Morgunblaðið - 15.02.1957, Blaðsíða 1
44. árgangur
38. tbl. — Föstudagur 15. febrúar 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsi.is
Það hefur vakið nokkra athygli viða um heim, að nú eru staddir
í Madrid tveir af helztu leiðtogum Araba, annar frá Marokkó, hinn
frá Saudi-Arabiu. Myndin sýnir Ibn Saud, konung í Saudi-Arabíu,
t. v., er hann kom til Madrid. Við hlið honum gengur Franco ein-
ræðisherra Spánar. í gær áttu þeir klukkustundar-viðræður, og er
álitið, að Franco hafi komið fram með ákveðnar tillögur um lausn
Súez-vandans.
Þing Norðurlanda-
ráðs sett í dag
Helsingfors, 14. febr. Frá Reuter-NTB.
IDAG var lokið undirbúningi undir 5. þing Norðurlandaráðsins,
sem er nú í fyrsta sinn haldið í Helsingfors. Fulltrúarnir, sem
verða rúmlega 300, eru flestir komnir til borgarinnar. Meðal þeirra
eru 69 þingmenn og um 30 ráðherrar. Auk þess taka þátt í þinginu
ráðuneytisstjórar, opinberir starfsmenn, sérfræðingar og fjöldl
blaðamanna.
Fiugvélin, sem flutti ráðherr-
ana frá Danmörku, Noregi og
Svíþjóð varð að lenda í Ábo
vegna óveðurs, en þaðan fóru
þeir með bifreiðum til Helsing-
fors. Á morgun (föstudag) verð-
ur þingið sett. Það verður Erik
Eriksen, fyrrverandi forsætisráð-
herra Dana, er kosinn var for-
seti ráðsins í Kaupmannahöfn í
fyrra, sem setur þingið. En síðan
verður fulltrúi Finnlands í stjórn
ráðsins, bændaflokksmaðurinn
Lennart Helure prófastur, kosinn
forseti þess.
Þegar dagskrá þingsins hefur
verið samþykkt og kosið hefur
verið í 5 fastanefndir þess,
hefjast sjálfar umræðurnar. Full-
trúar íslands á þinginu eru
Bjarni Benediktsson, Sigurður
Bjarnason, Emil Jónsson, Bern-
harð Stefánsson og Einar Olgeirs-
son.
★ Brezka utanríkisráðuneytið
er nú að athuga orðsendingu frá
Japan, þar sem heitið er á Breta
að hætta við vetnissprengjutil-
raunir á Kyrrahafinu. Ekki er
talið líklegt, að Bretar verði við
þessum tilmælum.
HETJAN FRÁ BÚDA-
PEST ENN í FANCELSI
Vínarborg, 14. febr. Frá Reuter.
AUSTURRÍKISMAÐURINN Hans Petrakovits, sem kom
frá Búdapest íyrir nokkrum dögum, en þar hafði hann verið
fangelsaður, sagðist hafa séð Pal Maleter, „hetjuna frá Búdapest",
í fangelsinu fjórum dögum áður en hann fór þaðan. Petrakovits var
látinn laus fyrir milligöngu austurrískra stjórnarvalda.
Maleter hershöfðingi, sem var landvarnaráðherra í hinni skamm-
lífu stjórn Imre Nagys, var tekinn til fanga af Rússum í byrjun
nóvember, þegar hann sat að sanmingum við rússneska herforingja.
Síðan hafa gengið ýmsar sögur af örlögum hans. Hann átti t. d.
að hafa komizt undan og horfið til ungverskra skæruliða í fjöll-
unum, einnig' áttl hann að vera í fangelsl í Búdapest ásamt Imre
Nagy, og loks var sagt, að hann hefði verið dæmdur til dauða.
Ógnaröldin í Ungverja-
landi heldur áfram
Búdapest, 14. febr. — Frá Reuter.
