Morgunblaðið - 23.07.1957, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.07.1957, Blaðsíða 2
2 MORCV N BLAÐIÐ Þriðjudagur 23. júlí 1957 Nasser digurmæLtur Kaíró, 22. júlí. Frá Reuter—NTB NASSER einræðisherra hélt fyrstu ræðu sína á hinu „ný- kjörna" egypzka þingi í dag, og sagði m.a., að árás Breta og Frakka á Egypta í fyrrahaust hefði verið síðasta heimskubragð heimsveldastefnunnar, og sem slíkt yrði það munað í sögunni. Nasser talaði við opnun þings- ins, sem er hið fyrsta síðan 1952. Hann kvað þetta þing vera upp- hafið á eðlilegu þingræði í Egyptalandi. Það er líka upphaf- ið á vinnu okkar. Við verðum að byggja án afláts, sagði hann. Hann gaf dæmi um framfarirnar, sem hefðu átt sér stað síðan 1952 Nefndi hann m.a. Aswan-stífluna, sem yrði fullgerð innan 5 ára; og mundi féð til hennar koma frá Súez-skurðinum, sem nú væri þjóðnýttur. VIÐVÖRUN Nasser ræddi líka ástandið við austanvert Miðjarðarhaf og sagði að heimsvaldasinnar hefðu ekki lagt niður vopn sin ,enda þótt þeir hefðu beðið hvern ósigurinn eftir annan. Egyptaland, Sýrland og önnur Arabaríki væru ekki tryggð gegn nýjum árásum. Und- irbúningur ísraeismanna til að ráðast á Sýrlendinga væri við- vörun til allra Araba, sagði Nass- er. GAGNSTSÆÐ SJÓNARMH) Hann kvað Egypta og Vestur- veldin hafa algerlega gagnstæð- ar skoðanir á vörnum landanna fyrir botni Miðjarðarhafs. í fyrsta lagi héldu Vesturveldin fast við það, að stefna bæri varn- arbandalögunum gegn Rússum, þar sem Egyptar litu svo á, að varnarbandalögum ætti að stefna gegn öllum hugsanlegum árásar- aðilum. í öðru lagi væru Egypt- ar sannfærðir um, að engir nema íbúar landanna við austanvert Miðjarðarhaf gætu tekizt á hend- ur varnir þeirra. Það er þetta sem Bretar og Bandaríkjamenn geta ekki skilið, sagði Nasser. fSRAELSMENN HEIMS- VALDASINNAR Hann sagði, að árás ísraels- manna á Egypta í fyrrahaust væri ein sönnun þess, að ísraels- menn væru forvigismenn heims- vaidastefnunnar og hins alþjóð- lega zíonisma. Kallaðir heim NEW YORK, 22. júlí. — Indó- nesía hefur tilkynnt, að hún muni kalla heim herliðið, sem hún sendi til Egyptalands sem hluta af öryggissveitum Sameinuðu þjóðanna. Hún er fyrsta ríkið, sem tekur þetta skref. Nýlunda í Súez SÚEZ, 22. júlí. — Egypzka stjórn in hefur leyft danska skipinu „Birgitte Toft“ að sigla um Súez- skurð, en það var á leið til Haifa í tsrael, og einn af hásetunum er fsraelsmaður. Sfórflóð PEKING, 22. júlí — Geysileg flóð hafa gengið yfir Sjantung- héraðið í Mið-Kína, og hafa yfir þúsund manns látið lífið af völd- um þeirra. Flóðin hafa staðið yfir í 4 daga og eru talin hin verstu sem komið hafa síðustu 50 árin. Trúlofunarfregn New York, 22. júlí. DAILY NEWS í New York þyk- ist hafa það eftir áreiðanlegum heimildum, að á föstudaginn kem ur muni Margaret Bretaprinsessa opinbera trúlofun sína. Hinn hamingjusami er sagður vera Patrick Beresford lávarður, sem er 23 ára gamall og þannig þrem- ur árum yngri en prinsessan. Á fimmtudagskvöld verður haldinn mikill dansleikur í Buckingham Palace, og morguninn eftir verða gleðitíðindin gerð heyrinkunn. Daily News segir raunar, að sum- ar heimildir álíti Beresford lávarð ekki hafa nokkra mögu- leika á að vinna hönd prinsess- unnar, en mönnum hefur ekki komið annað nafn í hug, bætir blaðið við. HesfaferSalag upp að Tröllafossi Nýjar ferðir FerBaskrifstofunnar 1 