Morgunblaðið - 23.07.1957, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.07.1957, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 23. júlí 1957 MORCVNBLAÐ1Ð 9 í Rivedal í Dalsfirði, lieimkynnum Ingólfs Aruarsonar. (Ljósm.: Á. G. E.) / fótspor Egils: Margar nýjungar i búskap Norómanna Rahbað v/ð Árna G. Eylands — Ert þú nýkominn frá Noregi? Það er Árni Eylands með alpahúfu á kollinum og hraðstíg- ur að vanda. — Já, til þess að gera, ég var með góðum mönn- um að feta í fótspor Egils Skalla- grímssonar. — Var það ekki mikið og fróð- legt ferðalag? — Einn af prófessorunum, sem var i ferðinni, lýsti því bezt, þeg- ar hann sagði að leiðarlokum: Þetta var dýrlegt ferðalag Ég segi hið sama, það var jafn- dýrlegt fyrir mig þó að ég hafi farið víða um þessar slóðir áður, en fyrir vikið átti ég líka víða vinum og kunningjum að mæta. Móttökurnar voru bæði stórmann legar og innilegar svo at bar. Ég trúi ekki öðru en förin verði öllum minnisstæð, sem þátt tóku í henni. .— Hvað um búskapinn á vestur strönd Noregs? — Þetta var nú ekki búnaðar- ferð, það var menningar og sögu- ferð, en hitt má nefna, að það er blindur íslendingur, sem ekki sér og skilur í slíkri ferð, hvert afrek það er að byggja og búa sums staðar í fjörðum Noregs, og halda þar uppi athafna- og menningar- lífi, eins vel og glæsilega eins og gert er. Þar er mörgum steini velt úr vegi og víða lagt á bratt- ann bæði með samgöngur at- vinnu- og félagslíf. — En um þetta munu blaðamennirnir sem voru í förinni vita margt áður, og sumt er þegar sagt. — En þú varðst eftir þegar meginhópurinn hvarf heim. — Já, ég skrapp á fornar slóðir suður á Jaðar. an hékk alls staðar á hesjum. Á Jaðri er auðveldara með véla- notkun heldur en í fjörðunum, og er þó ótrúlegt hvaða tækni er víða notuð í hinum brattlendustu byggðahverfum, vélar dregnar á streng við jarðvinnslu og hey- skap, áburður og hey flutt „loft- leiðis“ o.s.frv. Ég skoðaði heymjölsverksmiðj- una á Sóla, í þriðja sinn. Hefi áð- ur minnzt á það fyrirtæki, og mun enn gera því betri skil síðar, Islendingarnir í Egilsför. A Askeyju nálægt Björgvin, þar sem Berg-Önundur bjó. — Er ekki alltaf eitthvað nýtt þar í búskapnum? — Víst er það svo, Rogalend- ingar eru forgöngumenn í bú- skap. Annars viðraði þar erfið- lega. Þær tvær vikur, sem ég dvaldist í Rogalandi var meiri og minni úrkoma flesta daga og tað- dropinn holar steininn og von- andi tekst að vekja skilning á því að hér þarf að koma upp hey- mjölsverksmiðju, og fordæmið á Sóla er tilvalið til fróðleiks og fyrirmyndar. Nú er annars verið að byggja aðra verksmiðju sams konar við flugvöllinn á Heslandi við Björgvin. Á Sóla sá ég annars eina nýjung við heyskapinn. Þar hefir verið slegið með vagnsláttuvélum, en nú höfðu þeir tekið í notkun einn sláttutætir, það er vél sem tætir grasið af rótinni og skilar því tættu upp í vagn. Vélar af þessari gerð skoðaði ég er ég var síðast í Bandaríkjunum og Kanada, en það var að vetri til, svo að ég sá þær ekki að vinnu. Síðastl. vetur tók ég notkun þeirra aftur upp til umræðu í Morgunblaðinu í sambandi við heyskap í vothey. Sjón er sögu ríkari, nú er ég ekki í vafa um að þetta er merki- leg nýjung. