Morgunblaðið - 25.08.1957, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.08.1957, Blaðsíða 11
Sunnudagur 25. ágífet 1957 MORGVNBLAÐ1Ð 11 — Utan úr heimi Frh. af bls. 8 1952, en svo ákvað hann, að betra væri að ’hrifsa völdin í sínar hend ur með tilstyrk hersins, og það gerði hann 10. marz 1952. Hann gaf þá yfirlýsingu, að hann mundi aðeins sitja við völd stutt- an tíma, en við kosningarnar 1. nóvember 1954, var hann kosinn forseti aftur. í valdatíð Batista hefur Kúba átt sívaxandi velgengni að fagna. Iðnaður hefur stóraukizt og er- lend fjárfesting skapað nýja möguleika. Glæpamannastjórn- in, sem ríkti í valdatíð fyrirrenn- ara hans, Grau San-Martin og Prio Socarras, var svo til þurrk- uð út, og í nokkur ár voru lög réttur í heiðri höfð. En undir hinni spilltu og veikburða stjórn fyrrennaranna var Kúba þó frjáls. Eftir 10. marz 1952 hætti hún að vera frjáls. Baráttan stendur nú um það að vinna aftur frelsið, sem Batista rændi Kúbu- menn fyrir 5 árum. Einræðisherr ar Mið- og Suður-Ameríku hafa sömu reglu og aðrir einræðisherr ar, þegar þeir vilja tryggja sér völdin: þeir taka í sínar hend- ur stjórn hersins, herlögreglunn- ar, leynilögreglunnar og lögregl- unnar auk þess sem þeir hafa heilan her af hálaunuðum flugu- mönnum, sem Kúbumenn kalla „chivatos“ (geitur). Vel þjálfaðir upp- reisnarmenn Batista jós fé í herinn, hækk- aði laun óbreyttra hermanna, byggði nýtízku herbúðir, sjúkra- hús, skóla og leikvelli fyrir þá. Það gekk ver með herforingj- ana; hinir heiðarlegri voru and- vígir einræði Batista, svo hann varð að losa sig við þá; hinir sátu sífellt á svikráðum, svo hann varð að gæta þeirra vand- lega. f apríl 1956 komst upp um víðtækt samsæri meðal liðsfor- ingja, og voru samsærismenn sendir í alræmdar fangabúðir á Pines-eyju. Meginvandamál Batista núna, er aftur á móti hin vel skipulagða uppreisn undir stjórn Fidel Castro, en hann hefst við með stóran her skæruliða í fjöllun- um í Sierra Maestra, fæðingar- héraði Batista. Hefur hánn unnið sér fylgi stúdenta og annarra ungra hugsjónamanna, og má bú- ast við, að fyrr en seinna vinni hann Kúbu úr höndum Batista. Fidel Castro gerði fyrstu upp- reisnartilraun 26. júlí 1953, og er sá dagur hátíðisdagur meðal margra Kúbumanna. Batista kann að lafa í valda- stóli enn um sinn, en endirinn er óumflýjanlegur. Hann hefur misst allt samband við þjóð sína, en lifir enn 1 þeirri barnalegu trú, að hún standi með honum. Á sínum tíma sýndi hann hug- rekki, staðfestu og mikla pólit- íska kunnáttu, þegar hann á ung um aldri gerðist hinn sterki maður í Kúbu, ættsmár og lítt menntaður. En eins og einvöldum er títt, hefur hann spillzt af völd- um sínum og velgengni, svikið hugsjónir æskunnar og gerzt sinn eigin böðull. Hann er farinn að finna það núna, að „Nessos- skyrtan” hefur ekki týnt sinni fornu náttúru. Aflahæsti Akra- nesbátur með 70 tn. Akranesi, 23. ágúst. SJÖ reknetjabátar héðan voru á veiðum í nótt'. Aflahæstir voru Ásbjörn með 70 tunnur, Ásmund- ur með 52 tunnur og síðan hver af öðrum með allt