Morgunblaðið - 23.07.1957, Page 1

Morgunblaðið - 23.07.1957, Page 1
> Bretar viðbúnir í Oman Flytja liðsafla til mágrannalandanna London, 22. júlí. FrA Reuter-NTB. BSETAR undirbjuggu i dag flug- Télar til aS flytja hermenn til Onun og Maskat til a» hjálpa ■oldáninum á verndarsvæðinu í baráttúnni við uppreisnarmenn. Jafnframt sagði egypzkt blað frá því, að aðalritari Arababandalags ins væri að reyna að fá meðlima- rikin til að styðja „baráttuna gogn brezkri heimsvaldastefnu í Oman“, eins og hann orðar það. í neðri málstofu brezka þings- Ins sagði Selwyn Lloyd utanrík- isráðherra, að brezkar hersveitir hefðu verið fluttar til í varúðar- ■kyni, ef til alvarlegra átaka kæmi í Oman, en eftir því sem hann bezt vissi væru engar brezk ar hersveitir komnar til Óman. HJÁLP frA ÖÐRUM RÍKJUM Lleyd aagði, að uppreisnar- í Oman hefðu án nokkurs fail fengiS hjálp frá öðrum tikjum. Þess vegna er það rétt aS við tökum vel í beiðni sol- dánsins um hjálp, sagði hann. — Brezka herstjórnin á staðnum hefur fengið heimild til að gera ákveðnar hernaðarlegar varúð- •rráðstafanir, en aðeins innan ákveðinna takmarka. NEITAÐI AÐ LOFA NOKKRU Lloyd vísaði á bug þeirri um- leitan eins af þingmönnum Verka | mannaflokksins, að hann héti® því að láta brezkar hersveitir [ ekki taka þátt í bardögum, fyrr en neðri málstofan hefði fengið nákvæmar upplýsingar um mál- ið. Yfirleitt gera stjórnmálamenn í London ekki mikið úr upp- reisninni í Oman. Umsagnir blaða um hana hafa verið ýktar. Kaíró-blaðið „AI Goumhouria“ skýrði frá því í dag, að Abdel Khalek Hassouna aðalritari Ar- ababandalagsins hafi átt viðræð- ur við fulltrúa frá „imam“ (trú- arleiðtoganum) í Oman, sem var vísað úr landi af soldáninum. Hassoun hefur líka samband við stjórnir meðlimaríkjanna til að leita stuðnings þeirra „gegn brezkri heimsvaldastefnu í Om- an“, segir í sama blaði. SOLDÁNI að kenna Sumar heimildir segja, að upp- reisnin eigi rætur að rekja til þess, að soldáninn hafi látið handtaka leiðtoga ættflokkanna, sem gert hafa uppreisn. Þessi leiðtogi eða sjeik fékk fyrst vin- samlegt boð frá soldáninum um að koma til viðræðna við hann, en þegar hann kom, var hann fangelsaður. Sagt er, að herstyrk- ur ættflokkanna sé öflugur og muni að líkindum fá yfirhöndina yfir brezku hersveitunum, sem soldáninn hefur til umráða. Seint í kvöld var frá því sagt, að brezk herdeild hefði verið flutt flugleiðis frá Kenya til Aden. Beyinn bíður TÚNIS, 22. júlí — Hinn 76 ára gamli bey í Túnis beið þess í kvöld í höll sinni í Kai-þago, að honum bærust boð um, að hann hafi misst völd og mannvirð- ingar. Stjórnarflokkurinn sat á fundi til að taka ákvörðun um að gera Túnis að lýðveldi. Bourgiba forsætisráðherra er talinn sjálf- kjörinn forseti hins nýja lýð- veldis, en hann hefur ráðizt á beyinn og ættmenn hans fyrir að hafa sankað að sér gulli og grænum skógum meðan þeir sátu við völd. í Túnis var allt með kyrrum kjörum í kvöld, og ekki er talið, að brottrekstur hins aldna þjóðhöfðingja hafi nein veruleg áhrif á landsmenn. Auslur-þýzkur rifsfjóri flýr Berlín, 22. júli. RITSTJÓRI austur-þýzka komm- únistablaðsins „Berliner Zeitung" Arno Rattay, hefur flúið til Vest- ur-Berlínar. Austur-þýzki komm-| únistaflokkurinn hafði fyrirskip- að