Morgunblaðið - 15.02.1957, Síða 10

Morgunblaðið - 15.02.1957, Síða 10
10 MORCV1SBLAÐ1Ð Fostudagur 15. febr. 1957 — í fáum orðum sagt Til sölu 2 íbúðir 3 herbergi og eldhús á 1. hæð 2 herbergi og eldhús á 3. hæð á góðum stað í Austurbænum. Uppl. á Barónsstíg 23. Skrifsfofustúlka óskast allan eða hálfan daginn frá 1. marz nk. eða síðar. Þarf að kunna vélritun. Tilboð merkt: Siðprúð —2005, sendist afgr. Morgbl. fyrir 20. febrúar. Ódýrir kuldaskór barna- og unglinga Verð frá kr.: 129,00. Valborg Austurstræti 12 Rafmótorar — % — % — % 1 — 1%—2 —3 — 4% — 5% — 7% — 10 — 15 ha. GANGSETJARAR, Stjörnuþríh. og automatiskir flestar stærðir LUDVIG STORR & CO. Framh. af bls. 6 eldi. Og með þessum hætti setti lifið okkur „paa plads“, svo að maður tali nú ekki alltof gott mál. Áður en við snerum okkur að störfum Guðbrands við ísafold, sagði hann mér nokkru nánar frá dvöl sinni á Seyðisfirði. Ber hann mjög hlýjan hug til æskustöðva sinna. Seyðisfjörður var á þess- um tíma einn helzti athafnabær landsins og þar runnu margir straumar saman. Útlendingar vöndu komur sínar þangað, „-----og maður var ekki gamall, þegar maður var farinn að stauta sig fram úr dönsku", segir Guð- brandur og brosir. Við ungling- arnir þekktum þá menn sem mest kvað að, annað hvort af orðspori eða í sjón, því allar götur láu þá um þessa litlu Róm. Ég man t.d. vel eftir því, þegar Schou kom þar við um það Ieyti sem hann stofnaði íslandsbanka. Hann var gestur Jóhannesar bæjarfógeta og þar sá ég hann eitt sinn. Átti við hann eitthvert. erindi. Þegar ég kom var hann með náladofa í öðrum fæti; hann benti á fótinn og sagði við mig: „Mit ene ben der sover“. Þá lærði maður það! — Þér komuð til ísafoldar- prentsmiðju 1908? — Jó. ísafold var mikil stofn- un í þá daga, ja, hún var eigin- lega þyngdarpunkturinn í bæjar- lífinu. Þar sveif líka andi Björns Jónssonar yfir vötnunum. Og það var enginn smákarl, skal ég segja yður. — Nei, ég þykist vita það. — Það var margt prentað í ísa- fold og svo bættist Morgunblaðið við, þegar það var stofnað. Einnig man ég eftir því, að við prent- uðum með leynd boðsbréfin að stoínun Eimskipaf él agsins. Það mátti ekki kvisast, að málið væri í deiglunni. Menn þorðu víst ekki að vekja Dani af værum svefni og sumum íslendingum fannst kannski í fullmikið ráðizt: .... þeir ætla sér að eignast skip, en enginn kann að sigla. — En hvað um fyrsta ár Morg- unblaðsins? — Ja, það hefur ýmislegt verið skrifað um það. Annars var fréttaleysið alveg að drepa Fin- sen. Hann óð um allan bæ til að KJARNMIKIL MÁLTÍ-Ð ÚR ÚRVALS SKOZKUM HÖFRUM Avallt, þegar þér kaupið haframjöl, þá ‘biðjið um Scx>tt’s. Þér tryggið yður úrvals vöru framleidda viö ýtrasta hreinlæti og pakkað i loft- þéttar umbúðir. Scott’s haframjöl er mjög auðugt af B bætiefhum. HINIR VANDLÁTU VELJA Scott's finna eitthvað sem setja mætti á prent. Einu sinni fór illa. Það var nýkominn' olíufarmur til Lands- verzlunarinnar. Hann var auðvit- að fluttur í tunnum í þá daga. Finsen hitti verkamenn á götu. Þeir voru með olíu í fötu og var sú menguð óhreinindum. Finsen spyr, hvort þetta sé olían til Landsverzlunarinnar. Þeir svara, að svo sé. Þarna var nú aldeilis stoff! — því að Finsen skildist að olían væri öll svona. En sann- leikurinn var sá, að þetta var úr kjalsoginu, svo að Finsen varð síðar að biðjast afsökunar í blað- inu. Landsverzlunin vildi selja sína olíu, svo að það var ekki um annað að ræða! Að þessu var hent gaman í bænum og tók ég þátt í því, kastaði fram þessari vísu: Miklar eru og margvíslegar manna hrellingar. Með feitum korpus Finsen biður fyrirgefningar. Maður var nýbúinn að læra að yrkja hjá Einari Kvaran! Hann kenndi okkur stuðlasetningu í Ungmennafélaginu. — Og svo hættuð þér prent- arastarfinu? — Já, hafði ekki áhuga á því lengur. Björn var fallinn frá og ég var ekki ánægður með það sem verið var að karpa um á prenti. Hafði engan áhuga á að selflytja þennan andskota á prent. Á þess- um árum varð pólitíkin lágkúru- leg og leiðinleg. Það var sífellt þvælt um júrídískar endaleysur sem almenningur hafðj engan áhuga á. Og svo þótti sá mestur sem gat uppnefnt andstæðinginn listilegast. — Ég hóf búskap fyrir austan, en kom svo aftur í bæinn 1916. Þá kemur