Morgunblaðið - 12.10.1957, Side 8

Morgunblaðið - 12.10.1957, Side 8
MORCVNBI AÐIÐ Laugardagur 12. okt. 1957 8 Otg.: H.t. Arvakur. Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarnj Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Öla, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar K.ristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og algreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480 Askriftargjald kr 30.00 á mánuði ínnanlands. í lausasölu kr 1.50 eintakið. FJÁRMÁLAÖNGÞVEITI EFTIR EINS ÁRS VINSTRI STJÓRN SÚ mynd af efnahagsástand- inu á íslandi, sem blasti við þingi og þjóð, þegar A.lþingi Var sett í fyrradag, var vissulega hin ömurlegasta. Eftir að vinstri stjórnin hafði setið rúmlega 1 ár að völdum lagði Eysteinn Jónsson fjármálaráð- herra hennar fram frumvarp með nær 100 millj. króna greiðslu- halla. í greinargerð fjármálaráðherr- ans fyrir fjárlagafrumvarpinu er m. a. skýrt frá því að ríkistekj- ur hafi „það, sem af er árinu, brugðist verulega frá því sem Alþingi áætlaði þær í fjárlögum þessa árs“. Vegna þeirra staðreynda, að boginn er brostinn og skattar og tollar innheimtast ekki lengur í samræmi við áætlun fjárlaga, er nú lagt til að þessir tekjuliðir verði áætlaðir rúmlega 41 millj. kr. lægri en á fjárlögum yfir- standandi árs. Óvarlegt væri að draga af þessu þá ályktun, að Eysteinn Jónsson hefði nú gert sér ljós- ar afleiðingar skattpíningar- stefnu sinnar. Hitt er miklu líklegra að hann og vinstri stjórnin muni á næstunni freista þess að finna nýjar leið ir til þess að kreista enn aukna skatta og tolla út úr þjóðinni. Lækkun framlaga til verklegra framkvæmda Þetta fjárlagafrumvarp vinstri stjórnarinnar ber augljósan svip ört vaxandi dýrtíðar og verð- bólgu í landinu. Á því er stór- felldur greiðsluhalli og allar greinar fjárlaga hækka, nema 13. greinin, þar sem eru framlög til verklegra framkvæmda. Þær fjárveitingar eru lækkaðar um 8 milljónir króna. Verðbólgu- og upplausnar- stefnan segir til sín. Bákn hins opinbera rekstrar heldur áfram að þenjast út og minna verður aflögu til almenns uppbygging- arstarfs og verklegra fram- kvæmda í landinu, þrátt fyrir sligandi tolla- og skattabyrðar á almenningi. Heildarniðurstöðutölur fjár- lagafrumvarpsins eru á sjóðsyfir- liti tæpar 852 millj. króna. í fjárlögum yfirstandandi árs er niðurstöðutalan hins vegar 811,6 millj. króna. í fjárlagafrumvarp- inu, sem lagt var fyrir Alþingi haustið 1956 var heildarniður- stöðutala á sjóðsyfirliti 713,4 millj. króna. Geigvænlegur greiðsluhalli Eins og fram kemur í frum- varpinu er gert ráð fyrir rúm- lega 71 millj. kr. greiðsluhalla á ríkisbúskapnum samkvæmt því. En þar að auki kemur 20 millj. kr. útgjaldaliður vegna niður- greiðslu á verðlagi landbúnaðar- afurða. Greiðsluhallinn á fjár- lagafrumvarpinu, eins og það er lagt fram, er því raunverulega rúmlega 91 millj. króna. Þessi greiðsluhalli, sem nú er gert ráð fyrir, er meira en þrisv- ar sinnum hærri en nokkru sinni hefur áður þekkzt hér á landi. Þegar minnihlutastjórn Sjálf- stæðismanna fór með völd í nokkra mánuði árið 1949 til 1950 hafði hún forystu um flutning tillagna, er miðuðu að því að tryggja greiðsluhallalausan ríkis- búskap og heilbrijfðan rekstur atvinnutækjanna. Samsteypu- stjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, sem síðar var mynduð, framkvæmdi