Morgunblaðið - 25.08.1957, Blaðsíða 16
2-24-80
2-24-80
Björgunarskúta Norðurlands, Albert, leggst að bryggju á Akureyri. Mikill mannfjöldi var við
móttöku þess. Sjá grein á bls. 6. Ljósm. vig.
Ekkert aðhafzt við Skorradalsvatn
til vatnsmiðlunar virkjunarinnar
ísland gerSi jafnfefli viS
Sviss — tap gegn Frakkl.
Island er nú i 6. sæti
A EVRÓPUMÓTINU í bridge sem fram fer í Vínarborg er lokið
4. og 5. umferð. íslenzka sveitin sat yfir í 4. umferð, en í 5. umferð
kepptu þeir við sveit Sviss og skildu sveitirnar jafnar.
-----------------©
AKRANESI, 24. ágúst. — Enn
sem komið er hefur ekkert verið
aðhafzt í sumar til þess að leysa
vanda Andakílsárvirkjunarinnar
vegna nauðsynlegrar vatnsmiðl-
unar. Snemma í vor barst út sú
fregn að Andakílsárvirkjuninni
hefði verið heitið háspennulínu
frá orkuverunum við Sogsfossa
eftir 18 mánuði. Ef þessi fregn á
við rök að styðjast mun það
verða eftir um það bil 1 ár. Sýnir
hún að raforkustjórnin hefur
fullan hug á að koma Andakíls-
árvirkjuninni til hjálpar. Hinu
má ekki gleyma að orkuverin við
Sogsfossa, og það sem er í bygg-
ingu við Efra-Sog þurfa mikillar
orku við til þess að rafvæða
Reykjavík, Hafnarfjörð, öll Suð-
urnes með verstöðvunum þar,
Keflavíkurflugvelli og allt Suð-
urlandsundirlendi. — Hvarvetná
vex þörfin fyrir raforku með
hverju árinu sem líður Gæti far-
ið svo að þessi raforkuver yrðu
ekki aflögufær. Er þá gott til
þess að vita, ef unnt yrði að finna
leiðir til þess að Andakílsárvirkj-
unin yrði sjálfri sér nóg.
Nú er botn Andakíl&ár 6 metr-
um hærri uppi yfir vatnsósinn
heldur en botninn í vatnsþrónni
niðri við virkjunina, þar sem
vatnið streymir inn í orkuverið.
Grafa þarf og sprengja ála niður
þar til árbotninn er kominn í lá-
rétta línu alveg frá virkjuninni
upp að vatnsósnum. Við ósinn
þarf að steypa upp öfluga fyrir-
hleðslu. Jafngildir þetta 6 metra
háum vatnsgeymi eftir öllu |
Skorradolsvatni. Grafa má í sund
ur höft sem kynnu að vera á
botni vatnsins svo að vatnsyfir-
borðið nýttist jafnan að fullu
niður á 6 metra dýpi. Er þetta
mögulegt án þess að Skorradals-
vatn sé hækkað um einn senti-
mefra. Einnig væri athugandi
hvort ekki mætti dýpka vatnið
niður í 6 metra með ströndum
fram með því að dæla leirnum
upp. Gæti það drjúgum aukið á
vatnsmiðlunina.
Væri þetta sama og virkjunin
hefði fengið 6 metra djúpan
vatnsgeymi að víðáttu eins og
Skorradalsvatn sem er um það
bil 16 km á lengd og um 1 km
þar sem það er breiðast.
Annar höfuðmöguleiki til vatns
miðlunar fyrir Andakílsárvirkjun
sem menn hafa komið auga á, er
að gera vatnsgeymi á heiðinni
við Eiríksvatn, en þaðan rennur
Fitjaá ofan 1 Skorradalsvatn. —
Þangað þarf að leiða vatn úr
Reyðarvatni, en þaðan rennur
Grímsá um Lundarreykjadal. —
Hermann Jónasson forsætisráð-
herra hefur laxveiðina í Grímsá
á leigu í sumar upp að Grafarhyl.
í Eiríksvatn þarf að leiða vatn
úr Hvalvatni, sem Botnsá fellur
úr.
Dýrmætt er fyrir Borgfirðinga,
Borgnesinga og Akurnesinga, ef
þeir gætu búið að sínu í raforku-
málum. —• Oddur.
Þrem söfmiðimi
úthlutað kirkju-
hyggingarstyrk
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á föstudaginn voru lagðar
fram tillögur stjórnar kirkju-
byggingarsjóðs um úthlutun úr
sjóðnum til kirkjubygginga hér
í Reykjavík. Var alls úthlutað
650.000 kr. milli þriggja safn-
aða. Langholtssöfnuður fær kr.
