Morgunblaðið - 04.04.1957, Qupperneq 6
MORCVIVBIAÐIÐ
Fimmtudagur 4. apríl 1957
Kristján Jóhann Kristjánsson og Sveinn Valfells
Ársþingi iðnrekendn lokið
ÁRSÞING iðnrekenda 1957, sem
um leið er aðalfundur Félags ís-
lenzkra iðnrekenda var sett í
Reykjavík 17. marz s.l. og stóð
þar til s.l. laugaraag.
Nefndir störfuðu á meðan á
þinginu stóð og undirbjuggu álit
og tillögur, sem þingið tók síðan
til meðferðar. — Á fundinum á
þriðjudaginn var rætt álit alls-
herjarnefndar, á fimmtudag álit
skattamálanefndar og fjármála-
nefndar; þá flutti Sigurbjörn
Þorbjörnsson, skrifstofustjóri
mjög ýtarlega ræðu um skatt-
lagningu fyrirtækja. Á laugar-
dagsfundinum voru lögð fram
álit félagsmálanefndar, viðskipta-
og verðlagsmálanefndar og sýn-
ingarnefndar. Öll nefndarálitin
voru rædd mjög ýtarlegá og sam-
þykktir gerðar um helztu mál,
sem iðnaðinn varða.
í lok þingsins tók formaður fé-
lagsins, Sveinn B. Valfells, til
máls. Þakkaði hann fráfarandi
stjórn gott samstarf og fram-
kvæmdastjóra félagsins störf
hans. Foimaður færði og fund-
armönnum þakkir fyrir góð störf
á þinginu. Sveinn gat þess, að á
síðasta aðalfundi F.Í.I. hefði
Kristján Jóhar.n Kristjánsson
verið kjörinn fyrsti heiðursfélagi
Félags íslenzkra iðnrekenda og
ákveðið hefði verið, að félagið
heiðraði hann í því tilefni, en
hann hefði verið formaður fé-
lagsins í 11 ár. Færði Sveinn hon-
um því við þetta tækifæri heið-
ursgjöf frá félaginu og þakkaði
Kristjáni heillaiíka forystu í
málefnum iðnaðarins. Kristján
Jóhann þakkaði með stuttri ræðu.
Að svo búnu sleit formaður árs-
þinginu og kvaðst vona að hinni
nýkjörnu stjórn féiagsins tækist
að vinna félaginu og iðnaðinum í
landinu sem mest gagn.
Síðdegis á laugardag sátu þing-
fulltrúar boð iðnaðarmálaráð-
herra í Þjóðleikhúskjallaranum.
Flutti Iðnaðarmálaráðherra ræðu
og þakkaði iðnrekendum hið
mikla starf, sem þeir hefðu unn-
ið íslenzkum iðnaði og framþró-
un hans. Þá flutti Sveinn B. Val-
fells ræðu. Benti hann m. a. á
hinn síaukna hlut, sem iðnaður-
inn á í þjóðarframleiðslunni og
hversu miklar breytingar hefðu
orðið í atvinnuskiptingu þjóðar-
innar á síðustu hundrað
en á því tímabili hefur
arum,
þeim,
sem vinna við iðnað fjölgað úr
1/100 hluta upp í fullan þriðj-
ung þjóðarinnar.
Stjórnarkosning
í Rakarasveina-
félaginu
Á MÁNUDAGINN fór fram
stjórnarkjör í félagi rakara-
sveina. Þessir voru kjörnir í
stjórn: Vilhelm Ingólfsson form.,
Matthías Karelsson ritari og Jón
Þórhallsson gjaldkeri.
Leikfélagið aflýsti
sýningu jbví oðe/ns
60 m/ðor seldust
IGÆRKVÖLDI var aflýst leiksýningu á einþáttungunum „Brown-
ingþýðingin“ og „Þið þarna úti“, sem Leikfélag Reykjavíkur
hefur haft tvær sýningar á. Ástæðan var sú að kl. 3 á sýningar-
dag höfðu aðeins verið seldir og pantaðir 60 aðgöngumiðar, og
ef sýnt hefði verið með þann gestafjölda hefði orðið tap á sýn-
ir.gunni svo þúsundum króna skipti.
LEIKLISTARVIÐBURÐUR
AÐ ALLRA DÓMI
Stjórn Leikfélags Reykjavíkur
skýrði blaðamönnum svo frá í
gær, að það vildi koma hreinlega
fram, og segja sannleikann um
aðsóknina að sýningunni, og teldi
fjarstæðu að sýna við svo litla
aðsókn. Hins vegar væri ákveðið
að hætta ekki þegar í stað við
þessi verk, því sú list sem með
þeim væri á borð borin væri at-
hyglisverð, og það svo, að allir
sem séð hafa æfingar eða þær
tvær sýningar sem búnar eru,
gagnrýnendur, leikarar og al-
menningur, ljúka upp einum
rómi um, að ýmsir okkar þekkt-
ustu leikarar vinni þarna sína
stærstu leiksigra og sýningarnar
í heild og verkin séu með mikl-
um ágætum. Fólki sem fýsir að
sjá þessi verk, er því gefið enn
eitt tækifæri. Sýning verður á
sunnudaginn.