þess- ar tillögur. Allt frá þeim tíma hafa fjárlög verið afgreidd greiðsluhallalaust og verulegur greiðsluafgangur oftast orðið á ríkisbúskapnum. Hefur verið unnt að verja því fé til margs konar nytsamlegra framkvæmda. Vinstri stjórnin hefur aðeins setið rúmlega eitt ár að völd- um. En á þessu eina ári hef- ur sú stórfellda breyting gerzt, að fjárlagafrumvarp er lagt fram með nær 100 millj. kr. greiðsluhalla. Ef til vill sýnir ekkert greinilegar en þessi staðreynd, hversu ömur- leg sú stjórnarforysta er, sem þjóðin nú býr við. FuIIkomið úrræðaleysi í sjálfri greinargerð fjárlaga- frumvarpsins lýsir ríkisstjórnin þvi svo yfir að hún sjái engin úrræði, engar leiðir til þess að ráða fram úr vandanum. Er þar m. a. komizt að orði á þessa leið: „Ríkisstjórnin telur sér engan veginn fært að ákveða það, án náins samstarfs við þingflokka þá, sem hana styðja, hvernig leysa skuli þann vanda, sem við blasir í efnahagsmálum lands- ins, þ. á. m. hvernig mæta skuli þeim mikla halla, sem fram kem- ur í fjárlagafrumvarpinu. Ríkis- stjórnin hefur ekkert tækifæri haft til þess að ráðgast við stuðningsflokka sína á Alþingi' um fjárlagafrumvarpið né við- horfið í efnahagsmálunum, eins cg það er nú, eftir reynsluna á þessu ári“. Hefur öllu vesældarlegri og vonlausari yfirlýsing nokkurn- tima verið gefin af nokkurri ís- lenzkri ríkisstjórn?! Áreiðanlega ekki. Vinstri- stjórnin lýsir því yfir í sjálfri greinargerðinni í fjárlagafrum- varpi sínu að hún hafi „ekkert tækifæri haft til þess að ráðg- ast við stuðningsflokka sína á Alþingi um fjárlagafrumvarpið né viðhorfið í efnahagsmálun- um“. Vesalings ráðherrarnir! Hvar eru nú öll þeirra „nýju úrræði" og „varanlegu leiðir", sem þeir lofuðu þjóðinni, er þeir tóku við völdum? Og hvar er nú „úttekt“ Hermanns Jónassonar á þjóðarbúinu? Allt þetta virðist vera gleymt og grafið. Sú stað- reynd stendur eftir að ríkis- stjórnin á engin úrræði og hef- ur ekki einu sinni haft „tæki- færi til þess að ráðgast við stuðningsflokka sína á AI- þingi“ um viðhorfin í efna- hagsmálunum. Hvílík eymd og uppgjöf. Hvílíkt hyldýpi nið- urlægingar og úrræðaleysis. UTAN UR HEIMI Kyrrsettur vísindamaður Harmsaga—Gifting EINN þeirra manna, sem átt hafa stærstan þátt í byggingu „ráðstjórnarmánans", er 62 ára Peter Kapitsa — hann var kyrrsettur gamall prófessor, Peter Kapitsa að nafni, sem er forseti deild- arinnar, er fjallar um geimför og geimferðir við rússnesku vísindaakademíuna. Kapitsa er sonur hershöfðingja í her Rússakeisara og kom til Englands sem flóttamaður árið 1921. Hæfileikar hans komu brátt í ljós, og hann fékk styrki til að halda áfram námi sínu. Hann vann á Cavendish-rann- sóknarstofnuninni í Cambridge undir handleiðslu Rutherfords lávarðar. Hann var kosinn heiðursmeðlimur í Konunglega vísindafélaginu í Bretlandi, en sá heiður hefur engum útlend- ingi hlotnazt síðastliðin 200 ár. Árið 1935 heimsótti Kapitsa Sovétríkin til að taka þátt í al- þjóðlegri ráðstefnu vísinda- manna, en þegar hann ætlaði að fara aftur til Englands. neitaði Stalin honum um brottfararleyfi og kyrrsetti hann í Sovétríkjun- um. Síðustu 7 árin, sem Stalin lifði, var Kapitsa sviptur öllum ábyrgðarstörfum sínum, þar sem hann var andvígur kjarnorku- vígbúnaði. En þegar Stalin féll frá, fékk hann aftur störf sín og varð einn af forustumönnum rússneskra vísinda. Sorg