Morgunblaðið - 03.04.1957, Qupperneq 3
Miðvikudagur 3. apríl 1957
MORCUNBLAÐIÐ
3
Umrœðufundur um
framtíð Reykjavíkur-
flugvallar
Frá aðalfundi Flugmálafél. íslands
FLUGMÁLAFÉLAG ÍSLANDS
hélt nýlega aðalfund sinn. For-
seti félagsins Sigfús Guðmunds-
son gerði grein fyrir störfum fé-
lagsins á sl. ári, en samkvæmt
lögum þess, er tilgangur félagsins
sá, að efla áhuga á flugi og
útbreiða þekkingu á flugmálum
almennt. Hefur félagið í því
skyni gefið út Tímaritið Flug, en
af því hafa nú alls komið út 7
árg., vandaðir að efni og frá-
gangi. Það hefur nokkuð háð
starfsemi Flugmálafélagsins und
anfarin ár, að það hefur ekki haft
fastan samastað, en nú hefur fé-
lagið frá sl. áramótum fengið inni
hjá Ferðafélagi íslands í Túngötu
5. Verður afgreiðsla Flugs fram
vegis þar, og þangað geta menn
snúið sér með allt sem varðar
félagið. Forseti félagsins var kjör
inn Hákon Guðmundsson hæsta-
réttarritari í stað Sigfúsar, sem
baðst undan endurkjöri. Auk Há-
konar voru kosnir í stjórnina Ás-
björn Magnússon, forstjóri og
Bjöm Pálsson flugmaður. Auk
þeirra eiga þar sæti þeir Páll B.
Melsted forstjóri og Björn Br.
Björnsson tannlæknir.
' Hin nýkosna stjórn mun taka
ýmis viðfangsefni til meðferðar.
Gert er ráð fyrir því, að haldinn
verði „flugdagur" í sumar og eru
möguleikar á því, að þar verði
til sýnis stór loftbelgur, sem
mönnum gefst ef til vill kostur
á að lyfta sér upp í. Þá mun fé-
lagið innan skamms efna til al-
menns umræðufundar um fram-
tíð Reykjavíkurflugvallar og
önnur mál er miklu varða fyrir
flugmál landsins.
Kári Jónsson sem Jack Manning-
ham og Snæbjörg Snæbjörns-
dóttir sem Bella kona hans.
Ríkisstjórnin svíkst um að útvega láns-
fé til þeirra sem hefja vilja búskap
Úr rœðu Jóns Pálmasonar í gœr
\FUNDI Neðri deildar Alþingis í gær flutti Jón Pálmason fram-
söguræðu um frumvarp sitt og Jóns Sigurðssonar á Reynistað
um framlög til veðdeildar Búnaðarbanka íslands. Gat hann þess
að frumvarpið væri samið af milliþinganefnd, sem fyrrverandi
landbúnaðarmáiaráðherra skipaði, til að gera tillögur um bætta
aðstöðu frumbýlinga, nýbýlamanna o. fl.
RÍKISSTJÓRNIN STÖÐVAÐI
MÁLIÐ
Þetta mál hefði verið stöðvað
af ríkisstjórninni og meiri hluti
landbúnaðarnefndar hefði ekki
viljað taka þátt í að flytja það.
Rakti Jón síðan sögu þessa
máls og vék að því, að frá því
að dýrtíðin fór að vaxa og kaup-
gjald að hækka, hafa verið sívax-
andi örðugleikar fyrir þá menn,
sem hafa viljað stofna búskap í
sveitum landsins.
Þeir hafi ekki heldur fengið
lán til kaupa á jörð, bústofni
og vélum, sem allt kostar mik-
ið fé. Veðdeild Búnaðarbank-
ans hefir alltaf skort f jármagn
til þess að sinna því verkefni,
svo sem til hefir verið ætlazt.
í þessu sambandi minnti Jón
Pálmason á frumvarp sitt um
stofnlánadeild landbúnaðarins,
sem var flutt á þingi árið 1951
og aftur árið 1952. Einnig drap
hann á frumvarp Péturs Otte-
sens um framlög til veðdeildar-
innar, er hann flutti á þingi árið
1951 og sömuleiðis á frumvarp
Jörundar Brynjólfssonar og
fleiri, er miðaði að svipuðum út-
lánum.
