Morgunblaðið - 29.08.1957, Page 2
í
MOTt GII Wfíí, 4 f)lÐ
Fimmtudagur 29. ágúst 1957
Uixm 62 ára gamli „fslendingur“ sokkinn í Reykjavíkurhöfn.
(Ljósm. Mbl.: Gunnar Rúnar).
Camli íslendingur sökk
í Reykjavíkurhöfn í gœr
B & K heimsækja
Sýrland
DAMASKUS, 28. ágúst. — Sýr-
lenzka stjórnin tilkynnti í dag
að Bulganin og Krúsjeff myndu
heimsækja Sýrland fyrir áramót.
Þegar landvarnarráðherra Sýr-
lands var fyrir skömmu 1 heim-
sókn í Moskvu bauð hann tví-
menningunum formlega að koma
til Sýrlands og þáðu þeir boðið.
Þá hefur íulltrúi Sýrlands-
stjórnar einnig tilkynnt að horf -
ur séu á að þeir Kuwatly forseti
(Sýrlands, Nasser forseti Egypta-
1 lands og Saud Arabíukonungur
haldi ráðstefnu með sér í náinni
framtíð. Ráðstefna sú yrði haldm
annaðhvort í Rijad höfuðborg
Arabíu eða í Kairo. — Reuter.
Hlulaskipli á norska
síldveiðiflotanum
BJÖRGVIN 28. ág. (NTB). Eins
og kunnugt er hafa Norðmenn nú
tekið upp þann sið að senda skip
til herpinótaveiða við ísland á
sumrin. Flytja bátarnir síldina
síðan ti)_ bræðslu á vesturströnd
Noregs. í dag lauk fundi útgerð-
armanna og sjómanna þar s°m
ákveðið var endanléga, hvernig
hlutaskipting á síldveiðunum í
sumar skyldi vera. Þar var ákveð
ið að sjómenn skyldu fá 28% af
brúttó tekjum. Þetta mun skipt-
ast í 13 hluti á skipum allt að
160 m rúmlestir í 14 hluti á stærri
skipum.
EITT elzta skip flotans og sumir
segja aldursforseti, vélskipið ís
lendingur, sem fyrir allmörgum
árum var bjargað af hafsbotni
inni í Eiðisvík, þar sem skipið
lá sokkið í 10—20 ár, sökk aftur
í gærdag hér í Reykjavíkurhöfn.
Þegar Íslendingi var bjargað
var hann gerður upp svo að nærri
því var um nýtt skip að ræða.
Það var sett í hann dieselvél, ný
togvinda og fleira og kostað til
hans offjár. Næstu árin var hann
stöðugt að heita má að veiðum
og í siglingum.
Fyrir 3 árum eða um það bil
var íslendingi lagt í Þanghafið,
þ. e. vestan Ægisgarðs. Síðan
hefur hann aldrei verið hreyfður
nema þá til þess að flytja hann
Bændadagur
á Hvanueyri
BÚNAÐARSAMBAND Borgar-
fjarðar hefur ákveðið að efna til
bændadags á sunnudaginn kem-
ur á Hvanneyri. Hefst hátíðin kl.
2, með guðsþjónustu í Hvann-
eyrarkirkju og prédikar sr. Berg-
ur Björnsson í Stafholti. Á eftir
hefst bændasamkoman með því
að Sverrir Gíslason í Hvammi
flytur ávarp. Síðan talar þing-
maður Borgfirðinga, Pétur Otte-
sen og Björn Blöndal rithöfundur
í Laugarholti les upp. Þá
skemmta þeir Sigurður Ólafsson
og Guðmundur Guðjónsson. Úti
á hinum víðlendu túnum Hvann-
eyrarskóla verða sýndar nýjustu
heyvinnuvélar, m. a. hinn nýi
sláttutætari frá Gunnarsholti,
sem vakið hefir mikla athygli
þeirra, sem bezt hafa vit á slík-
um vélum. Jafnframt verða kvik
myndir sýndar. Kaffiveitingar
verða fram bornar í matsal skól-
ans, en þessari fjölbreyttu bænda
hátíð Borgfirðinga lýkur svo með
því, að samkomugestir fá sér
snúning, og verður dansað, vænt
anlega af miklu fjöri fram á
kvöld og leika harmónikuleikar-
ar fyrir dansinum.
