Morgunblaðið - 28.07.1957, Síða 1
44. árgangur.
167. tbl. — Sunnudagur 28. júlí 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
Verkfall bílstjóra á strætisvögnum og Iangferðabifreiðum í Englandi hefur mjög víðtæk áhrif þar
í landi, því að samgöngur hafa teppzt milli landshluta. Verkfallið kemur einkum illa við þær
milljónir manna, sem áætlað höfðu að fara í sumarfrí eða vanir eru að fara út í sveitirnar um
helgar. Mynd þessi var tekin við Viktoría-stöðina í Lundúnum. Þar eru langar biðraðir fólks,
sem veit ekki sitt rjúkandi ráð, hvernig það fær komizt út á landsbyggðina.
Hörmungarastand
vegna flóöa i Japan
Enn er ekki vitað hve
margir tórust, en víst
er að þeir skipta
hundruðum
TOKYO, 27. júlí. — Mikið
ófremdarástand er nú á syðsta
hluta Japanseyja. Flóð hafa
grandað mörg hundruð manns —
og enn er talin hætta á að flóðin
aukist. Stjórnarvöldin ráðgera
að flytja fólk brott af a.m.k. einni
eyju þar sem flóð hafa lagt nær
alla byggð í rúst.
Þar hafa yfir 50 lík fundizt,
en óttazt er að enn fleiri hafi
látið lífið. Þar liggja og skrokk-
ar dýra eins og hráviði um allt.
Enn hafa stjórnarvöldin enga
hugmynd um hve margir hafa
látið lífið. Margir eru mikið
særðir — og hefur fjölmennt
björgunarlið verið hvatt á vett-
vang. Skip og flugvélar flytja nú
lyf og matvæli til eyjanna, sem
verst hafa orðið úti, en sennilegt
er, að í dag verði ekki náð til
--------------------------3>
allra þeirra, sem hart hafa orðið
úti vegna þess að allar samgöngu
leiðir á landi eru lokaðar og
einnig hefur símasamband rofn-
að.
Þyrilvængjur koma að miklum
notum — og hafa þær bjargað
mörg hundruð manns í morgun.
Flestir þeir, sem bjargað var
hafa hafzt við á umflotnum
hæðum eða þökum rammbyggðra
húsa. Á einum stað höfðust um
400 manns við á þökum járn-
brautarlestarvagna, sem stöðváð-
ist fyrir tveim dögum. Þyril-
vængjur björguðu fólki þessu í
morgun — og hafði það verið
matarlaust allan tímann.
Á morgun er áætlað, að jap-
anska stjórnin fljúgi yfir flóða-
svæðið, en á eftir munu ráðherr-
ar fara í vitjun til sjúkrahúsa,
sem hýst hafa fjölda þessa bág-
stadda fólks. Þessi flóð eru hin
verstu og mestu í Japan um ára-
bil.
Nasser kvartar
sáran
Enginn hefur afhjúpað
kommúnismann eins
herlega
— segir Crankshaw
um bók Djilasar
NEW York: — Innan skamms
mun koma á markaðinn bók eftir
einn af fyrrum fremstu kommún-
istaforingjum Júgóslavíu, Milov-
an Djilas. Áður hefur verið skýrt
frá því, að Djilas hafi tekizt að
smygla handritinu af bókinni út
úr fangelsi sínu í Júgóslavíu, en
þar situr hann nú og afplánar
þriggja ára fangelsisdóm. Djilas
var um árabil hægri hönd Titos,
forseti þingsins í Júgóslavíu með
meiru, en í desember sl. var hann
dæmdur fyrir starfsemi „fjand-
samlega hagsmunum ríkisins'".
Sök hans var sú, að hann hafði
ritað grein um uppreisnina í
Ungverjalandi í vestræn blöð.
Tók hann eindregna afstöffu
gegn valdamönnum í Kreml og
vítti harðlega þjóðarmorðiff i
Ungverjalandi. Komst hann aff
orffi á þá leiff, aff uppreisnin í
Ungverjalandi hefði veriff upp-
hafiff aff endalokum kommúnism-
ans.
Hinn frægi Rússlandssérfræð-
ingur Edward Crankshaw hefur
komizt yfir handritið aff þessari
nýju bók — og segir hún, aff
Djilas afhjúpi kommúnisman þar
— jafnvel meira en nokkur ann-
ar hafi gert. Segir Crankshaw,
aff afstaffa Djilasar sé sú, aff hiff
kommúniska skipulag skapi nýja
yfirstétt og arffræningja. Þetta
séu helztu sköpunarverk komm-
únismans.
Hann heldur áfram á þá leið,
að hin nýja yfirstétt hafi risið
upp í ríkjum kommúnismans til
að efla iðnaðinn. Lönd A-Evrópu
hefðu staðið öðrum löndum langt
að baki á iðnaðarsviðinu — og
þeim hefði verið lífsnauðsynlegt
að efla iðnaðinn. Þetta hefur
kommúnisminn gert — og ekkert
annað — segir Djilas.
