Morgunblaðið - 28.05.1957, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.05.1957, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 28. maí 1957 MORGVTSBLAÐIÐ f Nokkrir ieikarar í skrúðgöngunni á sunnudaginn. Skemmtileg iþrótta- revya í vonsku veðri iÞRÓTTAREVÝA blaðamanna og leikara fór fram á íþróttavellin- um á laugardaginn samkvæmt gerðri áætlun og urðu þar ekki. neinar tafir eða breytingar á aðr- ar en þær að sleppa varð gaman- vísnasöng, þar eð leikkonan er ayngja skyldi hafði veikzt á laug- ardaginn. Það mun hafa verið hin almenna skoðun hins mikla mannfjölda, sem saman var kominn á Iþróttavellinum til þess að horfa á íþróttarevýuna, að hún hafi heppnast ágætlega, en sunn- anstrekkingur og rigningaskúrir var, og. í slíku veðri er heldur óskemmtilegt að vera á íþrótta- Vellinum. Stjórnendur þessarar revýu lögðu á það áherzlu með góðum árangri að gestir þurftu aldrei að bíða eftir neinu skemmtiatriði, þar rak hvert annað og fór allt fram eftir gerðri áætlun. Af einstökum mönnum, sem þátt tóku í þessari miklu hátíð og einkum vöktu hlátur og gleði meðal áhorfenda voru Frænka Charles, en allir þátttakendur gengu í leikbúningum ýmsum frá Þjóðleikhúsinu og suður á íþrótta völl og voru þá leikarar í ýms- um þeim gerfum, sem þeir hafa komið fram í á leiksviði. Frænka Charles sýndi sig í að vera liðtæk er hún gekk með sig- ur af hólmi í lyftingum og eins í boðhlaupskeppninni. — Einnig sveitamaður einn, sem kom á hesti inn á leikvöllinn er knattspyrnu- keppnin stóð sem hæst, og tók að Þorsteinn Ö., með „höfuðregn- hlífina“, og Vignir blaðamaður eigast við. bjóða keppendum £ nefið og brenni vínstár. Þorsteinn Ö. Stephensen, sem var meðal fótboltamanna, hafði allra manna beztan höfuð- búnað, höfuðregnhlíf sem kom sér vel er skúr gerði í miðjum leik. Þá þótti lýsing Hauks Óskars- sonar á kappleiknum fjörleg og voru menn á einu máli um að hann ætti að taka sér að lýsa fótbolta- leikum, almenn„ fyrir útvarpið. Lauk íþróttarevýunni með loka- söng, en áhorfendur.tóku undir og að síðustu hrópuðu leikarar og blaðamenn, er þátt höfðu tekið í hátíðinni, ferfallt dynjandi húrra fyrir áhorfendum. Haraldur Guðmundsson kominn til Ösló STÓRBLAÐIÐ Aftenposten í Osló birti þessa mynd á laugar- daginn af hinum nýja ambassador íslands í Noregi, en hann kom til Osló á föstudaginn ásamt fjöl- skyldu sinni með skipinu Kron- prins Olav, frá Kaupmannahöfn. Blaðið getur þess að koman til Osló hafi verið sérlega ánægju- leg fyrir hinn nýja ambassador þar eð hið fegursta veður hafi verið þar. Þorleifur Thorlacius og frú, ásamt aðalræðismanni ís- lands í Osló, Ivar Giæver-Krogh tóku á móti fjölskyldunni. Haraldur Guðmundsson sagði við fréttaritara Aftenposten, að sér væri ekki kunnugt um nein stórkostleg vandamál í sambúð íslendinga og Norðmanna, sem hann þyrfti að vinna við lausn á. Hann lýsti ánægju sinni yfir því að vera kominn til Noregs. Blaðið getur þess í sambandi við afskipti Haraldar Guðmunds- sonar af stjórnmálum á íslandi, að hann hafi tekið ákveðna af- stöðu gegn kommúnistum og hafi alla tíð verið í hægri fylkingar- armi Alþýðuflokksins. Haraldur Guðmuudssou og fjöldskylda haus við komuua til Osló. Stjórnarsinnar neita að bankafrumvarpinu til vísa Lands- nefndar Þr'ir Jbingmanna Jbeirra greiddu atkvæði móti tillögu Hermarms í GÆR voru bankamálin til umræðu í Efri deild Alþingis. Gerði Jón Kjartansson það að tillögu sinni við lok fyrstu umræðu að framvarpinu um Landsbankann yrði vísað til fjárhagsnefndar svo sem þing- leg venja er. Hermann Jónas- son hafði í framsöguræðu sinni með frumvarpinu lagt til að því yrði ekki vísað til nefndar heldur afgreitt sam- stundis. Fór fram atkvæða- greiðsla um tillögu Jóns Kjart anssonar og klofnuðu stjórn- arsinnar um máhð. Greiddu þeir Bernharð Stef- ánsson, forseti deildarinnar, Al- freð Gíslason og Páll Zóphanías- son atkvæði með því að þinglegri venju yrði fylgt og málinu vísað til fjárhagsnefndar. Þó fór svo að tillagan féll á jöfnum atkvæðum 7:7, en þrír voru fjarstaddir. Hér er um einstakan atburð að ræða og sýnir það hve mjög stjórn- inni er í mun að fá bankafrum- vörp sín samþykkt, að hún svífst þess ekki að brjóta út af þeirri venju um meðferð mála á Al- þingi sem gilt hefir þar. Hingað til hefir það verið