Morgunblaðið - 28.07.1957, Qupperneq 7
Sunnudagur 28. júlí 1957
MORGVISBI AÐIÐ
7
íslendingar
athygli en
segir sœnskt blað um ÍR-flokkinn
vöktu ekki minni
Bandaríkjamenn
Mjölby, 24. júlí ’57.
NÚ ERUM við komnir til Mjöl-
by eða Mjölbæjar eins og flestir
okkar kalla þennan vinalega 10
þúsund manna bæ, sem er ca.
250 km. frá Stokkhólmi. Við kom-
um hingað klukkan 7 í gærkvöldi
og fengum ágætar móttökur. Bær
þessi minnir okkur mjög mikið
á Akureyri eða Hafnarfjörð,
nema það að skógur er töluvert
meiri. Á mótinu hér í kvöld
keppa margir af beztu frjálsí-
þróttamönnum Svía og Banda-
ríkjamaðurinn Bob Appelman,
sem fylgir okkur eins og skugg-
inn.
★ í Malmö á-
Snúum okkur nú að keppn-
inni í Malmö, en þangað var
komið á laugardagskvöldið um
sjöleytið. Malmö er þriðja stærsta
borg Svíþjóðar, íbúar um 200 þús
und. Dvalarstaður flokksins var
íþróttasalur MFF-félagsins, sem
er ei.tt ríkasta og stærsta knatt-
spyrnufélag Svíþjóðar, fór mjög
vel um okkur þar, það væri ekki
dónalegt að eiga jafnstóran og
glæsilegan sal heima, því að á
veturna er keppt þarna í stngar-
stökki, 60 m hlaupi og 60 m
grindahlaupi.
Á mótinu í Málmey kepptu auk
okkar Bandaríkjamenn, Danir,
Norðmen, Þjóðverjar og svo auð
vitað Svíar. Meðal áhorfenda
voru nokkrir íslendingar, sem
hvöttu strákana óspart og einnig
afhenti íslenzk stúlka verðlaun
fyrir stangarstökkið og var henni
fagnað mjög, enda falleg.
★ Fyrstu greinarnar ic
Fyrstu greinarnar, sem land-
arnir tóku þátt í voru 100 m.
hlaup B-flokkur, en þar keppti
juniorinn Unnar Jónsson, há-
stökk Ingólfur Bárðarson og kúlu
varp Skúli Thorarensen. Unnar
var mjög taugaóstyrkur, sem von
var, mótvindur var töluverður og
varð hann fjórði í sínum riðli
og komst ekki í úrslit, tíminn
var 12,0 sek. Svipuð umsögn gild-
ir um Ingólf, hann fór mjög hátt
yfir 1,70, næst var hækkað í 1,80,
hann var mjög stífur og mistókst
í öll þrjú skiptin, Ingólfur var í
6—8 sæti með 1,70 m. Skúli var
heldur ekki í „stuði“, enda bólg-
inn á fæti, hann náði ekki 15 m
varð fjórði með 14,94 m.
Björgvin Hólm tók þátt í 110
m grindahlaupi og stóð sig vel
þrátt fyrir mótvindinn, fyrstur
varð Svíinn Lennart Karlsson á
15,6 en Björgvin varð annar með
16,2 sek. Rétt þegar Björgvm
hafði nýlokið keppni komu mikl-
ar þrumur og skýfall strax á eftir,
en um daginn var hiti óvenju-
lega mikill í Málmey enda um
30 stig í skugganum.
Stangarstökkvararnir áttu í
miklum erfiðleikum í rigning-
unni og mótvindinum. Valbjörn
sigraði með miklum yfirburðum,
fór yfir 4,00, 4,10, 4,20 og 4,30 í
fyrstu tilraun, en mistókst við
4,42 enda var þá farið að skyggja.
Lennart Lind stóð sig vel fór
yfir 4,20 í fyrstu tilraun en átti
enga möguleika að fara yfir 4,30.
Heiðar átti í harðri baráttu við
Appelman hinn bandaríska og
Rinaldo hinn sænska, sem
hafa stokkið 4,22 og 4,17. Röðin
var Appelmann 3,90 (fór yfir þá
hæð í 3. tilraun, annars hefði
Heiðar orðið 3ji), Heiðar varð
fjórði með 3,80 og Rinaldo fimmti
með 3,80.
★ Öruggur sigur ★
Atrennubrautin í langstökki
var slæm og auk þess mótvind-
ur, Vilhjálmur sigi'aði með mikl-
um yfirburðum, stökk lengst 7,02
m, annar var Þjóðverjinn Hajek
með 6,52, en hann hefur stokkið
yfir 7 m í sumar, þriðji Svíinn
Mánsson 6,41 m.