Jónas á Hriflu eitt sinn til mín og biður mig um að verða ritstjóri Tímans. Hann sagði, að Framsóknarflokkurinn yrði að fá málgagn úr því hann hafði þegar fengið ráðherra. Ég tókst það á hendur, en sagði: Það er sá einn kostur við mig, að það verður auðvelt að losna við mig. Ég ætla mér að verða bóndi.... Annars var gert ráð fyrir því, að Héðinn Valdimarsson tæki við Tímanum, en hann var þá við nám í Höfn. Ekki varð úr, að Héðinn gerðist ritstjóri Tímans og munu ýmsar orsakir hafa legið til þess. — En svo tók Tryggvi Þórhalls- son við Tímanum. — Já, ég skal segja yður, hvern ig það var. Um haustið 1916 deyr Þórhallur biskup Bjarnason og Jón Helgason tekur við. Tryggvi hleypur þá í skarðið fyrir hann og er settur dósent við Guðfræði- deildina. Síðan er stofnað til samkeppnisprófs um embættið og var Magnúsi Jónssyni dæmdur sigurinn. Sunnudaginn sem úr- skurður dómnefndar féll vorum við í útreiðartúr við Tryggvi. Þegar heim kemur, fáum við fréttirnar. Tryggvi hafði lofað að messa á Laugarnesi þennan dag og það gerði hann. Eftir mess- una sagði hann við mig: „Eitt er ég viss um, að fólkið í Laugar- nesi hefur ekki haft hugmynd um, hvað ég hef orðið fyrir mikl- um vonbrigðum í dag“. Þetta var í eina skiptið sem ég heyrði sjálf- hælni af hans vörum. — Nú, svo er þetta sama kvöld í Laufási farið að ræða um framtíð hans. Einna helzt var von um stunda-' kennslu við einhvern skólann hér í bæ. Frá föðurleifðinni vildi hann nauðugur fara. Þá segi ég við hann: „Viltu verða ritstjóri Timans? Það er líka að vera kennari, það eru aðeins fleiri nemendur á skólabekknum". Þetta varð. Það var mikið lán fyrir Tímann að fá Tryggva. Og þarna fékk þá flokkurinn sinn formann. — Og hvað gerðuð þér svo? — Ja, mér voru allir vegir fær- ir. Einu sinni átti að gjöra mig að eftirlitsmanni með mælitækj- um og vogaráhöldum. En þá sótti svo ágætur maður um þetta starf, að mér var ómögulegt að sækja á móti honum. — Hver var það? —- Dr. Þorkell Þorkelsson veð- urstofustjóri. — En svo að ég snúi mér aftur að Tryggva. — Hann ætlaði að sigla háan sjó, vissi, að axir hans voru góð- ar .... En hann varð að koma til okkar aftur...... — Jónas bolaði honum frá? — Ég vil helzt ekkert um þetta tala. Þetta er svo persónulegt, og ég hef haft mætur á þessum mönnum báðum. Þegar við Jónas kynntumst ungir, runnum við saman eins og Gin og Vermouth. Nýr kokteill! En eigum við ekki að taka upp léttara hjal? — Og tala um Áfengisverzlun- ina? — Onei, við skulum láta hana eiga sig. Starf mitt við hana hef- ur oft verið misskilið. Einu sinni hitti ég frænda minn nokkurn sem var reyndar prestur líka og þegar hann vissi hver ég var — hopaði hann á hæl! Það hvarflaði nú stundum að mér, að eitthvað hefði ég nú getað annað gert en selja áfengi, — en þessi stóll þarf líka mann! Lífið hefur kennt mér sitthvað á þessum sjötíu árum, segir Guðbrandur eftir nokkra þögn. Til dæmis, það er enginn hann sjálfur, heldur hann sjálfur plús sá sem hann ræðir við, deilt með tveimur. Hafið þér ekki tekið eftir því, hvað þér eruð mismun. andi gáfaður eftir því með hverj- um þér eruð? Það er eitthvað sem verður til milli manna. Og að lokum: — Manni hefur verið það eigin- legt að leita að björtu hliðunum hverju sinni og langoftast séð eitthvað jákvætt við hið mót- dræga í lífinu. ★ ★ etta voru síðustu orð Guð- brands Magnússonar. Við getum vafalaust dregið ýmsar ályktanir af samtalinu. En aðal- atriðið er, að honum hefur tekizt að varðveita æsku sína og njóta þeirrar hamingju sem forsjónin veitti honum. M. ★ Grískumælandi Kýpurbúar lögðu niður vinnu í 24 táma í dag að undirlagi EOKA til _að undirstrika kröfur sínar um sam- einingu eyjarinnar við Grikk- land. Verkfallið hófst þegar um- ræður Allsherjarþings S. Þ. um Kýpur-málið áttu að hefjast, en þær hafa nú tafizt. Thor ÍSSKÁPUR Af sérstökum ástæðum er til sölu 8 rúmfeta Thor ísskápur á mjög hagstæðu verði. — Upplýsingar gefur Guðmundur Ásgrímsson. J. ÞORLÁKSSON & NORÐMANN Verkfrœði Vél averkfræðinemi, kominn að lokaprófi vlð Foly- teknisk Læreanstalt í Kaupmannahöfn, óskar eftir vinnu um 6 mánaða tíma, helzt í faginu. Aðalfag: Driftsteknik. — Uppl. í síma 81178.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.