Morgunblaðið - 03.04.1957, Page 11
Miðvikudagur 3. apríl 1957
MORGUNBLAÐIÐ
1!
Á bökkum tveggju fljótu heyju
f slendingur heimsmeisturukeppni
Leika í Nantes 2. júrií
og í Brussel 5. júní
ÞA£> er nú ákveðið að leikir íslands í heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu, þeir sem fram fara á erlendri grund, verði í
Nantes í Frakklandi sunnudaginn 2. júní og í Brússel miðviku-
daginn 5. júní. íslenzka liðið fer utan 30. maí með flugvél Loft-
leiða og kemur heim um London með Flugfélagi íslands íöstudaginn
7. júní.
* 8 DAGA FERÐ
Þessar upplýsingar fékk hlað-
ið hjá Knattspyrnusambandi ís-
lands, en sambandið hefur nú
gengið endanlega frá ferðaáætl-
uninni. Hún er í stórum dráttum
á þessa leið:
Farið verður utan, sem fyrr
segir, 30. maí og flogið til Ham-
borgar. Þar verður gist eina
nótt, en 31. maí flogið til Parísar
og þaðan haldið samdægurs með
járnbrautarlest til Nantes. Hvílzt
verður 1. júní, en 2. júní er lands-
leikurinn við Frakkland. Mánu-
daginn 3. júní verður haldið með
lest til Parísar og borgin skoðuð
í skyndingu, en um kvöldið verð-
ur flogið til Brússel. Þar verður
hvílzt þriðjudaginn 4. júní, en
5. júní er leikurinn við Belgíu.
Daginn eftir verður staðið við í
Brússel en á föstudag haldið heim
um London og komið heim á
föstudagskvöld.
★ KEPPNISSTAÐIRNIR
Nantes í Frakklandi er
„höfuðborg“ Loire-Inférieure. —
Liggur borgin um 54 km frá
Atlantshafinu við Loire, að
nokkru leyti á hægri bakka
hennar, en sumpart er borgar-
stæðið á eyjum í fljótinu, sem
Frnm vnnn KR í mfl. kvennn
19. og 20. leikkvöld Handknattleiksmeistaramóts fslands voru
á laugardags- og sunnudagskvöld að Hálogalandi. Athyglisverðustu
úrslit þessarar helgi voru í Mfl. kvenna er Fram vann KR með
13:7. Má ætla að Fram hafi með þessum sigri tryggt sér sigur í
meistaraflokki kvenna, en enn er það þó ekki öruggt.
við borgarstæðið skiptist í 6
kvíslar. 1946 voru í Nantes
200,265 íbúar. Borgin er fögur,
einkum setja brýrnar á Loire
svip á hana, en brýrnar eru 21
talsins. Þá eru þar margar skraut
legar byggingar og mest ber á
byggingum í 18. aldar stíl. íbúar
Nantes eru iðnaðarfólk að mikl-
um meirihluta, enda eru skipa-
smíðar, vélaiðnaður og skó- og
vefnaðariðnaður aðalatvinnuveg-
ir borgarbúa.
Brússel þekkja allir íslending-
ar, margir af raun aðrir af frá-
sögnum. Hún er höfuðborg Belgíu
fögur borg með glæstum bygg-
ingum og skrauti og iðandi lífi,
enda stundum kölluð „hjarta
Evrópu". Þar býr yfir milljón
manna. Belgíumenn vísa ísl.
knattspyrnumönnum ekki í kot.
Hingað koma svo frönsku og
belgísku knattspyrnumennirnir í
septemberbyrjun. Leikurinn við
Frakkland verður hér 1. sept. á
sunnudegi. Þeir koma á föstu-
dag og fara á þriðjudag. Belgíu-
menn koma á mánudag leika á
miðvikudag og fara á fimmtudag
eða föstudag.
Forráðamenn knattspyrnusam-
bandsins kváðu knattspyrnumenn
enn heldur áhugalitla. Þeir mættu
ekki allt of vel á æfingum, og er
slíkt fáheyrð hneisa, því nú hafa
þeim sannarlega verið sköpuð
verkefni, sem vert er að leggja
sig fram við.
★ 6:6 f HÁLFLEIK
Hinn mikli markamunur í
þessum leik KR og Fram kom á
óvart. KR-stúlkurnar byrjuðu
vel, náðu 5:2, en jafntefli varð í
hálfleik, 6:6. í síðari hálfleik létu
Fram-stúlkurnar ekki að sér
hæða, „áttu leikinn" með réttu
og unnu með 13:7. Sá mikli marka
munur getur nægt þeim til vinn-
ings, þó Þróttur geti enn orðið
jafn Fram-flokknum að stigum.
Fram-stúlkurnar stóðu sig með
prýði og voru félagi sínu og þjálf-
ara, Axel Sigurðssyni, til sóma.
Saltsíldarflök
Norðansíld
Höfum fyrirliggjandi
saltsíldarflök, beinlaus og roðiaus
á áttungum. — Aðeins örfáir kútar óseldir.
mimtoím h.e
★ AÐRIR LEIKIR
Urslit í öðrum leikum á laug-
ardag urðu: FH vann Val í 2. fl.
kvenna með 8:4. í fyrsta flokki
kvenna vann Þróttur B A-lið
Þróttar með 4:3. í 3. flokki vann
FH Fram með 11:7 og í 1. flokki
karla vann FH KR með 10:6.