Slíka bændadaga hafa Borg-
firðingar haldið árlega um nokk-
urt árabil og hefur þá þótt góð
skemmtun að bregða sér til
Hvanneyrar, sem er miðstöð bú-
vísinda um sunnanvert landið.
til og frá milli bryggjanna í vest-
urhöfninni. Útgerðarmaður skips
ins Hallgrímur Oddsson, hætti al-
veg að hugsa um það þegar
eftir að því hafði verið lagt. —
Síðan hefur öllu steini léttara
verið stolið úr skipinu, t.d. var
allt það sem var úr kopar fyrir
löngu horfið.
Þannig hefur þetta gamla skip
legið í algjöru hirðuleysi um ára-
bil. í gærdag klukkan 1 er menn
komu til virinu sinnar vestur við
Grandagarð að loknu matarhléi
var því veitt eftirtekt að íslend-
ingur gamli var sokkinn, þar sem
hann lá við bryggjuna. Enginn
hafði séð neitt athugavert við
skipið um hádegisbilið.
Spaugsamur náungi skaut því
fram að nú myndi einhver hafa
verið í koparleit, haldið að botn-
ventillinn væri úr kopar.
Hafnsögumenn skýrðu Mbl
svo frá í gærkvöldi að ókunnugt
væri hvað annað en margra ára
hirðuleysi hefði valdið því að
skipið sökk svo skyndilega, en
það verði að sjálfsögðu athugað.
L'itil sild til
Hafnarfjarðar
HAFNARFIRÐI. — Togarinn Júlí
var hér í gær og íyrradag, en
hann kom með fullfermi af karfa.
Surprise kemur í dag og Ágúst
er væntanlegur á föstudaginn.
Hefur verið fremur góð karfa-
veiði undanfarið. — Júní veiðir
nú fyrir Þýzkalandsmarkað, og
Röðull, sem kom úr slipp í gær,
mun einnig veiða fyrir sama
markað.
Kringum 7 bátar eru nú byrj-
aðir reknetjaveiðar hér í Flóan-
um, en veiði hefur verið mjög
treg, það sem af er. í fyrrinótt
var t. d. afarmikill straumur,
þannig að netin lögðust þá því
sem næst flöt, og fékkst því lítið
sem ekkert í þau. — Nokkuð
fékkst af síld í Grindavíkursjón-
um, en þar hefur hún verið mjög
horuð, eða allt niður í 8% og er
hún brædd. — Sökum storms
voru bátar ekki almennt á sjó í
Fegurstu garðarnir
í Hafnarfirði
DÓMNEFND sú, sem Fegrunar-
félag Hafnarfjarðar tilnefndi á
þessu ári til að dæma um feg-
urstu garða ársins 1957, hefir nú
skilað áliti.
Niðurstaða nefndarinnar er
þessi:
Heiðursverðlaun hlýtur garður
inn Ölduslóð 10, eign Jóns Egils-
sonar og frú.
Hverfisviðurkenningar hljóta
þessir garðar.
Fyrir suðurbæ: Garðurinn
Öldugata 11, eign frú Herdísar
Jónsdóttur.
Fyrir vesturbæ: Garðurinn
Reykjavíkurvegi 16 B, eign frú
Kristínar Guðmundsdóttur.
Fyirir vesturbæ: Garðúrinn
Reykjavíkurvegi 31, eign Hen-
riks Hansen og frú.
Þá hefir nefndin að þessu sinni
talið ástæðu til þess að fara rétt
út fyrir bæjarmörkin og einnig
veita viðurkenningu til Skúla
Hansen og frúar að Skálabergi
í Garðahreppi fyrir frábærilega
fagran garð, sem þau hjónin hafa
komið upp rétt við bæjarmörk
Hafnarfjarðar.
Vegna fyrirtækja og stofnana,
vill nefndin veita St. Jósefsspít-
ala sérstaka viðurkenningu fyrir
fegrun þeirrar stofnunar, snyrti-
legt og fagurt útlit.