Þegar iðnvæðingunni lauk var
yfirstéttin orffin þaff föst í sessi,
aff hún settist ein- aff því, sem
þjóffirnar höfðu byggt upp — og
hélt áfram aff þrælka þjóffirnar.
Crankshaw kvcffur bók þessa
vera eitt helzta sönnunargagn,
sem komið hafi fram gegn ágæti
kommúnismans. Enginn hafi af-
hjúpaff kommúnismann eins ber-
lega.
Ýmsa furðar ef til vill á því,
að Djilas skuli hafa þorað að
leggja út á þessa braut þar sem
hann er nú þegar kominn í ónáð.
Þau orð munu hafa fylgt hand-
ritinu vestur um haf, að honum
stæði alveg á sama um afleiðing-
arnar. Bókin yrði að komast út.
Útkoma hennar væri takmark,
sem hann hefði lengi stefnt aff.
Tveir skotnir
BERLÍN — A-þýzkt blað skýrir
svo frá, að á mánudag hefðu and-
kommúnistiskir A-Þjóðverjar
gert árás á þrjá a-þýzka lögreglu
menn á götu úti. Höfðu árásar-
mennirnir skotið tvo þeirra til
bana, en sá þriðji særðist.
Vilja að V-Þjóð-
verjar fari lir Nato
BERLÍN, 27. júlí. — A-þýzka
stjórnin hefur gert það að til-
lögu sinni, að fyrsta skrefið til
sameiningu Þýzkalands verði
stofnun ríkjasambands milli
Austur- og Vestur-þýzkalands.
Tillaga þessi var birt í formi yf-
irlýsingar frá a-þýzku stjórninni
— og hét yfirlýsing sú: Vegur
þýzku þjóðarinnar til öryggis.
Lögð er rík áherzla á það, að
Þýzkaland verði ekki háð „heims
valdasinnunum" og það verði
„friðelskandi". Kveður þar á um,
að flytja beri erlendan her úr
Þýzkalandi og að V-Þýzkaland
segi sig úr Nato — og A-Þýzka-
land úr Varsjár-bandalaginu.
Konungur í bifreiðaslysi í annað sinn
ÞANNIG leit bifreið Leopolds
fyrrum Belgíukonungs út, eftir
að hann ók henni á miklum hraða
út af fjallvegi á Norður-Ítalíu.
Með Leopold sat í bifreiðinni eig-
inkona hans Liliane de Rethy
prinsessa. Hjónin sluppu með
lítilsháttar meiðsl, en mikið lán
er talið að þau skyldu ekki stór-
slasast eða láta lífið. Leopold var
sjálfur við stýri bifreiðarinnar,
en það var hann einnig árið 1935,
þegar hann lenti í bílslysi með
þeim afleiðingum að fyrri kona
hans Ástríður drottning lét lífið.
Ætluðu að ráSa
Hussein af döaum
AMMAN, 27. júlí: — í Amman
fara nú fram réttarhöld í máli
allmargra herforingja og fyrrver-
andi stjórnmálamanna. Eru menn
irnir sakaffir um aff hafa ætlaff
að ráða Hussein konung af dög-
um og taka stjórn landsins í sín-
ar hendur.
Segir í áærunni, aff 13. apríl
sl. hafi samsærismennirnir gert
tilraun til þess aff kveðja her
á vettvang til þess aff koma á-
formum sínum í framkvæmd.
Ætluðu þeir aff umkringja kon-
ungshöllina og binda síðan endi á
lífdaga Husseins.
Hinir ákærðu eru 20 talsins, en
affeins 14 þeirra koma fyrir rétt
þar sem hinir eru flúnir til Sýr-
Iands. Þeirra á meðal eru tveir
fyrrum foringjar herráðsins og
fyrrverandi utanríkisráðherra.
Ef hinir ákærðu verffa fundnir
sekir munu þeir sennilega verffa
líflátnir.
— en Menzies neitar
LONDON, 27. júlí: — Menzies,
forsætisráðherra Ástralíu, hefur
neitað því harðlega að hafa ógn-
að Nasser, er hann ræddi við
hann á fyrra ári og reyndi aff
miðla málum í Súez-deilunni. —
Nasser hefur hins vegar staðfest,
að Menzies hefi verið hinn dólg-
legasti og hótað honum — og
lagt til, að Súez-skurðurinn yrði
þjóðnýttur á ný. í yfirlýsingu
Menzies um mál þetta segir, að
því fari fjarri, að hann hafi ógn-
að Nasser, enda hafi hinn síðar-
nefndi aldrei séð ástæðu til þess
að kvarta yfir slæmri framkomu
hans á meðan á fundunum stóð.
Ef staðhæfing Nassers væri á
rökum reist hefði hann áreiðan-
lega ekki geymt að upplýsa það
þangað til nú.
Þessi mynd var tekin, þegar
Leopold og kona hans komu
heim til Belgíu eftir slysiff.
Baudouin núverandi konung-
ur Belga tekur innilega á
móti stjúpmóður sinni, Rethy
prinsessu. — Sárabindi eru
bundin um báða fótleggi
hennar.