ÞESSARI viku og um næstu helgi efnir Ferðaskrifstofan til margra ferða og eru sumar þeirra með allnýstárlegum blæ. Á laugardaginn verður tekin upp sú nýbreytni, að skrifstofan efnir til ferðar á hestum og verð- ur riðið frá Varmalandi upp að Tröllafossi, sem er milli Skála- fells og Esju.. Er þess að vænta að menn hafi áhuga á að ferðast á „þarfasta þjóninum", en fáir hafa nú á dögum tækifæri til að koma á hestbak nema þeir eigi sjálfir grip í húsi. Þá verður farin ferð út í Við- ey á laugardaginn og sá sögu- frægi staður skoðaður. Á sunnu- daginn verður efnt til ferðalags í sambandi við vígslu Saurbæj- arkirkju á Hvalfjarðarströnd. — Farin verður hópferð með Akra- borginni upp á Akranes og það- an með bifreiðum. Skrifstofan efnir og til skemmtiferðar þann dag með bifreiðum og verða fagr- ir staðir skoðaðir í Kjósinni, en síðan verður ekið um Dragháls í Skorradal til Akraness og farin sjóleiðin heim. Á laugardaginn verður skemmtiferð til Akraness og bærinn skoðaður, síðan ferða- lag kring um Akrafjall og Hval- stöðin skoðuð og komið í Vatna- skóg. Þá verður og farið í Heið- mörk og í Viðey á sunnudaginn, stuttar skemmtiferðir. Auk þess efnir Ferðaskrifstof- an til venjulegra ferða, til Gull- foss og Geysis, Krísuvíkur og Kleifarvatns, Þingvallá og Sogs- fossa, í vikunni, en þær ferðir eru alltaf vinsælar, einkum með- al útlendinga og ferðafólks utan af landi. Hvuð gerist í iaimannadeilunni ? SUNNUDAGINN 21. júlí sendi Vinnuveitendasamband íslands og Vinnumálasamband Samvinnu félaga frá sér eftirfarandi spurn- ingu „Hvað gerist í farmanna- deilunni?" Út af spurningu þessari vilja samninganefndir yfirmanna upp- lýsa: Á samningafundum sjástl fulltrúar útgerðarmanna aldrei. Viðræður deiluaðila hafa legið niðri í einn og hálfan mánuð. Okkur er ekki kunnugt hvenær fulltrúar útgerðarmanna ætla að koma til samninga, meðan svo er sjáum við okkur ekki fært að eiga í neinum saineiginlegum fréttatilkynningum með þeim. Samninganefndir farmanna. Kommúnisfar vinna á London, 22. júlí. í SVEITASTJÓRNARKOSNING UM á eyjunni Java í Indónesíu virðast kommúnistar vera að vinna á. Á eyjunni búa yfir 40 milljónir manna, og er hún mikil- vægust eyjanna í Indónesíu. — Kommúnistar hafa verið næst stærsti flokkurinn á Java síðan í kosningunum 1955, en eru nú í mörgum héruðum stærsti flokk . urinn. Hingað til hafa kommún- istar verið fjórði stærsti flokkur Indónesíu og haft 6 millj. at- kvæði, en nú er búizt við, að hann fari fram úr einhverjum hinna flokkanna, en þeir eru þjóðflokk- urinn, masjumi og ulama. Þannig mun hið nýja hús bænda við Hagatorg líta út fullbyggt. Skákmótið: 8. umferð Ferðir Orlofs og B.S. í. um næsfu helgi NÆSTKOMANDI föstudag hefst 8 daga sumarleyfisferð ferðaskrif stofunnar Orlofs og Bifreiðastöðv ar fslands. Farið verður um Norð ur- og Austurland og gist á gisti- húsum. Fararstjóri verður Brarid ur Jónsson. Laugardaginn 27. júlí verða tvær ferðir. 