Morgunblaðið - 09.07.1957, Síða 2

Morgunblaðið - 09.07.1957, Síða 2
2 M6RGVNBL 4Ð1Ð Priðjudasur 9. júii 1957 Sigur Norðmanna 3:0 var verðskuldaður rTM EÐA YFIR 13 þúsund manns komu í hítíðaskapi til hins nýja og glæsilega íþrótta- ^ svæðis Reykjavíkur í Laugardal í gærkvöldi. Allt var hvítt, hreint og fágað, vel unnið verk margra handa. Nær 2000 tylltu sér í góð sæti í stúku vallarins og fyrir framan var fagur grasvöllurinn útbreiddur, baðaður kvöldsólargeislum. Umhverfis allan hringinn á steyptum pöllum voru um 11 þúsund manns, allir sáu hvað fram fór eins og bezt var á kosið. Það er munur að búa í stórhorg, þar sem til er nýtízku íþróttasvæði. En því er ekki að leyna, að eítir því sem á leið leikinn brá nokkrum skugga á ánaegju fólks. Það var ekki út af svæðinu, heldur því, að Norðmenn voru að þjarma heldur betur að íslendingum. Þeir höfðu yfirburði á vellinum og úrslitin, sem talan 3:0 lýsir eru ekki ósanngjöm, þó 0 sé heldur harður dómur yfir íslenzka liðinu, sem nokkrum sinnum skapaði sér ágæt tækifæri. Leikurinn var heldur hægur í heild og rólegur fyrir Guðjón Einarsson, sem dæmdi í stað Skotans, sem komst ekki til landsins í tæka tíð vegna flugskilyrða. Leikurinn í tölum Mörk ............ 3 0 Vítaspyrna ...... 1 0 Skot á mark ..... 7 4 Skot framhjá..... 14 4 Hornspyrnur ..... 4 6 Aukaspyrnur ..... 6 7 Aukasp. v/rangst. 2 B Úthlaup markvarðar 6 7 Misst yfir endam. 4 1 Þegar tekin eru saman mörkin, skotin á mark, skotin fram- hjá, hornspyrnu, og „misst yfir endamörk" sést hve liðin hafa oft verið í sókn. Tala Norðmanna verður 32, þ. e. 32 í sókn misjafnlega nálægt íslenzka markinu, en tala íslenzka liðsins verður 15. Þetta gefur góða mynd af gangi leiksins. — /jbrófíasvæð/ð Norðmenn tóku leikinn i upp- hafi sterkari tökum, og þreifuðu fyrir sér á báðum köntum. Það var áberandi strax hve vel þeir notuðu kantana og þegar 5 min. voru af leik lék Björn Borgen upp hægri kant, komst framhjá Jóni Leóssyni, lék upp að endalinu og með- fram henni, en þá var Jón kominn aftur, setti fyrir hann fótinn og dómarinn dæmdi vítaspyrnu. Úr henn skorar Legernes framvörður (4) ör- ugglega. 1:0 eftir 5 mín, sumir voru ekki mættir til sæta og voru furðu slegnir við slæmar fréttir. Eftir þetta jafnaðist leikurinn og varð barátta um yfirráð á miðjunni. Hvorugt liðið vann sig- ur í þeirri baráttu, en leikur Norðmanna var öruggari, það var meiri samvinna í liði þeirra, stöðuskiptingar og uppbygging betri, þeir voru allir með og léku allir jákvæðan leik. 1 ísl. liðinu var á þessu misbrestur, þó einum eða tveimur tækist að byggja upp sókn, var það þriðji eða fjórði hlekkurinn sem brast og allt fór út í sandinn, fyrr en vonir stóðu til. Það skapaðist um lengri tíma ekki hætta við norska markið. Kjeld Kristiansen og Dybwad áttu báðir góð skot, sem Helgi varð i,síðan Kristiansen skot rétt framhjá, og hættan var við ísl. markið, upphlaup landanna voru stöðvuð af öruggri norskri vörn áður en þau urðu hættuleg utan tvívegis að til kasta markvarðar kom, þar til á 38. mín. að Þórður Þórðarson hleypur upp með knöttinn, upp að endalínu og meðfram henni, vippar að marki svo snögglega að As- björn Hansen var ekki reiðu- búinn, hafði heppnina með sér, knötturinn lenti í höfði hans og hrökk út. Örskömmu síðar eru Norð- menn í sókn, er lýkur með skoti Kjeld Kristiansen — þrumuskot af 15 m færi í hornið. 