Morgunblaðið - 29.12.1956, Page 16
Veðrið
Allhvass SA, rigning öðru hvoru.
308. tbl. — Laugardagur 29. desember 1956
Jólagjöfin rædd
Ræða Bj. Benediktssonar á bls. 9.
Bandaríkin veita tslendingum
$ 4 miilj. ldn til vörukaupa
Washington, 28. des.
BANDARÍSKA efnahagssamvinnustofnunin tilkynnti í dag, að
íslandi hefði verið veitt 4 milljóna dollara lán til að standa
straum af nauðsynlegum vöruinnflutningi.
í tilkynningu stofnunarinnar
•egir:
„ísland óskaði eftir þessu láni
til aðstoðar við áætlun sína um
efnahagslegar framfarir. Ríkis-
stjórn íslands ábyrgist lánið.
Hluti af þessu láni verður í
dönskum krónum og hollenzkum
gyllinum, eða samtals sem nemur
600 þúsund dollurum. Er þetta
fé eign Bandaríkjamanna, .sem
mótvirðisfé vegna sölu á banda-
rískum landbúnaðarafurðum til
Danmerkur og Hollands. Afgang-
ur lánsins er veittur í banda-
rískum dollurum.
Lánið skal endurgreiða í doll-
ui’um á 22 árum. Vextir eru 3%.
Engar afborganir greiðast fyrstu
tvö árin, en vextir skulu greidd-
ir þegar á fyrsta ári.
Fé til dollaralánsins er feng
itf úr sérstökum sjóði, sem
forseti Bandaríkjanna ræður
yfir samkvæmt heimild Banda
ríkjaþings og aðeins má nota
til ráðstafana, sem forsetinn
telur mikilvægar fyrir öryggi
Bandaríkjanna.“
★
Á 12. TÍMANUM í gær barst
Mbl. eftirfarandi tilkynning frá
fj ármálar áðuney tinu:
Vilhjálmur Þór, bankastjóri,
undirritaði í dag fyrir hönd Fram
kvæmdabanka íslands vegna ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar samn-
ing um lán hjá Export Import
bankanum fyrir hönd Efnahags-
samvinnustofnunarinnar í Was-
hington. Lánið jafngildir 4 millj.
dollara, veitt að mestu í dollur-
um, en að nokkru leyti í dönsk-
um krónum og gyllinum. Lánið
er til 22 ára með 3% vöxtum, ef
endurgreiðsla fer fram í dollur-
urn, en 4% vöxtum, ef endur-
greiðsla fer fram i Evrópugjald-
eyri (þ.á.m. íslenzkum krónum),
en hvort verður er eftir vali ián-
takanda. Lánirxu verður varið til
þess að standast áfallinn kostnað
við fjárfestingarframkvæmdir á
vegum ríkisstjórnarinnar svo sem
raforkuframkvæmdir í dreifbýl-
inu og sementsverksmiðju Enn-
fremur til Ræktunarsjóðs og Fisk
veiðasjóðs.
Skák Friðriks og Larsens
fór í bið eftir 40 leiki
ö'
Jólaspilakvöld
Sjálfstæðisfélaganna
ENN eru til nokkrir sætamið-
ar á spilakvöld Sjálfstæðis-
félaganna 2. janúar n.k.
Verða þeir afhentir í skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins í
dag kl. 9—12 f. h. og kl. 1—3
e. h.
London, 28. des. Einkaskeyti til Mbl..
NNUR umferð Hastingsmótsins hófst með skák þeirra Bent
Larsen, Danrnörk, og Friðriks Ólafssonar, ísland. — Eftir fjöru-
tíu leiki fór skák þeiri'a í bið.
í kvöld var mestur spenningur
kringum skák þeirra Gligoric frá
Júgóslavíu og Bretans Horse-
mans, sem komst í tímaþröng.
Varð hann að leika 17 leiki á níu
mínútum og tapaði þá riddara og
var þá fyrr en varði kominn í
algjöra tapstöðu.
í annarri umferð fóru aðrar
skákir sem hér segir: Ungverj-
inn Szabo og O’Kelly frá Belgíu
gerðu jafntefli eftir 25 leiki.
Höfðu þeir þá setið yfir taflinu
í 2,45 klst. Bretinn Clark vann
Spánverjann Toran í 22 leikjuir
og höfðu þeir þá setið að skák-
inni í 4 klst. Þá gerðu Englend-
ingarnir Penrose og Alexander
jafntefli eftir 24 leiki, sem þeir
höfðu leikið á 4,15 klst. - Reuter.
