Morgunblaðið - 09.07.1957, Page 16

Morgunblaðið - 09.07.1957, Page 16
2-24-80 2-24-80 150 tbl. — Þriðjudagur 9. júlí 1957 Stórbruni í Reykjavík á sunnudagsmorgun Rishæð stórhýsis að Laugavegi 166 liggur í rustum og miklar vórubirgðir brunnu til ósku Snemma á sunnudagsmorgun brauzt út eldur í stór- hýsinu Laugavegi 166, en þar er til húsa trésmiðjan og húsgagnaverzlunin Víðir. Kunnugir menn telja, að bruni þessi hafi verið, hvað við kemur tjóni á verðmætum, einhver hinn mesti, sem orðið hefur í Reykjavík, ef ekki sá mesti. Má lauslega áætla tjónið eitthvað á milli 3 og 5 milljónir króna. Þegar eldurinn náði hámarki, stóðu snarkandi eldsúlur hátt í loft upp frá allri þekju hússins og þar upp af koldimmur reykjarmökkur, er sást víða að, svo að mikill fjöldi áhorfenda safnaðist kringum brunastaðinn. Má geta þess, að reykurinn sást glöggt ofan af Akranesi. Um það er lauk var öll rishæð hússins, sem er mjög stór að flatarmáli, fallin. Var allt í risinu, munir og vörubirgðir brunnið til ösku. Neðri hæðir voru skemmd- ar af vatni, en slökkviliðið hindraði, að eldurinn breidd- ist út til birgðaskemmu Mjólkurfélagsins, sem er næsta hús fyrir vestan, áfast trésmiðjunni. smiðjunnar Víðis, Guðmundsson, var fjarverandi úr bænum þegar þetta gerðist. Hafði hann brugðið sér aústur yfir fjall og gist á býli einu austur í sveit- um. Honum barst fréttin um þessa atburði með hraðsímtali um kl. 11 og var hann kominn til bæjarins eftir hádegi. Þegar Morgunblaðið talaði við hann í gær, kvaðst hann ekki geta met- ið tjónið, starfsemin hefði stöðv- azt um sinn, en hann kvaðst gera sér vonir um að vélar óg munir á neðri hæðum hússins hefðu ekki skemmzt mjög mikið og þakkaði hann það framgöngu björgunarmanna, sem unnu þar á neðri hæðunum meðan eldurinn brann uppi yfir þeim Guðmund- Guðmundur ur t- d. að flestum vélum yrði hægt að forða frá skemmd- um. Sölubúðina, sem er á neðstu hæð og snýr út að Laugavegi, ætiar hann að opna aftur á morg- un og býst við, að önnur starf- semi geti hafizt innan skamms. Húsið var vátryggt eins og önn ur hús í bænum hjá Húsatrygg- ingum Reykjavíkur, en birgðir og vélar trésmiðjunnar Víðis munu hafa verið tryggðar hjá Almennum tryggingum. UPPTÖK í MIÐSTÖÐINNI Slökkviliðið fékk tilkynningu um það símleiðis kl. 8,10, að dá- lítill reykur sæist standa baka- til upp úr trésmiðjunni Víði. Það var augljóst að eldurinn hafði komið upp í miðstöð húss- ins, sem er í kjallara bakhússins. Þar er stórt olíukyndingartæki, sem bæði er notað til venjulegr- ar húshitunar og til að þurrka timbur. Hafði það verið í gangi til þess að þurrka timbur að þessu sinni. Frá miðstöðinni hafði eldur- inn stigið upp á næstu hæðir meðfram leiðslum og uppeft- ir veggjunum og var nú kom- inn talsverður eldur í mið- húsið. Samt virtist að þessi eldur væri viðráðanlegur og tók slökkviliðið sér fyrst fyr- ir hendur, að slökkva eldinn á neðri hæðunum og tókst það eftir skamma stund og er lík- legt, að með því hafi verið bjargað öllum neðri hæðum hússins. KVIKNAR í RISINU! En