Morgunblaðið - 28.05.1957, Blaðsíða 24
Veöriö
Suðvestan kaldi. Dálítil rigning
eða súld.
origvmTblíiíitrö
118. tbl. — Þriðjudagur 28. maí 1957.
Sumar í Týról
Sjá blaðsíðu 9.
Gteymdi svisslyklinum og
ó meðun vnr bílnum stolið
ÞAÐ getur vissulega orðið af-
drifaríkt að gleyma „svisslyklin-
um“ í bíl sínum. Maður nokk-
ur varð fyrir þessu á sunnudag-
inn. Bílnum var stolið og næst
fékk maðurinn fregnir af honum
nokkrum klukkustundum síðar,
stórskemmdum uppi við Svana-
staði. Var þetta bíllinn R-3372.
Maðurinn hafði brugðið sér frá
inn í Hafnarhús í 3—4 mín., um
klukkan 10 á sunnudagsmorgun-
inn. Er hann kom út aftur var
bíllinn horfinn. Fréttist það næst
af honum, er Jónas vegaverk-
stjóri og bóndi í Stardal hringdi
til lögreglunnar, er hún hafði
lýst eftir bílnum í útvarpi. Hafði
Jónas komið að bílnum þversum
á veginum við brúna hjá Svana-
stöðum. Hafði hann rekizt á
brúna og var óökufær á eftir.
Sá Jónas, hvar ungur maður var
á rjátli í kringum hinn skemmda
bíl. Nokkru síðar kom þaraðlang
ferðabíll með skátastúlkum í.
Með öllum þessum liðsafnaði
tókst að koma bílnum út af veg-
inum. Ungi maðurinn fékk far
áfram austur með skátabílnum.
Það fréttist svo af ferðum hans,
að hann hafði farið úr bílnum við
Grafningsveg og kvaðst ætla nið
ur í sumarbústaðalöndin þar.
Er þetta barst til lögregl-
unnar lagði hún þegar af staB
þangað. Hafði hún þær fregnir af
manninum, að hann væri farinn,
en hefði ætlað niður á Þingvoll.
Er lögreglan kom upp á þjóð-
veginn aftur og stöðvaði fyrsta
bílinn sem frá Þingvöllum kom
sat ungi maðurinn í honum.
Hann hafði verið tekinn upp í
Almannagjá og beðið um far til
bæjarins.
Það er svo af manni þessum
að segja að hann hafði verið ölv-
aður alla nóttina. Hann hefur
aldrei áður komizt í kast við lög-
regluna og er aðeins 21 árs að
aldri.
Hreyfilsmenœ sigursælir ytra
Ein af barnamyndunum á sýningunni í Þjóðminjasafninu.
Siglufjarðarskarð
aftur bílfært
Siglufirði, 27. maí:
— Lokið var í dag að moka Siglu-
f jarðarskarð, en sagt er að alnienn
umferð um það verði ekki fyrr en
á miðvikudag fyrir stærri bíla.
Þrjár ýtur hafa unnið að mokstr-
inum að vestanverðu og sóttist
vei-kið fyrr en vonir stóðu til, því
snjór var þar mikill á veginum.
— Guðjón.
Lýsl eitir
sjónarvoltum
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
hefur beðið blaðið að lýsa eftir
sjónarvottum að umferðaslysi er
varð 8. þessa mánaðar á horni
Egilsgötu og Barónstígs. Eldri
kona varð fyrir reiðhjóli, sem
drengur var á. Konan meiddist við
að falla í götuna og hefur verið
rúmliggjandi síðan. Þarf rann-
sóknarlögreglan að fá sem gleggst
ar uppl. um málið og hafi einhverj-
ir sjónarvottar verið að þessu eru
þeir beðnir að gefa sig fram hið
fyrsta. T.d. er vitað að maður í
litlum bíl ók konunni í slysavarð-
stofuna í Heilsverndarstöðinni.
Boðsimd lögregl-
unnar f ór fram
í gær
1 GÆRDAG fór fram í sundlaug-
unum hin árlega boðsundskeppni
milli lögreglusveita götulögregl-
unnar og sundsveitar frá saka-
dómaraembættinu. Tóku alls 80
menn þátt í sundkeppninni en sveit
irnar voru fjórar. Yar keppnin
afarhörð og það svo að eldri met
úr þessari sundkeppni fuku. Lauk
sundkeppninni með sigri sveitar
Pálma Jónssonar varðstjóra í götu
lögreglunni og Var tími hennar
4:44,4 mín. Þá kom sveit sakadóm
aramanna undir forustu Sveins
Sæmundssonar yfirmanns rann-
sóknarlögreglunnar, og skakkaði
aðeins 1,2 sek. á tímum þessara
tveggja sveita, þriðja var sveit
Matthíasar Sveinbjörnssonar varð
stjóra og fjórða Magnúsar Sig-
urðssönar og munaði 0,4 sek. á
þessum tveim sundsveitum.