niður í 20 tunnur. Hingað kom togarinn Bjarni Ólafsson um hádegi í dag af veið- um við Vestur-Grænland. Hefur togarinn haft hálfsmánaðar úti- vist. Aflinn er um 280 lestir og eingöngu karfi. — Oddur. Kjarakaup Seljum á morgun og næstu daga, lítið eitt af smávegis gölluðum karlmannasokk- um og barna- og unglingapeýsum. — Athugið, að þessi sala stendur yfir að' eins fáa daga. Verzlunin Garbasfræti 6 Framtíðaratvinna Laghentur piltur sem vill læra fatapressun, getur fengið atvinnu frá 1. september. — Tilboð merkt: „Fátapressa — 6243“ sendist blaðinu fyrir mánudagskvöld. Kvikmyndasýningavélar (samstæða 2 vélar) með sýningartjöldum og ðllu tilheyrandi í góðu ásigkomulagi T I L SÖLU með tækifærisverði. Hentugar fyrir félagsheimili og önnur samkomuhús. Uppl. gefur Haraldur Böðvarsson, Bíóhöllin á Akranesi. það er cfblúlon FISHING NET að þakka Því: 1. Þau eru veiðnarl en venjulegar gerðir neta. 2. Þau eru sterk og endingargóð og lækka því við- haldskostnað. 3. Þau eru öllum netum lévtari. 4. Þau ganga seint úr sér, eru afar endingargóð. 5. Þurrkun eða sérstök meðferð óþörf. Spara þvi alla vinnu þar að lútandi. Varanet næstum óþörf. 6. Stöðugar veiðar eru mögulegar netanna vegna. Heimsins bezta vinna svo og áðurnefndir koslir þessarra heimsþekktu „Amilan Fishing Net“. Þau bera ávallt merlcið, sem sýnt er að ofan. an“ er vörumerki okkar nælons. Toyo Ttayon Co., Ltd., du Pont's einkaleyfi í Japan á nælon fram- leiöslu. Bæklingur um „Amalian Fishing Net“ er fáanleg- ur og verður sendur væntanlegum viðskiptavinum. Aðalframleiðendur ncelons í Japan @ Toyo Royon Ce., Ifdi No. 5, 3-chome, Nakanoshima, Kita-ku, Osaka, Japan Cable Address : *cTOYORAYON OSAKAr Frá Skósölunni Snorrahraut 36 Seljum á morgun (mánudag) 150 pör af kvenskóm með fylltum hæl fyrir aðeins kr. 95.00 parið. Háhælaða spænska kvenskó rússkinn og leður. Stærðir 35—38. Kr. 95.00 parlð. á 1—3ja ára fyrir kr. 5,00 parið og margt fleira. Ennfremur harnaskó úr leðri Skósalan Snorrabraut 36 Stúlkca helzt vön fatapressun, óskast nú þegar. Efnalaug Reykjavíkur Laugaveg 32B Einaitcjriiviarkorkur nýkominn. — Pantanir sækist sem fyrst. JÓNSSON & JÚLÍUSSON Garðastræti 2, sími 15430 og 19803. Odýrar 3ja herbergja íbúðir Hafnar eru framkvæmdir við 8 hæða fjölbýlishús við Ljósheima, í þeim tilgangi að byggja ódýrar og hagkvæmar íbúðir af hóflegri stærð. Einstaklingar og félagssamtök er áhuga kynnu að hafa á því að tryggja sér íbúðir í húsinu, hafi góðfúslega samband við skrifstofu vora. Upplýsingar ekki veittar í síma. Fjölvirki sf. Laugavegi 27, II. hæð Takið eftir hinum gullfallegu kvikmynda- stjörnum, heillandi dansmeyjum og hrífandi tizkusýnum. Sjáið hve hárið er mikill feg- urðarauki. Og flestar þeirra velja DRENE -shampooið, sem gerir hárið silkimjúkt og auðvelt við að eiga. Hár. yðar getur orðið eins undurfagurt . . . ef þér notið DRENE og auðvelt við að eiga. DRENE SHAMPOO gerir hárið silkimjúkt SHAMPOO. ...veljo Dtene shompoo Fegurstu konur heims

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.