Morgunblaðið - 15.02.1957, Síða 9

Morgunblaðið - 15.02.1957, Síða 9
Föstudagur 15. febr. 195? MORCUNBLAÐIB 9 \ ) s s s s s s s s s s s s s Samtíningur og sitthvað um Úlfljót, blað laganema 10 ára Ý DAG er eina stúdentablaðið * sem út kemur að staðaldri í Háskólanum, 10 ára. Það er Úlfljótur, blað laganema. En það er ekki einungis, að það sé eina blaðið, sem svo er háttað um, heldur er Úlfljót- ur jafnframt það lögfræði- tímarit sem lengst hefur ver- ið gefið út hér á landi. ★ ELDRI lögfræðitímarit eru „Lög fræðingur", sem út kom í fimm ár og „Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga“ sem út kom í tvö ár, bæði fyrir áratugum síðan og eru nú næsta sjaidséð rit og mikil eftirlæti bókasafn- ara. Fjórum árum eftir að ulf- ljótur hóf göngu sína, 1951, stofn- aði loks Lögmannafélag íslands til tímaritsútgáfu og gaf út Tíma- rit lögfræðinga. ÞAÐ var 15. febrúar 1947, sem það var ákveðið á fundi í fé- lagi laganema, Orator, að efna til útgáfu tímairts. Fyrsta hefti þess kom út nokkrum dögum síðar og hlaut nafnið Úlfljótur, eftir þeim mikla lögspeking þjóðveldisins. í>á var formaður Orators Þor- valdur Garðar Kristjánsson lögfr. og varð hann jafnframt upphafs- maður og frumkvöðull að útgáfu tímaritsins og fyrsti ritstjóri þess. í fyrsta heftið, fyrir 10 árum, Spjallað við ritstjórann, Benedikt Blöndal, ritaði próf. Ólafur Lárusson merka lögfræðilega fræðigrein og hefur sá háttur haldist jafnan síðan, að ekkert hefti hefur út komið, án þess að þar sé að finna eina fræðigrein lögfræðilegs efnis. Eins og áður getur hefur geng. ið heldur stirðlega að halda uppi reglulegri blaða- og tímaritaút- gáfu í Háskóla íslands af hálfu stúdenta, hverju sem það sætir, og var svo komið, að eitt ár lá útgáfa Úlfljóts niðri, vegna fjár- skorts og annarra erfiðleika. — Næsta ár var Þorvaldur Ari Ara- son lögfræðingur kjörinn ritstjóri blaðsins og endurreisti hann út- gáfuna af miklum skörungsskap og hefur tímaritið dafnað vel æ síðan. Það er merkt um Úlfljót umfram flest önnur blöð íslenzk, að það er gefið, en ekki selt. í augum uppi liggur, að þessi út- gáfuháttur getur skapað nokkur fjárhagsvandræði, ef ekki er vit. urlega á málunum haldið. Blaðið hefur hlotið nokkurn árlegan fjárstyrk frá Háskólaráði, sem lít ur þessa útgáfustarfsemi innan veggja Háskólans að vonum hýru auga, en megintekjur blaðsins eru auglýsingar og gjald fyrir starfs- skrá yfir nær alla starfandi mál- flytjendur, endurskoðendur, fast- stud. jur. eignasala, skjalaþýðendur og vá- tryggjendur á landinu. f augum laganema er það líka einn mikill kostur blaðsins, að það skuli ekki íþyngja pyngju þeirra um of. Standa þeir allir þétt saman um að útgáfa þess geti orðið sem veglegust. NÚVERANDI ritstjórar Úlfljóts eru Benedikt Blöndal stud. jur. og Grétar Haraldsson. — Ég kom að máli við Benedikt á þess. um tímamótum í sögu blaðsins og spjallaði við hann stundarkorn um markmið blaðsins og tilgang. — Það er fyrst og fremst hlut- verk Úlfljóts, segir Benedikt, að vera vísinda- og fræðitímarit í lögfræði. Allt frá fyrsta heftinu hefur í því birzt lögfræðileg fræðigrein eftir fremstu menn ís- lenzka á sviði lögvísinda. f af- mælisheftinu er grein, sem nefn- ist „Véfang", eftir próf. Ólaf Lár- usson. Að þessu leyti er Úlfljótur þegar