Morgunblaðið - 15.02.1957, Blaðsíða 4
4
MORCTJPJTIL 4Ð1Ð
Föstudagur 15. febr. 1957
1 dag er 46. dagur ársins.
Föstudagur 15. febrúar.
ÁrdegisflæSi kl. 5,42.
Síðdegisflæði kl. 18,08.
SlysavarSstofa Reykjavíkur í
Heilsuverndarstöðinni er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L.
R. (fyrir vitjanir), er á sama
stað kl. 18—8. — Sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki, sími 1618: — Ennfremur
eru Holts-apótek, Apótek Austur-
bæjar og Vesturbæjar-apótek opin
daglega til kl. 8, nema á laugar-
dögum til klukkan 4. Holts-apótek
er opið á sunnudögum milli kl. 1
og 4. —
GarSs-apótek, Hólmgarði 34, er
opið daglega kb 9—20, nema á
laugardögum 9—16 og á sunnu-
dögum 13—16. — Sími 82006.
Kópavogs-apótek, Áifhólsvegi 9
er opið daglega 9—19, nema á
laugardögum klukkan 9—16 og á
sunnudögum 13—16. Sími 4759.
Hafnarfjarðar- og Keflavíkur-
apótek eru opin alla virka daga
frá kl. 9—19, Iaugardaga frá kl.
9—16 og helga daga frá kl. 13—16
Hafnarfjörður: Næturlæknir er
Bjarni Snæbjörnsson, sími 9245.
Akureyri: — Næturvörður er í
Stjömu-apóteki, sími 1718. Nætur
læknir er Pétur Jónsson.
0 Helgafell 59572157 — IV —
V — 2.
RMR — Föstud. 15. 2. 20. —
VS—Fjárhf. — Hvb.
I.O.O.F. 1 => 1382158% s Spkv.
• Hjónaefni •
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Guðfinna Óskarsdótt-
ir, Ásvallagötu 55 og Guðmundur
Cskar Ivarsson, húsasmiður,
Steinaborg, Grindavík.
• Skipafréttir •
Eimskipafélag Islands h.f.:
Brúarfoss fór frá Vestmanna-
eyjum 13. þ.m. til Grimsby og
Hamborgar. Dettifoss hefur vænt
anlega farið frá Hamborg 13. þ.
m. til Reykjavíkur. Fjallfoss fór
frá Hafnarfirði 10. þ.m. til Lond-
on og Rotterdam. Goðafoss fór frá
Rvík 13. þ.m. til Sigluf jarðar, Dal
víkur, Akureyrar og Húsavíkur og
þaðan til Riga, Gdynia og Vent-
spils. Gullfoss fór frá Reykjavík
12. þ.m. til Hamborgar og Kaup-
mannahafnar. Lagarfoss fór frá
Reykjavík kl. 6 í morgun til Kefla
víkur, Breiðafjarðar, Vestfjarða,
Siglufjarðar og Vestmannaeyja
og þaðan til New York. Reykja-
foss er í Rotterdam. Tröllafoss
v..r væntanlegur til Rvíkur s.I.
nótt. Tungufoss fór frá Ant-
werpen 13. þ.m. til Rotterdam,
Hull og Reykjavíkur.
Skipadeild S. 1. S.:
Hvassafell fór 13. þ.m. frá
Akranesi áleiðis til Gdynia. Arn-
arfell fór 12. þ.m. frá Húsavík
áleiðis til Rotterdam. Jökulfell er
væntanlegt til Hamborgar á morg
un. Dísarfell er væntanlegt til
Grikklands 17. þ.m. Litlafell er í
olíuflutningum í Faxaflóa. Helga
fell fór frá Siglufirði 9. þ.m. á-
leiðis til Abo. Hamrafell fór 13.
þ.m. frá Batum áleiðis til Rvíkur.
Átthag'afélag Akraness
hefur spilakvöld í Skátaheim-
ilinu, föstudag kl. 8,30.
Ir ERDIIM AIMD
D
ag
bók
5 mínútna krossgáfa
S7TTJB
B 9 -~ -
Mynd þessi birtist nýlega í blaðinu Grimsby News Pictorial. Hún
sýnir líkkistu íslenzka sjómannsins Alberts Guðmundssonar flutta
um borð í togarann Hallveigu Fróðadóttur. En Albert hafði týnzt
fyrir nokkru í Grimsby og fannst lík hans í höfninni þar. Sjómenn
aí þremur íslenzkum togurum voru viðstaddir er hann var fluttur
i íslenzka skipið og einnig þeir Þórarinn Olgeirsson ræðismaður og
F. Huntley Woodcock fiskveiðiráðunautur.
Kirkjukór
Langholtssóknar
Skemmtun heldur kirkjukór
Langholtssóknar í Ungmennafé-
lagsheimilinu við Holtaveg, laug-
ardaginn 16. febr. kl. 8,30. — Til
skemmtunar verður félagsvist og
dans. —
íþróttamaðurinn
Afh. Mbl.: Kona á Akranesi
krónur 50,00.