UNGVERSKA ljóðskáldið Istvan Eörsi og fimm aðrir Ungverjar
verða dregnir fyrir rétt og sakaðir um að æsa fólk til bylt-
ingar. Blaðið Esti Hialap skýrði frá því, að þeir væru meðlimir
samtaka, sem létu prenta og dreifa áróðurspésum, sem stefnt var
gegn ungversku stjórninni og Sovétríkjunum, eftir uppreisnina í
október.
Eörsi, sem er 26 ára gamall,
er ákærður fyrir að hafa samið
níðkvæði um ríkið, en sum
þeirra voru prentuð á flugmið-
ana, sem dreift var í Búdapest
og víðar. Blaðið segir ennfrem-
ur, að leiðtogi samtakanna,
Istvan Angyal, 25 ára gamall,
hafi barizt í uppreisninni og síð-
ar verið fulltrúi ungverskra
æskulýðssamtaka í samningavið-
ræðum þeirra við stjórnina. —
Meðal hinna ákærðu eru tvær
konur.
UPPREISNARMENN
ENN VIÐ VÖLD
Þá segir blaðið frá því, að
maður nokkur hafi verið dæmd-
ur í tveggja ára fangelsi fyrir
að hjálpa milli 60 og 70 manns
til að flýja inn í Austurríki.
Aðalmálgagn stjórnarinnar,
Nep Szabadsag, skýrði frá því í
dag, að þorpið Tömörkeny í
S.-Ungverjalandi nálægt landa-
mærum Júgóslavíu væri enn á
valdi andstæðinga stjórnarinnar.
í þessu þorpi búa um 5000 manns,
og er því nú stjórnað af „aftur-
haldssömum bændum og fasist-
um“, eins og blaðið orðar það.
Þessir menn fordæma opinber-
lega bæði kommúnistaflokkinn
og ríkisstjórnina. Sagt er, að víð-
ar í þorpum Ungverjalands séu
frelsissinnar enn við völd og
vinni gegn Ieppstjórn Kadars. 8
menn voru dæmdir til dauða í
Búdapest í dag.
Eining um
frjálsan markað
London, 14. febr.
Frá Reuter:
THORNEYCROFT, fjármála-
ráðherra Breta, kom til Lund-
úna frá París í dag, en þar
var hann í forsæti á ráðstefnu
ríkjanna, sem ræddu um frjáls
an markað Vestur-Evrópu.
Sagði hann fréttamönnum, að
eining hefði orðið á ráðstefn-
unni um að skapa þennan
frjálsa markað, en hann mundi
ekki hafa nein áhrif á skuld-
bindingar Breta við samveld-
islöndin. Áætlunin um frjálsa
markaðinn verður samin und-
ir umsjá Thorneycrofts, og á
henni að verða lokið fyrir júlí-
lok.
HARÐAR DEILUR A
ALLSHER JARÞIIMGIND
New York, 14. febr. Frá Reuter.
AÐALFULLTRÚI Rússa hjá S.Þ., Vasily Kuznetsov, gerði
í dag heiftarlega árás á stefnu Bandaríkjanna við austanvert
Miðjarðarhaf og annars staðar í heiminum. Talaði hann m. a. um
„árásarstefnu“, og sagði, að Bandaríkin væru að reyna að tryggja
sér ítök í nálægum Austurlöndum og ná þar efnahagslegum og
pólitískum áhrifum. Talaði hann í allsherjarnefnd Allsherjarþings-
ins, sem ákveður dagskrá þess.
Vísindolegur
guðleysisnróður
ÚTVARPIÐ í Moskvu skýrði frá
því í gær, að æskulýðsblaðið
„Komsomolskaja Pravda" ha|i
birt tilskipun frá miðstjórn rúss-
nesku æskulýðssamtakanna
(Komsomol) til allra deilda inn-
an þeirra, þar sem það boð er
látið út ganga, að halda skuli
uppi linnulaust „hinum vísinda-
lega guðleysisáróðri“ meðal rúss-
neskrar æsku.
