Morgunblaðið - 03.04.1957, Qupperneq 10
10
MORGVNBLAÐ1Ð
Miðvikudagur 3. aprfl 1957
JÖRÐ TIL LEIGU
16 km frá Reykjavík. Gróð húsakynni fyrir fólk og
fénað. Rafmagn. Sími. Miðstöðvarhitun.
Leiga á íbúðarhúsinu án jarðarafnota hugsanleg.
Uppl. í síma 3799 og 82060.
IVauíkingaruppboð
sem fram átti að fara í dag á hluta í húseigninni
nr. 40 við Hæðargarð, hér í bæ, talin eign Magn-
úsar Gíslasonar, fellur niður.
Bæjarfógetinn í Reykjavík.
Tilboð óskast
1 nokkrar fólksbifreiðir er verða til sýnis að Skúlatúni 4,
föstudaginn 5. þ. m. kl. 1—3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag.
Nauðsynlegt er að tiltaka símanúmer í tilboði.
Sölunefnd Varnarliðseigna.
Vinnumaður óskast
að Nesjabúinu við Þingvallavatn. Helzt eldri mann
eða unglingspilt.
Aðalstarf sauðfjárgæzla og silungsveiði.
Sjálfstæð vinna. Kaup eftir samkomulagi.
Jónas S. Jónasson,
c/o Raftækjaverzlunin hf., Rafmagn,
Vesturgötu 10, Reykjavík, sími 4005.
^úsrnœð-
sem reynt
3 C\o2one
attaduft
[Q a\dre\
noð.
OIone '»nnV-
*tdur sOreinrs-
3rn sem
/ott\nn
joWabvUan
g bragg'e9'
an.
Clozone hefir hlotið sér-
stök meðmœli sem gott
þvottaduft í þvottavélar.
Helldsölubirgðir:
Eggert Kristjónsson & Co. h.f.
Freuchen
og
Heinesen
NÝ BÓK EFTIR
FREUCHEN
í haust kom út hjá Gylden-
dal ný bók eftir danska skáld-
ið og ævintýramanninn, Peter
Freuchen, Fangstmænd í Mel-
villenbugten. Vakti bókin mikla
athygli, enda er höfundur henn-
ar mjög þekktur rithöfundur
bæði austan hafs og vestan. Hann
hefir skrifað mikinn fjölda bóka,
ferðabækur, endurminningar og
skáldsögur. Síðasta bókin heyrir
skáldsagnaflokknum til. — f
henni er lýst björgunarstarfi, sem
höfundur tók þátt í á yngri ár-
um, þegar hann bjó í Thule og
var kvæntur eskimóakonunni
Navarana. Fimm veiðimenn hafa
orðið viðskila við skip sitt og
Freuchen finnur þá bjargarlitla
á Saundersey, skammt utan við
Thule. Skipsbrotsmenn eru orðn-
ir leiðir á hinu frumstæða landi
og þrá menninguna ákaft, svo
að höfundur leggur á sig erfiða
för í misjöfnu veðri til þess að
þeir komist á skip — suður á
bóginn.
Á leiðinni eru sagðar margar
sögur. Innfæddir leiðsögumenn
kunna frá ýmsu að segja; hvíta
manninum, sem varð trylltur af
aurasýki; hinum hugrakka Qid-
lungtoq, sem drap vísindamann,
sem var of heimskur til að lifa á
Grænlandi; og Portúgalanum Jo-
ao ,sem á furðulegan hátt fann
strandað skip sitt.
Bók hins ágæta höfundar er
eiginlega samansett af drama-
tískum ævintýrum. Hún er ein-
föld og karlmannleg, fjallar um
veiðiferðir og ást, hrikalega
Ný sending
Kvöldkjólar
Aðalstræti
Rishœð til sÖlu
Afar vönduð portbyggð rishæð, 4 herb. eldhús og bað
ásamt 1 herbergi í kjallara, til sölu við Snekkjuvog.
Sér inngangur. Sér hiti. Sér bílskúrsréttindi.