Albert Schweitzer
Afh. Mbl.: Oddgeir, Jón og Jó-
hann krónur 300,00.
HaHgríms-
í Saurbæ
Séra Sigurjón Guðjónsson próf-
astur hefir nýlega afhent mér kr.
500,00 til kirkjunnar frá próf.
Richard Beck og frú hans og enn-
fremur kr. 100,00, áheit frá N.
N. — Matthías Þórðarson.
Frímerkjasafnarar
Leon L. Berger, 201 Sullivan
Street, New York 12 N.Y., USA
vill komast í bréfaviðskipti við
íslenzkan frímerkjasafnara. Hann
kveðst þekkja 20 aðra menn sem
innig vilja komast í bréfavið-
skipti við íslendinga í sama til-
gangi. Bréf frá honum er hjá
Dagbók Morgunblaðsins og má
vitja þess þangað.
Eimskip og sjúkrabíllinn
Formaður Rauða kross deildar-
innar í Hafnarfirði, Ólafur Ein-
arsson héraðslæknir bað Mbl. í gær
að geta þess, þar sem það hefði
fallið niður, að Eimskipafélag ís-
lands gaf eftir helming flutnings
gjalda fyrir sj úkrabílinn, sem
sagt var frá í blaðinu í gær.
Guðspekifélagið
Dögun heldur aðalfund sinn í
kvöld kl. 8,00 í Guðspekifélagshús
in. Aðalfundarstörfum verður
lokið kl. 8,30. Þá verður fluttur
þáttur um kenningu Buddah, Sig-
valdi Hjálmarsson flytur erindi:
Sagnir um dulræn máttarverk í
Tíbet. Ennfremur verður sýnd
kvikmynd og að lokum eru kaffi-
veitingar. Utanfélagsfólk er vel-
komið á fundinn.
Happdrætti K.R.F.Í.
Dregið hefir verið í afmælis-
happdrætti K.R.F.l. — Þessi
númer komu upp: — Nr. 249,
Torfhildur Hólm: Ritverk I—III.
Nr. 649, Kristín Sigfúsdóttir: Rit-
verk I—III. Nr. 668, Einar H.
Kvaran: Ritsafn I—VI. Nr. 806,
Hulda: 1 ættarlandi mínu, Erla:
Fífulogar. Nr. 680, Guðrún Jóns-
dóttir: Skki heiti ég Eiríkur og
Efemia Waage: Lifað og leikið.
Nr. 575: Góðar stundir og Jón
Stefánsson: Úti í heimi. Nr. 420:
Bjöi-n Bjamason: Iþróttir fom-
manna. Nr. 752: lslands þúsund
ár. — Vinninganna sé vitjað í
skrifstofu félagsins, Skálholtsstíg
7, sem er opin þriðjudaga, fimmtu
daga og föstudaga kl. 4—6.
(Birt án ábyrgðar).
Þakkir frá Vífilsstöðum
Sjúklingar á Vífilsstöðum hafa
beðið Mbl. að færa allmörgum að-
ilum þakkir, sem gert hafa þeim
ýmsan greiða, fært þeim gjafir og
skemmt þeim. Skal þessum mönn-
um einkum skilað þökkum: —
Magnúsi Víglundssyni, Sveini Val-
fells og Jóni Guðmundssyni fyrir
að gefa vinninga í félagsvist,
Magnúsi Helgasyni, Ásbirni Ólafs
syni, Soffíu Jensdóttur, Frey
Magnússyni og Ingunni Jónsdótt-
ur fyrir gjafir til skreytinga á
dagstofu um jólin, Freymóði Jó-
hannessyni, S.K.T., hljómsveit
Karls Billichs og söngvurunum
öddu Örnólfs, Sigurði Ólafssyni
og Hauki Morthens fyrir skemmt-
un, prófessor Finnboga Guðmunds
syni fyrir sýningu á kvikmynd,
Fritz Weisshappel, Þuríði Páls-
dóttur, Guðmundi Jónssyni,
Kristni Hallssyni og Hjálmari
Gíslasyni fyrir söng, hljóðfæra-
leik og gamanþátt og loks Karla-
kórnum Fóstbræðrum fyrir söng-
Orð lífsins:
Snúizt til 'umvöndunar minnar
(segir Drottinn) sjá, ég læt Anda
minn streyma yfir yður, kunn-
gjöri yður orð min.