rannsókn á högum hans og Iíferni, vegna þess að hann hafði tekið við 10 mörkum í vasapen- inga, þegar hann var að ferðast í Vestur-Þýzkalandi á vegum blaðs síns. Hver gestur frá Aust- ur-Þýzkalandi fær þessa fjárhæð greidda af vestur-þýzkum stjórn- arvöldum, þar sem blátt bann liggur við því að fara með pen- inga út úr Austur-Þýzkalandi. Dulles frúir ekki öðru en mannkynið bjargí sjálfu sér „Míss Universe^ Fegurðardrottning Perú, Gladys Zender, 18 ára gömul, vann titilinn „Miss Universe“ á Langasandi á laugardaginn. Næst henni kom fegurðardrottning Brazilíu, en síðan fegurðardrottn- ingar Bretlands, Kúbu og Þýzkalands. Gladys Zender er fyrsta fegurðardísin frá Suður-Ameríku, sem hlýtur hinn eftirsótta titil. Verðlaunin eru m. a. 5000 dalir í reiðufé, ýmiss konar dýrmætar gjafir og vel launað starf í lieilt ár. Að líkindum á hún einnig möguleika á að komast inn í kvikmyndaheiminn. Stúlkurnar fimm, sem tóku þátt í lokakeppninni, voru valdar úr hópi 14 stúlkna, sem tóku þátt í undankeppni, en þær voru aftur valdar úr hópi 32 fegurðardísa hvaðanæva úr heiminum. Myndin er tekin klukkan átta á laugardagsmorgun, þegar Gladys Zender var krýnd „Miss Universe 1958“. Washington,.22. júlí. Frá Reuter-NTB. DDLLES ' utanríkisráðherra Bandaríkjanna hélt útvarps- og sjónvarpsræðu í kvöld og sagði, að enda þótt ekki hefði unnizt mikið, þá værum við nú nær því marki en áður að finna samkomu lagsgrundvöll fyrir afvopnun. Hin knýjandi nauðsyn á sam- komulagi hefði gert fulltrúa ríkj- anna, sem þátt taka í umræðun- um, raunsærri og einarðari. En meðan Rússar sýna þess engin merki, að þeir hafi áhuga á af- vopnun, verða Bandaríkjamenn að halda styrk sínum og halda fast við varnarbandalögin. Banda ríkin munu aldrei gera neitt það, •r stefnt geti öryggi Vestur-Ev- rópu í voða, sagði Dulles. GRUNDVÖLLUR Dulles benti á, að tillögur Bandaríkjanna um afvopnun gætu orðið grundvöllur að mikil- vægu byrjunarstarfi, sem hefði það að markmiði að beisla eyði- leggingaröflin. Kvaðst hann vona, að Rússar gengju að þess- um tillögum. VILJA OG VILJA EKKI Hann sagði, að Rússar virtust vera reiðubúnir til að samþykkja eftirlit á landi og í lofti sem fyrsta áfanga í afvopnun, en hins vegar væru menn ekki á eitt sátt- ir um þaö, hvar hafa skyldi eft- irlit og í hvaða formi. Rússar virðast líka hika við að sam- þykkja stöðvun á framleiðslu kjarnorkuefna til hernaðarþarfa, en slík stöðvun gæti komið í veg fyrir, að framleiðsla kjarnorku- vopna hefjist um allan heim. Rússar vilja bráðabirgðastöðvun á framleiðslu kjarnorkuvopna án þess að taka nokkurt tillit til annarra spurninga í sambandi við afvopnun, sagði DuIIes. TÍMINN EKKI TAKMARKALAUS Hann kvað Bandaríkin mundu halda áfram viðleitni sinni við að fá Rússa til að samþykkja sáttmála um afvopnun, og mundu þaú í því efni hafa fyllsta sám- starf við Vesturveldin. En tím- inn er ekki takmarkalaus, sagði hann. Með hverju ári sem líður án samkomulags verða erfiðleik- arnir flóknari; það verður æ örð- ugra að. finna leið til að hafa eftirlit með og beisla útþenslu kjarnorkunnar. En við höfum ástæðu til að vona, að mannkyn- ið finni leið út úr ógöngunum, ef það hefur hug á að varðveita menninguna, sem það hefur skapað. Það verður að losna