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að full reynsla fáist um þetta hér á landi, því að einn sláttutætir mun vera kominn'að Gunnarsholti á Rang- árvöllum. Ný sáðvél, nýr mykjudreifari og ný vél til að taka upp kartöfiur, eru einnig á döfinni frá búvéla- smiðjunum á Jaðri. Mun mykju- dreifarinn reyndur hér á landi í sumar. — Eru Norðmenn ekki farnir að koma sér upp stofni af holda- nautum? — Jú, auðvitað. Ég heimsótti einn bónda á Útsteini sem býr eingöngu við sauðfé og holda- naut, og nú er í ráði að hann og fleiri fari til Englands í sumar til að sækja nýtt blóð í stofninn. Útsteinn er annars merkilegur staður, þar var klaustur til forna. Er nú verið að endurbyggja það og færa til upphafs síns. Þar í klaustrinu dvaldist nú Jan Peter sen forleifafræðingur, er hér var í vetur við doktorskjör Kristjáns Eldjárns. Vorum við hjónri gest- ir hans daglangt við fornar minningar og margan fróðleik, því að þar var einnig við upp- gröft hinn kunni húsaméist- ari og byggingarfræðingur, Gerhard Fischer, en hann hefir haft mestan veg og vanda af endurbyggingu og viðgerð margra miðaldabygginga í Noregi. — En nóg um það, — förin í förin hans Egils var mikil og góð för og eiga allir, sem frumkvæði áttu að henni, Oksvik fylkismaður Andersen, Ryst sendiherra og aðrir miklar þakkir skilið fyrir það mikla spor, sem stigið var með för þessari, hún verður ekki metin til fjár né frægðar, en henn ar mun gæta í minningum og auknum skilningi. Gott veður SEYÐISFIRÐI, 22. júlí. — Tíðar- far hér undanfarna daga hefur verið ágætt, blíðalogn og sól- skin. Heyskapur gengur vel, en síðari spretta mun vera nær því engin því aldrei kemur dropi úr lofti. — B. I LfLValstilNoregs í MORGUN, þriðjudaginn 23. júlí, fór 2. flokkur Knattspyrnu- félagsins Vals flugleiðis til Nor- egs, í boði Brummundals I. F. í förinni eru 18 leikmenn og þriggja manna fararstjórn, en hana skipa þeir, Frímann Helga- son, Hólmgeir Jónsson og Guð- mundur Ingimundarson. Vals- menn munu leika 3 leiki í Brummundalen og umhverfi, enn fremur í Osló. Þá mun flokkur- inn ferðast allvíða um mörg af fegurstu héruðum Noregs. Ferð- in varir um hálfsmánaðar tíma, en heim koma Valsmenn aftur 6. ágúst n.k. För þessi er farin til að endur- gjalda heimsókn Brummundals I. F., sem hér dvaldi í fyrrasum- ar í boði Vals. Þetta er í fyrsta sinn, sem ung- lingaflokkur í knattspyrnu fer héðan til Noregs, en áður hefir Valur sent 2. fl. sinn utan, það var árið 1954 og þá til Þýzka- lands. Ólför Hildar Mar- grétar Péfursdóftur SAUÐÁRKRÓKI, 19. júlí. — Út- för frú Hildar Margrétar Péturs- dóttur fór fram í dag frá Sauðár- krókskirkju að viðstöddu fjöl- menni. Þessi merka kona, sem átti hér heima um 75 ára tímabil og lét svo margt gott af sér leiða með fórnfúsu mannúðar- og menning- arstarfi sínu, var fædd 27. maí 1872 á Akureyri. Var hún rúm- lega 85 ára að aldri, er hún lézt 9. þ.m. í sjúkrahúsinu hér. Útförin hófst með bæn sóknar- prestsins séra Helga Konráðs- sonar prófasts á heimili Kristjáns sonar frú Margrétar, en þar dvaldist hún síðustu æviárin. Síð- an var hin blómum skreytta kista borin í kirkju, sem einnig var blómum prýdd. Þar flutti prófastur fagra minningarræðu og eftirtektarverða um líf og starf hinnar látnu heiðurskonu, en kirkjukór söng þar, svo sem í heimahúsum og við gröfina, und- ir stjórn kirkjuorganista Eyþórs Stefánssonar tónskálds. Enn- fremur söng í kirkju ungfrú Björg Ragnarsdóttir frá Vest- mannaeyjum einsöng með undir- leik kirkjuorganista. Kistuna báru frá heimili í kirkju og úr kirkju vinir hinnar látnu konu ,en síðasta spölinn að gröfinni báru hana synir hennar, dóttur- og sonarsynir og nánustu venzlamenn. Prófastur jarðsetti í glaða sólskini blöktu fánar um allan kaupstaðinn. — Jón. Myndin er tekin á hófi íslendinga í New York, sem haldið var í tilefni af 17. júní á Hotel Piccadilly. Var þar margt manna, bæði Islendinga og bandariskra gesta þeirra. Viðstaddur var Hannes Itjartansson ræðismaður í New York og Elín kona hans, og sitja þau við borðið í horninu yzt til vinstri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.