■^EINS og frá hefur verið skýrt
í fréttum, fór 4 manna skák-
sveit frá Taflfélagi samvinnufél.
Hreyfils, til Helsingfors, til
keppni um norræna sporvagna-
meistaratitilinn í skák.
Skák þessi fer fram í fjögurra
manna sveitum milli borga
Norðurlandanna.
Þær fregnir hafa nú borizt, að
sveit Hreyfils tefldi í efsta
flokki, og vann meistaratitilinn
með 6 stigum — vann alla sína
keppinauta.
Úrslit í einstökum umfeðrum
voru þau að í fyrstu umferð
tefldi sveit Hreyfils við Gauta-
borg og fékk 3 vinninga, Gauta-
borg 1, Kaupmannahöfn 3% og
Stokkhólmur V2.
í annarri umferð tefldi Hreyfill
við Kaupmannahöfn og hafði 3
vinninga en Kaupmannahöfn 1
vinning. Gautaborg 3 vinninga og
Stokkhólmur 1 vinning.
í þriðju umferð tefldi Hreyfill
við Stokkhólm og vann með 3
vinningum, en Stokkhólmur 1
vinning, Kaupmannahöfn 2% og
Gautaborg IV2 vinning.
Eins og fyrr var sagt vann sveit
Hreyfils meistaratitilinn með 6
stigum, Kaupmannahofn hlaut 4
stig, Gautaborg 2 og Stokkhólm-
ur ekkert stig.
From Heybja-
víkarmeistari
sigraði Val 2:0
REYKJAVÍKURMÓTINU í knatt
spyrnu lauk í gærkvöldi. Til úr-
slita léku Fram og Valur.
Leikurinn var frá upphafi
spennandi og á köflum brá fyrir
mjög góðum leið hjá báðum lið-
unum.
Fyrra hálfleik lauk án þess að
mark yrði skorað. Fyrra mark
Fram kom úr vítaspyrnu er um
stundarfjórðungur var til leiks-
loka og skoraði Skúli Nielsen.
Síðara markið skoraði Karl Berg-
mann skömmu fyrir leikslok.
Þetta er í níunda sinn, sem Fram-
arar vinna Reykjavíkurméistara-
titilinn, en síðast sigruðu Fram-
arar mót þetta 1950. Umsögn um
leikinn birtist í blaðinu á morg-
un.
Ferðaþjónusta stúdenta tekur til starfa
‘Veitir helmingi ódýrari ferðalög en ella
STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands hefur nýlega ákveöið að ger-
ast aðili að samtökum, sem stúdentasamböndin á Norður-
löndum hafa myndað með sér. Samtök þessi nefnast Scandinavian
Student Travei Service (S.S.T.S.) eða Ferðaþjónusta stúdcnta á
Norðurlöndum.
Samtök þessi sem hafa starfað
í nokkur ár eru þegar orðin mjög
öflug og hafa skrifstofur í flest-
um löndum Evrópu svo og í
Bandaríkjunum. Þess má m.a.
geta, að í höfuðstöðvum samtak-
anna, sem eru í Kaupmannahöfn
starfa á sumrin um hundrað
manns.
Með ágætu samstarfi við ýmsa
aðila hefur samtökum þessum
tekizt að skipuleggja ferðir fyrir
stúdenta um alla Evrópu og víðar
um heim. Ferðir þessar eru mun
ódýrari en alment gerist, enda er
það eitt markmið samtakanna að
gera skólafólki kleift að ferðast
á sem ódýrastan hátt. T. d. má
geta þess, að venjuleg fluggjöld
með flugvélum milli Kaupmanna-
hafnar og Parísar eru 403,00 kr.
með flugvélum milli Kaupmanna-
ar og London 437,00 kr. danskar,
en þeir sem ferðast á vegum S. S.
T. S. þurfa aðeins að greiða 190.00
kr. danskar sömu leiðir.
Svipuð kjör veitir S.S.T.S. á
öðrum flugleiðum.
Auk þess skipuleggur S.S.T.S.
hópferðir og ferðir einstaklinga
um alla Evrópu (einnig Austur-
Evrópu).
Stúdentaráð Háskóla Islands
hefur nú með stuðningi S.S.T.S.
opnað skrifstofu, þar- sem veittar
verða allar upplýsingar um ferð-
ir og starfsemi S.S.T.S., og mun
verða leitazt við að aðstoða á allan
hátt þá sem hug hafa á að not-
færa sér þau kostalcjör, sem sam-
tök þessi bjóða.