8 daga sumarleyfis- ferð um Snæfellsnes og Vestfirði og 10 daga ferð um Fjallabaks- leið. Sunnudaginn 28. júlí verða 3 skemmtiferðir, farið á sögustaði Njálu, — um Borgarfjörð og að Gullfossi, Geysi, í Skálholt og á Þingvelli. Skipin halda jafn- harðan úf affur SIGLUFIRÐI, 22. júli. — í gær komu hingað tvö skip með 300 tunnur af síld hvort. Önnur skip komu með innan við 100 tunnur. Síldin fór í salt. í nótt fengu mörg skip síld hér a vestursvæðinu eða norður af Grímsey, frá 100—500 tunnur. — Fór megnið af þeirri síld í salt og íshús. Yfir 30 skip eru komin hingað inn og er nú saltað á öllum stöðv- um. Hjá sumum plönum eru yfir 1000 tunnur. Talið er að þessi sild verði öll söltuð. Síldin var mjög víða uppi í nótt og eins á austursvæðinu að sagt er. Skipin fara því út aftur jafnharðan og þau losna því ekki er nema 4—5 tímar á miðin þar sem síldin fékkst í nótt. í dag er blíðuveður, sól og hiti. — Guðjón RAUFARHÖFN, 22. júlí — All- mikil síld sást vaða s. 1. nótt út af Rauðanúpi og Langanesi. Einnig sunnan Langaness, en þar er síldjn smærri og lítt söltun- arhæf. Allmörg skip hafa komið að landi í dag, mest með bræðslu síld en þó er nokkuð saltað á öll- um söltunarstöðvunum. Þessi skip hafa landað í dag í bræðslu og söltun: Ágústa 700, Mummi 300, Höfrungur 200, Kóp- ur 400, Grundfirðingur II. 450, Pétur Jónsson 400, Björg, Eski- firði 500, Baldur 300, Glófaxi 300, Stefán Árnason 350, Guðfinnur 400, Svanur 300, Sæbjörg 700, ísleifur II. 70, Víðir II. 350, Helga, Reykjavík 600, Jón Finnsson 200, Hilmir 80, Ófeigur 170, Hrafn Sveinbjarnarson 200, Ingólfur 400. —Einar. ESKIFIRÐI, 22. júlí kalt hefur verið í v lega. —Gunnar. ÓLAFSVÍK, 22. júlí — Einn blíða hefur verið hér í Ólafs undanfarið og um langan tíma. Heyskapur gengur ágætlega. —Einar. Tékkóslóvakía: Danmörk: * dr. Filip bið Larsen bið Kozma 1 Ravn 0 Blatný % Andersen Yz Vyslouzil 1 Dinsen 0 England: Mongólía: Persitz 1 Tumubaator 0 Martin 1 Munhu 0 Davis 1 Tseveloid 0 Gray 0 Zhugder 1 Equador: Búlgaría: Munoz 0 Kolorov 1 Ol. Yépez 0 Minev 1 Benites 0 Padevski 1 Os. Yépez 0 Tringov 1 Ungverjaland: Sovétríkin: Benkö 0 Tahl 1 Portisch 0 Spassky 1 Forintos % Gurgenidz Yz Molnar 0 Nikitin 1 tsland: Rúmenía: Friðrik bið Mititelu bið Guðmundur y2 Drimer Yz Ingvar bið Ghitescu bið Þórir 0 Szabo 1 Bandarikin: Austur-Þýzkaland: Mednis Yz Dittmann y2 Fenerstein Yz Bertlholt Yz Saidy 1 Liebert 0 Sobel 0 Júttler 1 Svíþjóff: Finnland: Sönderborg V2 Lahti Yz Haggquist Yz Rannanjarvi Yz Sehlstedt 1 Kajaste 0 Palmkvist Vz Aaltio Yz Áttunda umferð var tefld á riks og Ingvars fóru í bið aftur sunnudaginn. Mættu íslendingar og þóttu jafnteflislegar. 8. um» Rúmenum. Engri skák varð lok- ferð er lokið eins og hér að ofan ið á 5 klst. Er til var tekið í gær getur að líta að þeim skákum lauk skák Guðmundar með jafn- undanskildum og skák dr. Filips tefli en Þórir tapaði. Skákir Frið- og Larsens. 9. umferð Danmörk: Finnland: B. Larsen Vz Rannanjarvi Yz B. Andersen 1 Kajaste 0 Spalk bið Aaltio bið Dinsen bið Samalisto bið Austwr-Þýzkaland: Svíþjóff: S. Dittmann Yz B. Sönderborg Vi Bertholdt 1 Hággquist 0 H. Liebert bið B. Sehlstedt bið H. Jiittler Yz S. Palmkwist Yz Rúnrenía: Bandaríkin: Mititelu Yz Lombardý Yz Drimer Yz Mednis Yz Gitezcu bið Feuerstein bið Szabo 0 Saidy 1 Búlgaría: ísland: Kolarov 1 Friðrik 0 Minev bið Guðmundur bið Patevsky 1 Ingvar 0 Tringov 0 Þórir 0 Mongolía: Equador Tumubaator bið Munoz bið Munhu 0 Yépes 1 Miagmarsuren 1 Benites 0 Zuhgder Yz O. Yépes Yz Sovétríkin: England: Tal 1 Persitz 0 Gurgenidze Yz Martin Yt Nikitin 1 Davis 0 Gipslis bið Gray bið Tékkóslóvakía: Ungverjaland: Dr. Filip Yz Benkö Yz Kosma bið Portisch bið Blatný Yz Navarovsky Yz Marsalek 0 Molnar 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.