Morgunblaðið - 28.05.1957, Blaðsíða 1
44. árgangur
118. tbl. — ÞriSjudagur 28. maí 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mikið var um dýrðir í Stokkhólmi á dögunum, er Júlíana Hallands-
drottning og Bernhard prins voru þar í opinberri heimsókn. Myndin
er tekin við það tækifæri af gestunum. Lengst til hægri stendur
Gustaf Adolf Svíakonungur.
Ný stjórn H. C. Hansen
formlega við í dag
Yfirburðir Sjálfstæðismuimu í
eldhusdagsumræðunum
Stjórnarliðið í vörn allt kvöldið
ENDA I>ÓTT stjórnarflokkarnir hefðu þrefaldan ræðutima á við
Sjálfstæðisflokkinn í eldhúsdagsumræðunum í gærkvöldi, har
þó málflutningur Sjálfstæðismanna af í umræðunum. Allir ræðu-
menn flokksins, þeir Ólafur Thors, Jón Pálmason og Sigurður
Bjarnason héldu uppi rökstuddri og markvísri sókn á hendur
vinstri stjórninni, sem átti það eitt úrræði, að kenna fyrrvérandi
ríkisstjórnum öll vandkvæði, sem nú steðja að þjóðinni. Kvað
svo rammt að þessu, að sjálfur forsætisráðherrann reyndi að tala
sem minnst um aðgerðir og stefnu stjórnar sinnar en fjölyrti því
meira um stjórnarframkvæmdir Sjálfstæðismanna á undanförnum
áratugum.
SVIKIN KOSNINGALOFORÐ
Ein ræðuumferð var í umræð-
unum í gærkvöldi. Kom það í
hlut Sjálfstæðismanna að tala
fyrstir. Var Ólafur Thörs, for-
maður Sj álfstæðisflokksins fyrsti
ræðumaður kvöldsins. Rakti
hann í þróttmikilli ræðu, hvern-
ig vinstri stjórnin hefði svikið
hvert kosningaloforð sitt á fæt-
ur öðru, bæði á sviði efnahags-
mála, varnarmála og atvinnu-
mála.
Undir lok ræðu sinnar komst
hann þannig að orði, að stjórnin
væri sjálfri sér sundurþykk, úr-
ræðalaus og máttvana. Hún nyti
tekur
arsamb.) ráðherra án stjórnar-
deildar.
★ ★ ★
lítils trausts, jafnt erlendis sem
hérlendis.
Ræða Ólafs Thors er birt á öðr-
um stað hér í blaðinu í dag.
ENDEMISLEG
FJÁRMÁLASTJÓRN
Jón Pálmason talaði næstur.
Ræddi hann aðallega landbún-
aðarmál og fjármál. Hann kvað
ríkisstjórnina í hvívetna hafa
borið hagsmuni bændastéttarinn
ar fyrir borð. Fjármálastjórn Ey-
steins Jónssonar, sem Framsókn-
armenn hældu sér ákaflega af
væri með endemum. Rakti
ræðumaður síðan hinar gífurlegu
hækkanir á fjárlögum, undir for-
ystu Eysteins Jónssonar.
ÞEIR, SEM SVÍKJA ALLA
UM ALLT
Sigurður Bjarnason talaði síð-
astur af ræðumönnum Sjálfstæð-
isflokksins. Hann kvað það hafa
sannazt á því langa þingi, sem
setið hefur s.l. 8 mánuði að þeir
flokkar, sem undanfarin ár hafa
lifað á því að lofa öllum öllu
hefðu í vetur haft það helzt fyrir
stafni að svíkja alla um allt.
Ræddi hann síðan nokkuð um
uppgjöf stjórnarinnar í efnahags-
málum, húsnæðismálum, ofsókn-
ir hennar á hendur bönkunum,
svikin í landhelgismálinu og loks
afstöðu Sjálfstæðisflokksins til
nokkurra þýðingarmikilla þjóð-
mála.
RÆÐUR STJÓRNARLIÐSINS
Af hálfu Framsóknarflokksins
töluðu Hermann Jónasson, Sigur-
vin Einarsson, Hannibal Valde-
marsson, Björn Jónsson, Guð-
mundur í. Guðmundsson, Friðjón
Skarphéðinsson og Bragi Sigur-
jónsson.
Var það mjög áberandi í þess-
um umræðum, að ráðherrarnir
og stuðningsmenn stjórnarinnar
voru í stöðugri vörn allan um-
ræðutímann.
RÆBUMENN
SJÁLFSTÆÐISMANNA
í KVÖLD
I kvöld fer fram seinnihluti
eldhúsdagsumræðnanna. Tala
þá af hálfu Sjálfstæðisflokks-
ins þeir Bjarni Benediktsson,
Ingólfur Jónsson og Gunnar
Thoroddsen.
Kaupmannahöfn, 27. maí.
IVLUKKAN 18,30 í dag gekk H. C. Hansen á fund Friðriks
konungs og lagði fyrir hann ráðherralista hinnar nýju
ríkisstjórnar, sem hann hefur myndað með samvinnu jafn-
aðarmanna, róttækra og Réttarsambandsins. Áður höfðu
stjórnir flokkanna þriggja haldið fundi og samþykkt verka-
skiptingu ráðherranna. Stjórnin hefur að baki sér 93 þing-
sæti af 179.
Minnihlufasfjórn mynd-
uð i Finnlandi
Helsingfors, 27. maí.
OTJÓRNARKREPPAN í Finnlandi var leyst í dag með myndun
minnihlutastjórnar, sem Bændaflokkurinn, Sænski og Finnski
flokkurinn styðja. Forsætisráðherra í hinni nýju stjórn er Sukselain-
en úr Bændaflokknum, en flokksbróðir hans Virolainen er utan-
ríkisráðherra. Ráðherrar Bændaflokksins eru sjö, Sænski og
Finnski flokkurinn eiga þrjá ráðherra hvor og auk þess hefur einn
óháður þingmaður tekið við ráðherraembætti.