Lodge, fulltrúi Bandaríkjanna,^
varð fyrir svörum og sagði, að
ummæli Rússans væru fábjána-
leg og alröng, en hins vegar hefði
hann ekkert á móti því, að áætlun
Eisenhowers væri rædd á Alls-
herjarþinginu, svo að hinar fá-
ránlegu aðdróttanir Rússa yrðu
öllum kunnar.
ÁSAKANIR RÚSSA
Kuznetsov kvað Rússa aldrei
hafa reynt að komast til áhrifa
í öðrum löndum eða koma þar
upp herstöðvum, en Vesturveldin
væru hins vegar sem óðast að
búa sig undir nýja styrjöld. —
Framh. á bls. 2
Fær Kína
sæti í SÞ?
Thomasville, 14. febr.
ÞAÐ er haft eftir áreiðanlegum
heimildum, að á fundi Eisen-
howers og Macmillans á Bermuda
í næsta mánuði verði m. a. tekin
til meðferðar spurningin um upp-
töku kínverska alþýðulýðveldis-
ins í S. Þ. Sagt er, að Macmillan
ætli að reyna að fá Eisenhower
til að styðja Breta í þeirri við-
leitni að fá Peking-stjórninni hið
löglega sæti Kína í S. Þ. Sömu
heimildir herma, að Eisenhower
muni að líkindum ekki taka illa
í þessa málaleitun Macmillans. —
Eisenhower er um þessar mnndir
staddur í Thomasville í Georgíu.
Réttarhöldum í Kaíró frestað
Kaíró, 14. febr. — Frá Reuter.
RÉTTARHÖLDUNUM ýfir 16 mönnum, þeirra á meðal 4 Bretum,
sem sakaðir eru um njósnir í Egyptalandi, hefur verið frestað
til 25. febrúar til að gefa verjendum hinna ákærðu tíma til að
rannsaka ákæruskjölin.
Sakborningarnir komu fyrir
réttinn í dag undir hergæzlu til
bráðabirgða-yfirheyrslu. Meðal
þeirra er James Swinburn, 51
árs gamall brezkur þegn, sem
veitti forstöðu fréttastofu Araba.
Er hann sakaður um að vera
leiðtogi njósnahringsins. Hinn
opinberi saksóknari hefur kraf-
izt dauðarefsingar yfir öllum 16
sakborningunum, ásamt fjórum
Bretum, sem komust úr landi
áður en handtökurnar hófust í
ágúst s. 1.
Þá eru einnig meðal hinna
sakbornu ofusti úr júgóslav-
neska hernum, Molovan Grigoro-
vic, liðsforingi í egypzka flot-
anum, skólastjóri, verkfræðingur
í egypzka hernum, fyrrverandi
starfsmaður hjá Súdan-stjórn,
egypzkur blaðamaður, leynilög-
reglumaður, húsvörður í júgó-
slavneska sendiráðinu o. fl.
f dag voru 14 verjendur sak-
borninganna viðstaddir réttar-
höldin og báðu þeir um frest til
að athuga ákæruskjölin. Blaða-
mönnum hafði verið hleypt inn
í réttarsalinn, en þeir voru rekn-
ir út, þegar dómarinn ákvað, að
yfirheyrslan færi fram fyrir
luktum dyrum.
★ Sendiráð Jemens í London
hefur sakað Breta um ítrekaðar
árásir á lítið þorp nálægt landa-
mærum Adens og Jemens, en
formælandi brezka utanríkis-
ráðuneytisins kveðst ekki hafa
neinar fregnir af slíkum árásum.
Salem ákærður
Kaíró, 14. febr. (AFP).
FYRRVER ANDI upplýsingamálaráðherra
Nassers, Salah Salem majór, hefur
verið handtekinn og verður dreginn fyrir
rétt vegna þess að hann á að hafa reynt
að stofna til uppreisnar og steypa Nasser
af stóli. Sagt er, að Salem hafi verið með
ráðagerðir um uppreisn, þegar hann var
herstjóri í Súez, meðan á hernaðaraðgerð-
um Breta og Frakka stóð. Salem situr nú
fanginn í Abbasiyah nálægt Kaíró.