2:0 í hálf- leik var staða, sem gerði áhorf- Mörkin A 1 EFTIR 5 minútna leik V«JL eru Norðmenn í hættu- legu upphlaupi. Borgen veður upp kantinn og Jón Leós á eftir. Hann bregður Borgen og dómarinn dæmir víta- spyrnu, sem Legernes fram- vörður skoraði örugglega úr. A n 40 mín. eru liðnar af leik. Norðmenn eru í sókn upp hægri kant. Það eT gefið fyrir inn á vítateig til Kjeld Kristiansen, sem fær tíma til að „stilla upp“ og skorar í bláhornið. Borgen tekur hom- spymu frá hægri, er 25 mín. eru af síðari hálfleik. Kristofersen skallar að marki af 10—12 m færi. Dybwad kemnr á milli, skallar knött- iim óverjandi í netið. enda þúsundirnar vonlitlar og vonsviknar að nokkru leyti. Fyrstu min. síðari hálfleiks var meiri hraði í ísl. liðinu en áður en það varði skammt, og um tíma varð svo að vörn íslands mátti hafa sig við að hreinsa frá, og kæra sig kollótta um uppbygg- ingu. En það jafnaðist aftur og nokkrar tilraunir til sóknar náð- ust að norska markinu, en án alls þunga. Á 25. min. fá Norðmenn hornspyrnu á ísiand sem Borg en framkvæmir og síðan fer boltinn af tveimur norskum höfðum (Kristofersen og Dy- wad) í mark íslands. Raunverulegri baráttu með samstilltu liði var lokið í leikn- um. Norðmenn höfðu vegna meiri getu í leiknum tekið völdin að mestu. Þó átti ísland eftir sitt opnasta marktækifæri.. Það kom er Helgi spyrnti út á 37 mín., fram yfir miðju til Þórðar. Hann komst fram hjá Svensen og nú brunuðu þeir móti hvor öðrum Asbjöm Hansen og Þórðuir. Þórður skaut, en Asbjöm snerti knöttinn en hélt ekki. Þórður reyndi að sækja, en Svensen kom aðsvifandi og spyrati frá — það var sárt, því markið var mannlaust. Möguleikarnir voru búnir. Noregur hafið sigrað 3:0. Sigur Noregs í leiknum var verðskuldaður. Leikur þeirra var allur annar og betri en hins ísl. liðs. Framlínan náði virkum samleik og oft hættulegum upp- hlaupum. Skemmtilegastar voru sendingarnar milli miðherjans Per Kristofersen og Björn Borg- en á hægri kanti, en þeir eru báðir kornungir leikmenn. Inn- herjarnir Kjeld Kristiansen og Gunnar Dybwad, sem nú lék sinn 25. landsleik og fær þá afhent Framh. af bls 1 azt hafði. Þetta nýmæli mæltist mjög illa fyrir í Moskvu, segir Deutscher, en það voru þó eink- um Kaganovitsj og Molotov, sem gengu í berhögg við þessar áætl- anir Krúsjeffs. — Þegar mið- stjórnin kom saman til fundar 22. júní s.l. var loftið lævi bíand- ið. Molotov-klíkan hafði tryggt sér stuðning ýmissa málsmetandi manna í Moskvu og hugðist láta til skarar skríða gegn Krúsjeff. Töluðu Molotovsmenn t. d. um svik Krúsjeffs. ZHUKOV I miðstjóminni eru yngri menn en í Æðstaráðinu og þar átti Krúsjeff meíri ítök. Þó var það engan vegmn svo, að miðstjórnarmenn fylktu sér einhuga um stefnu hans. Þegar til úrslita kom, gekk Zhukov hershöfðingi og land- varnaráðherra í lið með Krú- sjeff og það dugði. Ef Zukov hefði ckki komið til skjalanna, er sennilegt, að Krúsjeff og fylgismenn hans hefðu orðið undir í þessari harðvítugu valdabaráttu. frá norska knattspyrnusamband- inu, gullúr að norskum sið, voru mjög uppbyggjandi og má er á leikinn í heild er litið telja Kjeld Kristiansen bezta mann sóknar- línunnar. Vörn liðsins er þó betri helm- ingur þess með Svensen sem brimbrjót en Falck og Bakker hina hörðu vamarmenn er aldrei brugðust. Legernes byggði vel upp, en samt var miðjan veik- ust hjá Norðmönnum, því And- ersen var síztur hinna norsku gesta. Á Hansen í markinu reyndi