ekki varð svo skjótlega kom izt fyrir eldinn ,að hindrað yrði að hann læsti sig upp eftir stiga- gati í rishæðina og þar með má segja, að „fjandinn hafi verið laus“, því að ris þessa geysistóra húss var allt gert úr tímbri og þar geymdar miklar birgðir af mjög eldfimum efnum, svo sem húsgagnaáklæðum, stoppi og dýn um. TRUFLUN VEGNA SÍMA- BREYTINGA Úr því eldurinn var einu sinni kominn í risið breiddist hann út ótrúlega hratt. Risið er klætt aluminium plötum, sem bráðnuðu við hitann og stóðu eldsúlurnar hátt í loft upp. En af sérstökum og mjög óvenjulegum ástæðum var á þessum morgni erfiðleikum hundið að kalla alla meðlimi slökkviliðsins út, þar eð verið var að skipta um símanúmer- in í Reykjavík og náðist ekki í nema fáa úr varaliðinu gegn- um síma. Þetta tafði bæði að- flutninga á slökkvitækjum og slökkvistarfið sjálft. Er þó álítið, vegna þess hve mikið var af eldfimum efnum í ris- inu, að því hefði ekki orðið bjargað. Lagði slökkviliðið nú sérstaka' áherzlu á að hindra að eldurinn kæmist í risið á Mjólkurfélags- húsinu, sem er samfast og tókst það Vegna þess að steinveggur var þar upp úr á milli bygging- anna. Það varð og til mikillar hjálpar, að slökkviliðið á Reykja- víkurflugvelli kom samkvæmt beiðni á staðinn með háþrýsti- dælur. VATNSSKEMMDIR HINDRAÐAR Miklu vatnsmagni var dælt á eldinn, svo og til að kæla gólf- plötuna undir risinu og fossaði það niður stigana í húsinu. Einnig byrjaði vatn að síga gegn- um loftin. Er hætt við að miklu meiri skemmdir hefðu orðið af völdum vatns, ef starfsmenn trésmiðjunnar og fulltrúar trygg- ingafélagsins, Almennra trygg- inga, hefðu ekki gert víðtækar ráðstafanir til að bjarga munum frá skemmdum, veita vatni út um glugga með masónitplötum og útvega dælur til að dæla vatni af neðri hæðunum. UNDANKOMA A KAÐLI 1 rishæð var íbúðarhúsnæði fyrir húsvörð, Sigurdór Sig- urðsson og fjölskyldu hans. Þar bjuggu og Erla Eiríksdótt- ir, skrifstofustúlka hjá fyrir- tækinu Víði og einhleypur maður, sem nýlega er farinn að starfa hjá fyrirtækinu. Þau komust öll út tímanlega áður en eldurinn læsti sig í risið, nema sá síðastnefndi, er varð að flýja undan eldinum norð- ur eftir húsmæninum. Náði hann í kaðal og gat rennt sér niður hann. Öll búslóð þessa fólks ger- eyðilagðist í eldinum og sama er að segja um alla þá hluti, sem geymdir voru í risinu, að af þeim sést nú hvorki tangur né tetur, allt brunnið til ösku. Á loftinu var geysimikil birgða geymsla trésnjiðjunnar Víðis, einkum þó efni til bólstrunar og í norðurhluta loftsins var birgðageymsla full af tilbún- um húsgögnum, sem hafa ver- ið mjög verðmæt. Einnig var þarna birgðageymsla fyrir Körfugerðina, sem- hafði að- setur í suðurhluta hússins, fjærst Laugaveginum. EIGANDINN FJARVERANDI Farmanna- deilan ÞjOÐVILJINN fer á sunnudag- inn mörgum orðum um þá „al- varlegu detlu, sem nú slendur yfir, farmannadeiluna44. Er þar viðurkennt, að suinar kröfur verkfallsmanna séu sanngjarn- ar. Aðrar lýstar óeðlilegar. Ef ríkisstjórnin ætlar að gera hér upp á milli, má ekki seinna