt ég þá áfram að annast dreifibréfin. Við höfðum bækistöð í kjallara Péterfi-sjúkrahússins, en Rússar og AVO-menn umkringdu húsið og réðust inn í það. Ég fékk leyfi til að sækja kápuna mína, áður en ég yrði flutt í fangelsi, en gekk þá á lagið og flýði við annan mann. Síðan var ég fjórum ung- verskum blaðamönnum samferða til landamæranna og gekk sú ferð vel. — Hvað var starf yðar í Ung- verjalandi? — Ég vann við vefnað. — Og þér vonizt auðvitaff til þess að fá einhverja vinnu við það hér? — Já. — Munduð þér fara heim aft- ur, ef aðstæður breyttust? — Þær yrðu að breytast mikið. En auðvitað vildi ég helzt af öllu fara heim aftur, ef þar væri hægt að lifa mannsæmandi lífi. ★ ★ ★ ÞAÐ er kominn ókyrrð í hópinn, því að ljósmyndari er kom- inn til að taka vegabréfsmyndir af flóttamönnunum. Við kveðjum þá og vonumst til þess að þeir uni sér vel í nýja landinu. List- inn hans Andrésar kemur sér ágætlega í lokin — og við segj- um: Koszonom.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.