Morgunblaðið - 04.04.1957, Qupperneq 20
Veðrið
Norðan-stinningskaldi. Skúrir.
origimiWaíiiiíi
NATO
Sjá grein á bls. 11.
79. tbl. — Fimmtudagur 4. apríl 1957.
Agœtur Varðarfundur
um húsnœðismálin
í gœrkvöldi
IGÆR var haldinn Varðarfundur í Sjálfstæðishúsinu. Voru hús-
næðismálin til umræðu og fluttu um þau framsöguræður þeir
Jóhann Hafstein, alþingismaður, og Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
formaður Varðar. — Var ræðum þeirra ágætlega tekið af fundar-
mönnum, en húsið var fullskipað.
NÝIR FÉLAGAR
Fundarstjóri var Sveinn
Helgason og fundarritari Bjarni
Sigurðsson. í upphafi fundarins
las fundarstjóri upp inntöku-
beiðnir frá 20 mönnum og voru
þær samþykktar.
ÝTARLEGAR
FRAMSÖGURÆÐUR
Framsögumenn gerðu í ræðum
sínum ýtarlega grein fyrir því
hvernig viðhorfin væru í dag í
húsnæðismálunum.
Röktu þeir baráttu Sjálfstæðis-
manna fyrir byggingarfrelsi, hin-
ar miklu húsabyggingar í stjóinar
tíð þeirra og aðgjörðir til láns-
útvegunar. Nú væri hins vegar
komin stöðvun og afturkippur í
allar bygingar og ekkert hefði
verið gert af hálfu núverandi
stjórnar til þess að afla lánst'jár
til bygginga, þótt hún hefði setið
við völd í meira en hálft ár.
Ágælur fundur Sjálf-
slæðism. í Kópavogi
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
efndi til almenns fundar á þriðju
dagskvöldið í barnaskólanum við
Digranesveg. Hörður Þórhalls-
son setti fundinn og tilnefndi sem
fundarstjóra Jón Þorsteinsson.
Ólafur Thors, alþingismaður,
flutti mjög fróðlegt erindi um
stjórnmálaviðhorfið. Var máli
hans mjög vel tekið af fundar-
mönnum. Þá flutti Sveinn S.
Einarsson snjallt framsöguerindi
um bæjarmálin. Urðu á eftir báð
um þessum ræðum fjörugar um-
ræður. Tóku til máls Guðmundur
Gíslason, Björn Eggertsson, Jón
Gauti og Axel Jónsson.
Fundurinn var fjölmennur og
gengu margir nýir félagar í
Sjálfstæðisfélagið. Ríkti mákdll
áhugi fyrir því á fundinum að
gera hlut Sjálfstæðisflokksins
sem stærstan í Kópavogi.
ir
Nirfillinn" sýndur
á Selfossi
SELFOSSI, 2. apríl. — Að und-
anförnu hafa æfingar staðið yfir
á sjónleiknum Nirfiilinn eftir
Moliére, sem Kvenfélagið á Sel-
fossi ásamt Fél. iðnnema standa
að. Ákveðið er að frumsýning-in
verði á sunnudaginn kemur. Leik-
stjóri er Einar Pálsson leikari, en
með aðalhlutverkið fer Karl J.
Eiriks, Selfossi, Þjóðleikhúsið
hefur lánað alla búninga. Allur
ágóði af væntanlegum sýningum
á að renna til sjúkrahúss Suður-
lands.
Læknir í Grundarf.
GRUNDARFIRÐI, 3. apríl. —
Snjóa hefur nú leyst verulega
upp og mun verða akfært innan
skamms um þjóðvegina til Stykk
ishólms.
í vetur hefur læknir í fyrsta
skipti haft aðsetur í Grundar-
firði og er það til mikils hagræð-
is fyrir íbúa héraðsins. — Emil.
SIGLUFIRÐI, 2. apríl — Alls
hafa gengið hér í landsgöngunni
1303. Er elzti þátttakandinn 83.
ára og yngsti 3ja ára.
AÐRIR RÆÐUMENN
og ræddi ýmsa þætti þessa máls.
Er ræða Jóhanns Hafsteins birt
hér í blaðinu í dag.
Aðrir sem tekið höfðu til máls
þegar blaðið fór í prentun voru
þeir Páll S. Pálsson framkvstj.,
Þorkell Sigurðsson vélstjóri og
Sveinn Þormóðsson.
í lok fundarins tck til ináls
Gunnar Thoroddsen borgarstjóri
Fyrir skömmu afhenti Magnús V. Magnússon forseta ísraels trúnaðarbréf sitt sem sendiherra íslands
hjá israelska lýðveldinu með aðsetri í Stokkhólmi, Er þessi mynd tekin við það tækifæri á heimili for-
seta ísraels. Á henni sjást talið frá vinstri: Magnús V. Magnússon sendiherra, Izhak Ben Zwi forseti
og dr. Burg póstmálaráðherra ísraels.