MÁL SEM ALLA VARÐAR
Það er mál sem alla varðar,
að mörg snjöll leikrit, sem vel
eru uppfærð og leikin, fá
ekki aðsókn, en gamanleikir
af öllu tagi ganga vikum og
mánuðum saman. Leikfélagið
hefur á stefnuskránni að sýna
meira en gamanleiki. Hér var
um þekkt bókmenntaleg leikrit
að ræða, og nú verður fróðlegt
að sjá, hvort þau fá hljómgrunn
oftar en á þeim 2 sýningum sem
verið hafa.
Guðmunda Elíasdóttir.
77
Syngjandi páskar"
n.k. sunnudag
FRÉTTAMENN áttu í gær viðtal við formann Félags ísl. söngv-
ara, Bjarna Bjarnason og Ævar Kvaran, í tilefni þess, að
*élagið mun eins og í fyrra gangast fyrir „Syngjandi páskum“, í
Austurbæjarbíói n. k. sunnudag, 7. apríl kl. 11,30 síðd. Voru söng-
skemmtanir þessar mjög vinsælar í fyrra, en það var í fyrsta
skipti sem þær voru haldnar. — Voru sex skemmtanir haldnar þá,
alltaf fyrir fullu húsi.
ÞEKKTIR
ÓPERUSÖNGVARAR
Efnisskráin verður mjög fjöl-
breytt og koma meðal annars
fram þekktir óperusöngvarar og
fleiri söngvarar. Sungnir verða
einsöngvar, „dúettar", „tríó“-
söngvar, „kvartett“-söngvar og
kórsöngvar. Einsöngvarar verða:
Kristinn Hallsson, Guðmunda
Elíasdóttir, Þuríður Pálsdóttir,
Guðmundur Guðjónsson, Gunnar
Kristinsson, Ketill Jensson, Svava
Þorbjarnardóttir, Ævar Kvaran
og Jón Sigurbjörnsson.
Nælon-net reynost vel í Indlondi,
samkvœmt skýrslu Guðjóns lllugasonar
Róm, 2. apríl. Frá FAO
NDVERSKIR fiskimenn hafa nú fengið mikinn áhuga á vélknún-
um bátum og nýtízku veiðarfærum, eftir að sérfræðingar Mat-
væla- og landbúnaðarstofnunar S.Þ. (FAO) hafa leiðbeint þeim
um notkun þeirra og sýnt fram á yfirburði hinnar nýju tækni.
I
í skýrslu sem íslenzki skip-
stjórinn Guðjón S. Illugason (frá
Hafnarfirði) sendi til aðalstöðva
FAO í Róm frá bækistöðvum sín-
um í Madrasfylki í Indlandi, seg-
ir hann m.a.: „Síðasta mánuð
höfum við leigt fiskimönnum í
Kilakarai 22 feta danskan vélbát
og 14 nælon-net. Á 12 dögum
hafa þeir landað 7.628 pundum.
Þeir eru svo hrifnir af þessum
árangri, að þeir hafa skrifað
sjávarútvegsmálaráðuneytinu í
Madras og farið þess á leit, að
þeim verði þegar í stað útvegaðir
slikir bátar og net“.
FLJÓTIR AÐ LÆRA
Annar danskur bátur frá FAO
með 14 nælonnetjum hefur einnig
verið leigður fiskimönnum í
Pamban, og lönduðu þeir 8.067
pundum af fiski á 18 dögum.
Hotel Kongen af Danmark — Köbenhavn
Frá 1. jan. til 1. maí: Herbergi með morgunkaffi frá d. kr. 12.00.
HOLMENS KAN AL 15 — C. 174.
í miðborginni — rétt við höfnina.
Höfum fengið
Vatnsheldar hlífðarhuxur
á börn 2—6 ára.
ó: dý: Etl C
M A R KAÐ U R 1 NN
Áður en sérfræðingar frá FAO
hófu að veita indverskum fiski-
mönnum tilsögn, höfðu fæstir
þeirra séð vélknúinn bát. En þeir
hafa verið fljótir að læra hina
nýju tækni. Þegar þeir hafa
sannað hæfni sína til að nota
nýju bátana, fá þeir þá á leigu
ákveðinn tíma gegn sanngjörnu
gjaldi. Nælon-netin hafa einnig
verið notuð á hinum gömlu ind-
versku bátum og prömmum með
góðum árangri, og munu þau með
tímanum stórauka afla ind-
verskra fiskimanna.
Guðmunda Elíasdóttir er ný-
komin hingað heim frá New
York, og er þetta í fyrsta skipti
sem hún kemur fram eftir heim-
komuna. Hún hefur undanfarið
sungið víða í Bandaríkjunum og
í sjónvarpi í New York.
DANSAR
Bryndís Schram og Þorgnmur
Einarsson sýna dansa og meðal
annars „ruggu- og veltudans".
Karl Guðmundsson verður með
skemmtiþátt. Kynnir á skemmt-
uninni verður Ævar Kvaran, en
hljómsveit Björns R. Einarssonar
aðstoðar við sönginn og dansana.
