Morgunblaðið - 28.05.1957, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.05.1957, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 28. maí 1957 MORGVNBLAÐIÐ 19 Ekki eru menn einliuga um val íslenzka landsliðsins l/ANDSLIÐSNEFND hefur nú valið lið það er leika á fyrii Is- land í fyrri leikum okkar í und- ankeppni heimsmeistarakeppninn- ar í knattspvrnu. Mjög greinir menn á um það hvernig nefndinni hefur tekizt valið. Meiri vandi var henni á höndum en oft áður, þegar velja hefur þurft landslið, því eft- ir leikum vorsins og sem af er sumri, virðist sem geta ísl. knatt- spyrnumanna sé heldur minni en undanfarin ár, þó illt sé að færa óyggjandi rök fyrir því. ! ! ! Landsliðsnefnd beið eftir „pressuleiknum“ til þess að velja liðið endanlqga, en þó virðist af valinu, að sá leikur hafi litlu máli skipt, enda er meðal landsliðs- manna og varamanna þess menn sem alls ekki léku í þeim leik, en aðrir sem stóðu sig með afbrigð- um vel í „pressuleiknum" virðast ekki koma til greina, jafnvel ekki meðal varamanna. Af hvaða á- Stæðum vitum vér leikmenn ekki, en fróðlegt væri að heyra rök landsliðsnefndar fyrir valinu. ! ! ! "í'msar stöður landsliðsins eru þannig skipaðar að enginn styr stendur um valið. Má þar fyrst telja stöðu markvarðar sem Helgi Daníelsson heldur án þess nokkur ógni honum. Sama er að segja um Kristinn Gunnlaugsson í stöðu bakvarðar. Einnig eru sjálfsagðir menn í liðið Guðjón Finnbogason, Bíkharður Jónsson, Þórður Þórð- arson og Þórður Jónsson ýmist vegna yfirburða sinna eða vegna þess að aðrir betri menn eru ekki til. Þá eru eftir stöður v. bak- varðar, miðframvarðar, h. fram- varðar, h. útherja og vinstri inn- herja. Um tvær fyrstu stöðurnar koma ýmsir til greina s.s. Einar Halldórsson, Halldór Halldórsson, Ólafur Gíslason, Magnús Snæ- björnsson, og enda Kagnar Jóns- son eftir tvo ágæta leiki í stöðunni. Tveir þeirra komast í liðið og enn til vara, og að mínum dómi Stendur Ólafur Gislason ekki þess- um mönnum á sporði, og þó skal engri rýrð varpað á Ieik hans. Gunnar Leósson er valinn vara- maður i vörn, og þó hann sé ágæt- ur og traustur leikmaður er hann enn fjær stöðu í landsliði en Ól- afur. ! ! ! Sveinn stendur vel að vígi til vals í stöðu framvarðar enda er hann reyndur leikmaður og van- ur að vinna með Guðjóni. En eftir „pressuleiknum" að dæma ógnar Einar Sigurðss. honum alvarlega að flestra dómi, en þó er Einar ekki einu sinni valinn varamaður, heldur maður sem aldrei hefur leikið framvarðastöðu í ár!! Að vísu er það Jón Leósson sem er traustur og getur Ieikið víða, en hver eru launin fyrir að sýna góðan leik í einhverri stöðu, ef aðr- ir sem alls ekki leika hana eru teknir fram yfir? Mætti þá segja að slíkt mætti gera um ýmsar aðr- ar stöður í liðinu. ! ! ! Sennilega e± vandfundinn betri maður en Dagbjartur er nú í stöðu hægri útherja, en í stöðu vinstri innherja hefði án hiks átt að taka Albert Guðmundsson í stað Gunn- ars Guðmannssonar. Gunnar hef- ur það fengizt úr leik hans þá, unni í stærri leikum, en aldrei hef- ur það fengist úr leik hans þá, sem hann sýni. í