Morgunblaðið - 04.04.1957, Page 8
8
MOKCVNRr 4fítÐ
Fimmtudagur 4. apríl 1957
Gler flöskum
Pastic flöskum
Plastic dúkkum
MAGIMETUR
Dypamóar í Austin 8
--- í Prefekt
Startarar í Austin 8—10—12.
1—2—4 cyl.
—®
í 3ag kl. 2—4 man félagsstjóm-
in verða stödd- í félagsheimilinu
að Hverfisgötu 21 og taka á móti
heillaóskum félagsmanna og ann-
arra velunnara félagsins.
Kveikjur í Austin 8—10—12
Anker, margar gerðir
o. fl. varahlutum.
Verzlun Fri&riks Bertelsen
TKYGGVAGÖTU 10 — SÍMI 2872.
Piccolo
/. BRYNJÓLFSSON & KVARAN
H. I. P.
60 ára i dag
Öílugt stéttaiíélag
sem ætlar að byggja
orlofsheimili
HIÐ íslenzka prentarafélag er
sextíu éira í dag og er það
elzta stéttarfélag landsins, en
H.Í.P. hefur frá fyrstu tíð verið
forustufélag um ýmiss konar
hagsmunamál stéttar sinnar með
margháttuðum sjóðsstofnunum,
sem hver félagsmaður greiðir
vikulega í ákveðna upphæð af
FELAGSHEIMILI
Fyrir nokkrum dögum bauð
stjórn H. í. P. blaðamönnum til
kaffidrykkju í vistlegum sal í
félagsheimili prentara að Hverf-
isgötu 21. Það hús keypti félagið
árið 1941 er tekizt hafði að aura
saman í sjóð sern stofnaður var
í þeim tilgangi að félagið
Hús H. í. P. að Hverfisgötu 21
launum sínum. Hefur H. í. P.
þannig alla tíð verið ríkt félag
af gildum og góðum sjóðum. Á
laugardaginn kemur munu prent-
arar minnast þessa merka af-
mælis félags síns með miklu
afmælishófi að Ilótel Borg.
eignaðist samastað. í salnum þar
sem þessi blaðamannafundur fór
fram, höfðu nýlega verið gerðar
allmiklar endurbætur svo og á
eldhúsi heimilisins. Kostaði það
nokkru meira fé en allt húsið á
sínum tíma.
2/o herbergja íbúð
við Bólstaðarhlíð til sölu.
Upplýsingar gefur: Málflutningsskrifstofa Einars
B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar og
Guðmundar Péturssonar.
Símar: 2002, 3202, 3602.
Það er ódýrt að nota
PICCOLO
Fæst í næstu búð í eftir-
töldum umbúðum:
FYRST KLÚBBUR —
STOFNAÐ í „GÚTTÓ“
Magnús Ástmarsson, formaður
H. í. P., sagði nokkuð frá
hinum langa starfsferli þessara
samtaka íslenzkra prentara. Tíu
árum 'ður en H. í. P. var stofn-
að, höfðu prentarar, sem voru
mjög fámenn stétt í bænum,
stofnað með sér klúbb. Þessi
félagsskapur þeirra gaf út blað,
sem að vísu var ekki prentað, svo
sem ætla mætti, heldur var það
skrifað. Þessi klúbbur setti sér
lög og reglur um starfsemi sína.
H. í. P. var stofnað á fundi
i Góðtemplarahúsinu hinn 4.
apríl 1897. Þá munu hafa verið
hér í prentiðn um 20 menn og
voru 12 þeirra á þessum stofn-
fundi. — Þorvarður Þorvarðsson,
sem var mikill framámaður hér
í Reykjavík á þessum árum, var
kjörinn fyrsti formaður þessa
félags. Hann átti einnig hlut að
því að Leikfélag Reykjavíkur
var stofnað. Með honum í stjórn
H. í. P. og eins í Leikfélaginu,
var einnig Friðfinnur Guðjóns-
son og þriðji maður var Þórður
Sigurðsson. Þetta voru allt ung-
ir hugsjónamenn og framsæknir,
er var í brjóst borinn neisti af
félagsanda, sem annars var þá
lítt þekkt fyrirbæri hjá alþýðu-
mönnum hér á landi.
STOFNA GUTENBERG
Félagið er svo að mótast næstu
árin. Á fyrsta ári er stofnað
Sjúkrasamlag prentara, sem var
fyrsta sjúkrasamlag hér á landi.
Merkasti viðburður í sögu fé-
lagsins, sagði Magnús, er vafa-
laust er þessir sömu menn í
stjórn þess, hafa um það
forgöngu árið 1904, að stofna
prentsmiðju og kaupa til henn-
ar þeirra tíma fullkomnustu
prentvélar og tilheyrandi. Þetta
var prentsmiðjan Gutenberg.
Á þeim tíma var aðstöðu prent-
ara þannig háttað, að þeir áttu
það yfir höfði sér að loknum
námstíma, að þeim yrði sagt upp
starfi, og tekinn yrði nýr prent-
nemi í þeirra stað. Þannig átti
Gutenbergprentsmiðjan að skapa
hér öryggi fyrir þessa fámennu
stétt. Hún átti einnig þátt í því
að allt sem að prentun laut, varð
nú miklu betur unnið og stuðlaði
prentsmiðjan á þann hátt að
stórlega bættri prentun.