Húsið er aðeins tvær íbúðir.
Skipti á 2—3 herbergja íbúð, kemur til greina.
STEINN JÓNSSON,
Lögfræðiskrifstofa — Fasteignasala,
Kirkjuhvoli,
Símar: 4951 og 82690.
Hótel Borg
Maður sá, er fyrir tæpum hálfum mánuði fékk frakka
í misgripum úr fatageymslunni, og sem mun vera allt of
stór á hann, vinsamlega komi strax og fái sinn frakka
aftur í skipttun.
Hótel Borg.
Varahlutir
r
FORD-JUNIOR
(Prefect)
Nýkomnir — Mikið úrval.
Kr. Kristjánsson hf.
Laugavegi 168—170 — Sími 82295.
Peter Freuchen.
náttúru og baráttu mannsing 1
erfiðu umhverfi. Og síðast en
ekki sízt, er bókin n.k. lofsöngur
um Grænland og lífslistir ibúa
þess, sem höfundur hefir meira
dálæti á en hinum hvítu bræðr-
um sínum.
Peter Freuchen kemur hingað
til lands í dag og heldur fyrir-
lestra á vegum Stúdentafélags
Reykjavíkur. Hann er kærkom-
inn gestur — og er ekki ein-
mitt viðeigandi að kynna sér
skáldskap hans og ritstörf, á
meðan hann er á meðal okkar?
NÝTT SMÁSAGNASAFN
EFTIR HEINESEN
Færeyska skáldið William
Heinesen hefir einnig dvalizt hér
á landi. Hann er mikill fslands-
vinur og eigum við hauk í horni,
þar sem hann er. — Heinesen er
talinn eitt mesta skáld á Norður-
löndum og sumir eru farnir að
nefna nafn hans, þegar Nóbels-
verðlaun ber á góma. Hann skrif-
ar á dönsku, en yfirleitt sækir
hann yrkisefni sín til þess lands,
sem hefir fóstrað hann og alið
— Færeyja. Heinesen er góður
sonur eyjanna, þó að hann riti
ekki á móðurmáli sínu, og óvist
er, að nokkur núlifandi Færey-
ingur hafi aukið eins á frægð
lands síns og þessi ágæti höf-
undur.
Nú er nýkomið út hjá Gylden-
dal smásagnasafn eftir Heine-
sen, sem hlotið hefir nafnið Det
Fortryllede Lys. í safninu, sem
er 148 blaðsíður að stærð, eru
9 smásögur. Sjö þeirra gerast í
Færeyjum. í sögunum er nakinni
náttúru eyjanna og óbreyttu lifi
lýst svo meistaralega, að ógleym-
anlegt verður. Höfundur kann þá
list að tvinna saman skáldlegt
ranusæi og hófstillta gamansemi
og fletta hana inn í myndir sinar
af eyjunum og örlögum þeirra. Þá
dregur hann upp hinar skennnti-
legustu mannlýsingar, sem sumar
hverjar verða ógleymanlegar
þeim er lesa. Þarna eru börn,
fyllisvín og gamlar geðillar
kerlingar, svo að minnzt sé á
nokkrar persónugerðir í mynda-
safni sagnanna. — Síðustu sög-
urnar tvær eru n.k. hugarórar f
gamanstíl, en þó er alvaran allt-
af á næsta leiti.
Rit færeyska stórskáldsins eru
því miður ekki eins vel kunn hér
á landi og efni standa til. Sum-
part hafa þau ekki verið þýdd
á íslenzku, sumpart hefir þeim
verið misþyrmt. Allir þeir, sem
tök hafa á að kynnast höfundin-
um á frummálinu, ættu að gera
það, þvi að auðvitað missa þau
töfra sína, ef þýðingarnar eru
ekki yfir meðallag. Það væri
sennilega ágæt byrjun fyrir þá,
sem þekkja ekki skáldið, að
kynna sér smásögurnar í Det
Fortyllede Lys — hinum ætti
bókin að vera kærkomið tæki-
færi til að hressa upp á gömul
kynni