Jafnframt hefur dómnefndin
athugað útlit þeirra staða, sem
verðlaun og viðurkenningu hlutu
á síðastliðnu sumri. Yfirleitt er
ástand þeirra gott en þó vill
nefndin sérstaklega taka það
fram, að verðlaunagarðurinn frá
í fyrra að Hellisgötu 1, er enn í
framför og fegurð hans svo af
ber í Hafnarfirði. Þá vill nefnd-
in ennfremur taka fram, að Olíu-
stöðin hf., sem fékk viðurkenn-
ingu í fyrra, hefir enn aukið
fegrun og snyrtilegt útlit á sínu
athafnasvæði.
Er það ánægjulegt og öðrum
til eftirbreytni, þegar þeir sem
viðurkenningar félagsins hafa
hlotið halda áfram og draga ekki
úr viðleitni sinni til fegrunar
bæjarins.
Engir kommúnislar
í sýrlenzka hernum!
DAMASKUS, 28. ágúst. — Hinn
nýskiþaði yfirmaður sýrlenzka
hersins Alifi Bizri lýsti því yfir
í dag við vestræna fréttamenn,
að hann væri ekki og hefði aldrei
únisti. Þegar Bizri var spurður,
hvort það væri ekki rétt að 6500
rússneskir sérfræðingar dveldust
verið kommúnisti. Hann mót-
mælti einnig þeim áburði að
kommúnistar í sýrlenzka hernum
hefðu nú tögl og hagldir. Sagði
meira að segja að ekki væri einn
einasti liðsforingi í honum komm
nú í Sýrlandi, svaraði hann að
ekki væri einu sinni einn tugur
rússneskra sérfræðinga í landinu.
— Reuter.
Danir lesa upp
Rauða Rúbíninn
KAUPMANNAHÖFN 28. ágúst:
(NTB). í dagskrá danska útvarps
ins fyrstu viku september, sem
út var gefin í dag, kemur í ljós,
að þann 7. september verður
varið 45 mínútúm af dagskránni
til að lesa upp úr hinni umdeildu
klámbók „Sangen om den Röde
Rubin“, eftir Norðmanninn
Agnar Mykle. Upplesarar verða
Jörgen Claudi og Hans Henrik
Krause.
— Sukselainen
Frh. af bls. 1.
vegna þess að Skog-armur jafn-
aðarmanna í þinginu studdi
stjórnina.
Búizt er við að seinni ákvæði
í frumvarpinu um útflutnings-
skatt og viðaukafjárlög verði ekki
Þrándur í Götu. Þau verði sam-
þykkt næstu daga með nokkrum
breytingum. Þá verður hægt að
slíta þingi og þingmenn fá stutt
sumarfrí.
Hér er aðeins um bráðabirgða-
lausn að ræða, því að samningar
hinna fimm lýðræðisflokka um
endanlega lausn vandans strönd-
uðu og verða ekki teknir upp
fyrr en með haustinu.
Skákmótið
í HafnarfirSi
í 7. UMFERÐ skákmótsins í
Hafnarfirði gerðu Benkö og Frið-
rik jafntefli, einnig Ingi R. og
Kári Sólmundsson, og Jón Krist-
jánsson og Árni Finnsson. 8. um-
ferð er í kvöld.
— Rússar
Frh. af bls. 1.
rússneski fulltrúinn skyldi hafna
tillögunum skilyrðislaust og fara
um þær hinum háðulegustu orð-
um. Það meira að segja án þess
að allar tillögur Vesturveldanna
í þessu máli væru fram komn-
ar og án þess að Rússum geti
hafa gefizt tími til að grannskoða
byr j unartillögurnar.
Strax eftir að þetta varð kunn
ugt, héldu þeir Eisenhower for-
seti og Dulles utanríkisráðherra
fund með sér í Washington og
skömmu síðar gaf forsetinn út
sérstaka tilkynningu um þetta
mál.
Hann sagðist harma þessa af-
stöðu rússneska fulltrúans og
taldi það valda sárum vonbrigð-
um hjá öllum friðelskandi mönn
um í heiminum, að Rússarskyldu
hafna svo mikilvægri tillögu og
það með háðsorðum og full-
komnu ábyrgðarleysi. Benti
forsetinn á það, að undarlegt
væri að þessi skyndilegu um-
skipti í afvopnunarumræðunum
kæmu rétt í sama mund og Rúss-
ar væru að hreykja sér af því
að geta sent gereyðingarvopn
hvert á land sem er.
