Morgunblaðið - 15.02.1957, Blaðsíða 15
Föstudagur 15. febr. 1957
MORGUNBLAÐIÐ
15
Margrét Jónsddttir — minning
NÍUNDA . nóvember s.l. lézt á
Akranesi, vinsæl merkiskona,
Margrét Jónsdóttir, Vesturg. 10.
Hún var gift Níelsi Kristmanns-
syni sparisjóðsritara, sem á þar
á bak að sjá góðri konu eftir 42.
ára farsælt og ástríkt hjónaband.
f>eim hjónum vurð þriggja barna
auðið, tveggja dætra og eins son-
ar. Eru dæturnar báðar á lífi,
Margrét, ógift, sem nú veitir for-
stöðú heimili föður síns, og
Kristrún, gift Ragnari lækni Sig-
urðssyni, búsett í Reykjavík.
Andrés, sonur þeirra hjóna, lézt
1950. Var hann kvæntur Sigrúnu
Sigurðardóttur, Hallbj arnarsonar,
og lifir hún mann sinn.
Margrét var fædd 15. febr.
1891. Hún var dóttir þeirra hjóna
séra Jóns Sveinssonar prófasts á
Akranesi og Halldóru Hallgríms-
dóttur hreppstjóra og alþingis-
manns á Miðteig Jónssonar. Ólst
hún upp á heimili foreldra sinna.
Naut hún þar í uppvextinum um-
hyggju og ástríkis föður síns,
hins vinsæla prúðmennis, og
góðrar og gáfaðrar móður.
Dvaldi hún í foreldrahúsum
þangað til hún giftist eftirlifandi
manni sínum. Reistu þau bú þeg-
ar eftir giftinguna.
Það kom snemma í ljós í fari
hinnar áhugasömu og velgefnu
ungu stúlku, að hún var gædd
— Heit, eindir
og hóttvísi
Framh. af bls. 11.
heyra Reglu góðtemplara, j afnfj ar
læg og gagnstæðsemviðhorf hans
eru gnmdvallarkenningum Regl-
unnar og skuldbindingum. Ég vil
ekki reyna að hafa nein áhrif á
skoðun Oscars Clausen, en það
hryggir mig, ef hann á ekki þann
þegnskap gagnvart eigin dreng-
skaparheiti og þeim félagsskap,
er hann hefur talið sig tilheyra
síðan á æskuárum, að hann leysi
sjálfviljugur þau bönd er enn
binda hann Reglunni í orði
kveðnu.
Indriði Indriðason.
ríkri félagslund. — Hún Varð
snemma hugfangin af þeirri hug-
sjón, að máetti félagssamtakanna
yrði beint að því að hrinda í
framkvæmd ýmsum þýðingar-
miklum málum á sviði menning-
ar og mannúðar. Þráði hún, að
takast mætti með þessum hætti
að leysa úr læðingi bundin öfl,
sem mikils mættu sín, ef margir
legðu saman. Var gáfnafar henn-
ar og skapgerð vel til þess fallin
að hrífa hugi manna til samstarfs
um góð og göfug málefni.
Hugsjónir þær, sem Ungmenna
félagsskapurinn á íslandi var í
öndverðu reistur á, fluttu með
sér vorblæ nýrrar vakningar um
allar byggðir landsins, bæði við
sjó og í sveit. Var æskufólkið
á Akranesi eigi síður en annars
staðar hrifnæmt fyrir þessum
vorboða, sem opnaði mönnum út-
sýn til bjartari og betri tíma,
blés nýju lífi í viljaþróttinn, efldi
trúna á gæði lands og lagar og
skerpti skilninginn og hrifning-
una fyrir tign og fegurð landsins.
í>að lætur að líkum, að Margrét
hafi, svo sem farið var upplagi
hennar, fagnað ' þessum nýju
straumhvörfvun, enda vann hún
af lífi og sál í þessum glæsilega
félagsskap. Er blómaskeið Ung-
vennafélagsins á Akranesi ein-
hver bjartasti sólskinsblettur í
heiði I minningu þeirra, er þar
störfuðu. í þessum félagsskap
lágu fyrst saman leiðir þeirra
Margrétar og Nielsar, því að
hann var einnig þróttmikill þátt-
takandi í þessari starfsemi.
Saga félagsmála-þátttöku Mar-
grétar er ekki öll sögðu með
þessu. Hún var ávallt reiðubúin
til þess að leggja góðu máli lið,
á hvaða vettvangi sem það var.
Hún starfaði um áratugi af mikl-
um áhuga og fórnfýsi í bindindis-
félagsskapnum á Akranesi. Varð
þar aldrei hlé á. Hinn brennandi
áhugi hennar fyrir málefninu og
skilningur á þýðingu þess entist
henni til hinztu stundar.
>á lagði hún og af mörkum
gott og mikið starf í Kvenfélag-
inu á Akranesi. Þar er þrótt-
mikil félagsstarfsemi, sem reynzt.
hefur byggðarlaginu giftudrjúg.