orðinn allmerkt heimilda. og fræðirit, og þess má geta, að þessar greinar, sem í honum hafa birzt eru sumar þegar orðnar skyldunámsefni til lögfræðiprófs, og má þannig með nokkrum sanni segja, að Úlfljótur sé ein kennslu bóka í lagadeild. Björn i Bæ: HEIM AÐ HÓLUM UNDANFARIN ÁR hefir það verið venja að Hólaskóli hefir boðið hvern vetur heim að Hól- um* Búnaðarfélögum Skagafjarð- arsýslu. í þetta skipti varð það kærkomið hlutskipti félaga úr Hofshreppi að þiggja boð þetta. Laugardaginn 19. janúar söfnuð- ust 49 bændur saman og óku af stað heim að Hólum. Ekki get ég neitað því, að þótt ég ger- ist nú vel fullorðinn maður hlakkaði ég til þessarar ferðar, því að koma að Hólum hefur mér ætíð verið tilhlökkun. Mun það líka hafa verið svo með fleiri í þetta skipti, því aðeins 2 af öllum bændum í hreppnum vant aði vegna veikinda á heimilum þeirra. Heim á staðinn komum við kl. 2 eins og ráð var fyrir gert. Tók skólastjórl, Kristján Karlsson, á móti okkur með hlýju handtaki, eins og hans er venja. Við vor- um fyrst lelddir í smíðahús pilta, þar er mikið rúm og vistlegt. Vélar eru þar til alls, svo sem rennibekkur, hefill, borvél, sög o. fl., allt vitanlega rafknúið. Annar bekkur skólans var að þessu sinni við bókband. Virt- ist okkur allt handbragð og frá- gangur hinn snyrtilegasti og bundnar bækur vel frá gengnar, enda var okkur sagt, að kennar- inn væri prýðilegur. Strákar sögðu okkur einnig, að þeir hefðu mikið gagn og ánægju af smíða- og bókbandsnáminu. Úr smíðahúsi vorum við leidd- ir í leikfimishús, þar sem yngri bekkur skólans var að æfingum. Margt rifjaðist upp fyrir okkur gömlu nemendunum, þegar við komum í leikfimihúsið, en um 20 Hólamenn voru með í förinni. Leikfimihúsið var og hefur verið aðalskemmtistaður skólans, og er óhætt að segja, — án þess að vilja beint fyrta konur okkar bless- aðar, — að þarna höfðum við faðmað margan kvenmanninn, það er að segja í dansi, og ekki mun örgrannt um að fyrsta kynn- ing hamingjusamra hjóna, hafi átt sér stað í þessu húsi. Jæja, við horfðum auðvitað á strákana og ekki er vafi á að suma langaði til að reyna stökk og eitthvert umtal var um að bjóða Hólamönnum í bænda- glímu. Ekkert varð þó úr þessu, því nú kom skólastjóri og bauð bændum upp á kaffi. Gengu allir heim á skólastjórasetrið þar sem frú Sigrún, skólastjórafrú, bauð gesti velkomna á sitt glæsilega heimili. Bændur settust nú að borðum hlöðnum kræsingum og neytti þar hver svo vel, sem magarúm leyfði. Eftir drykkju fór allur mann- skapur niður að fjárhúsum til að skoða húsakynni þar. Allt er vitanlega steinsteypt og vel um búið. Fimm hús standa þar sam- stæð, en fram á útjörð Hóla, Hagakoti, eru einnig miklar bygg ingar. Þarna er heldur enginn smábúskapur, enda ekki einstakl ingur sem framkvæmir. Með okk ur fóru í fjárhúsin Árni lcennari og ráðsmaður skólabúsins. Skýrðu þeir allt og leiðbeindu mjög vel. Ýmiss konar tilraunir er verið að gera á Hólum og þar á meðal með féð. Um 540 fjár er á fóðrum í vetur. 