(Orðskv. 1, 23).
Sauille: — „Að sjá drukkinn
mann er betri viðvörun en nokk-
ur bindindisprédikun".
— Umdæmisstúkan.
Læknar f jarverandi
Bjarni Jónsson, óákveðinn tlma.
Staðgengill: Stefán Björnsson.
Ezra Pétursson óákveðinn tíma.
Staðgengill: Jón Hjaltalín Gunn-
laugsson.
Hjalti Þórarinsson fjarverandi
óákveðinn tíma. — Staðgengill:
Alma Þórarinsson.
• Gengið •
Gullverð isl. krónu:
100 gullkr. = 738,95 pappírskr.
Sölugengi
1 Sterlingspund .. kr. 45.70
1 Bandaríkjadollar . — 16.32
1 Kanadadollar .. — 16.90
100 danskar kr........— 236.30
100 norskar kr........— 228.50
100 sænskar kr........— 315.50
100 finnsk mörk .... — 7.09
12 13
Hm;
i1' |U
18 ‘
SKYRINGAR.
Lárétt: — 1 fögur — 6 óðagot
— 8 lélegur — 10 dropi — 12
aukaspikið — 14 fangamark —•
15 einkennisstafir — 16 korn —
18 hækkaðan í tign.
LóSréu: — 2 ræfil — 3 fanga-
mark — 4 fornafn — 5 hesta —
7 fuglinn — 9 rifja upp — 11
forfeður — 13 stúlka — 16 drykk
ur — 17 samhljóðar.
Lausn siðustu krossgátu.
Lárétt: — 1 smali — 6 afa —■
8 ost — 10 gól — 12 nestinu —
14 DT — 15 nk. — 16 æum —
18 nistinu.
LóSrétt: — 2 mats — 3 af — 4
lagi — 5 London — 7 klukka —
9 set — 11 ónn — 13 taut — 16
ÆS — 17 mi.
1000 franskir frankar . — 46.63
100 belgiskir frankar . — 32.90
100 svissneskir fr. .. — 376.00
100 Gyllini .........— 431.10
100 tékkneskar kr. .. — 226.67
100 vestur-þýzk mörk — 391.30
1000 Lírur ..........— 26.02
• Söfnin »
Listasafn ríkisins er til húsa 1
Þjóðminjasafninu. Þjóðminjasafn
ið: Opið á surnudögum kl. 13—16
og á þriðjudögum, fimmtudögum
og laugardögum kl. 13—15.
Náttúrgripasafnið: Opið á
sunnudögum kl. 13,30—15, þriðju
dögum og fimmtudögum kl. 14—-
15.
Ilvað kostar undir bréfin?
1—20 grömm:
Flugpóstur. — Evrópa.
Danmörk .......2,30
Noregur .......2,30
Svíþjóð .......2,30
Finnland ......2,75
mœ¥§iimccgjiMii
Góð eiginkona.
★
Þegar Brahms eitt sinn var á
ferð í Hamborg, var hann boðinn
JUarz-búinn
í veizlu til stórríks kaupmanns. Er
sezt hafði verið að borðum, reis
húsbóndinn úr sæti sínu og flutti
ræðu þar sem hann bauð Brahms
velkominn með mörgum fögrum
orðum. Hann kvað það vera mik-
inn heiður fyrir sig og sitt hús,
að hinn mikli snillingur skyldi
þiggja þetta boð og kvaðst hann
vilja láta, gestinum til heiðurs,
sækja bezta vínið sem hann ætti
í kjallaranum.
Brahms, sem þótti mjög gott
vín, gat ekki dulið undrun sína, er
hann heyrði að kaupmaðurinn ætti
heilan vínkjallara.
Það var skálað, og húsbóndinn
sneri sér að Brahms og spurði:
— Jæja, hvernig bragðast yður
vínið? Þetta er nefnilega
„Brahms" meðal vína minna.
Brahms smakkaði aftur, horfði
niður £ glasið, smakkaði aftur, leit
síðan til kaupmannsins og sagði:
— Afbragðs gott vín, en ef
þetta er „Brahms", þá fyndist
mér að þér ættuð að láta þjóninn
yðar sækja „Beethoven“ yðar
líka, þann stóra meistara.
★
Jean-Louis-Guez Balzac, fransk
ur rithöfundur, sem uppi var um
sama leyti og Champfleury, um
aldamótin 15 og 1600, sagði einu
sinni við Champfleury:
— Þér líkizt mér talsvert í skrif
um yðar, og það gleður mig, yðar
vegna.