ákaflega lítið. ISLENZKA LTÐID Vörnin var heilsteyptari hluti þess, einkum áttu Helgi og Krist- inn góðan leik. Vörnin brást þó ekki, en var hart keyrð af Norð- mönnunum og megnaði ekki að standast sókn þeirra. Framverð- irnir áttu stöðugt í baráttu um vallarmiðjuna, unnu hvorki né töpuðu þeirri baráttu. Framlínan var sundurleitust. Einstaka sinn- rnn átti hún góð upphlaup, en vann aldrei saman í heild. Rík- harður var þar með mestan dugn að og mesta uppbyggingu, Albert var sjaldnar með en afgreiddi vel það sem til hans kom og gaf oft góðar sendingar. Skúli Niel- sen, nýliðinn í liðinu, stóð sig mjög sæmilega, og vel af nýliða miðað við framlínuna í heild. Þórður og Halldór voru mistæk- ir og áttu afleitar sendingar á stundum, einkum var Þórður illa standandi á grasinu. ÝMIS BÖND tengja þjóðir sam- an, t. d. bönd erfða og skyldleika. Trúarbrögð, skyld tunga og náin tengsl skapa einnig samræmi í hugsunarhætti og lífsskoðun. Ekki má gleyma böndum efna- hags og viðskipta, sem eru menn- ingarþjöðum, einkum hinum smáu, ómissandi. íslenzka og tékkneska þjóðin er ágætt dæmi þessa. . Tékkneski þjóðarbúskapurinn byggist að miklu leyti á fram- leiðslu iðnvarnings, sumpart úr aðkeyptum efnum, en okkar á Zhukov hafði oft reynt að miðla málum milli hinna and- stæðu klíkna, en að því kom, að hann varð að taka afstöðu með annarri hvorri þeirra. Þegar hann hafði talað fyrir munn Rauða hersins, þorði enginn að hræra legg né lið til andsvara. HERINN SÉR UM ÞAÐ Deutscher heldur áfram: Hin nýskipaða miðstjórn, sem telur 15 meðlimi í stað 11 áður, er alls ekki skipuð skósveinum Krúsjeffs eingöngu. Fylgismenn hans eru sjö eða átta og dugar það ekki til þess, að hann hafi meirihluta-aðstöðu. Stalinistarn- ir svonefndu hafa enn nokkur ítök í miðstjórninni og eru með- al þeirra Shvernik og Suslov. Mikoyan er og hefur verið hlut- laus í þessum átökum. Það mun Bulganin einnig vera nú. Enn mun Zhukov sennilega reyna að miðla málum, hvernig sem það fer. Loks ber greinarhöfundur sam- an aðferðir Stalins og Krúsjeffs, en álítur, að ólíklegt sé, að hinn síðarnefndi geti orðið einvaldur eins og Stalin á sínum tíma. Her- inn muni sjá um það. Frh. af bls. 1. notkun þess og rekstur leik- vangsins. Knattsyprnusamband íslands á sitt 10 ára afmæli á þessu sumri. Af því tilefni skyldi efnt til þriggja landsleika í knattspyrnu milli hinna norrænu frændþjóða, Norðmanna, Dana og Islendinga. Þess var óskað, að reynt yrði að hraða svo framkvæmdum hér, að landsleikimir gætu farið fram á þessum leikvangi. Frjálsíþróttasamband íslands bar fram sams konar ósk varð- andi landskeppni þá, sem nú er nýlokið milli Dana og Islendinga í frjálsum íþróttum hér í Reykja- vík. Það var úr vöndu að ráða. Hér hefur verið unnið og þarf enn að vinna ótrúlega miklu meira verk en menn gera sér almennt grein fyrir. Fagur grassvörður hylur nú öflun fisks fyrir erlendar þjóð- ir, svo sem Tékkóslóvaka, er hvergi búa við sjó. Þegar litið er á landakortið sést að nágrannaþjóðir okkar byggja eyjar og vogskorið land vestur úr meginlandi Evrópu og Asíu. Þær eru fiskveiðaþjóðir eins og við, flestar aflögufærar um fisk og keppa við okkur á heims- mörkuðunum. Landfræðilega séð er því eðli- legt að viðskipti okkar hafa færzt austur á bóginn, og má gera ráð fyrir að þau efnahagsbönd sem hnýtt hafa verið, haldist, nema aðrar utanaðkomandi ástæð ur komi til. Ég minntist á Tékkóslóvakíu