Morgunblaðið - 27.10.1957, Side 1
24 siður
Öflugt sturf S. U. S.
Zhukov marskálkur fallinn
14. þing sambandsins hófst í gær
14. ÞING Sambands ungra Sjálfstæðismanna hófst í gaermorgun í
Siálfstæðishúsinu i Reykjavík. Asgeir Pétursson, íormaður sam-
bandsins, setti þingið, en síðan flutti formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Ólafur Xhors, ræðu. Talaði hann um stjórnmálaviðhorfið og
hugsjónir og hlutverk æskunnar. Var ræðunni mjög vel tekið og
hylltu þingfulltrúar flokksformanninn að henni lokinni með dynj-
andi lófataki.
Eftir hádegi fluttl Asgeir Pétursson skýrslu sambandsstjórnar
en síðan hófust umræður um ályktanir. Voru 3 ályktanir afgreiddar
í gær, — um kjördæmamálið, félagsmál æskunnar og menningar-
mál. t gærkvöldi fóru þingfulltrúar í Þjóðleikhúsið, en fundir
hefjast aftur kl. 10 f. h. í dag í Vonarstræti 4. Hádegisverðarboð
miðstjórnar og þingflokks Sjálfstæðismanna er síðan í Sjálfstæðis-
húsinu og eftir það halda þingfundir þar áfram. t gærkvöldi höfðu
verið skráðir rúmlega 140 þingfulltrúar.
Ráðstefnu SUS um framtíð landbúnaðarins lauk í gærmorgun.
Var áÖur talinn annar
valdamesti maður
Rússlands
Skýrsla Asgeirs Péturssonar
í skýrslu formanns S.U.S. kom
fram, að sambandið hefur unnið
að margvíslegum verkefnum á
kjörtímabili fráfarandi stjórnar,
en hún var kosin á sambands-
þinginu í Hafnarfirði í nóvember
1955.
Sambandið hefur gengizt fyrir
t mótum á ýmsum stöðum á land-
inu á þessum tíma, fulltrúaráð
þess hefur komið tvisvar saman,
tvö fjórðungsþing hafa verið
haldin, sambandið hefur annazt
útgáfu tímaritsins Stefnis og séð
um æskulýðssíðu Morgunblaðs-
ins.
Þá hafa verið stofnuð á sl.
8 árum 5 ný félög ungra Sjálf-
stæðismanna: Xýr í Kópavogi,
Neisti í Vestur-Barðastrand-
arsýslu og félög í Eyjafjarð-
arsýslu, Norður-Múlasýslu og
Suður-Múlasýslu.
Sambandið gekkst fyrir kynn-
Ingarkvöldi í Reykjavík fyrir
unga Sjálfstæðismenn utan af
landi. Stefnir, tímarit sambands-
ins stóð fyrir kynningu á ung-
verskum listum. Þá var boðið
hingað tékkneskum fræðimanni
og útlagaforingja, dr. Lumir
Soukup. Komið var upp vísi að
bókasafni S.U.S.
Loks hefur ýmislegt verið gert
til að treysta samvinnu S.U.S. og
Asgeir Pétursson
einstakra sambandsfélaga og til
að styðja starfsemi félaganna.
Rætt um kjördæmamálið
Er Ásgeir Pétursson hafði flutt
skýrslu sína var gert stutt fund-
Framh. á bls 2
Moskvu, 26. okt.
Einkaskeyti frá Reuter.
í GÆRKVÖLDI tilkynnti Tass-
fréttastofan rússneska, að Georgi
Zhukov, marskálkur og landvarn
arráðherra Sovétríkjanna, væri
kominn heim úr hinni löngu ferð
sinni til Júgóslavíu og Albaníu.
En hálftíma síðar gaf Tass-
fréttastofan út aðra tilkynningu
á þessa leið:
— Framkvæmdaráð Sovét-
ríkjanna hefur ákveðið að
leysa Georgi Zhukov mar-
skálk frá öllum störfum
hans sem landvarnarráð-
herra.
í stað hans hefur fram-
kvæmdaráðið skipað í sæti
landvarnarráðherra, Malin-
ovsky marskálk.
Engar frekari skýringar fylgdu
þessari tilkynningu.
— O —
Fregn þessi um lausn Zhukovs
hefur komið mjög á óvænt. Síð-
an þeir Molotov og Malenkov
féllu hefur hann verið talinn
annar valdamesti maður Sovét-
ríkjanna, næst á eftir Krúsjeff
og vekur þetta því mikla at-
hygli.
Að undanförnu hafa stjórn-
málafréttaritarar þó stundum
vikið að því, að það sé herfor-
ingjaklika ein voldug, sem hafi
haft Zhukov á oddinum, án þess
að hann sjálfur héldi um valdið.
Má vera, að það sé einmitt
Malinovsky, sem er hinn raun-
verulega sterki maður í Rauða
hernum. Það vekur einnig athygli
í þessu sambandi að fyrir fáum
dögum var gefin út tilkynning
um það, að Konstantin Rokossov-
sky marskálkur hefði verið skip-
aður yfirmaður herafla Rússa í
Kákasus. Var þetta gert í fjar-
veru Zhukovs og einnig þótti það
undarlegt að tilkynning skyldi
gefin út um herstjórn í ákveðn-
um héruðum. En það hefur aldrei
verið gert áður.
— O —
Rodion Malinovsky er 58 ára að
aldri. Hann gat sér mikillar
frægðar á styrjaldarárunum, en
þá stjórnaði hann sóknarherjum
Rússa á Balkanskaga. Orðróm-
ur hefur einnig hermt að hann
hafi stjórnað hernaðaraðgerðum
Rússa í Ungverjalandi fyrir einu
ári.
