Morgunblaðið - 03.04.1957, Page 16
Veðrið
SA stinningskaldi. Skúrtr.
78. tbl. — Miðvikudaffur 3. aprfl 1957.
Á Meðallandsfjöru
Sjá myndir á bls. 9.
Hnsnæðismdlin rædd d Vnrðor-fundi í kvöld
Jóhann Hafstein.
Komust ekki út
FUNDINN er peningaskápur sá
sem stolið var aðfaranótt iaugar-
dags úr skrifstofu Feldsins í
verzlunarhúsi Sveins Egilssonar
við Hverfisgötu. Fannst skápur-
inn inni í húsinu, falinn undir
rusli í öðrum skáp, undir stiga.
Peningaskgpurinn hafði ekki ver-
ið sprengdur upp.
Það sem olli því að talið var í
fyrstu að þjófarnir hefðu flutt
skápinn á bíl í burtu, var að dyr
þær, sem taiið var að þeir hefðu
tekið skápinn út um, hafa alla
jafnan verið opnar allan sólar-
hringinn. Nóttina, sem innbrotið
var framið, voru þær þó læstar.
Því komust þjófarnir ekki þar út
með skápinn. Þeir hafa sennilega
ætlað sér þessa nótt að koma
síðar og hirða hann með því sem
í honum var, en það voru um
300 krónur í peningum. — Þjóf-
arnir hafa vafalítið talið að í
skápnum væru miklu meiri pen-
ingar.
Frummælendur Jóhann Hafstein og
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
t
LANDSMALAFELAGIB Vorður heldur fund í Sjálfstæð-
ishúsinu í kvöld kl. 8,30. Á þessum fimdi verða húsnæðismálin
til umræðu. Frummælendur verða Jóhann Hafstein, alþingismaður,
og Þorvaldur Garðar Kristjánsson, lögfræðingur.
Dm þessar mundir eru húsnæðismálin mjög á dagskrá. Þykir
fólki horfa þunglega um lánvcitingar til íbúða og mjög snögglega
hafa snúið til hins verra síðan núverandi ríkisstjórn tók. við for-
sjá málanna. Hefur ríkisstjórnin það eitt til ráðs að sakast við
Sjálfstæðismenn um það, sem nú fer aflaga í húsnæðismálunum.
Þykir mönnum það allkynlegt, þegar hafður er í huga sá góði
árangur, sem náðist í þeirra stjórnartíð og kom fram í meiri
íbúðahúsabyggingum og lánveitingum til íbúða en nokkurn tíma
áður hafði þekkzt. Menn eru nú uggandi um framtíðina í þessum
cfnum og spyrja hvað sé framundan.
Á Virðar-fundinum í kvöld munu framsögumennirnir ræða um
þessi mál, sem allan almenning varða svo mjög. Mun þar vafa-
laust koma ftam ýmiss fróðleikur, er menn mun fýsa að heyra. Má
og búast við miklum umræðum að framsöguræðum loknum. Allt
Sjálfslæðisfólk er velkomið á meðan húsrúm leyfir.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
Sársaukalausf
TUGMILLJÓNIR manna hafa
undanfarið verið bólusettar við
lömunarveiki. Svo ekki var óeðli
legt, að einhver uppfinningamað-
urinn færi nú í fullri alvöru að
leita eftir leiðum til að losa
menn við sársauka, þegar nálinni
er stungið í skinnið.
Það hefir líka tekizt og sýnir
myndin hvernig bólusett er með
tæki, sem hefur enga nál. Aðeins
er notaður svolítill loftþrýsting-
ur, sem þrýstir bóluefninu sárs-
aukalaust í gegnum húðina.
8. Einvígisskák
Friðriks og Pilniks
SÍBASTA einvígisskák þeirra
Pilniks og Friðriks var íefld í
gærkvöldi. Framan af var hún
jainteflisleg, en í 21. leik fórn-
aði Friðrik pjði i von um sóknar-
stöðu.