Konurnar á Akranesi hafa með
árvekni sinni og dugnaði unnið
þrekvirki með því liðsinni, sem
þær hafa í té látið til þeás að
hrinda í framkvæn.d ýmsum
framfaramálum, sem markað
hafa djúp spor í þróunarsögu
staðarins.
Ókunnugir kynnu máske að
halda, að hinn mikli félagsmála-
áhugi Margrétar og störf í þágu
þeirrar hugsjónar hefðu ef til vill
að einhverju bitnað á húsmóður-
störfum hennar og heimilisum-
sýslu. En því fer mjög fjarri.
Margrét var frábærlega um-
hyggjusöm húsmóðir og hafði þar
allt í röð og reglu. Það er sumt
fólk þannig af guði gert, að það
virðist hafa tíma til alls og það
alveg eins þótt um sé að ræða
LÖGMENN
Geir Hallgrímsson
Eyjólfur Konráð Jónsson
Tjarnargötu 16. — Sími 1164.
Hurðanafnspjöld
Bréfalokur
Skiltagerðin. Sk ólavörðustíg &
Félagslíf
Ármenningar
Skíðaferð í Jósefsdal um helg-
ina, ef veður leyfir. Skíðakennsla.
Mætið vel. Notið snjóinn og sól-
skilnið. Ferðir á vegum skíðafé-
laganna frá B.S.R.
Skíðadeild Ármanns.
Oft hefur verið úrval
en aldrei eins og nú
Amerlskar bækur i ódýrum útgáfum nýkomnar
• Leikrit
• Sigild skáldrit
-k • Bækur um heimsspeki og listir
• Bækur um geimfarir
• Leynilögreglusögur
• Skritlubækur
Verð aðeins: 6,60, 9.25, og 73.20
Komið meðan úrvalið er nóg
A morgun verða sumar bækurnar bunar
Austurstræti 8 Sími 4527
margháttuð störf í mismunandi
verkahring.
Þannig var því farið um Mar-
gréti. Þetta lá í eðli hennar og
skapgerð. Margrét bjó manni sín-
um og börnum gott og ánægju-
legt heimili. Umhyggja hennar
fyrir heimilinu og öllum sem þar
bar að garði, var einlæg og kær-
leiksrík. Sambúð þeirra hjóna
var farsæl. Þau áttu mörg sam-
eiginleg hugðarefni. Gagnkvæmt
traust og einlægni mótaði hug
þeirra hvors til aimars. Þau
hjónin áttu stóran vinahóp. Allir,
sem af þeim höfðu kynni, báru
til þeirra hlýjan hug. Þau voru
mikil rausnarhjón og gestrisin.
Það var ánægjulegt að dvelja á
heimili þeirra. Glaðværð og
gamansemi húsbóndans, hlýja og
ástríki húsmóðurinnar mótuðu
heimilisbraginn. Það var
birta og heiðríkja yfir heimil-
inu. í huga þess, er þessar línur
ritar, lifa margar góðar og hug-
stæðar endurminningar um
ánægjulegar stundir á heimili
þessara heiðurshjóna.
Fjölmenni mikið var við útför
Margrétar, og voru þar margir
langt að komnir. Einlægar þakkir
og hlýjar kveðjur fylgja henni
yfir landamærin.
Pétur Ottesen. „
AÐALFUMDUR
félags Höfðahverfisbúa verður haldinn föstudaginn 15.
febrúar klukkan 8,30 að Borgartúni 7, uppi.
Fundarefni:
1. Skýrsla félagsstjórnar.
2. Hitaveitumálin.
3. Stjórnarkosningar.
NB. Áríðandi að félagsmenn fjölmenni.
Stjómin.
LOKAÐ
í dag frá kl. 1—4, vegna jarðarfarar.
Verzlun Pétur Kristjánsson s.f.
Ásvallagötu 19.
LOKAÐ
vegna jarðarfarar.
Sveinn Helgason H.F.
Innilegustu þakkir til allra sem auðsýndu okkur sam-
úð og vináttu við fráfall mannsins mins
KJARTANS JÓNSSONAR
Ingibjörg J. Hall og fjölskylda.
Útför
RAGNHILDAR GÍSLADÓTTUR
Vestri Loftsstöðum
fer fram frá Gaulverjabæjarkirkju á morgun kl. 1
Bílferð verður frá Bifreiðastöð íslands sama dag kL S
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlegast
bent á Minningarsjóð Elliheimilisins Grundar, eða Minn-
ingarsjóð Helgu ívarsdóttur.
Minningarspjöld þess sjóðs fást í Gaulverjabæ, hjá Degi
Dagssyni, Selfossi og Bókav. Sig. Kristjánssonar, Rvík.
Böm, tengdabörn og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
DÓMHILDAR INGIBJARGAR GUNNLAUGSDÓTTUR
frá Höfn í Hornafirði. F.h. dætra minna og annara að-
standenda.
Bjami Guðmundsson.