HERMANN FELAUS
Hermann Jónasson forsætis-
ráðherra svaraði og taldi þetta
ekki framkvæmanlegt og enga
lausn á málinu, þar sem ekki
væru neinir peningar fyrir hendi.
Hefði þá fremur átt áður að af-
greiða þau frumvörp, sem fram-
sögumaður hefði drepið á, en nú
væri stjórnin að athuga hvort
ekki væri unnt að leysa þetta
mál á annan hátt.
NÓG FÉ f ANNAÐ
Jón Pálmason svaraði því til,
að þessar 5 milljónir króna, sem
hér væri farið fram á, væru eng-
an veginn nein fullnægjandi
úrlausn í málinu, en talsverð bót
þó. Og sú viðbára nú og áður,
að ekkert fé væri fyrir hendi til
veðdeildarinnar, væri nokkuð
undarleg, þegar athuguð væru
öll fjárframlög ríkisstjórnarinn-
ar til annarra hluta.
Þar sem stjórnin hefði hækk
að samkvæmt áætlun útgjöld
rikisins og útflutningssjóðs
um 400 millj. króna á einu ári,
væri nokkuð undarlegt að ekki
hefði mátt taka nokkra upp-
hæð til úrbóta fyrir frumbýl-
inga landsins. En það liti út
fyrir að stjórnin og hennar lið
teldi meira virði að byggja
yfir sveitafólkið í Reykjavik
þegar það væri þangað flutt,
heldur en að gera því fært að
vera áfram í sveitunum.
HVERJAR ERU ÚRLAUSNIR
STJÓRNARINNAR?
Það væri engin sönnun þess,
að þeir menn, sem frumvörpin
hefðu flutt, hefðu ekki haft rétt
fyrir sér þótt þau hefðu ekki
verið samþykkt, heldur væru af-
drif þeirra vottur um skilnings-
leysi þeirra manna, sem land-
búnaðarmálunum hafa stjórnað.
J. P. lýsti því yfir að ánægju-
legt væri ef ríkisstjórnin ætlaði
að leysa þetta mál eftir öðrum
leiðum. En enn sæjust þess engin
merki og ekki hefðu bankastjór-
ar Búnaðarbankans ennþá nein-
ar vonir um úrlausn á þessu ári,
þrátt fyrir hina miklu þörf veð-
deildarinnar fyrir aukið fé.
Frumvarpinu var vísað til
annarrar umræðu og landbúnað-
arnefndar.
Rætt um leiðir til
Leikfélag Saubárkróks:
Gasljós
leikib á
Sæluvikunni
SÆLUVIKA Skagfirðinga hófst
með því að Leikfélag Sauð-
árkróks sýndi leikinn Gasljós eft-
ir Patrick Hamilton undir leik-
stjórn Eyþórs Stefánssonar.
Það er ekki ástæða til þess að
fara mörgum orðum um þennan
gamalkunna reyfara. Þessi æsi-
spennandi glæpamannasaga er
sett fram af kunnáttumanni og
svo vel gerð að. sé á haldið af
þekkingu og list af hendi leikara
má segja að leikhúsgestir þori
vart að draga andann af spenn-
ingi fyrr en yfir lýkur. Hið mark-
vissa taugastríð, sem glæpamað-
urinn hefur gegn eiginkonu sinni
í þeim tilgangi að gera hana brjál
aða er meistaralega uppbyggt
og auðvitað hefði svo lyktað
að hann hefði farið með sigur af
hólmi ef ekki hefði álpazt inn í
tilveru þeirra hjóna, af hreinni
tilviljun, gamall uppgjafa leyni-
lögreglumaður, en sú tilviljun er
eins og annað gerð sennileg í
leikritinu.
Þessi leikur krefur geysilegrar
hæfni þriggja aðalleikaranna, þó
ekki hvað sízt hlutverk hinnar
sálsjúku eiginkonu, enda hefur
það ekki að jafnaði verið falið
nema þrautreyndum leikkonum.