Hvítt: Friðrik Ólafsson.
Svart: H. Pilnik.
1. e4 c5 14. Bxf6 gxf6
2. Rf3 Rc6 15. Bh5 Hg8
3. d4 cxd 16. g3 Be7
4. Rxd4 Rf6 17. Hfl Hg7
5. Rc3 d6 18. Hd2 b5
6. Bg5 e6 19. Hfel b4
7. Dd2 a6 20. Re2 e5
8. 0—0 h6 21. Rgl exf4
9. Bh4 Db6 22. Re2 fxg3
10. f4 DxR 23. Rxg3 Hg5
11. DxD RxD 24. Hd4 Hb8
12. HxR Bd7 25. Be2
13. Be2 Bc6
Fleiri leikir voru ekki búnir er
blaðið fór í prentun.
Kemur Freuchen fram
í spurningaþœtti hjá
Stúdentafélaginu ?
Kvöldvaka á föstudag
4FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ kl. 9 efnir Stúdcntafélag Reykjavíkur
til kvöldvöku i Sjálfstæðishúsinu. Mun þar koma fram danski
landkönnuðurinn Pétur Freuchen og verður hann kynntur fyrir
gestum af formanni félagsins Sturlu Friðrikssyni magister. Mun
Freuchen flytja ávarp.
TEKUR FREUCHEN ÞATT
í SPURNINGAÞÆTTI ?
Þá munu og verða ýmis
skemmtiatriði á þessari kvöld-
vöku félagsins að vanda. Jón Sig-
urbjörnsson mun syngja einsöng
og sitthvað fleira vei'ður til
skemmtunar. í ráði er að þar
Gríska stjórnin biður Flugfélag
íslands að flytja Makarios til
Aþenu!
En Flugtélagið skortir farkost
fari og fram spurningaþáttur, en
ekkert vildi formaður Stúdenta-
félagsins segja um það í gær-
kvöldi, er blaðið spurði hann
hvort Freuchen myndi verða
einn af þátttakendum.
VANN Á AÐRA MILLJ. KR.
Eins og kunnugt er, þá er
Freuchen einn af þekktustu
spurningameisturum veraldnr og
vann á aðra milljón ísl. króna í
sjónvarps-spurningaþætti banda-
rískum í fyrra.
Er ekki að efa að marga mun
fýsa að sjá þennan mikla kappa,
landkönnuð rithöfund og spurn-
ingasnilling á kvöldvöku félags-
ins.
ÞAU tíðindi gerðust í gær, að Flugfélagi íslands barst
skeyti frá ríkisstjórn Grikklands, þar sem stjórnin biður
Flugfélagið að senda Katalínuflugbát til Indlandseyja, ná
þar í Makarios erkibiskup og flytja hann til Aþenu. Brezka
herstjórnin hefur haft erkibiskupinn í haldi á Seychell-
eyjum í Indlandshafi síðan í marz í fyrra, en nú hefur honum
verið sleppt úr haldi. Eftir því sem Örn Johnson fram-
kvæmdastjóri tjáði blaðinu í gær mun Flugfélag íslands
ekki geta orðið við þessari málaleitan grísku stjórnarinnar,
þar sem annar tveggja Katalínuflugbáta félagsins er í árs-
skoðun, en hinn bundinn á flugleiðum hér innanlands. Yerð-
ur því annar farkostur að flytja Makarios erkibiskup úr
útlegðinni en íslenzkur flugbátur.
EINS og kunnugt er úr fréttum
ákvað brezka herstjórnin fyrir
skömmu að sleppa erkibiskupin-
um úr haldi. Bannað er honum
þó að hverfa heim til Kýpur.
Hefur gríska rikisstjórnin boðið
honum að koma til Grikklands,
en erkibiskupinn er ákafur tals-
maður þess að eyjan verði liluti
Grikklands.