Hin nýja stjórn er skipuð 16
mönnum, 9 jafnaðarmönnum, 4
róttækum og 3 frá Réttarsam-
bandinu. H. C. Hansen er sjálfur
forsætis- og utanríkisráðherra.
Fjármálaráðherra er Kampmann
(jafn.), menntamálaráðherra J.
Jörgensen (rótt.), varnarmála-
ráðherra P. Hansen (jafn.), við-
skiptamálaráðherra K. Philip
(rótt.), Dahlgaard (rótt.) fer með
efnahagsmál og norræna sam-
vinnu, S. Olsen (Rréttars.) er
innanríkisráðherra, Bomholt
(jafn.) félagsmálaráðherra, Sund
vand (jafn.) atvinnu- og hús-
næðismálaráðherra, H. Hække-
rup (jafn.) dómsmálaráðherra,
J. O. Krag (jafn.) fer með utan-
ríkisverzlun, B. Koch (jafn.)
kirkjumálaráðherra, Pedersen
(Réttars.) fiskimálaráðherra.,
K. Skytte (rótt.) landbúnaðar-
málaráðherra, K. Lindberg
(jafn.) samgöngu- og Grænlands-
málaráðherra, V. Starcke (Rétt-
WASHINGTON, 27. maí —
Richards, sérstakur sendimað-
ur Eisenhowers forseta, sem
fór til V-Asíu-landanna til
þess að kynna stjórnum þeirra
Einn nýr jafnaðarmaður er í
stjórn H. C. Hansens. Meðal
þeirra, sem voru í fyrri stjórn
H. tC. Hansens, en ekki eiga sæti
í þessari, eru Ernst Christiansen
(aðstoðarutanríkisráðh.), Lis Gro
(verzlunarmálaráðh.), sem ekki
er meðlimur þingsins og lætur
af ráðherraembætti samkv. eigin
ósk. Nokkrir þeirra, sem sitja
áfram í stjórninni, hafa fengið
Frh. á bls. 2.
NEW YORK, 27. maí. — Birt
hefur verið afsökunarbréf, er
Sjang Kai-Shek hefur sent
Eisenhower vegna atburðanna
á Formósu undanfarna daga.
„Eisenhower-áætlunina“, gaf
öldungadeild Bandaríkjaþings
í dag skýrslu um för sína. Á
ferð sinni ræddi hann við
stjórnir 15 ríkja og ferðaðist
Af ráðherrunum í þessari nýju
stjórn eru 11 nýir, en aðeins þrír
af ráðherrum hennar sátu í stjórn
Fagerholms.
30 þús. mílur. Kvað hann för
sína hafa borði mikinn árang-
ur, sem nú þegar væri sýni-
legur. Þessar þjóðir óskuðu
ekki eftir því að verða komm-
únismanum að bráð og för
hans hefði miðað að því að
rétta þeim hjálparhönd.
Lengi var ekki séð hvort
Sænski flokkurinn hygðist
styðja Sukselainnen til stjórnar-
myndunar, en eftir mikil funda-
höld og umræður var ákvörðun-
in tekin, en Sænski fiokkurinn
hefur ekki átt fulltrúa í ríkis-
stjórn nú nokkur síðari árin.
Þessi nýja stjórn hefur að
baki sér 79 af 200 meðlimum
þingsins.
Meinander fjármálaráðh.
hefur verið skipaður aðstoð-
arforsætisráðherra, en kjósa
verður nýjan þingforseta í
stað Sukselainen, hins nýja
forsætisráðherra. Víst þykir,
að jafnaðarmönnum muni
. Frh. á bls. 2.
Lögin eða þjóðin ákveða ekki lengur
hvaða þingmenn eru réttkjörnir
Gunnlaugur Þórðarson látinn
þingi. Hefði dr. Gunnlaugur Þórð
Saka sendiráðsmenn nm njósnir
Richards ánœgður með Asiu-tÖrina
atsala sér þingmennsku
ÁÐUR en gengið var til dagskrár
á fundi Sameinaðs þings í gær
svaraði forseti, Gunnar Jóhanns-
son, fyrirspurn sem Bjarni Bene-
diktsson hafði beint til hans um
þingsetu dr. Gunnlaugs Þórðar-
sonar s.l. miðvikudag á fundi
Sameinaðs þings. Forseti las upp
allanga greinargerð, þar sem að-
alefnið var, að bæði þeir dr.
Gunnlaugur og Bragi Sigurjóns-
son hafi löglega tekið sæti á
arson síðan vikið af þingi vegna
þess að aðalmaður, Guðmundur
í. Guðmundsson, kom aftur til
þings. Hinsvegar væri sá maður,
sem Bragi Sigurjónsson sseti fyr-
ir, Pétur Pétursson, enn ókominn
til þings. Varamaður virðist eiga
að sitja, sagði forseti, þar til að-
Frh. á bls. 2.
WASHrNGTON, 27. maí —
Utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna tilkynnti í dag, að ung-
verska stjórnin hefði sakað
starfsmenn bandaríska sendi-
ráðsins í Ungverjalandi um
njósnir og hefði farið þess á
leit við utanríkisráðuneytið,
að starfsliði sendiráðsins yrði
fækkað. Hefur því heyrzt
fleygt, að Bandaríkjastjórn
hyggist kalla heim hluta sendi
ráðsstarfsmannanna í Ung-
verkalandi og krefjast þess
jafnframt, að jafnmikill hluti
ungverskra sendiráðsstarfs-
manna í Baudaríkjunum
hverfi heiin.