Lorsen goi
SKÖMMU eftir að þeir Lar-
sen og Friðrik tóku til við
biðskák sína gaf Larsen skák-
ina. Kom það nokkuð á óvart,
en Larsen sagði er hann stóð
upp frá skákinni, að hann
teldi stöðu sína gersamlega
vonlausa.
Eftir tvær fyrstu umferðirn-
ar er staðan þá þessi
Friðrik Ólafsson 2 vinninga,
O’Kelly og Gligoric 1 y2 hvor,
Szabo, Alexander, Larsen og
Clarke 1 vinning hvor, Pen-
rose og Horseman ij, hvor og
Toran engan vinning.
Meiri póstur í des. en nohkru
sinni fyrr segir Póststofun
PÓSTMAGNIÐ, sem Póst-
stofan í Reykjavík hefur haft til
meðferðar á tímabilinu 1. tii 24.
des., er eitt hið mesta, sem orðið
hefur, segir í frétxatilkynningu
frá Póststofunni, sem Mbl. barst
í gær.
Til útlanda voru sendir alls
386 pokar af bréfapósti, samtals
6100 kg. og 486 pokar af böggla-
pósti, samtals 12623 kg.
Frá útlöndum kom á sama
Fleiri ílótta-
menn fá hér
aðsetursleyfi
Á' FUNDI stjórnar Landssamb.
ísl. útvegsmanna í gær, var
samþykkt að beina þeim til-
mælum til ríkisstjórnarinnar,
að hún veitti fleiri ungversk-
um flóttamönnum aðseturleyfi
og veitti þeim fyrirgreiðslu til
þess að þeir gætu sezt að í
landinu. Var áskorunin rök-
studd með því, að íslenzkir at-
vinnuvegir ættu við mikla
örðugleika að stríða sökum
fólksfæðar og einnig væri rétt
af mannúðarástæðum að veita
fleira ungversku flóttafólki
tímabili til Reykjavíkur 1085
pokar, 19670 kg. af bréfapósti og
658 pokar, 19391 kg. af böggla-
pósti.
Póstflutningar frá Reykjavík
voru einnig meiri á þessu sama
tímabili en undanfarin ár.
Frá Reykjavík út um land voru
sendir 1974 pokar af bréfapósti,
samtals 32500 kg., 3131 poki, sam-
tals 68200 kg. af bögglapósti.
Til Reykjavíkur barst utan af
landi á þessum tíma 1095 póst-
pokar af bréfapósti, 11000 kg. og
1200 pokar of bögglapósti, sam-
tals 35700 kg.
Á tímabilinu námu innborgaðar
póstávísanir í Póststofunni kr.
1.762.200,00, en útborgaðar ávís-
anir kr. 12.124.900,00
Með þessari teikningu lýsir bandarfakt biað hinni skyndilegu
stefnubreytingu íslenzku ríkisstjórnarinnar í hervarnarmálunum.
Teikningin nefnist „Við nánari umhugsun“ og þarfnast hún ekkl
frekari skýringa.
Haínarijar&ar- vetf-
urinn uppljómtsöur
HAFNARFIRÐI — Núna um jól-
in var kveikt á hinum nýju Ijósa-
stæðum við Hafnarfjarðarveginn.
Nokkrar vikur eru nú síðan fram-
kvæmdir hófust við að reisa
staurana, en þeir eru skammt fyr-
ir innan Hraunsholt og inn að
Kópavogsbrú. Þaðan er svo að
kalla samfelld stauraröð til
Reykjavíkur, — og einnig frá
Isfisksala togaranna erlendis
nemur alls um 36,5 milj. kr.
4ÞESSU ári hafa íslenzkir togarar farið alls 96 söluferðir til
Bretlands, Vestur-Þýzkalands og A-Þýzkalands. — Eftir ára-
mótin munu togararnir halda áfram að selja á þessa erlendu mark-
aði. Á þessu ári hefur ísfisksala togaranna alls numið rúmlega 36,5
milljónum króna, en fiskmagnið er 18329 tonn.
Verzlanir opnar -
SÖLUBÚÐIR í Reykjavík og
Hafnarfirði eru opnar til kl. 4
e.h. laugardaginn 29. des. og kl.
12 á hádegi á gamlaársdag. Mið-
vikudaginn 2. janúar er lokað
vegna vörutalningar.