VeiSistjóri sUipuleggi samræmdta
heríerð c/egn reíum og minnkum
Nýft frumvarp um yeðingu vargsins
IGÆR var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um eyðingu
refa og minka. Aðalkjarni frumvarpsins er sá að skipaður skal
veiðistjóri, sem á að hafa alla yfirstjórn refa- og minkaeyðingar
og m. a. leita nýrra aðferða og tækja sem tekin hafa verið í notkun
erlendis.
NEFNDIN
AFLAÐI UPPLÝSINGA
Sérstök nefnd hefur samið
þetta frumvarp. Hana skipuðu
Páll Zóphoníasson, tilnefndur af
Búnaðarfélagi íslands, Andrés
Eyjólfsson í Síðumúla tilnefndur
af Stéttarsambandi bænda og
Páll A. Pálsson yfirdýralæknir,
sem var formaður nefndarinnar.
Frumvarpinu fylgir ýtarleg
greinargerð, sem sýnir að all-
mikil vinna liggur að baki þess.
Má m. a. geta þess, að nefndin
hefur aflað sér upplýsinga i
Ástralíu, Englandi, Danmörku,
Bandaríkjunum, Svíþjóð og Nor-
egi og hefur komið í ljós við
þessar athuganir, að eiturefni
þau sem hér á Hndi eru notuð
eru orðin úrelt. Önnur og bráðari
eiturefni, sem valda sársaul.a hjá
dýrunum eru almennt notuð er-
lendis.
VEIÐISTJÓRI
Eins og fyrr segir, er lagt til
í frumvarpinu að skipaður verði
veiðistjóri og er hlutverki hans
m. a. lýst þanmg í 2. gr. frum-
varpsins:
„Veiðistjóri skal fylgjast
með refa- og minkastofninum
og útbreiðslu hans í landinu
svo sem kostur er, leiðbeina
veiðimönnum, er fást við eyð-
ingu refa og minka, halda
námskeið fyrir veiðimenn og
skipuleggja aðgerðir á stærri
svæðum, þegar nauðsyn þykir
og gera tilraunir með ný tæki
og vinnsluaðferðir, er líklegar
þykja til þess að eyða dýrum
þessum."
VERÐLAUN OG EITRUN
Nefndin leggur til í frumvarp-
inu að verðlaun fyrir að vinna
tófu hækki í 2C0 kr. og fyrir
mink í 125 kr.
Annars telur nefndin, að eitr-
un sé sú aðferð, sem bezta raun
gefur við útrýmingu þessara
skaðsemdardýra, fremur þó sú
aðferð að senda eiturloft niður í
grenin, heldur en að eitra í agn.
Er þess getið í greinargerð,
að í stríðslok hafi refir á
meginlandi Evrópu verið
orðnir sýktir af hundaæði,
sem hefur ægileg áhrif á
menn. Var þá brugðið skjótt
við, allsherjarherferð hafin
gegn refunum með eiturgasi,
er var sent niður í grenin.
Þegar slík heríerð hefur verið
Greiðsluafgangur ríkis-
sjóðs enginn s.l. ár
Athyglisverðar upplýsingar ráðherra
ÞAÐ er ljóst af öllum sólarmerkjum, að enginn greiðsluafgang-
ur hefur orðið af ríkisrekstrinum s.I. ár, eða svo lítill, að
hann kemur ekki til úthlutunar.
Þessar upplýsingar gaf Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra á
Alþingi í gær við fyrirspurn utan dagskrár.
Margir spurðu um
skipakomuna
SELFOSSI — Fjöldi fólks virð-
ist ekki hafa áttað sig á því, að
útvarpið kom með sina 1. apríl-
frétt í frétta-auka að kvöldi dags.
Margt fólk úr nærsveitum, og í
Reykjavík, hringdi hingað austur
til þess að leita eftir nánari fregn
um af skipakomuni og um kvöld-
ið kom hingað á Selfoss bill úr
nærliggjandi kauptúni með fólk,
sem komið var til þess að skoða
skipið. Geta má þess að starfs-
maður kaupfélagsins, Helgi
Ágústsson, svaraði fjölda fyrir-
spuma um skipið. GG.
Magnús Jónsson, 2. þingmaður
Eyfuðmga, kvaddi sér hljóðs í
byrjun fundar Sameinaðs þings
í gær. Hann minnti á það, að fjár-
málaráðherra hefði við afgr.
fjárlaga lýst því yfir að endan-
legar upplýsingar lægju ekki
fyrir um afkomu rikissjóðs fyr-
ir sl. ár.