venja, sagði Jón Kjartansson í ræðum sínum um málið að nefndir fái þau frum vörp, sem fyrir Alþingi liggja til athugunar og réttilegrar af- greiðslu. En í þetta sinn er málið hespað af án þess að þessari föstu reglu sé fylgt og málið fær ekki formlega meðferð. Mikla athygli vakti á fundi deildarinnar, að þrír þingmanna stjórnarflokkanna sem áður eru taldir, töldu sig ekki geta greitt beiðni Hermanns Jónassonar at- kvæði og brotið með því þær starfsvenjur sem á þingi hafa gilt. Alfreð Gíslason gerði grein fyr ir atkvæði sínu, en nafnakall var haft um tillöguna. Kvað hann beiðni hafa fram komið um það að vísa málinu til nefndar, og teldi hann rétt að verða við þeirri ósk. Hermann Jóiiasson tók aftur til máls og sagði, að hann hefði farið fram á það við formenn beggja fjárhagsnefnda, að þeir rannsökuðu í sameiningu frum- varpið á fundum sínum. Því sæi hann enga ástæðu til þess að vísa málinu *iú til fjárhagsnefndar Efri deildar, þar sem hún hefði í raun og veru áður haft tækifæri til þess að athuga málið. Gunnar Thoroddsen kvaðst furða sig mjög á þeim vinnu- brögðum Hermanns Jónassonar, að neita að vísa málinu til nefnd- ar. Kvað hann hér um mjög mik- ilsverð frumvörp að ræða og varðaði annað stjórn sjálfs þjóð- bankans. Kvað hann með fádæm- um að ætla að reyna að knýja málið í gegnum deildina, án þess að vísa því til nefndar. Sigurður Ólafsson upplýsti að" fjárhagsnefnd Efri deildar hefði setið á þremur fundum með fjár- hagsnefnd Neðri deildar um mál- ið, þegar það var til umræðu í Neðri deild. En ljóst var, að þar var ekki um neina fullnaðarat- hugun að ræða. Var frumvarpið aðeins lesið yfir og nokkrar at- hugasemdir gerðar, enda athug- aði fjárhagsnefnd Neðri deildar frumvarpið miklu ýtarlegar á öðrum fundum. Á því stigi hefði fjárhagsnefnd Efri deildar líka verið útilokuð frá því að gera nokltrar breytingartillögur um málið, og ætti hún því eftir að ræða það miklu nánar. Fór at- kvæðagreiðslan síðan fram um að vísa Landsbankafrumvarpinu til fj árhagsnefndar, og urðu úr- slit hennar þau sem fyrr segir, að tillagan var felld á jöfnum at- kvæðum, enda þótt stjórnar- sinnarnir þrír gengju á móti stjórninni við atkvæðagreiðsl- una. Síðan fór fram atkvæða- greiðsla um Útvegsbankafrum- varpið og var fellt með 8: 5 að vísa því til fjárhagsnefndar. — Frumvörpin eru til annarrar um- ræðu á fundi deildarinnar í dag. Kleppur 50 ára IGÆRDAG voru liðin 50 ár frá því að geðveikrahælið að Kleppi — elzti spítali ríkisins — tók til starfa undir stjórn Þórð- ar Sveinssonar, sem fyrstur ís- lenzkra lækna gerði geðsjúk- dóma að sérgrein sinni. Sjúk- lmgur sá er fyrstur var skráður á sjúklingaskrá spítalans, var þar samfleytt í kringum 48 ár, og þar eru enn nokkrir sjúk- lingar er verið hafa þar í ára- tugi. Gamli spítalinn að Kleppi var upphaflega ætlaður fyrir um 70 sjúklinga. Árið 1929 var Kleppssspítalinn stækkaður með mikilli viðbótarbyggingu, Nýja spítalanum. V Efri myndin er tekin af Kleppsspítalanum eins og hann er í dag og er myndin tekin í holtinu fyrir ofan spítalann. Þessa mynd tók Ragnar Vignir. — Neðri myndin er af Kleppsspítalanum árið 1908, ári eftir að hann tók til starfa. Myndin er einnig tekin ofan af holtinu fyrir ofan spítalann, en nokkuð frá þeim stað sem efri myndin er tekin. Adenauer onnum kafinn Fram til ársins 1940 voru þeir yfirlæknar þar dr. Helgi Tómas- son og próf. Þórður Sveinsson er þá lét af störfum fyrir aldurs sakir. Þá var dr. Helgi Tómas- son gerður að yfirlækni og spít- alarnir sameinaðir og þá sú skip- an gerð að hafa þar til starfa með dr. Helga aðstoðarlækna og er Þórður Möller nú fyrsti að- stoðarlæknir, en Skúli Helgason annar. Nú eru á Kleppi alls nær 300 sjúklingar. WASHINGTON, 27. mai. — Adenauer ræddi um helginá við Eisenhower forseta að sveitasetri hans í Gettysburg. í morgun komu þeir til Was- hington og héldu viðræðunum áfram þar. Einnig tóku þátt í viðræðunum utanríkisráðherr- arnir Dulles og von Brentano, auk sérfræðinga. Aðallega snúast viðræðurn- ar um sameiningu Þýzkalands og afvopnunarmálin og mun Adenauer leggja mikið upp úr því að niðurstaða viðræðn- anna verði slík, að hann og flokkur hans megi hagnast á þeim í kosningunum, sem fara tium í haust.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.