★ Metið ★
3000 m hlaupið var skemmti-
legt, en þar voru með margir af
beztu langhlaupurum Norður-
landa, alls voru keppendur 10,
meðal keppenda var Daninn
Thyge' Thögersen. Kristján hélt
sig í miðjum hópnum allt hlaup-
ið, en Svíinn Jönsson hafði for-
ystuna lengst af. Millitíminn á
1500 m var 4,07,0 á fyrsta manni
en 4,15 á Kristjáni. Kristján hljóp
síðasta hringinn vel, en tvö enda-
mörk voru og á því tapaði hann
um 1 sek. Svipað kom fyrir Guð-
mund Lárusson í úrslitum 400 m
hlaupsins á EM í Briissel 1950.
Þrjár klukkur voru á Kristjáni
og sýndu allar 8:37,5 mín. Krist-
ján fékk sérstök aukaverðlaun
fyrir metið og var einn af vin
sælustu keppendunum.
Höskuldur keppti í A-flokki
100 m. hlaupsins og auðvitað í
sama mótvindinum sem aðrir.
Hann fékk allgott viðbragð, en
tími hans hefði átt að vera betri,
því að hann var aðeins um meter
á eftir þriðja manni, sem fékk
tímann 10,8, fyrstur varð Svíinn
Malmroos á 10,7, annar Jan Carls
son 10,8 og þriðji Lövgren 10,8,
fimmti Ove Johnsson 11,3, sjötti
Þjóðverjinn Kron 11,4.
Daníel Halldórsson hljóp 400
m., en meðal andstæðinga hans
var boðhlaupsheimsmethafinn
Maiocco frá Bandarikjunum Mai-
occo sigriði á 48,6 og Daníel varð
annar með 50,0, en þó tapaði hann
nokkrum sek.brotum, þar sem
hann hægði aðeins á' sér þegar
hann hafði hlaupið ca. 5 m vegna
kalla hlauparana til baka vegna
þjófstarts.
Sigurður Guðnason stóð sig vel
í 1500 m. hlaupinu, en meðal
keppenda var Daninn Benny
Stender, sem sigraði í 1500 m.
hlaupinu í landskeppni Dana og
íslendinga 1. og 2. júlí s. 1. Stend-
er hafði forystuna allt hlaupið
en Sigurður var í 2—3 sæti fyrstu
800 m., þá fór einn Svíi framúr.
Þegar 400 m. voru eftir var Sig-
urður orðinn 30—40 metra á eft-
ir þriðja manni ,en tók mjög
glæsilegan endasprett og á síð
ustu metrunum tókst honum að
fara framúr Svíanum við mikil
fagnaðarlæti og varð þriðji á sín
um bezta tíma í sumar 3:57,8,
fyrstur varð Stender á 3:51,7 og
annar Svíinn Bengtson á 3:53,5.
Alls voru keppendur 10.
★ Hylltir ★
Nú er aðeins eftir að geta um
boðhlaupið, sem var 4x100 m. 3
sveitir tóku þátt, ÍR-sveitin,
sænsk sveit og úrvalssveit (2
Bandaríkjamenn og 2 beztu Sví-
amir), var þvi ekki hægt að bú-
ast við íslenzkum sigri. Höskuld-
ur hljóp fyrsta sprettinn mjög vel
og skilaði til Vilhjálms, þá var
ÍR-sveitin jöfn úrvalssveitinni,
Daníel hljóp þriðja sprettinn á
móti Pearman hinum Bandaríska
og vann af honum nokkra metra,
Valbjörn hljóp síðasta spölinn á
móti Maiocco og þar sem skipting
hans og Daníels mistókst algjör-
lega var íslenzkur sigur vonlaus,
því að Maiocco hefur hlaupið á
10,5 eða 10,6. Frammistaðan var
samt mjög góð, úrvalssveitin sigr
aði á 42,9, ÍR-sveitin hljóp á 43,5
og sænska sveitin á 44,5.
ÍR -ingarnir unnu mjög hylli
áhorfendanna eins og sést á þess-
inn, enda sigruðu þeir í nokkr-
um greinum. Stangarstökkið var
glæsilegast með methafann Þor-
láksson sem sigurvegara, en hann
stökk 4,30. Mettilraunin á 4,42
heppnaðist þó ekki vegna bleytu
og myrkurs. Samt var sett eitt
íslenzkt met, og vakti það mesta
hrifningu áhorfenda þegar til-
kynnt var, en það var 3000 m.
met Kristjáns Jóhannssonar.
Þekktasti gestur keppninnar var
íslendingurinn V. Einarsson, sem
tók verðlaunin í Melborne. Hann
um blaðaummælum úr „Syd-
svenska Dagbladet": „Hinn glæsi
legi og þokkafulli íslenzki flokk-j keppti í ró og næði og stökk 7,02
ur vakti eins mikla hrifninguj þrátt fyrir hina slæmu langstökks
áhorfenda og bandaríski flokkur-' braut í Malmö“.
Uppruni, aldur og
jbýðing glímunnar
Austurriskur prótessor flytur hér
fyrirlestur um Jbað efni
HINGAÐ til lands er kominn
próf. dr. Erwin Mehl. Prófessor-
inn starfar við háskólann í Vín.