eitt þessara tiltölulega nýju viðskiptalanda okkar, ef til vill vegna þess að ég er kunnugastur þessu landi. Eftir síðustu styrj- öld margfölduðust viðskipti land- anna, án efa sökum þeirrar stað- reyndar að þau hæfa hvort öðru Framh. á bls. 15. Evrópumarkað- urinn — Sam- veldislóndin LUNDÚNUM, 7. júlí. — Brezka stjórnin hefir gefið í skyn, að Bretar muni ekki geta gerzt aðil- ar að væntanlegum Evrópumark- aði, ef hann nær til landbúnaðar- afurða Það mundi stórskaða verzl un samveldislandanna. — Mac- millan, forsætisráðherra hefir sagt í ræðu, að ef Bretar verði að gera upp á milli Evrópumarkað- arins og samveldislandanna, verði þeir að eiga samstöðu með hinum síðarhefndu. Pineau, utan- rikisráðherra Frakka, hefir lýst því yfir, að ekki komi annað til mála en Evrópumarkaðurinn nái einnig til landbúnaðarafurða. alla þá feikna framræsluskurði og ræsi, sem gera varð í upphafi til þess að þurrka það flóafen, sem hér var, áður en nokkuð frekar yrði aðhafzt. Laugardalsnefnd gerði tilraun- ir til þess að fá fjárframlög um- fram venju frá bæ og ríki. Bæj- arstjórn Reykjavíkur lét ekki á sér standa, þó að fyrri fjárfram- lög hennar hafi af sumum verið talin eftir. Alþingi féllst ekki á að veita aukaframlag og á þó íþróttasjóður ríkisins vangoldnar fleiri milljónir króna til þessara framkvæmda. Við urðum að synja beiðni Frjálsíþróttasambandsins. Hver mundi ekki hafa viljað sjá þá landskeppni fara hér fram? Hitt er orðið að veruleika: Landsleikimir þrír í knattspyrnu geta nú farið fram hér í kvöld og næsíu kvöld. Naumast hefði það getað orðið nema fyrir einstæða stjórnsemi og atorku Gísla Halldórssonar, byggingarmeistara þessa leik- vangs, en það bíður sins tíma að geta þess nánar, sem og þeirra annarra sem fyrr og síðar og nú síðast hafa lagt nótt við nýtan dag til þess að fá áorkað því, sem nú er unnið. Eins og þessi íþróttaleikvang- ur nú er á hann að uppfylla allar fyllstu kröfur. Hér á að vera gott rúm fyrir 12—13 þúsund áhorf- endur, en með síðari stækkun- um er áætlað rúm fyrir allt að 30 þúsund áhorfendur. Ég vil svo að lokum láta þess getið að hér verður ekki rakin nokkuð löng og líka merk saga þeirra framkvæmda, sem hér hafa átt sér stað. Það bíður vænt- anlegrar vígsluhátíðar á næsta sumri með allsherjar móti íþrótta æsku þessa lands. En mikið verður að aðhafast til þess tíma og verður áreiðan- lega ekki aðgert svo sem til er stofnað, nema hin voldugu sam- tök íþróttaæskunnar beiti áhrif- um sínum réttilega til þess að Alþingi og ríkisstjórn veiti það liðsinni, sem með sanngirni og rökum má til ætlast, en á það hefur skort að mínum dómi bæði fyrr og nú. Um leið og grasið grær hér á leikvanginum bíða sundlauga- byggingarnar og enn er það í fullkominni óvissu, hvar við get- um fengið fé til framkvæmd- anna. Eiga þó Reykvíkingar og margir fleiri landsmenn ógoldna skuld við gömlu sundlaugarnar hér norðanvert íþróttasvæðisins, — að endurbyggja þær í sam- ræmi við breytta staðhætti og fyllstu heilbrigðiskröfur. Að endingu leyfi ég mér að mæla þetta til íþróttamannanna, sem nú og næstu kvöld fylkja liðum til landskeppni: Dani og Norðmenn bjóðum við velkomna hingað til hinnar þre- földu norrænu millilandakeppni. Við þá og íslendingana einnig segjum við öll: Sýnið nú íþrótt ykkar og eigizt við eins og drengir góðir. - KRÚSJEFF A. St. E fnahagsbönd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.