Eftir Reutersfregnum til Mbl.
seint í gærkvöldi hefur gríska
stjórnin gefið út tilkynningu þess
efnis að í ráði sé að eitt af olíu-
skipum Onassis, Olympic, taki
Makarios á eyjunum á föstudag
og flytji hann til hafnar í Kenya.
Þaðan mun hann væntanlega
halda flugleiðis til Aþenu, þótt
það verði ekki á vegum Flugfé-
lags íslands.
I VIÐTALI við Mbl. gat Orn
Johnson þess að auk þess sem
flugvélakosiur væri ekki fyrir
hendi til fararinnar væru nú 12
flugmenn félagsins í þjáifun í
Englandi og því fáliðað hér
heima. Ef úr hefði orðið hefði
ferð flugbátsins austur í Ind-
landshaf tekið viku til 10 daga.
Mjög æskilegt hefði það verið,
sagði hann, að geta orðið við
þessari beiðni grísku stjórnarinn-
ar. Mcð ferðum Makariosar er
fylgzt um allan heim, og hann
hefur verið eitt helzta efni blaða
og útvarps undanfarið.
Þess má geta, að í sumar fóru
bréf á milli grísku og íslenzku
flugmálafélaganna, eftir því sem
Hákon Guðmundsson, form. flug-
málafélagsins skýrði blaðinu frá í
Makarios erkibiskup.
gær og hér var og á ferð í sumar
einn af ráðherrum úr grísku ríkis
stjórninni, svo Grikkir munu
kunna góð skil á starfi íslenzku
flugfélaganna.
Sfóralvarlegl ásfand vegna
aflabrestsins á velrarvertíð
Faxaflóabátar veiða milli Selvogsbanka
og Vestfjarða.
AFLALEYSI það, sem verið hefur S þessari vetrarvertíð um
allan sjó á miðum báta úr verstöðvum hér á Suðvesturlandi
er orðið hið alvarlegásta mál fyrir þjóðarbúið.
Um langt árabil hefur aflinn ekki
verið jafnlítill og nú. Þrátt fyrir
þetta aflaleysi hafa útgerðar-
menn og sjómenn ekki enn misst
alla von, því þess eru dæmi að
gjörsamlega’hafi tekið fyrir alla
veiði um tíma, en svo eftir
miðjan apríl komið hörð afla-
hrota, sem þá hefur staðið yfir
fram á vertíðarlok.
Fékk 90 slaura
úreinu Iré
GJÖGRI, Ströndum, 2. apríl. —
Lítill reki hefur verið á ’Strönd-
um í vetur, þrátt fyrir góðar
rekaáttir, fyrr en nú síðustu dag-
ana. Nú hefur mikill viður rekið,
en frekar smár. Þó rak gott tré
hjá Jóni bónda Guðmundssyni i
Seljanesi. Fékk hann úr trénu 90
girðingarstaura. — Regína.
Við slíka fiskgöngu á miðin
tengja aðþrengdir útgerðarmenn
miklar vonir.
SELVOGSBANKI —
VESTFIRBIR
Bátarnir úr verstöðvunum eru
nú hættir að leita á áltveðin mið,
en stunda nú veiðar allt sunnan
af Selvogsbanka og að Vestfjöi'ð-
unum. Eru bátarnir, sem iengst
sækja á annan sólarhring í róðrL
HELMINGI MINNI AFLI
Nú mun meðalafli á bát vera
því sem næst helmingi minni en
hann var í fyrra, og var vertíð
þá ekki hagstæð hér suðvestan-
lands. í ár eru allmiklu fleiri
bátar að veiðum. Hart hafa
menn sótt sjóinn, og róðrafjöld-
inn er miklu meiri nú en t. d. i
fyrra. Það er róið alla daga, og
bátarnir leggja línu sína og net
djúpt og grunnt á hinu feikistóra
veiðisvæði.