Snæbjörg Snæbjörnsdóttir fór
með þetta hlutverk hér á Sauðár-
króki. Ekki virtist mér hún valda
hlutverkinu að fullu, einkum í
upphafi og endi leiksins og raun-
ar var svipurinn yfir öllum fyrsta
þætti leiksins of daufur. Spenn-
an hélzt ekki. Verður það þó
fremur að skrifast á reikning
leikstjórans. Bella Manningharn
er hræddari við mann sinn en
Snæbjörg sýndi hana. Iiún getur
aldrei verið róleg og ánægð, jafn-
vel ekki í gleði sinni yfir að fá
að fara í leikhúsið. Hinn tak-
markalausi ótti við eiginmann-
inn hefur níst sig inn í sál henn-
ar. Mér virtist Snæbjörg skilja
hlutverk sitt, en skorta tækni til
þess að gera þvi full skil. Fram-
burður hennar var skýr og í
rauninni of skýr. Hann bar á sér
nokkurn viðvaningsblæ. Hún
kunni hlutverk sitt vel og hafði
sýnilega unnið að því samvizku-
samlega. Áberandi var hve skýrt
var t. d. kveðið að persónufor-
nöfnum þar sem ekki átti að
leggja áherzlu á þau, þar sem í
talmáli „hann“ á að berast fram
„ann“ og ,,hún“ á að berast fram
„ún“, t. d.: „Ég skal biðj-ana að
koma“ o. s. frv. Eins fannst mér
skorta á leik Snæbjargar í há-
marki leiksins, þegar hún hefnir
sín á manni sínum og leikur sig
brjálaða. Ljósin hefðu líka mátt
vera orðin skýr í þessu atriði.
Sumir þessir ágallar nega skrif-
ast á reikning leikstjórans. Segja
má að þrátt fyrir þessa ágalla,
sleppi Snæbjörg sómasamlega
frá hlutverki sínu, hún hefur t.d.
til að bera fallegar hreyfingar
og góð svipbrigði, en hlutverkið
er ennþá of erfitt fyrir hana.
Kárí Jónsson leikur Jack
Manningham oft með góðum til-
þrifum og víða vel. Hann minnir
stundum á Indriða Waage og er
ekki leiðum að líkjast. Kári hef-
ur hnökralausan framburð og
nokkuð góðar hreyfingar. Mér
fannst hann á stundum skipta
óþarflega skyndilega sltapi og
eins og hann missti iiiður ógnar
þunga þessa miskunnarlausa
kvalara. Sem flagari var hann
heldur lélegur. Bezt gerði Kári
þegar mest á reyndi.
Eyþór Stefánsson lék bjarg-
vættinn Rough leynilögreglu-
mann. Eyþór gerði margt vel og
sumt ágætlega. En mér finnst það
ófyrirgefanlegt af jafnvönum og
glæsilegum leikara að kunna
ekki hlutverkið sitt. Kunnáttu-
leysi spillti fyrir leik Eyþórs og
jafnvanur leikari og hann á ekki
að vera í vandræðum að breiða
yfir það þótt hann missi niður
orð og orð. Hreyfingar hans voru
með glæsibrag. Hlutur Eyþórs
Stefánssonar sem leikstj óra var
hins vegar góður, en það var á
kostnað hluts hans sem leikara
og það er vissulega alltaf var-
hugavert fyrir leikstjóra að fara
sjálfur með stórt hlutverk. Stað-
setningar í leiknum voru ágætar
og hreyfingar leikaranna mjög
eðlilegar. — Gangurinn í fyrsta
þætti var þó of hægur, en síðan
var stígandi eðlilegur í leiknum.
Eldabuskuna Elísabetu og þjón
ustuna Nancy léku þær Valdís
Helgadóttir og Ragnhildur Ósk-
arsdóttir þokkalega en með við-
vaningsbrag, sem þó sakaði ekki
að marki.
