Morgunblaðið - 28.05.1957, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.05.1957, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 28. maí 1957 MORCVTSBLAÐIÐ 13 Stjórnin hefur # öllum meginatriB- um brugðizt fyrirheitum ssnum Lengsta og ómerkasta þing í sögu íslands Úfvarpsræba Ólafs Thors, formanns Sjálfsfæbisflokksins i gærkvöldi HÉR FER á eftir útvarpsræða Ólafs Thors, formanns Sjálf- stæðisf lokksins: Við þessar umræður er stjórn- arliðum ætlaður þrefaldur tími á við okkur Sjálfstæðismenn. En því meiri er þörfin á að menn festi sér orð okkar í minni og veiti því athygli, hvort stjórnar- liðar svara með rökum eða að- eins út í hött. SVIKIN KOSNINGA- ÉOFORÐ Rétt fyrir áramótin fluttu Sjálfstæðismenn þingsályktunar- tillögu, þar sem skorað var á ríkisstjórnina að rjúfa þing í því skyni að þjóðinni gæfist kostur á því að sýna hug sinn til vald- hafanna. Rök Sjálfstæðismanna fyrir þessari kröfu voru þau, að þá þegar hefði ríkisstjórnin van- efnt þau fyrirheit, er hún gaf kjósendum fyrir kosningarnar í júnímánuði síðastliðnum í slík- um höfuðefnum, að menn spyrðu þá ekki lengur um, hvað stjórn- in ætti eftir að efna, heldur hvað hún ætti eftir að svíkja af kosn- ingaloforðunum. Vitna ég um þetta til málflutnings Sjálfstæð- ismanna við útvarpsumræðurnar, sem fram fóru um nefnda þings- ályktunartillögu í febrúarmán- uði síðastliðnum. Rétt þykir þó aðeins að minna á, að eins og kommúnistar kyngdu öllum stóryrðunum um stjórnarskrárbrot og þingmanna- rán Alþýðu- og Framsóknar- flokksins, þannig sviku líka þess- ii flokkar alla eiða um, að þeir myndu aldrei vinna með komm- únistum. Allir þessir menn mátu meira ráðherrastólana og völd- in en orð sín og eiða. Þykir mér ekki ólíklegt að svikin, sem fram- in voru með samstarfinu við kommúnista,, eigi a. m. k. sinn þátt í því, að einn hinn fremsti stjórnarliða, hefir nú sagt af sér formennsku Alþýðuflokksins og þingmennsku. DVÖL. VARNARLEÐSINS Alveg sama máli gegnir um dvöl varnarliðs Bandaríkjanna á Islandi. Fyrir kosningar hétu þessir menn að senda varnarliðið tafarlaust úr landi og ákváðu með því að svíkja samninga ís- lands við vestrænar þjóðir, gera ísland að varnarlausri bráð hugs- anlegs árásaraðila, og veikja þannig varnir frjálsra og frelsis- unnandi þjóða. Síðastl. haust var strikað yfir öll þessi stóru orð. Ber að vísu að fagna því, en at- ferlið er engu að síður svik við þá, sem kosið höfðu stjórnarliða ýmist vegna móðursýki eða bein- línis af þjónkun við þau öfl, sem vilja að ísland sé óvarið. Sú Bfsökun stjórnarliða gagnvart þeim, sem þeir hafa svikið, að friðarhorfur séu nú mikið óvæn- legri en áður, er auðvitað hrein tyllirök. Hvorttveggja er, að fyrr sem nú og nú sem fyrr logar ófriðareldurinn alls staðar undir, þótt enginn viti og sízt við, hvort, hvar eða hvenær bálið brýzt út, sem og hitt, að sumir stjórnar- liðar sækja því fastar, að ísland sé óvarið sem þeir telja ófriðar- eldinn færast nær okkur. Lýsa orð Einars Olgeirssonar við um- ræður í Neðri deild sl. haust um áframhaldandi dvöl varnarliðsins hér á landi vel hugarfari og innstu þrá þessara manna. Hann sagði efnislega þetta: Það er hætta að hafa varnarliðið hér á landi á friðartímum, en það er lífshætta, ef til ófriðar dregur. Svik stjórnarinnar gagnvart þeim, sem vilja, að ísland sé varnarlaus bráð, eru efnislega fagnaðarefni, þótt svik séu auð- vitað alltaf vítaverð. „VARANLEG <JRRÆÐI“ Miklu verra er, að hin gullnu loforð varðandi