Eisenhower sagði: •
— Þrátt fyrir þennan afturkipp
munu Bandaríkin aldrei láta af
viðleitni sinn til að finna leið sem
geti bjargað mannkyninu fráger
eyðingarstyrjöld.Þau munu enn
sem fyrr leitast við að koma á
tryggum friði með frelsi og jafn-
rétti allra þjóða.
í tilkynningunni kveðst Eisen-
hower ekki skilja hvað valdi
þessari skyndilegu ákvörðun
Rússa. En ef þeir haldi fast við
neitun sína, sé engu líkara en að
þeir ætli sér að steypa mannkyn
inu út í hyldýpisótta styrjaldar-
hættunnar.
Bréf:
Hver er „síldarkángur" ?
Hr. ritstjóri. .
í TILEFNI af grein, sem birtist
í blaði yðar í dag, vil ég leyfa
mér að gera nokkra athugasemd
og biðja yður að birta bréf þetta
í blaðinu.
Greinin ber yfirskriftina „Síld-
arkóngurinn 1957 er ungur Sand-
gerðingur, sem er meðal mestu
sjósóknara flotans,“ og fjallar um
hinn ágæta aflamann Eggert
Gíslason, skipstjóra á v.b. Víði II.,
og velgengni bátsins á nýlokinni
síldarvertíð. í greininni stendur:
„þar (þ. e. á síldarvertíð nyrðra)
hafði Víðir orðið með hæstan hlut
allra skipa í síldveiðiflotanum og
því hinn réttkjörni „Síldarkóng-
ur 1957“.“
Af þessu er ekki vel ljóst hvort
það er fremur skipstjórinn eða
skipið, sem að dómi greinarhöf-
undar á téðan titil, enda skiptir
það litlu máli. Hitt er mjög vill-
andi og hefur, að ég held, aldrei
tíðkazt í sambandi við síldveið-
amar, að telja annan síldarkóng
en þann, sem fengið hefur mestan
afla, en á þessu sumri var það
ekki Víðir II., heldur Snæfell frá
Akureyri, eign Útgerðarfélags
KEA h.f. — Skipstjóri á Snæfelli
er Bjarni Jóhannesson frá Flatey,
alþekktur dugnaðar- og aflamað-
ur..
Máli mínu til stuðnings vil ég
geta þess, að undanfarin ár, þegar
hinn kunni útgerðarmaður og
skipstjóri Guðmundur Jörunds-
son hefur verið aflahæstur á
skipi sínu Jörundi hefur aldrei
verið minnzt á annan síldarkóng
jafnvel þótt ýmsir bátar hafi ver-
ið með hærri aflahluti.
í fyrrnefndri grein, eftir að
síldarkóngsins hefur verið getið,
er rætt um v.b. Mumma og afla
hans á vertíðinni og síðan segir:
„Á milli þessara tveggja Gerða-
báta komu togarinn Jörundur og
Helga frá Reykjavík.“ Sem sagt:
Víðir, síldarkóngur, og þar næst
koma í röð Jörundur, Helga og
Mummi, en aflahæsta skipsins
Snæfells er að engu getið.
Ég vil taka það fram, að því
fer fjarri að ég vilji kasta rýrð
á þau góðu skip og skipstjóra,
sem getið er um í margnefndri
grein, en það er ósk mín og vafa-
laust vilji yðar líka, að því sé
ekki haldið leyndu fyrir lesend-
um blaðsins hver sé hinn rétti
„Síldarkóngur 1957“.
Að síðustu vil ég tjá yður, að
ég er þess fullviss að Bjarni Jó-
hannesson, skipstjóri, muni vera
fús til þess að ræða við frétta-
mann frá blaði yðar, verði eftir
því leitað.
Með þökk fyrir birtinguna.
Virðingarfyllst,
P. t. Reykjavík, 28. ág. 1957.
Gísli Konráðsson.
★
Blaðið vill geta þess að það
sjónarmið var látið ráða hvaða
skip í síldveiðiflotanum væri með
mest aflaverðmæti, en það var
Víðir II. Það var að sjálfsögðu
ekki tilgangurinn með grein þess-
ari að varpa neinum skugga á
Bjarna Jóhannesson skipstjóra á
Snæfellinu, eða aðra þá skip-
stjóra á síldarflotanum, sem skar-
að hafa fram úr á þessari vertíð
og fleirum.