Á sunnudagskvöld fóru fram
tveir leikir í meistaraflokki karla.
KR vann Þrótt með 22:16 og Ár-
mann vann Víking, 16:13.
Árshátíð KR
HIN ÁRLEGA árshátíð KR var
haldin í Sjálfstæðishúsinu laugar
daginn 23. marz, var þar fjöl-
menni mikið og skemmtu menn
sér ágætlega.
Á árshátíðinni voru eftirtaldir
KR-ingar heiðraðir: Guðbjörn
Jónsson fyrir 20 ára starf, Brynj
ólfur Ingólfsson, Magnús Thor-
valdsen, María Jónsdóttir, Þórir
Jónsson og Friðrik Guðmundsson
fyrir 15 ára stai'f og Magnús
Georgsson, Stella Hákonardóttir,
Guðmundur Jónsson, Þorvaldur
Veigar Guðmundsson, Guðmund-
ur Guðjónsson, Atli Helgason,
Gunnar Guðmannsson, Sigurður
Bergsson, Sverrir Kjærnested og
Jón Álfsson.
Ennfremur var á árshátíðinni
heiðrað hið gamla og fræga „tríó“
KR, þeir Kristján L. Gestsson,
Guðmundur Ólafsson og Erlend-
ur Ó. Pétursson. Þeir eru nú allir
komnir yfir sextugt og í tilefni af
því ákvað félagið að láta gera
Framh. á bls. 15
Vesturgötu 20 — sími 1067 og 81438.
Nýtísku íbúð til sölu
Efri hæð 130 ferm. 5 herbergi, eldhús og bað ásamt
rishæð, sem er 3 herbergi, þvottahús og geymslur,
við Kvisthaga.
Sér inngangur og sér hitalögn.
Bílskúrsréttindi.
Nýja fasteignasalan
BANKASTRÆTI 7
sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e. h. 81546.
JMBM KRAFTSdPA
UM
»3«
aa „HONIG" aðpw
Hver pftUd Itmiheldur efni á 4 diska
CJcjcjert ^JCriótjánóóon, CJ CJo. hp.
Fokhelt einbýlishús til sölu
Fokhelt einbýlishús á mjög fögrum stað í Kópavogi
til sölu.
5 herbergi, eldhús og bað á hæð og 2 herbergi í kjall-
ara, sem gæti verið lítil íbúð.
STEINN JÓNSSON,
Lögfræðiskrifstofa — Fasteignasala,
Kirkjuhvoli,
Símar: 4951 og 82090.
Nauðungoruppboð
á Hverfisgötu 49, hér í bæ, eign þrotabús Karls O. Bangs,
fer fram á eigninni sjálfri laugardaginn 6. apríl 1957,
kl. 1,30 síðdegis.
Á uppboðinu verður leitað boða í eignina, sem ekki
er fullgerð, bæði í hverja einstaka íbúð, 12 að tölu, og
hvort íbúðarhúsnæðið fyrir sig og iðnaðarhúsnæði, svo
og í alla húseigntna í einu lagi.
Uppboðsskilmálar, teikning af húseigninni og lýsing
verða til sýnis á skrifstofu borgarfógeta, Tjarnargötu 4.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Verzlun — Iðnaður
Verzlun, hluti í verzlun, veitingastofa eða iðnaðar-
fyrirtæki, óskast til leigu eða kaups.
Þeir, sem hafa áhuga á að kynna sér málið frekar,
geri svo vel að senda nöfn sín á afgreiðslu blaðs-
ins fyrir klukkan 18 á fimmtudag merkt: —„2531“,
þagmælsku heitið.
UR-WICK - /MR-WICK
Lykteyðandi og lofthreinsandi undraefni.
Njótið ferska loftsins innan húss allt árið.
Aðalumboð:
ÓLAFUR GÍSLASON & CO. H. F.
Sími 81370
Hinn langþráði draumur fiski-
mannsins hefir nú loksins rcetst
Það er '-Aliuloil FISHING HET ag þakka
Því:
1. Þau eru veiðnari en venjulegar gerSir neta.
Þau eru sterk og endingargóð og lækka því viö-
haldskost nað.
Þau eru öllum netum léitari.
Þau ganga seint úr sér, eru afar endingargóö.
Þurrkun eða sérstök meðferð óþörf. Spara þvl
alla vinnu þar að lútandi. Varanet næstum óþörf.
Stöðugar veiðar eru mögulegar netanna vegna.
Heimsins bezta vinna svo og áðurnefndir kostir
þessarra heimsþekktu „Amilan Fishing Net". Þan
bera ávallt merkiS, sem sýnt er aS ofan. ,,Amil-
an" er vörumerki okkar nælons. Toyo Rayon Co.,
Ltd., du Pont's einkaleyfi í Japan á nælon fram-
leiþslu.
Bæklingur um „Amalian Fishing Net“ er fáanleg-
ur og verður sendur væntanlegum viðskiptavinum.
Aðalframlei&endur nœlons í Japan
@ 1*1» RflfM Co., Ud.
No. 5. 3-chome, Nakanoshima. Kita-ku, Osaka, Japan
txA-019 Cable Address : “TOYORAYON OSAKA”