700 lömb fædd ust, en nokkrar ær létu lömbum og drápu undan sér svo í júní lok voru á lífi 660 st. En í haust- kauptíð voru 650 á lífi, aðeins 10 vantaði því af fjalli. Meðal- þungi allra lamba í haust var á fæti 35,1 kg, en kjötþungi slát- urlamba 14,3 kg (1955 var meðal þungi kjöts 14,6 kg.) Undan hverri vetrarfóðraðri kind fengust 17,4 kg af kjöti. Mjög fróðlegt og skemmtilegt var að heyra um tilraunir þær, sem verið er að gera á skólahúsinu. T. d. að áberandi vænstu lömbin komu undan ánum, er mestan fóðurbæti fengu um og eftir burð. Hending var að vænn dilk- ur kæmi undan ánum, er báru hretdagana í vor og urðu að ein- hverju leyti fyrir áföllum. Á all- ar ær og gemlinga, sem voru með Benedikt Blöndal. í öðru lagi er ætlun ritsins að stuðla að kynnum og sambandi laganema og lögfræðinga og efla samheldni þeirra á milli. Félags- lífið verður fjölskrúðugra og öfl- ugra með slíkri tímaritaútgáfu og svo hefur reynzt síðan Úlfljótur hóf göngu sína. Ritstjórnin hefur jafnan reynt að fá laganema til þess að skrifa í ritið, en það hefur gengið nokkuð erfiðlega, verr en skyldi. — Og hverjar eru framtíðar- horfur ritsins? Nokkrar breyting- ar á því í vændum? — Úlfljóti vegnar vel eins og sakir standa, og ekki er annað að sjá en að framtíðarhorfur hans séu góðar. Ekki höfum við ritstjórar í huga að gera nokkrar breytingar á ritinu. Úlfljótur er ákaflega íhaldssamt blað og mun koiha út áfram í svipuðu formi. Benedikt rekur síðan þá örðug- leika er blaðið átti í fyrstu starfs- árin, einkum fjórða árið, er svo hart var í ári að selja varð laga- nemum blaðið. Og sama árið, sem Tímairt lögfræðinga hóf göngu sína varð hlé á útgáfunni, enda þótti þá mörgum þægilegt að lömbum um rúning, fekkst 48,48 kg lifandi þungi, en 20,14 kg af kjöti. Flokk af ám hafa þeir til til- rauna með hormónainngjöf. Koma þær flestar með 2 til 4 lömb.Þó hvatti Árni kennari ekki mikið til þeirrar starfsemi. Eins og fyrr segir, eru öll hús þarna mikil og virðist öllu haganlega fyrir komið. Úr fjárhúsunum gengu menn í fjós. Þar eru 42 mjólkandi kýr, en upp undir 60 í fjósinu. Kýrn- ar eru vel hirtar, og margar af þeim fallegar, en ekki virðist vera mikil kynfesta í þeim. Meðal nytin var í fjósinu 1956, 3270 kg en hæsta kýrin mjólkaði rúmlega 5000 kg. Fjósið er byggt og stækk að úr gömlu fjósi. Er það góð bygging, en þó ekki að öllu eins og kröfur tímans heimta. Ekki gátu menn skoðað hesta, nema kynbótahestana, sem voru í húsi. Ég er ekki það mikill hestamaður, að ég gæti dæmt þá. En vel hirtir voru þeir. Um 90 hross eru á skólabúinu, en lík- legast aðeins 2—3, sem notuð eru öðru hverju. Öllum bændum var nú vísað inn í skólastofurnar, þar sem kennarar og skólastjóri héldu erindi um rekstur skólahússins og tilraunir þær, sem verið er að gera. Túnið er nú um 80 hektarar. Tilbúinn áburður var keyptur fyrir 60—70 þús. kr. sl. ár, en fóðurbætir fyrir 47000. Mest af honum fór í kýrnar. Á hektara var borið 90 kg af köfn- unarefni, 80 af fosfórsýru og 70 af kalí. Reynsla var sú, að þurft hefði að bera á 120 kg af köfn- unarefni. Á sumrin beita þeir kúnum á ræktuð hólf, sem skipt er um, en eftir að sláttur er bú- inn, ganga þær á túninu þar til þær eru teknar í hús. Á milli erinda kennaranna, sungu allir fullum hálsi, en í byrj un þessa fræðsluþáttar sungu skólapiltar nokkur lög undir stjórn söngkennara skólans. Er þessi þáttur var búinn, var bænd um boðið til matar upp í skóla- stjóraibúð. Var þar sem fyrr, leggja blaðið niður og fá í þess stað tvær eða þrjár opnur í Tíma- riti lögfræðinga fyrir fréttir úr lagadeild. En