LÉTT TÓNLIST
Tónlist öll á skemmtuninni
verður létt. Koma söngvararnir
í ýmsum tilfellum fram í gervum
og búningum. Tjöld á leiksviði
hefur Lóthar Grund málað.
Formaður félagsins skýrði
einnig frá því, að til stæði að fé-
lagið gengist fyrir tveim eða
fleiri hljómleikum í byrjaðan
október í haust og myndi Fritz
Weisshappel annast allan undir-
búning þeirra.
sbrifar úr
daglega lifinu
Templarasundi 3 — Sími 80369.
T DAG skýra blöðin frá því að
hingað til lands hafi komið
hinn roerkasti gestur, Peter
Freuchen.
Næm frásagnargleði.
FLESTIR landsmenn munu
kannast við þennan mann.
Hann er hér kunnur af ritverk-
um sínum, bókum um Grænland
og önnur heimskautalönd, en um
þau hefir hann ritað af nær-
færni og skilningi. Þeir sem les-
ið hafa þá bók, sem kemur í dag
út í smábókaflokki Helgafells og
ísafoldar „Æskuár mín á Græn-
landi“ kunna skil á því. í þeirri
bók skýrir Freuchen frá lífi
Grænlendinga á sérstakan hátt,
sérstakan að því leyti að hann
hafði svo náið samband við hina
innfæddu, lifði sem einn af þeim
og var kvæntur grænlenzkri
konu, að líkast er því sem hann
hafi getað skyggnst inn í sál
þessara dulu og fáskiptu þjóðar
betur en nokkur annar maður
fyrr og síðar. Freuchen lærði
tungu Grænlendinga, og samdi
sig að siðum þeirra, svo að þeir
treystu honum til hlítar og tóku
hann sem einn af jafningjum
sínum. Fyrir vikið opnaðist
Freuchen heimur, sem svo mörg-
um landkönnuðum hefir verið
hulinn og frásagnarsnilld hans
var sá töfrasproti sem hann brá
•yfir efnið svo öllum mönnum
verður það hugstætt og hjart-
fólgið.
Einstæð hetja.
EG get ekki varizt þeirri hugs-
un að Peter Freuchen sé
einstæður maður og einn af þeim
síðustu mikilmennum og hetj-
um, sem nú eru uppi. Hann var
samtíðamaður Knúts Rasmussen
og Einars Michaelsen, Roald
Amundsen og Nansens. Þessir
menn voru allir slíkir kjarna-
kvistir, að þeirra nöfn lifa að
eilífu í sögu norrænna landa. En
nú er svo komið á öld tækninn-
ar og sérhæfingarinnar að land-
könnun er ekki lengur barátta
eins manns við hafið og auðn-
ina, snæinn og hin hvítu fjöll.
Flugvélar, og öll önnur nútíma
hjálpartæki hafa gert heim-
skautaferðir að þægilegri íþrótt
áhugasamra ævintýramanna og
vísindamanna. En Freuchen lifði
hina tímana þegar hreysti og
dugur var oft það eina sem bjarg-
aði heimskautafaranum frá bráð-
um bana á norðurhjara.
Ótæmandi fróðleikur
EN það er ekki nóg að hann sé
slík kempa í landkönnun,
heldur hefur náttúran gætt hann
óvenjuríkum gáfum, hann er
Hka afbragðs góður ritböfundur.
Bækur hans eru nær þrír tugir
og þýddar á flest tungumál. Og
andans auðlegð hans er slík, aíl
spökustu menn vesturálfu standa
slyppir frammi fyrir fróðleik
hans urn jafn séi vísindalegt fyr-
irbrigði sem heimshafið.
Því er það sem okkur Reyk-
víkingum gefst nú einstakt og
kærkomið tækifæri til þess að
hlusta á þessa dönsku kempu
spjalla um helztu hugðarefni sía
hér í Reykjavík i
Símnota idi skrifar:
EINS og öllum símanotendum
er kunnugt þá hefur bæjar-
síminn ekki verið í góðu lagi
undanfarið sökurn viðbótarkerf-
isins, sem er í undirbúningi. Þetta
hefur verið mjög bagalegt fyrir
þá sem nota símann mikið. -—
Símastjórnin hefur að vísu af-
sakað þetta, en þegar hún tekur
upp þá aðferð að loka öllum
símum, sem ógreidd eiga lang-
línusamtöl þ. 27. marz, þá er full-
langt gengið hjá þessari ríkis-
stofnun. Símanotendur greiða
fyrirfram ársfjórðungsgjald af
síma — eða frá 1. janúar til 1.
apríl. Símastjórnin ,sem búin er
að fá fulla afnotagreiðslu, leyfir
sér að loka símanum rúmum 4
sólarhringum áður en útrunninn
er tíminn sem greitt er fyrir.
Hvað myndi vera sagt ef einka-
fyrirtæki hagaði sér þannig, en
það virðist sem ríkisfyrirtæki
megi bjóða fólki upp ú allt.
D. J.