efnahagsmálin hafa líka reynzt innantómt hjal og helber brigðmælgi. Kemst ég ekki hjá að minna enn á, að undir forystu hæstv. forsætisráðherra, Hermanns Jón- assonar, rauf Framsóknarflokk- urinn samstarfið við Sjálfstæðis- flokkinn og færði fram sem rök, að nú dygðu ekki framar nein vettlingatök. Á síðustu árum hefði eingögu verið beitt bráðabirgða- úrræðum, sem leiddu til beinnar glötunar, ef ekki yrði nú þegar snöggt við brugðið, snúið við af braut tortímingar og efnahags- vandinn leystur með varanlegum úrræðum eftir nýjum leiðum. Eru um þetta ótal skjalfest um- mæli, skýr og ótvíræð, en öllum svo kunn, að óþarft er að rekja þau. Stjórnin tók að því leyti rétt- um afleiðingum þessara kosninga loforða, að forsætisráðherrann kvaddi hingað erlenda sérfræð- inga, sem hann sagði óyggjandi. Skyldu þeir taka út þjóðarbúið, svo sem ráðherrann kvað að, því íslendingar yrðu nú að velja eða hafna, en slíkt mætti enginn krefjast, að þjóðin gerði í blindni. Hún ætti réttmæta kröfu á að fá vitneskju um sannleikann, — sannleikann einan og allan, og þá vitneskju skyldi hún nú loks fá, og það tafarlaust. ÚTTEKTINNI LOKIÐ Nú leið og þjóðin beið. Hinn 7. okt. sl. komu fyrstu gleði- fréttirnar. Forsætisráðherrann tilkynnti, að hinir óyggjandi sér- fræðingar hefðu lokið úttektinni. Ennþá væri að vísu ekki alveg tímabært að sýna þjóðinni fram- an í sannleikann allan, en svo mikið kvaðst hann þó geta sagt þá þegar, að sérfræðingarnir hefðu staðfest dóm hans og ugg allan um nauðsyn varanlegrar úrlausnar eftir nýjum leiðum, því ella gengi þjóðin fram af glötun- arbarminum. Við þessi geigvæn- legu og alvöruþrungnu aðvörun- arorð bætti forsætisráðherra — öllum þeim fjölda, sem nokkurt mark taka á honum, til mikillar gleði —• þeim boðskap, að eftir nýju leiðunum og með varan- legu úrræðunum væri auðvelt að ná fyrirheitna landinu. Enginn skyldi missa spón úr aski sínum. Einskis lífskjör þyrfti að skerða. Sjálfur myndi hann stýra förinni og opna hlið hins nýja sæluríkis. Einnig þetta man þjóðin, Svo óþarft er að rekja það frekar. ÁTTA MÁNUÐIR LIÐNIR Síðan þetta skeði eri nú liðnir nær 8 mánuðir. En ennþá hefir þjóðin ekki fengið að skyggnast inn fyrir hlið sæluríkisins. Ennþá fá menn ekkert að heyra um hin nýju varanlegu úrræði hinna ó- yggjandi sérfræðinga, þrátt fyrir mikla og ítrekaða eftirgangs- muni okkar Sjálfstæðismanna. Og ennþá virðist foringinn ekki reiðubúinn að hefja gönguna til fyrirheitna landsins. En því betur hefur þjóðin feng- ið að kynnast muninum á orðum og efndum. Stjórnarliðar, sem fastast fordæmdu fyrri úrlausnir, Ólafur Thors hafa nú pískað þjóðina með hnútasvipum miklu lengra inn á þessa „glötunarbraut", sem þeir svo nefndu, en nokkur dæmi eru til í sögu hennar. I stað þess að leysa efnahagsvandann án fórna, eins og lofað var, var þjóðin kag- hýdd með 400 milljón króna nýj- um sköttum og lífskjör alls al- mennings skert meira en nokkur dæmi eru til um að gert hafi verið af mannavöldum hérlendis. Þannig hafa jafnt fyrirheitin sem og forystan brugðizt. BVAÐ SÖGÐU SÉRFRÆÐINGARNIR Nú spyrja menn og krefjast svars: Hvað var það, sem sérfræðing- arnir sögðu? Hér duga engin undanbrögð, og sízt þau að segja, að þeir hafi engar beinar tillög- ur gert. Hvað fólst í umsögn þeirra? Á hverju byggði forsætisráð- herra orð sín 7. október, er hann sagði, að sérfræðingarnir hefðu í meginefnum staðfest þann boð- skap hans og annarra stjórnar- liða, að án nýrra leiða blasti glötunin