350.000., Óháði fríkirkjusöfnuð-
urinn 200.000 krónur og Nessöfn-
uður 100.000 krónur og er það
lokaframlag. Þessa úthlutun sam-
þykkti bæjarráð samhljóða.
Ingi R. etslur
með 3 Vi vinning
HAFNARFIRÐI — í fyrrakvöld
voru tefldar biðskákir úr 3. og 4.
umferð á skákmótinu, sem hér
fer fram um þessar mundir. —
Áttust við Friðrik og Sigurgeir,
en sú skák var alljafnteflisleg
þegar hún fór í bið. Tefldi Sigur-
geir mjög vel, en varð það á að
leika illilega af sér, þannig að
hann tapaði skákinni. Einnig átt-
ust þeir við Árni Finnsson, sem
teflt hefur mjög vel á þessu móti,
og Kári Sólmundsson. Lauk
þeirri skák með sigri Árna. Loks
tefldi svo Kári einnig við Jón
Kristjánsson og vann þá skák.
Skák þeirra Jóns Pálssonar og
Benkö fór aftur í bið, en hún er
talin mjög jafnteflisleg. — Ingi
R. Helgason er nú efstur eftir 4
umferðir með 3Vá vinning.
_ í dag kl. 2 heldur mótið áfram
og eigast þá við Ingi R. og Pilnik,
Benkö og Jón Kristjánsson, Frið-
rik og Kári, Jón Pálsson og Árni,
'Sigurgeir og Stígur. — Teflt er
í Góðtemplarahúsinu. — G. E.
Albert heilsar höfn-
um á Norðurlandi
HÚSAVÍK, 24. ágúst: — Björg-
unarskúta Norðurlands, Albert,
kom liing'að i gærkvöldi. Lagðist
skipið að bryggju kl. 8. Fjöl-
menni hafði safnazt á bryggjuna,
sem var fánum skreytt, til að
taka á móti skipinu, sem einnig
var skreytt fánum stafna á milli.
Ávörp.
Karlakór Húsvíkinga, Þrymur,
söng á bryggjunni við komu skips
ins. Páll Þór Kristinsson bæjar-
stjóri flutti ávarp og einnig frú
Hrefna Bjarnadóttir, formaður
Slysavarnadeildar kvenna áHúsa
vík.
Af skipsfjöl töluðu Pétur Sig-
ursSon, sjóliðsforingi og Júlíus
Havsteen, fyrrv. sýslumaður.
Skipið skoðað.
Fjöldi heimamanna fór um
borð í skipið og skoðaði það. Um
kvöldið var forvígismönnum og
konum slysavarna hér boðið til
veiz’u í skipinu.
Hélt áleiðis til Kópaskers.
Albert var hér í Húsavík í nótt
en hélt í morgun áleiðis til Kópa-
skers, þar sem það mun hafa við-
dvöl. Þaðan heldur það áleiðis til
Þórshafnar og Raufarhafnar, þar
sem það verður í kvöld. —Fr.
Mjölnismenn ælla
ekki að lála sinn hlut
Selfossi, 24. ág.
í GÆRKVÖLDI var haldinn
fundur í vörubílstjórafélaginu
Mjölni á Selfossi. Var samþykkt
að halda áfram hindrunaraðgerð-
utn við Efra-Sog, til að koma í
veg fyrir að Þróttar-menn geti
haldið fiutningum áfram að virkj
uninni. Ætla bílstjórar í Mjölni
að efla þar aðgerðir sínar sem
mest.
Þá var samþykkt tillaga þess
efnis, að víta bæri Ríkisútvarpið
fyrir ónákvæman fréttaflutning
af þessu deilumáli.
í dag halda Mjölnisbílstjórar
vörð við Efra-Sog og ætla þeir
sér að halda því áfram þar til
málið er til lykta Ieitt. — G. Ó.
GRUNDARFIRÐI, 23. ágúst. —
Heyskapur hefur verið hér mikill
í sumar og nýting heyja með á-
i gætum. — Emil.
IJrslitaleikur ís-
landsmótsiiis í dag
í DAG kl. 4,30 leika-Fram og
Akurnesingar til úrslita í 1. deild
arkeppninni og fer leikurinn
fram á Leikvanginum í Laugar-
dal. Verður þetta fyrsti leikur í
1. deild, sem fram fer á grasi.