Spurði Magnús fjármálaráð-
herra, hvort hann hygðist ekki
gefa upplýsingar um greiðslu-
afgang og leita samþykkis Al-
þingis um ráðstöfun hans. Hefði
það verið venja nokkur undan-
farin ár.
MIKLAR
UMFRAMGREIÐSLUR
Fjármálaráðherra svaraði. —
Kvaðst hann myndi gefa þessar
upplýsingar áður en þingi væri
frestað. Hins vegar væri það
ljóst, að greiðsluafgangur yrði
enginn.
Magnús Jónsson þakkaði iyr
ir upplýsingarnar. Þótti hon-
um ganga nokkuð seint að fá
uppgjör og gat þess einnig, að
þegar fjárlagafrumvarpið var
lagt fram fyrir jól, hefði það
verið upplýst að tekjur rikis-
sjóðs myndu fara mjög fram
úr áætlun. Ef greiðsluafgang-
ur væri enginn þá væri það
sýnt, að umframgreiðslur ríkis
sjóðs hlytu að hafa farið mjög
langt fram úr áætlun fjárlag-
anna sl. ár.
Árshátíð Sjálf-
stæðismanna
á Akranesi
ÁRSHÁTÍÐ Sjálfstæðismanna á
Akranesi verður haldin í Sjálf-
stæðishúsinu þar laugardaginn 6.
þ. m. og hefst kl. 8,30.
Skemmtiatriði verða mjög fjöl.
breytt. Meðal annars mun Jón
Sigurbjörnsson leikari skemmta
með söng og upplestri. Frú Sól-
rún Ingvarsdóttir mun syngja
nýjar gamanvísur eftir Theódór
Einarsson. Ennfremur mun hinn
kunni danskennari Hermann
Ragnar stjórna dansinum.
Á sunnudaginn verður svo
barnaskemmtun á sama stað og
hefst hún kl. 2 e. h. Skemmtiatriði
þar verða nánar auglýst í götu-
auglýsingum.
Sjálfstæðisfólk á Akranesi og
nærsveitum er hvatt til að fjöl-
menna á samkomur þessar og
taka með sér gesti.
endurtekin nokkur ár í röð á
samfelldum landssvæðum hef-
ur tekizt að útrýma refnum
að mestu.
SÝKLAHERNAÐUR
í greinargerðinni er einnig
rætt um sýklahernað gegn ref-
um og minkum. Er talið að all-
verulegt gagn væri hægt að hafa
af smitefni, sem kæmi af stað
banvænni drepsótt í refa- og
minkastofninum. Slíkt smitefni
er að vísu ekki til, en það ætti
að vera verkefni hins tilvonandi
veiðistjóra að rannsaka það mál.
Dregið í 12. fl. DAS
1 DAG var dregið í 12. flokki
DAS um fjóra vinninga, einbýl-
ishús í Ásgarði 4, Reykjavík, kom
á nr. 36627, seldur í umboði Voga,
eigandi miðans er Hannes Guð-
jónsson, Lindarbrekku, verkamað-
ur. — Chevrolet-sendiferðabifreið
á nr. 35892 í umboði Austurstræti
1, eigandi frá Anna Ólafsdóttir,
Skipasundi 71. Morrisfólksbifreið
nr. 2299, seldur í Hafnarfirði, eig
andi Sigurður Guðjónsson, Suður-
götu 49, Hafnarfirði og rússnesk
landbúnaðarbifreið á nr. 58506, í
umboði Austurstræti 1 og er eig-
andi Kristinn Dagbjartsson af-
greiðslumaður í Málaranum í
Bankastræti.
Fiskur úr strand-
aða togaranum
til sýnikennslu
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 3.
marz. — Svo vel bar í veiði, að
fyrsta daginn, sem fiski var skip-
að upp úr hinum strandaða belg-
iska togara, byrjaði hér á
Klaustri sýnikennslunámskeið fyr
ir húsmæður á vegum kvenfélags-
anna og er Steinunn Ingimundar-
dóttir frá Akureyri kennari. Hún
greip þegar tækifærið og mat-
reiddi úr fiskinum sjö kostulega
fiskrétti, hvern öðrum betri. Um
30 konur sækja námskeiðið. Bænd
ur hugsa gott til að þurfa ekki
að hafa þorskinn og ýsuna ó-
breytta í allan mat, þó gott sá
alltaf nýmetið. GB.
Ný Ijóðabók eftir
Grélar Fells
NÝLEGA er komin út ný ljóða-
bók eftir Grétar Fells, rithöfund.
Ber hún heitið „Heiðin há“.
Bók þessi er gefin út í tilefni
af 60 ára afmæli höfundarins af
nokkrum vinum hans. Er i
henni úrval úr ljóðum skáldsins
og örfá ný kvæði. Káputeikningu
gerði Jóhannes Kjarval, listmál-