úr rættist, svo sem áður er getið og vegur blaðsins hófst góður á ný, og kemur blað- ið nú reglulega út fjórum sinnum á ári. Og loks segir Benedikt: — Á afmæli sínu flytur Úlf- ljótur öllum þeim sem skrifað hafa í hann, auglýst í honum eða stutt hann á annan hátt, þakkir sínar, og vonar að hann fái að njóta vináttu þeirra og stuðnings um ókomin ár. IAFMÆLISRITINU er auk þess efnis, sem þegar hefur verið talið, viðtal við fyrsta ritstjór- ann, Þorvald Garðar Kristjáns- son, þættir úr sögu Orators eftic Benedikt Blöndal, ritdeila laga- nema um það hvort stétt föðurs hafi áhrif á námsmöguleika fólks, rekabálkur, fregnir úr lagadeild og fleira. En ef einhver skyldi halda að Úlfljótur væri eingöngu þurrt fræðirit sem birti að mestum hluta lagagreinar og útskýringar á lagastöfum og paragröffum, þá er það hinn mesti misskilningur. Úlfljótur getur engu að síður brugðið á glens, eins og vera ber um stúdentablað, í honum hafa birzt þættir og frásagnir, m. a. um „hinn árlega vísindaleiðang. ur laganema að Litla Hrauni'*, sem lengi munu í minnum hafðar fyrir gáskafullan rithátt og lipra, stundum ofurlítið ýkta frásagn- argáfu. Því einmitt á þennan hátt, með því að vera bæði nokk- urt fræðirit í lögfræði og jafn- framt glaðsinna málgagn laga- stúdenta, þjónar ritið bezt hin- um tvíþætta tilgangi sínum. Og því til sönnunar, að ekkert nám jafnist að skemmtan á við lög- fræðinámið, því alltaf heyrir mað ur einhverja um það efast, skal endir á þetta mál um Úlfljót 10 ára bundinn með því að birta hér vísu nokkra úr síðasta hefti, en hún er ort af einum laganema endur fyrir löngu. Það er Tómas Guðmundsson stud. jur., sem kveður um bækur Einars Arnórssonar: Ó! Hversu ljúft er að lesa um Lögbann og kyrrsetning, en þó um Uppboð og undirboð og Áfrýjun glaðast eg syng. Og loks, þegar Aðför er úti og eygló er sigin í mar, þá dreymir mig himneska drauma um Dómstóla og réttarfar. ggs. rausnarlega á borð borið, hófust þá ræðuhöld nokkur af hálfu gestanna, sem létu óspart í ljós ánægju sína og hug allan til Hóla og skólastjórahjónanna. Eftir máltíðina var öllum boð- ið aftur niður í skólastofurnar og þar sýndar kvikmyndir, en nú var dagur mjög liðinn að kvöldi og margur fáliðaður heima. Ekki var þó skólastjóri á því, að strax væri farið og þýddi ekkert að deila við dómarann um það. Einu sinni enn urðum við að fara heim til Kristjárns og drekka kaffi og mjólk eftir því sem hver hafði magarúm til. Þótti þó sumum þar ekki á bætandi. Er við stóðum upp frá borðum og menn fóru að hugsa til heim- ferðar varð mér gengið fram í eldhús til stúlknanna, sem ekki höfðu gert annað allan daginn en að sjá um að við gætum kýlt okkar maga sem mest. Þarna sátu þær blessaðar, vitanlega uppgefn ar, en að ég held ánægðar yfir að gestirnir voru í sjöunda himni af ánægju. Ég vissi, að þær ætl- uðust ekki til þakkar frá okkar hendi, en þó gat ég ekki annað en þrýst hendur þeirra allra. Þegar út fyrir dyr skólastjór- ans var 'komið, og allir höfðu þakkað fyrir höfðinglegar mót- tökur, fræðslu og skemmtun, sýndu bændur, að þeir voru sann ir Skagfirðingar með því, að kyrja fullum hálsi: Farvel Hólar fyrr og síð. Farvel sprund og halur. Farvel Rafta fögur hlíð Farvel Hjaltadalur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.