Leiktjöldin voru ágæt. Ljós
nokkuð góð. Birtan inn um glugg
ann var ekki eðlileg, skipti ekki
frá degi til kvölds og nætur og í
lokaatriðinu hefði mátt vera
meiri birta. Búningar voru ágæt-
ir og leikararnir báru þá eðiilega,
nema hvað herrunum gekk full-
erfiðlega að klæða sig í farkkana.
Gervin voru góð, nema hvað
mér fannst skegg Jacks Manning-
hams of dökkt borið saman við
hárkolluna.
Ljósameistari var Þórður P.
Sighvats, tjaldamálarar Jónas
Þór og Haukur Stefánsson.
í heild vil ég segja um þessa
sýningu að hún var áferðgrgóð
og stórgallalítil og ég var ekki
í neinum vafa um að leikhúsgest-
ir nutu hennar og skemmtu sér
vel. Hins vegar er vafassamt
hvort sá er dæma vill sýningu
sem þessa, þar sem leikarar hafa
lagt sig alla fram að gera eins
vel og auðið er í smábæ þar sem
aðstæður eru slæmar, á að gera
það eins og hér er gert. Ég tók
þann kostinn að segja kost og
löst á verkinu.
Vignir Guðmundsson.
FJÖLDI UMSÓKNA FRÁ
FRUMBÝLINGUM
Öll þessi frumvörp hafa verið
stöðvuð, sagði Jón, vegna skiln-
ingsleysis þeirra manna, sem
verið hafa í meirihluta á þingi.
Loks hafi þó fyrrverandi stjórn
lánað veðdeild Búnaðarbankans
4 millj. króna árið 1954 og 2 millj.
árið 1955. Það fé ásamt láni úr
sparisjóðsdeild Búnaðarbankans,
væri það eina, sem þessi stofnun
hefði haft til umróða.
En nú væri hún algerlega fjár-
vana, en fyrir lægi umsóknir, sem
skiptu hundruðum milljóna til
bænda og bændaefna. Til nokk-
urrar úrlausnar á þeim vanda,
væri þetta frumvarp flutt, og fer
það þó ekki fram á meira en 5
milljónir á næstu 10 árum til veð-
deildarinnar. Skoraði Jón á þing-
menn að taka þessu máli vel og
afgreiða frumvarpið.
að bjarga Eiðinu
í FYLKI, blaði Sjálfstæðismanna
í Vestmannaeyjum, sem nýlega
er komið út, er rætt um þá miklu
hættu sem nú vofir yfir Eiðinu.
Hefur það undanfarin ár smám-
saman verið að síga fram og
lækka. Er nú svo komið að á
stundum gengur sjór yfir það
óbrotinn inn í höfnina.
Blaðið segir frá því að það
muni vera ráðagerðir vitamála-
skrifstofunnar Eiðinu til bjarg-
ar, að meðfram því verði gerðir
grjótgarðar, sem dragi úr ágangi
sjávar.
Blaðið segir að menn í Vest-
mannaeyjum séu efins í því að
slík viðgerð muni koma að haldi.
Hún muni kosta um 500 þús. kr.
Bent hefur verið á aðra leið,
en hún er sú að sögn blaðsins,
að járnþil verði rammað niður
frá svonefndu Löngunefi og vest-
ur undir Klif. Með því yrði kom-
ið í veg fyrir sandrennslið inn í
höfnina og landbrotið stöðvaðist.
Á fjárlögum þessa árs eru áætl-
aðar 200 þús. kr. til viðgerðar á
Eiðinu.
SIGLUFIRÐI, 2. apríl — Lagar-
foss lestaði hér hjá Ríkisverk-
smiðjunum um síðustu helgi 500
lestir af mjöli og 600 pakka af
skreið til útflutnings. í gær los-
aði Ingvar Guðjónsson til frysti-
húss SR 60 lestir af fiski og í
dag b.v. Hafliði 200 lestir, sem
fer til frystingar og heralu. Afli
línubátanna er sáratregur.
—Guðjón.
Snæbjörg Snæbjörnsdóttir sem Bella Manningham »g
Eyþór Stefánsson sem Rough leynilögrcglumaóur.