í Biarritz Lítið barn hefur dáið sviplega, og Frakkland er í uppnámi. Barnið var 14 mánaða gamall sonur kvikmyndaleikarans fræga Daniels Gelins, og konu hans Sylvie, sem áður var tízkudama fyrir Christian Dior. Pascal litli, en svo hét sonurinn, lézt í sjúkra húsi í Biafritz, eftir að hann hafði etið nokkrar töflur, sem einhver úr þjónustuliði foreldra hans hafði fengið hjá lækni við gigt. Hjónin höfðu tekið á leigu sumarhús í Biarritz. Þau skyldu Pascal eftir í umsjá barnfóstru, meðan þau fóru á kvikmynda- hátíð suður til San Sebastian á Spáni. Þegar hátíðin stóð sem hæst var Daniel Gelin kallaður í símann og fékk þær upplýs- ingar hjá lögreglunni í Biarritz, að Pascal litli væri veikur. For- eldrarnir lögðu strax af stað í bíl, og við landamærin lágu skilaboð um, að veikindi drengs- ins væru mjög alvarleg. Áður en hjónin komust á leiðarenda, hafði hann misst meðvitund, og nokkrum tímum síðar dó hann, enda þótt kallaðir hefðu verið læknar hvaðanæva að, m.a. tveir eiturlyfja-sérfræðingar frá París. Atburðurinn fékk mjög á menn í Frakklandi, þar sem Gelin á mikinn fjölda aðdáenda fyrir ótvíræða karlmannlega töfra á hvíta léreftinu. Áður fyrr var hann þekktur fyrir ástleitni sína og mikla kvenhylli jafnt í einka- lífi sínu sem í kvikmyndum. Kornungur gekk hann að eiga leikkonuna Danielle Delorme, sem var enn yngri en hann. Hjónaband þeirra var storma- samt, og þau skildu. Síðar kvænt- ist hann Sylvie, sem strax hætti hjá Dior, enda þótt hún ætti þar vísan frama. Daniel Gelin varð mjög umhyggjusamur heimilis- faðir, þegar Pascal kom í heim- inn. Konan og barnið urðu aðal- áhugamál hans. Frönsku blöðin hafa áhyggjur af því, hvernig hann verði við þessari miklu sorg. Árin, sem hann var kvænt- Parísar og síðar til St. Malo með lík Pascals litla til greftrunar, var auðséð, að Daniel var niður- brotinn og næstum óþekkjanleg- ur. Hann gat ekki gefið skilj- anlegt svar við neinu, sem hann var spurður um. Hann á samúð allrar frönsku þjóðarinnar á þessari þungbæru stund lífs síns. Sophia og leikstjórinn Þau tíðindi gerðust ekki alls fyrir löngu, að hin margumtalaða Sophia Loren, ítalska leikkonan, sem frægust er fyrir líkamsvöxt sinn, gekk í hjónaband við mann- inn, sem gerði hana fræga, ítalska leikstjórann Carlo Ponti, smá- vaxinn, sköllóttan mann, sem er 20 árum eldri en hún. Ponti var kvæntur áður og fékk ekki skiln- að á Ítalíu. Þau létu því gefa sig saman í Mexíkó, en voru bæði fjarstödd, sendu aðeins fulltrúa sína á staðinn. ítalskir lögfræð- ingar draga í efa, að giftingin Ein af síðustu myndunum af Gelin-hjónunum með Pascal litla son sinn, sem missti lífið vegna kæruleysis barnfóstrunnar. ur Danielle Delorme, var hann hvað eftir annað lagður inn á hressingarhæli fyrir taugaveiklað fólk, þegar lífið varð honum of þungbært og „allt fór í mola“, eins og hann komst að orði sjálf- ur. Þegar þau hjónin komu til sé lögmæt. Sophia Loren og Carlo Ponti hafa keypt sér hús í Svisslandi og ætla að búsetja sig þar, en lögin í Svisslandi eru frábrugðin ítölskum lögum. — Sophia er nú 23 ára gömul og ku vera hamingjusamari en nokkru sinni fyrr. Sophia Loren og maður hennar, Carlo Ponti, á leið til Sviss- lands, áður en þau voru gefin saman. Sophia er mun hærri en eiginmaðurinn, eins og myndin gefur til kynna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.