' Eftir áramótin breytist af-
greiðslutíminn á föstudögum, þá
er opið til kl. 7 e.h. og á laugar-
dögum til kl. 1 e.h.
(Frétt frá
Sambandi smásöluverzlana).
Framkvæmdastjóri Félags ísl.
botnvörpuskipaeigenda Björn
Thors, skýrði Mbl. frá þessu í
gær. Gat hann þess m. a. til sam-
anburðar, að á fyrra ári hafi
söluferðirnar alls verið 45, fisk-
magnið um 10.000 tonn og verð-
mæti aflans 17,1 millj. Meðalfisk-
verð á þessu ári hefur orðið 199
aurar fyrir kg. af ísfiskinum, en
var í fyrra 172 aurar.
Síðustu sölur á þessu ári voru
hjá Surprise sem seldi í fyi-ra-
dag á Bretlandsmarkað 3813 kit
fyrir 12.010 pund og Hallveig
Fróðadóttir sem seldi í Hamborg
á A-Þýzkalandsmarkað fyrir
99000 mörk.
Róðrar hefjast 2. janúar
Á FUNDI stjórnar Landssamb.
ísl. útvegsmanna og verðlagsráðs
þess, er haldinn var í gærdag, var
samþykkt að mæla með því við
útgerðarmenn að róðrar skuli
hefjast 2. janúar n. k.
Hefur stjórn L. í. Ú. gert samn-
inga við ríkisstjórnina um rekstr-
argrundvöll fyrir vélbátaútgerð-
ina á komandi vertíð, og einnig
leyfi til aðseturs hér á landi. gert samning við A. S. í. um fyrir 1. janúar.
skiptaverð til sjómanna og loks
hefur verið samið við stjórn
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna og fiskvinnslustöðva Samb.
ísl. samvinnufélaga um fiskverð-
ið til bátanna á vetrarvertíðiilni.
Samningar þeir sem hér um
ræðir hafa nú verið sendir til
deilda L. í. Ú. til staðfestingar og
mun afgreiðslu þeirra verða lokið
Hæsta sala á þessu ári var hjá
Pétri Halldórssyni, sem seldi í
Bretlandi fyrir 579,000 krónur
afla sinn hinn 17. desember s.l.
~ Í ~
Sem fyrr segir munu ísfisksöl-
ur á hina erlendu markaði halda
áfram eftir áramótin og eru nú
nokkrir togarar á veiðum, sem
selja munu fyrstu dagana í jan-
úar.
Hraunsholti og til Hafnarfjarðar,
en þá línu lagði sem kunnugt er
Rafveita Hafnarfjarðar. Er vissu-
lega mikil bót að þessum ljósum,
og ættu þau að draga stórlega úr
slysahættunni á þessari fjölförn-
ustu leið landsins.
Eins og kunnugt er, var þaS
Ingólfur Flygenring, sam bar
fram á sínum tíma þingsályktun-
artillögu um að úr þessum fram-
kvæmdum yrði. Hefur hér verið
unnið mikið nauðsynjaverk, sem
allir bifreiðastjórar fagna, og þá
ekki sízt þeir, sem, aka strætis-
vögnunum. —G. E.
Vantar ekki
á togaranna
í SAMBANDI við ráðningn fær-
eyzku sjómannanna, sem liingað
koma með strandferðaskipinu
Heklu, er það athyglisvert, að
ekki hefur eitt einasta togaraút-
gerðarfélag leitað eftir ráðningu
Færeyinga á skipin, heldur eru
þeir einvörðungu ráðnir á báta-
flotann.
Sem kunnugt er, hefur á und-
anförnum árum gengið erfiðlega
að manna togr.rana með eingöngu
íslenzkum sjómönnum og á þeim
flestum verði meira og minna af
Færeyingum.
Það, sem veldur þessari breyt-
ingu, þykir kunnugum eðlilegasta
skýringin, að nær allir togararn-
ir fara öðru hvoru í söluferðir á
erl. markað, en það þyltja sjó-
mönnum eðlilega hagstæð kjör.
Búið að salfa 23033
In. al síld á Akranesi
AKRANESI, 28. des. — Alls er
búið að salta á síldarvertíðinni
hér í 23033 tunnur á fjórum sölt-
unarstöðvum, hjá Haraldi Böðv-
arssyni & Co. 11200 tunnur,
Heimaskaga h.f. 4416 tunnur,
Fiskiver h.f. 4817 tunnur og Sig-
urði HaUbjarnarsyni h.f. 2600
tunnur.