Radíóskeyli frá gervi
tunglinu hælta
MOSKVU, 26. okt. — Moskvu-
útvarpið sagði í dag, að nú væru
rafhlöðurnar í gervitunglinu
eyddar. Hefðu radiomerki frá því
hætt sl. nótt og yæri ekki búizt
við að þau heyrðust meira.
Hins vegar heldur tunglið á-
fram að snúast um jörðina og
virðist ekki draga úr hraða þess.
— Reuter.
Georgi Zhukov, hinn valdamiklf
maður er fallinn
Rodion Malinkovsky tekur við
Verður nýtt Komin-
tern stofnað 7. nóv.?
LONDON, 26. okt. — Það hefur nú orðið uppvíst, að fyrirhugað er
Æskan vill ckki ríkisstfórn, sem
svíkur ioiorÖ sín
Ræða Ólafs Thors við setningu þings
S.U.S. i gær
Ólafur Xhors
Ungir Sjálfstæðismenn!
f ÞESSU stutta ávarpi er mér
ekki ætlað að gera grein fyrir
þeim málum, sem stjórn S.U.S.
leggur fyrir fundinn, enda eru
mér þau fæst kunn. Sá háttur
hefur alltaf verið á hafður, að
ungir Sjálfstæðismenn starfi al-
veg sjálfstætt, þótt fyrir komi,
að þeir kynni sér sjónarmið
flokksstjórnarinnar, ef um
mikilvæg nýmæli er að ræða.
Fer vel á þessu, því að einmitt
með þeim hætti nýtist bezt hug-
myndaauðgi, framfaraþrá og orka
æskunnar.
Flokksráð Sjálfstæðisflokksins
telur sig að sjálfsögðu ekki bund-
ið af samþykktum þings ungra
Sjálfstæðismann*. En engin
ástæða er til að leyna því, að
margt af því, sem mest prýðir
Sjálfstæðisflokkinn, hefur sprott-
ið á akri unga fólksins. Er mér
einkar ljúft að játa þetta og bera
fram af hendi flokksstjórnarinn-
ar verðugar þakkir fyrir.
— O —
Ekki er mér heldur ætlað að
rekja stjórnmálasögu síðustu
missera. Enda verður það ekki
gert til neinnar hlítar nema
löngu máli. Ég læt nægja að
minna á, að alveg furðulegt er
að jafn duglítilli ríkisstjórn sem
þeirri er nú á að heita að fari
með völd, skuli á jafn skömm
um tíma hafa tekizt að koma jafn
Framh. á bls. 9
að lialda mikla ráðstefnu kommúnistaflokka um allan heim í
Moskvu á 40 ára afmæli rússnesku byltingarinnar 7. nóvember n.k.
Er það álit margra vestrænna stjórnmálafréttaritara að þar eigi
að stofna nýtt komintern fyrir kommúnistaflokka allrar veraldar.
Rússnesk yfirvöld hafa enga
tiikynningu gefið út um þennan
fund. En í dag birti kínverska
kommúnistafréttastofan tilkynn-
ingu, þar sem skýrt er frá því
að Mao Tse Tung, forseti Kína,
verði formaður kínverskrar
verði eins konar fundur hinna
fjögurra stóru manna kommún-
ismans, Krúsjeffs, Mao Tse-tungs,
Gomulka og Títós, þar sem þeir
semji nýjar reglur fyrir starf-
sem kommúnistaflokka um allan
sendinefndar sem fer til Moskvu heim og að samtímis verði stofn-
7. nóveipber.
Það er álit manna að í Moskvu
| að nýtt Alþjóðasamband komm-
únista.
Forsætisróðherrar NATO-land-
aitna d lundi í Parás í desember
WASHINGTON 26. okt. — í dag
lauk ráðstefnu þeirra Eisenhow-
ers forseta og Harold Macmillan
, forsætisráðherra Bretlands. —
muni verða boðið að sitja ráð- , q.^|u þejr ut tilkynningu að ráð-
PARÍS 26. okt. — Það hefur nú
verið tilkynnt, að öllum forsæt-
isráðherrum aðildarríkja NATO
herrafund Atlantshafsbandalags-
ins i desember nk. Þegar er vit-
að að John Diefenbaker forsæt-
isráðherra Kanada mun sitja
ráðstefnuna.
Það er talið að þessi ákvörðun
sé tekin að frumkvæði Paul
Henri Spaak. Verða ræddar á
fundinum tillögur um miklu nán-
ara landvarnasamstarf en áður
hefur tíðkazt í Atlantshafsbanda
laginu.
stefnunni lokinni, þar sem þeir
leggja áherzlu á að styrkja sem
mest landvarnar samstarf vest-
rænna þjóða. Þess hafi aldrei
verið meiri þörf en nú og sjáist
það m. a. af vaxandi gorgeir og
hótunum Rússa.
Það er ætlun stjórn Bretlands
og Bandaríkjanna að vinna að
þvi að nýjar áætlanir verði gerð-
ar um eflingu landvarnanna og
munu þessar áætlanir verða lagð-
ar fyrir ráðherrafund Atlants-
hafsbandalagsins, sem haldinn
verður í desember nk.
Þe»ar skriðan
fellur af siað
MONTREAL, 26. okt. — Enn einn
hinna kanadísku fimmbura,
Cecile Dionne ætlar að fara að
gifta sig á næstunni. Brúðgum-
inn verður 26 ára útvarpsvirki
að nafni Philippe Langlois. Syst-
ir hennar Annette var að gifta
sig fyrir hálfum mánuði. Þær
systurnar eru 23 ára, en ein
þeirra er dáin.