Eins og kunnugt er, hafa Ak-
urnesingar unnið alla 4 leiki sína
í keppninni, en Fram hefur unn-
ið 3 leiki og gert 1 jafntefli. —-
Nægir Akurnesingum því jafn-
tefli til þess að vinna mótið.
Bæði liðin hafa æft vel undan-
farið og kom það gerla fram í
leik Fram við Dynamo Kiev, að
úthald hafa Framarar mikið og
gott, og ýmsir sterkustu leik-
menn Akurnesinga hafa ekki ver
ið í eins góðri æfingu undanfar-
ið og þeir eru nú. Verður leikur-
inn án efa tvísýnn og skemmti-
legur, því að bæði liðin hafa
leikið góða leiki í sumar, og
ætti grasvöllurinn að stuðla að
því, að leikmennirnir nái fram
sínu bezta.
Að leik loknum mun formaður
KSÍ afhenda sigurvegurunum
sigurlaunin, knattspyrnubikar ís-
lands.
Aðalfuiidm* Stétt-
arsamb, bænda
AÐALFUNDUR Stéttarsambands
bænda verður að þessu sinni
haldinn að Hlégarði í Mosfells-
sveit 12. og 13. september næst-
komandi. Fulltrúakjöri er að
mestu lokið, en kjörnir eru 47
fulltrúar úr öllum sýslum lands-
ins. Einnig taka þátt í störfum
aðalfundarins stjórn framleiðslu-
ráðs, framkvæmdastjóri. — Og
venja er að bjóða þangað nokkr-
um gestum.
Rædd verða verðlagsmál land-
búnaðarins og ýmis önnur mál,
er varða félagsskapinn og önnur
hagsmunamál bænda.
Gert er ráð fyrir að nokkur
hluti fundarmanna geti búið á
Brúarlandi þessa tvo daga sem
fundurinn stendur yfir, en aðrir
munu gista í Reykjavík.
Úrslit í 4. umferð
Sviss vann Pólland...... 57:41
Frakkland vann Svíþjóð . 77:19
Austurríki vann Noreg .. 100:24
Holland vann írland .... 58:42
Finnland vann Þýzkaland 105:40
Ítalía vann Spán......... 61:15
Jafntefli varð hjá Englandi og
Lebanon (52:49) og hjá Dan-
mörku og Belgíu (51:50),
í 5. umferð urðu úrslit þessl:
Italía vann Danmörk.... 63:44
írland vann Þýzkaland .. 58:50
Holland vann Lebanon .. 65:51
England vann Noreg .... 51:32
Austurríki vann Svíþjóð . 41:35
Frakkland vann Pólland . 76:45
Jafntefli gerðu ísland og Sviss
(65:65) og Belgía og Finnland
(55:50). Spánn sat yfir. fsl. sveit-
in sendir kveðjur heim.
— Vilhjálmur.
★
f GÆRDAG barst Reutersskeytl
þar sem segir að í 6. umferð hafi
Frakkar unnið íslendinga með 91
stigi gfegn 51.
Eftir 6. umferð standa stigin
þannig (í svigum mesti mögulegi
stigafjöldi landanna, en mismun.
urinn stafar af því, að eitt land
situr yfir í hverri umferð og sum
hafa því átt færri keppnisspil en
önnur):
Austurrlki 12 (af 12)
Ítalía 10 (af 10)
Holland 11 (af 12)
Frakkland 10 (af 12)
Bretland 10 (af 12)
Belgía 6 (af 10)
ísland 5 (af 10)
Noregur ð (af 10)
Finnland 5 (af 12)
Sviss 4 (af 10)
Lebanon 4 (af 12)
Þýzkaland 3 (af 12)
Danmörk 3 (af 12)
Spánn 2 (af 10)
Svíþjóð 2 (af 12)
írland 2 (af 12)
Pólland 1 (af 10)
Heim af síld
FINNBOGASTÖÐUM, 23. ágúst.
— Á Djúpavík er nú hætt að
salt síld, er það vegna þess, hve
horuð hún er og smá. Búið er nú
að salta 1750 tunnur. Síldarstúlk-
urnar fóru ailar frá Djúpavík um
siðustu helgi. —Regína.
LÍTIÐ ER UNGS MANNS GAMAN
Þessi mynd var nýlega tekin af nokkrum krökkum í Hrísey.
Hafa þau það sér til gamans að totta snuð, sem þau hafa í bandi
um hálsinn. Virðist þetta vera eins konar einkennismerki hjá
þeim. Hefur snuðasölu heldur hleypt fram við þetta í Hrísey.
Það er sitt af hverju sem unga fólkið finnur sér til gamans.
Ljósm. vig.