við hina stöðugu ógnun um tortím- ingu, sem það hefur skapað sér með smíði kjarnorkuvopn- anna. Ég veit, að það getur gert það. Ég held það muni gera það, sagði Dulles að lokum. Hersýning í Poznan POZNAN, 22. júlí. — Gómúlka foringi pólskra kommúnista og aðrir leiðtogar kommúnista- flokksins í Póllandi voru í dag viðstaddir hersýningu í Poznan, sem lialdin var í sambandi við þjóðhátíðardaginn. Pólverjum bárust árnaðaróskir frá Eisen- hower Bandaríkjaforseta, Tító forseta Júgóslavíu og frá þjóð- höfðingjum ítalíu, Indónesiu, Tékkóslóvakíu og Austur-Þýzka- landi. Frú Shafik, leiðtogi ,,Nílardœtra verður dregin fyrir rétt Kaíró, 22. júlí. FRÁ því hefur verið skýrt í fréttum, að 9 egypzkir herfor- ingjar og allmargir almennir borgarar verði dregnir fyrir rétt innan skamms fyrir þátttöku í samsæri til að ryðja Nasser úr vegi. Egypzka vikublaðið „Akh- bar EIyom“ segir, að réttarhöld- in hefjist stuttu eftir að 5 ára afmæli byltingarinnar verður há- tíðlegt haldið, og að meðal hinna ákærðu verði sennilega frú Doria Shafik, hinn heimsfrægi leiðtogi egypzku kvenfrelsishreyfingar- innar, sem nefnir sig „Nílardæt- ur“. SVELTI SIG 1 VETUR Eins og menn muna, svelti frú Shafik sig í vetur sem leið í mót- mælaskyni við einræðisstjórn Nassers, og vakti það alheims- athygli sem og flótti hennar á náðir indverska sendiráðsins. Nú halda egypzk blöð því fram, að hún hafi átt að verða meðal þeirra ráðherra, sem tækju við stjórn í Egyptalandi, eftir að Nasser hefði verið steypt af stóli. HLUPUST UNDAN MERKJUM Hið opinbera málgagn Nassers heldur því fram, að herforingj- arnir níu, sem dregnir verða fyr- ir rétt, hafi allir flúið frá stöðv- um sínum, þegar bardagarnir stóðu yfir við Breta, Frakka og ísraelsmenn í fyrrahaust. Þetta var ástæðan til þess, að þeir voru allir reknir eftir að friður komst á og handteknir skiimmu síðar. VINUR NASSERS í SAMSÆRINU Blöðin skýra frá því, að for- sætisráöherra hinnar nýju stjórn ar hafi átt að verða dr. Moha- med Sala el Din fyrrverandi út- anríkisráðherra og leiðtogi WAFD. 1 opinberri tilkynningu Nasser-stjórnarinnar segir, að það hafi verið Ahmed Atef Nass- ar, sem er hershöfðingi á eftir- launum og var náinn vinur Nass- ers, sem var leiðtogi samsæris- manna. Blaðið „A1 Ahab“ skýrir frá því, aff í stjórninni, sem setja átti á laggirnar eftir fall Nass- ers, hafi allir flokkar átt aff eiga fulltrúa og sömuleiðis Bræðralag Múhamedstrúarmanna, sem voru voldugustu samtök Egyptalands áður en Nasser brauzt til valda. „A1 Ahab“ skýrir ennfremur frá því, að meðal þeirra manna, sem samsærismennirnir hafi ætl- að að setja í ráðherrastóla, hafi verið Abdel Razzek, fyrrverandi formaður ríkisráðsins; Abbas Amar, fyrrverandi félagsmála- ráðherra; Ibrahim Farag, fyrr- verandi ráðherra WAFD-flokks- ins og Doria Shafik, leiðtogi „Nílardætra“. Frú Shafik er 37 ára gömul og tveggja barna móðir. Frú Doria Shafik R og K til A-Þýzkalanrfs Moskvu, 22. júM. KRÚSJEFF foringi rússneskra kommúnista og Búlganin forsæt- isráðherra munu heimsækja Austur-Þýzkaland í ágúst-mán- uði, samkvæmt frétt Moskvu-út- varpsins. Þeir verða fyrir stórri sendinefnd flokksmanna og stjórnarmcðlima frá Sovétríkj- unum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.