vera að tillögur hennar komi fram. Verkfallið hefur nú stað- ið á fjórðu viku og v»r lengi fyrirsjáanlegt. Enn hefur ríkis- stjórnin þó ekkert raunhæft gert til að leysa það og viður- kennir fyrst síðustu daga að deilan sé „alvarleg44. Þó hefur hún haft málið til meðferðar allan tímann, og lengst af lát- ið svo sem ekki mundi standa á lausninni. Er vissulega von, að Timinn segi: „Gengur l»tt að leysa vanda“. Enoir sáttafuiulir í farmanna- deilunni SEINT í gærkvöldi hafði blaðið fregnir af því að enn hafa engir fundir verið boðaðir í sátta- nefndinni í Farmannadeilunni, og ekki hefir heyrzt um að nein- ar tillögur hafi verið lagðar fram. Þannlg var bruninn a Laugavegi 166 um kl. 9 á sunnudagsmorgun. Stóðu þá eldsúlur upp úr þakinu. Sæmileg síldveiði í gær Erfitt um söltun síldarinnar sólarhring lönduðu þessi skip i bræðslu á Raufarhöfn: Snæfugl 651 hektólítra, Stefán Arnason 423, Víðir II. frá Garði 564, Gló- faxi 258, Fram 498, togarinn Jón Þorláksson 558, Svanur, Reykja- CJÆMILEG síldveiði var í gær, og fékkst síld bæði vestur vík 663, Helga, Húsavík 180. við Horn, við Kolbeinsey og austur við Melrakkasléttu, „ kefur verið saltað á v * ' •* f , . . ^ , Rauíarhofn, aðallega síld úr alldjupt. Veður a miðunum þar fynr austan var gott 1 gær- Helgu frá Húsavík og Víði II. kvöldi og veiðihorfur taldar góðar. Á miðunum út af Siglu- í gærkvöldi kom Víðir frá Eski- firði var hægviðri í gærkvöldi en þokuslæðingur. NOKKUÐ SALTAÐ Á SIGLUFIRÐI Fréttaritari Mbl. á Siglufirði símaði í gærkvöldi: — Næstum stanzlaus síldarlöndun hefur ver- ið síðan fyrir helgi og í morgun var búið að landa hjá Síldar- verksmiðjum ríkisins á Siglufirði 172 þús. málum. Saltað var í gær á flestum plönum, en frekar lít- ið hjá hverjum, því síldin er mjög misstór og þykir ekki öli hæf til söltunar. í dag hefur ver- ið minna um síld, en þó er vitað að noklcur skip fengu stór og mikil köst út af Horni og enn- fremur út af Sléttu. Frá Raufarhöfn símaði frétta- ritarinn í gærkvöldi að í gær hefði verið nokkur síldveiði aust- an Kolbeinseyjar og norður af tanga. Veður var mjög ákjósan- legt og góðar horfur. Síðastliðinn firði með fullfermi til Raufar- hafnar og Víðir II. var væntan- legur inn. Báðir höfðu fengið síldina djúpt út af Hraunhafn- artanga. Eigandi þessa stórhýsis og tré- Melrakkasléttu og Hraunhafnar- Bœrinn í Staffelli brennur til ösku Manntjón varð ekki Héraði, 8. júlí. GÆR kom upp eldur í gamla bænum á Staffelli í Fellum og brann hann til grunna á stuttri stund, svo mörgu varð ekki bjargað úr baðstofu, en þar mun eldurinn hafa komið upp. Ekkert i Líklega hefur eldsvoðinn orð- ið af neistum sem hafa fokið úr eldavélarröri í þurra þekjuna. Bæjarhúsin, önnur en baðstofan, voru orðin forn. Baðstofan þarna brann fyrir um það bil 30 árum, og var vel uppbyggð að þeirrar tíðar hætti. slys varð á fólki. Tíðarfar hefur verið gott nú um skeið og grasinu fer vel fram. Sláttur er að hefjast og rúningu sauðfjár að Ijúka. — G. H.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.