leikum KR. Um fimi hans efast fáir en misdug- legur er han í leikum, og einna síztur þegar erfiðast gengur, en einmitt slíkum leikum má búast við í Frakklandi og Belgíu. ! ! ! Þó liér séu látnar á framfæri skoðanir sem landsliðsnefnd aðhyll ist auðsjáanlega ekki er það ekki gert í illum tilgangi. Svo mikið er um knattspyrnu rætt, svo margir fylgjast með henni og svo margir unna þeirri íþrótt, að gagnrýni er vissulega þörf. Héðan af verður fáu eða engu breytt, enda er allt á síðustu stundu, allt komið í ein- daga og liðrð sem heild ekki valið fyrr en fáum dögum fyrir broltför. Þetta verður að hreytast. Landslið þarfnast samæfingar ekki síður en önnur lið. Ýmislegt við undirhún- ing liðsins hefði mátt fara betur, ekki sízt það að afla hefði mátt meiri fræðslu um mótherjana og um aðstæður allar, ekki sízt þar sem þær upplýsingar voru auð- fengnar, þar sem einn af leikmönn um í fyrstu deild hefur um 10 ára skeið leikið í Frakklandi,, jafnvel í franska landsliðinu. En hann kom ekki til greina, livorki sem aðalmaður eða varamaður, en það er önnur saga! — A. St. Þidttoi Víkingw 3:0 A SUNNUDAGSKVÖLDIÐ fór fram í Reykjavíkurmótinu leikur milli Þróttar og Víkings. Þróttur sigraði með 3:0 og komst þar með upp fyrir Víking í endanlegum úrslitum mótsins. Leikurinn var heldur daufur en sigur Þróttar verðskuldaður. Önnur samsýning Sýningarsalarins á myndlist og listiðnaði. Opin alla daga frá kl. 10—12 og 14—22. SÝNINGARSALURINN, Alþýðuhúsinu. [ý I. '$&k* líifiÉidmi' Opið á hverju kvöldi TJARNARCAFÉ «?/ Þuorro/? rG00D BOCS£KEEPWG !NSnTDTE> c M IMÍ ttnuo « BOttl 0t IttUCMitl Cloznne heflr hlotið sérstölc meðmœli sem gott þvotta- duft I þvottavélar. M/NMQ EKF/D/ Heildsölublrgðir Eggert Kristjánsson & Co hf. Nœlongallar Margeftirspurðu amerísku nælongallarnir komnir. Upphoðið á Lynghaga 13, hér í bænum fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 29. maí 1957, kl. 2 síðdegis. Borgarfógetinn í Reykjavík. Kínverskur barskápur sófaborð og smáborð, allt mjkið útskorið, til sölu. Upplýsingar í síma 7684. LOFTPRESSUR 2ja og 3ja hamra væntanlegar frá A-Þýzkalandi Einkaumboðsmenn á íslandi. tHHKIIimillJOIIIHIII ............. ... jnwiiiBiiMinwmniiiMiMwujLi^ Grjótagötu 7 — Símar: 3573 og 5296. Vandaðar íbúðir til sölu 3ja herbergja íbúð á hæð með 4. herbergi í kjallara í húsi við Laugarnesveg. íbúðin er tilbúin undir tréverk. Lán að upphæð kr. 50.000.00 fylgir á 2. veðrétti. Fyrsti veðréttur er laus. Sanngjarnt verð. Einbýlishús í byggingu. Húsið er kjallari, hæð og rishæð, 7 herbergi, eldhús o. fl. Hægt er að hafa 2ja herbergja íbúð í kjallaranum. Búið er að steypa upp kjallarann og hæðina og slétta lóðina. Glæsileg 5 herbergja hæð við Rauðalæk. Tilbúin undir tréverk. Stærð 137.9 ferm. auk eignarhluta í kjallara. —. Steypt bílskúrsplata fylgir. Lág útborgun. Skemmtileg 5 herbergja risíbúð tilbúift undir tréverk við Bugðulæk. Stærð ca. 115 ferm. auk eignarhluta og geymslu þar. Fasteigna og Verðbréfasalan, (Lárus Jóhannesson, hrl.) Suðurgötu 4. Símar: 3294 og 4314.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.