við? Þessu verður forsætisráðherra að svara, vilji hann njóta nokk- urs manns trausts. Ef sérfræðingarnir dæmdu ,fyrri úrræðin, sem forsætisráð- herra fordæmdi og klauf stjórn- arsamstarfið út af, en beitti þó sjálfur um síðustu áramót, far- sælust, bar forsætisráðherra auð- vitað að skýra frá því, biðja af- sölcunar og beiðast lausnar. GETUR EKKI KEYPT SÉR AFLÁT En ef sérfræðingarnir töldu þær leiðir lokaðar, og önnur var- anlegri úrræði óumflýjanleg, hvernig í ósköpunum getur þá sá maður, sem rýfur stjórn í því skyni að breyta um stefnu, geng- ur síðan til kosninga með það loforð sem kjarna síns máls, vænzt trausts nokkurs manns eftir að hafa svikið eiða sína alla, sannfæringu sína, ráðleggingar sérfræðinga og þörf þjóðarinnar, — þetta eitt og allt? Heldur hann, að hann geti keypt sér af- lát með kjarkleysinu einu — með því einu að segja: Ég vildi, en kommúnistar vildu ekki? Eða getur hann kannske vænzt þess að leyna vanmætti sínum með því að segja: Sjálfstæðisflokkur- inn hefur ekki bent á nein -ný úrræði; af hverju skyldi ég þá gera það? Heldur hann að kjós- endur hafi gleymt því, að það var hann, en ekki við, sem bauðst til að leiða þjóðina til farsældar eftir nýjum leiðum, án þess að skerða lífskjör nokkurs manns, svo vanhugsuð sem slík fyrirheit eru? Nei, hér er allt á eina bók lært. Mikil loforð. — Mikil brigðmæli. Verst er þó kannske að vissu leyti hvernig stjórn, sem kallar sig „stjórn hinna vinnandi stétta“ hlunnfer verkalýðinn og laun- þega alla, dyggilega studd í starfi af þeim kommúnistum, sem enn hafa völd í sumum verkalýðsfé- lögunum. ÓSÆMILEGT ATHÆFI Að sjálfsögðu standa enn í gildi forn og ný ummæli okkar Sjálf- stæðismanna um, að kauphækk- anir séu ekki kjarabætur, heldur krónulækkun, meðan hallarekst- ur er almennur, enda þótt komm- únistar og Alþýðuflokksmenn mótmæltu kenningum okkar allt þar til þeir settust að völdum. En það afsakar ekki ósæmilegt athæfi alls stjórnarliðsins gagn- vart launþegum landsins. Blöð stjórnarliðsins hamra stöðugt á því, að kaupmáttur launanna sé óbreyttur. Forsætisráðherrann sagði, að ekki þyrfti að skerða kjör nokkurs manns. Við síðustu útvarpsumræður staðhæfðu flest- ii ráðherranna þetta. Sumir gáfu jafnvel í skyn, að verðlagið myndi lækka. Þessir menn vildu víst nú fegnir kjósa sér að þeir hefðu þá haft vit á að tala var- lega. En enn eru þeir þó svo óskammfeilnir að þverskallast gegn sannleikanum. Lítið á vísi- töluna, segja þeir. Og ætla með því að þvo hendur sínar. Vísital- an hefur hækkað. Það er auð- vitað óæskilegt. En frá einhliða sjónarmiði launþegans er það þó sök sér. Fyrir það fær hann bæt- ur. Svikin liggja í því, að það eru eingöngu vísitöluvörurnar, sem ekki eru lótnar hækka í verði. ALLT ANNAÐ HÆKKAR í VERÐI Allt annað — og það eru tveir þriðju hlutar alls þess, sem til landsins flyzt — stórhækkar í verði vegna þess að stjórnin hef- ir lagt á þær vörur 300 millj. kr. nýja skatta. Auðvitað notar allur almenningur meginhlutann af þessum vörum og auðvitað er það þess vegna allur almenning- ur, sem greiðir stjórninni þessar 300 millj. kr. nýju skatta í hækk- uðu verðlagi. Það er af þessum ástæðum, sem húsmóðirin finnur, að kaup bónda hennar endist orðið miklu ver en fyrr. Hér eru rætur þeirra örðugleika, sem nú eru að gera vart við sig og fara munu versnandi, jafnvel þótt tak ast mætti að afstýra því atvinnu- leysi, sem farið er að segja til sín. En fólkið hefir fengið kaup- bæti, eða finnst