Liggja þar frammi bæklingar,
þar sem ýtarlega er skýrt frá
þeim ferðum, sem fyrirhugaðar
eru í sumar.
Ferðaþjónusta stúdenta hefur
aðsetur í herbergi Stúdentaráðs,
Háskólanum og er opin á þriðju-
dögum, miðvikudögum, fimmtu-
dögum, föstudögum kl. 5—7 e.h.
Sími skrifstofunnar er 5959. Krist
mann Eiríksson stud. jur. veitir
henni forstöðu.
Ferðaþjónustu þessarar geta
notið háskólastúdentar og kandi-
datar innan 35 ára, og auk þess
nemendur í Menntaskólanum,
Kennaraskólanum og Verzlunar-
skólanum eldri en 17 ára.
Ástæða er til að hvetja skóla-
fólk til að notfæra sér þau kosta-
kjör, sem Ferðaþjónusta stúdenta
býður.
Gyðmundur á Hvítárhakka lézt á laugardayinn
BORGARNESI, 27. maí. — Á
laugardagskvöldið andaðist hér í
Borgarnesi einn mesti bænda-
höfðingi Borgfirðinga og helzti
atkvæðamaður þeirra í félagsmál
um byggðarlagsins, Guðmundur
Jónsson á Hvítárbakka, aðeins 67
ára að aldri.
Á laugardaginn hófst hér aðal-
fundur Búnaðarsambands Borg-
arfjarðar, en íormaður þess var
Guðmundur heitinn. Um klukkan
10 um kvöldið, er fundurinn
stóð enn yfir, leið Guðmundur
skyndilega út af í sæti sínu og
var hann meðvitundarlaus. Hafði
hann átt vanda til þessa. Jón
bóndi, sonur hans, var með hon-
um á fundinum. Eftir nokkra
stund hafði Guðmundur jafnað
sig og komst til fullrar rænu. —
Sagði harin við fundarmenn:
— Haldið þið bara fundinum á-
fram. Var Guðmundur siðan
lagður fyrir, í hótelinu, en þar
fór fundurinn fram. Læknar
voru ekki nærstaddir, læknafund
ur var á Akranesi.
En yfirlið Guðmundar var
alvarlegra en í fyrstu virtist, og
að einni klukkustund liðinni var
hann látinn. — Hann mun
um nokkurt skeið eigi hafa geng-
ið heill til skógar, hjartað farið
að gefa sig, þó hann léti ekki á
því bera í daglegum störfum fyr-
ir sveit sína, sem voru mörg og
margháttuð.
Guðmundur á Hvítárbakka
lætur eftir sig konu, frú Ragn-
heiði Magnúsdóttur frá Gils-
bakka og tvo syni, Jón, er bjó
með föður sínum á hinni miklu
bújörð, og Magnús, sem er verzl-
unarmaður í Reykjavík.
Ríkisstjórnin er að
stöðva íslenzkan iðnað
Yfirlýsing frá Gubjóni Sigur&ssyni,
formanni Iðju
VEGNA ummæla hæstv. forsætisráðherra, Hermanns Jón-
assonar, og Hannibals, ráðherra Alþýðubandalagsins, í
útvarpsumræðunum um fjárlagafrumvarpið i gærkvöldi
um að iðnrekendur „hafi boðið kauphækkun“ til Iðju, vil
ég taka fram eftirfarandi:
Hæstv. forsætisráðherra fer þar með vísvitandi ósannindi
og hæstv. félagsmálaráðherra endurtók þau, því stjórn Iðju
fór fram á lagfæringu á kaup- og kjarasamningi Iðju og
F.Í.I., og náðist loks samkomulag eftir nær þriggja vikna
fundi samninganefnda þessara aðila.
Hefur Iðja þá loks, eftir áralanga óstjórn og misnotkun
kommúnista og Framsóknarmanna á félaginu náð jafnfætis
öðrum verkalýðsfélögum í kjaramálum. Og þess má geta,
í þessu sambandi, að efalaust hefðu iðnrekendur gengið
lengra til móts við kjarabótakröfur iðnverkafólks, ef nú-
verandi ríkistjórn gerði iðnaðinum ekki jafnerfitt fyrir og
raun ber vitni, því beinlínis fyrir efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnar Hermanns Jónassonar fara nú fram stórfelldar upp-
sagnir í verksmiðjum og mörgum verksmiðjum er sumpart
búið eða er verið að loka. — Hráefni hafa stórhækkað á
erlendum mörkuðum eins og ýmsar aðrar nauðsynjavörur
og með því að gefa ekki iðnaðinum tækifæri til að mæta
þessum erlendu hækkunum, er ríkisstjórnin að stöðva
íslenzkan iðnað.
form. Iðju, félags verksmiðjufólks, Rvík.
GUÐJÓN SIGURÐSSON,