Hann hefur um langt skeið rann-
sakað þau fornu fangbrögð, sem
enn eru til meðal þjóðanna víða
um heim. Hingað kemur prófess-
orinn til þess að kynnast nánar
glímunni, og þar sem hann er sér-
stakur fyrirlesari, hefur þess ver-
ið óskað, að hann flytti hér fyrir-
lestur um þetta hugðarefni sitt.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
dönsku, og jafnframt sýr.ir dr.
Mehl skuggamyndir og kvik-
myndir af ýmsum þeim fang-
brögðum, er hann hefur kynnzt.
Hér birtist í styttri þýðingu úr-
dráttur úr efni svipaðs fyrir-
lestrar og hann mun flytja hér
þriðjudaginn 30. júlí.
Þar sem fjöldi manns hér á
landi hefur áhuga á glímu, mun
mörgum leika forvitni á því að
kynnast öðrum fangbrögðum eft-
ir frásögn manns, sem hefur
kynnt sér þau sérstaklega.
Þorst. Einarsson.
UM UPPRUNA, ALDUR OG
ÞÝÐINGU GLÍMUNNAR
Glíman, þjóðariþrótt íslend-
inga, er grein af hinum mikla
meiði fangbragða, þar sem tökum
er tekið á klæðnaði, eða svo-
nefndum fata-fangbröðum. En
þau eru nefnd svo til aðgrein-
ingar frá þeim fangbrögðum,
sem einungis leyfa tök á ákveðn-
um líkamshlutum, svo sem grísk-
rómversk glíma.
Fata-fangbrögð skiptast svo
aftur eftir því, hvort um alíata-
fangbrögð, þar sem tök eru leyíð
alls staðar á fötunum, eða þar
sem tökin eru bundin við eitt-
hvað takmarkað svæði. Skiptast
þau eftir því í stakktök, buxna-
tök eða beltistök. Tökin í is-
lenzku glímunni eru endurbætt
buxnatök, þvi að glímubeltið
kemur i stað glímubrókarinnar.
Ólafur Davíðsson rekur sögu
glímunnar í meginatriðum aftur
til Víkingatímans í formála sín-
um að „íslenzkar gátur, þulur og
skemmtanir". Skipar hann henni
andspænis hryggspennu. Sé það
svo, hafa landnámsmennirnir
flutt kjarna glímunnar með sér
frá meginlandinu, en hún síðan
þróazt áfram á sinn sérstaka
hátt hér á landi. Slíkt er og senni-
legt, því að Gotlund (Nordisk
Kultur, Stokkhólmi 1933, 246,
bls. 16) telur sig hafa fundið
ýmsar leifar fata-fangbragða á
Norðurlöndum, bæði buxnatök
og kragatök (stakktök). Lappar
iðka einnig skyld fangbrögð, en
allar líkur benda til þess, að þau
séu til þeirra komin frá hinum
Norðurlandaþjóðunum.
Jóhannes Scheffer bendir á
þetta í bók sinni Zappór.ía þegar
á 17. öld (Frankfurt) Það má
því finna menjar um fata-fang-
brögð allt frá Lapplandi til fs-
lands. Þessi mikla útbreiðsla ein
bendir á háan aldur, því að þjóð-
legar íþróttir, sem þessar, flytjast
ekki á milli nú til dags á sama
hátt og þær alþjóðlegar íþróttir,
sem iðkaðar eru og hæst ber nú.
í Olpunum er svo annað svæði,
sem svarar til norræna fang-
bragðasvæðisins. Þar er frægast
Schwingen Svisslendinga, en það
er buxnaglíma, sem hefst með
sömu tökum og sú íslenzka. í
Austurríki eru tvö önnur af-
brigði, Ringeln og Fusseln, hið
fyrrnefnda er alfata-fangbrögð en
hið síðarnefnda stakk-fangbrögð.
Bæði eru þau þreytt við upp-
skeruhátíðir og fara fram uppi á
háfjöllum, oftast yfir 2000 m hæð
og eru nátengd fornum helgisið-
um.
Að vísu eru engin fata-fang-
Framh. á bls. 10
Hvers vepa eru BAKAIHAR
fæða öllum mönnum?
BANANAR innihalda mikið af alhliða auð-
meltanlegri fæðu, sem fullnægir fljótt orku-
þörf likamans og byggir upp mótstöðuafl gegn
sjúkdómum.
BANANAR innihalda A, B, C, G-fjörefni
ávaxtasykur, steinefni og fjölda annarra nauð-
synlegra næringarefna.
Hvenær eru bananar beztir til neyzlu?
Þegar komnir eru brúnir þroskablettir á gult hýðið. Ávöxturinn
er þá tuiiþroskaður og beztur á bragðið og að nœringargildi
Vr
MJ0LNISH01TI 12 SÍMI' I 98 90