mönnum það ekki? Það hefir eignazt yfir sig „stjórn hinna vinnandi stétta", sem heldur niðri vísitölunni. Kannske finnst sumum það nóg. Aðrir munu telja sig fá steina fyrir brauð og blekkingar í ofan- álag. SKATTÞEGNARNIR FÁ EKKERT AÐ VITA Ég viðurkenni hiklaust, að eitt hvað varð að gera til að forðs því þjóðarböli, að útgerðin stöðv aðist. Og úr því stjó’rnin þver- braut loforðin um ný varanleg úrræði, varð ekki hjá skötturr komizt. Áður sætti ég árásuir fyrir að draga taum útvegsmann: Frh. á bls. 14. STAKSTEINAR 4uðmannasvnir“ Alþýðublaðið kemst svo að orði s.I. sunnudag. „Það er nú komið á daginn, að auðmannssynirnir í Heimdalli eru á móti skyldusparnaði ungmenna. Þeir telja sig ékki þurfa að spara fé til húsbygginga, piltarnir þeir. Ekki eru menu hissa á því, þeir telja sig sjálf- sagt hafa önnur ráð en leggja ögn til hliðar af vinnulaunum sinum hvern dag.“ Ileimdallur er fjölmennasta stjórnmálafélag ungra manna á íslandi. Hinn mikli fjöldi Heim- dellinga er í samræmi við kjós- endafjölda Sjálfstæðisflokksins. Við . síðustu Alþingiskosningar fékk Sjálfstæðisflokkurinn einn meira en 35 þúsund atkvæði, þar sem samanlagður kjósenda- fjöldi Alþýðuflokksins og Fram- sóknar nam ekki meira en lið- lega 28 þúsundum. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru því miður ekki allir auðmenn fremur en kjósendur Alþýðu- flokks og Framsóknar eru sem betur fer ekki allir fátæklingar. Fátækir og ríkir menn eru í öllum flokkum og bræður Benedikts Gröndals verða t. d. ekki „auð- mannssynir" við það eitt að vera bróður sínum ósammála. ^narifjársöfnun ungs fólks“ Síðar í sömu grein segir Al- þýðublaðið: „Á sama tíma og Sjálfstæðis- hetjurnar eru að blása sig út á móti sparifjársöfnun ungs fólks, ætla þeir alveg að rifna út. af sparifjárleysinu í innlánsstofnun- um landsins. Það er ekki að spyrja að samræminu í mátfiutn- ingi hjá þeim kempum! Það hef- ur aldrei á marga fiska verið“. Auðvitað eru Sjálfstæðismenn ekki á móti „sparifjársöfnun ungs fólks“. Þvert á móti hafa Sjálfstæðismenn stöðugt haft for ustu um að hvetja menn til sparnaðar. Almenningur hefur og sýnt í framkvæmd, að hann hefur sparað mest, þegar áhrif Sjálfstæðisflokksins hafa verið ríkust í landsmálum. í þcssum efnum trúa Sjálfstæðismenn meira á frelsið en þvingunina. Þvingun er ætíð neyðarúrræði og er það harður dómur yfir núver- andi stjórn, ef hún hefur þegar skapað slíkt neyðarástand, að þvingun í þessum efnum sé óhjákvæmileg. Heimdellings* framkoma“ En fleirum en Alþýðublað- inu stendur ógn af Heirn- dellingum. í Sunnudagsblaði Þjóðviljans segir að eftir ræðu Hannibals Valdemarssonar um bankamálin hafi, þar sem Jóhann Hafstein var, staðið eftir: „Heimdcllingurinn, sem í mátt lausri heift hafði skifti á Heim- dellingsframkomu og þingsköp- unum“. í hverju lýsti sér svo hin ótta- lega Heimdellingsframkoma? — Frásögn Þjóðviljans er þessi: Hannibal hafði í tilefni lánveit- inga til ýmissa aðila sagt: „Væri rétt að fá samanburð- artölur um þau atriði. Þá var það að Jóhann reiddist og fann að hann var orðinn svo aðþrengdur að aðeins eitt svar var frambærilegt. Kvaðst hann •'ilja að slík athugun færi fram :>g samanburður gerður“. Þessi er frásögn Þjóðviljans af Heimdellingsframkomunni. Já, sér er það nú hver „heift- n“ og „reiðin“ að samþykkja það amyrðalaust, að sá tölulegur sam mburður sé gerður, sem Sjálf- jtæðismenn stöðugt hafa óskað eftir!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.