Stjórn H.I.P. Aftari röð frá vinstri: Jón Ágústsson, Sigurður Eyj-
ólfsson meðstjórnendur og Kjartan Ólafsson gjaldkeri. Sitjandi:
Árni Guðlaugsson, varaformaður, Gunnhildur Eyjólfsdóttir, for-
maður kvennadeildar, Magnús Ástmarsson formaður og Ellert Ág.
Magnússon ritari.
ÝMISLEGT UM SAMNINGA
OG FLEIRA
Á þessum árum voru sumar-
leyfi óþekkt. En árið 1907, í sam-
bandi við konungskomuna,
fengu prentarar 3 daga frí, án
launa að vísu, til þess að taka
þátt í hátíðahöldunum. Síðar
fengust þessir dagar viðurkennd-
ir sem sumarfrí, en án launa
fyrst í stað. í dag er sumarlevfi
prentara 3 vikur minnst, en mest
21 dagur með fullum launum.
Árið 1908 var vinnustunda-
fjöldinn lækkaður úr 10 í 9 klst.
á dag og nokkru síðar í 8 klst.
og þannig hafa kjarasamningar
félagsins við prentsmiðjueigend-
ur stöðugt verið að breytast og
hagur prentara farið batnandi.
Nú greiða prentarar rúmar 1700
kr. á ári til hinna fjölmörgu
sjóða, svo sem í sjúkrasjóð, at-
vinnuleysissjóð, Framasjóð, eft-
irlaunasjóð, fasteignasjóð, sem
auk félagsheimilisins að Hverfis-
götu 21 keypti jörðina Miðdal í
Laugardal árið 1941. Þar er hug-
myndin, er tímar líða, og jafnvel
á þessu ári, að reisa orlofsheim-
ili fyrir prentara. í Miðdal eru
nú 14 sumarbústaðir sem prent-
arar eiga. Enn er sjóður sem
heitir Lánasjóður og hefur ár-
lega hjálpað félagsmönnum í
ýmsu skyni. T. d voru á sl. ári
lánaðar úr honum um 300 þús.
kr. — Framasjóðurinn styrkir
árlega fleiri eða færri unga
menn í iðninni til framhaldsnáms
erlendis. í fyrra nutu 4 menn
síyrkja úr sjóðnum.
I BRAÐ OG I LENGD
Þanmg hefur starfsemi H. í. P.
við það miðazt að reyna að skapa
sem mest öryggi fyrir félags-
inenn sína í bráð og lengd. Hér
V AV
má einnig nefna Byggingarsam-
vinnufélag prentara, sem þó
ekki heyrir beint undir H. í. P.
en er stofnað af félögum þess.
Með því að stofna til slíks bygg-
ingarfélags, með almennri þátt-
töku, svo sem lög um slík félög
gera ráð fyrir, þá hafa yfir 40
prentarar eignazt íbúðir í prent-
arabústöðum á liðnum árum. —.
Hefur Guðbjörn Guðmundsson
verið aðaldriffjöðurin í þessu fé-
lagi og sýnt frábæran dugnað, en
byggingafélagið er nú sem kunn-
ugt er að ráðast í byggingu
mestu fjölbýlishúsa á landinu,
annað við Kleppsveg, en hitt inni
við Hálogaland.
Magnús Ástmarsson sagði að
ekki gæti H. í. P. talizt til fjöl-
mennari félaga, því félagatalan
væri kringum 300 og innan vé-
banda þess er sérstök kvenna-
deild, eru það aðstoðarstúlkur í
prentsmiðjum. Á formaður þess-
arar deildar sæti í stjórn félags-
ins, svo segja má að innan vé-
banda H. í. P. ríki jafnrétti karla
og kvenna.
Mesti fjöldi nefnda er starfandi
innan vébanda H. í. P., svo sem
vænta má um svo víðtækan fé-
lagsskap. Öll störf í stjórn og
nefndum eru sjálfboðaliðsstarf og
hefur alla tíð verið svo. Nú er
aftur á móti orðið svo mikið starf
að annast fjármál félagsins o. fl.
að gjaldkerinn er á launum hjá
félaginu fyrir vinnu á þess veg-
um hálfan daginn.
HÓF OG HÁTÍÐARBLAÐ
Sem fyrr greinir verður mikið
hóf að Hótel Borg á laugardag-
inn þar sem meðal boðsgesta
verða sem fulltrúar formenn
norsku og sænsku prentarasam-
bandanna. í tilefni afmælisins
kemur út afmælisblað af riti fé-
lagsins, Prentaranum. Er það
allt helgað þessu merka afmæli,
greinar og frásagnir af starfi fé-
lagsins síðustu 10 árin, en er
félagið varð 50 ára var saga þess
frá upphafi ýtarlega rakin í af-
mælisblaði Prentarans. — For-
rnaður félagsins, Magnús Ást-
marsson, skrifar „leiðara" í af-
mælisblaðið, þar sem hann kemst
m. a. svo að orði:
Um framtíðina þýðir ekki að
reyna að spá. En vitað er, að
Hins íslenzka prentarafélags bíða
rnargvísleg viðfangsefni. Sum
þekkjum vér þegar, en önnur
ekki. En vér skulum öll óska og
vona, að félaginu takist að halda
svo á hverju máli, að til sem
mestra heilla horfi fyrir prent-
arastéttina á íslandi.
Vanti ijðiir prentun,
]>(i
I < l
VÍÐIMEL 63 — SÍMI 1825