Morgunblaðið - 27.10.1957, Side 14
14
MORGUHBI AÐIÐ
Sunnudagur 27. okt. 1957
NESTI------------------------
Efofið þið komið I
IMESTI, Eossvogi
— Bezt að auglýsa i Morgunblabinu —
Málflutningsskrifstofa
Einar B. Guðmundsson
Gu<$!augur Þorláksson
Guðmundur Péiursson
Aðalstræti 6, III. hæð.
Símar 1200? — 13202 — 13602.
Þungavinnuvélar
Sími: 34-3-33
ÓLÍKUR
ÖLLUM ÖÐRUM PENNUM HEIMS!
Eini sjálfblekungurinn
með sjálf-fyllingu ...
Brautryðjandi í þeirri nýjung
er Parker 61, vegna þess að
hann einn af öllum pennum
er með sjálf-fyllingu.
Hann fyllir sig sjálfur — eins og myndin
sýnir, með háræðakerfi á fáum
sekúndum. — Oddinum er aldrei
difið í blekið og er hann því ávallt
skínandi fagur.
Til þess að ná sem beztum árangri
við skriftir, notið Parker Quink
í Parker 61 penna.
Einkaumboðsmaður: Sigurður H. Egilsson, P. O. Box 283 Beykjavík
Viðgerðir annast: Gleraugnaverzlun Ingólfs Gíslasonar, Skólavörðustíg 5, Rvík
7-412*
— Reykjavikurbréf
Framh. af bls. 13
Úrslitin urðu samt þau, að
Sjálfstæðismenn fengu nú einir
hreinan meirihluta í stúdenta-
ráði. Að vísu ekki hreinan meiri-
hluta allra greiddra atkvæða-
eins og í fyrra. Þó bættu þeir
við sig atkvæðum frá því þá,
og stórbættu hlutfall sitt miðað
við kosningarnar 1955. Sjálfstæð-
ismenn mega því vel við una.
Að vísu er rétt að hafa þann
fyrirvara á um þá eins og aðra,
að hér er ekki um hreina flokka-
lista að ræða, heldur ganga hinar
fimm fylkingar fram undir ann-
arlegum nöfnum. Er því ekki um
hreina flokkskiptingu að ræða,
þótt svo sé daglega talað.
Gleðjast yfir
óförum
sanistarfsmanna
Næst Sjálfstæðismönnum mega
Framsóknarmenn una sínum hlut
bezt, Þeirra fylgi hefur verulega
vaxið frá því sem áður var. Það
er út af fyrir sig eftirtektarvert.
Þó ber þess að gæta, að meðal
hinna svokölluðu .vinstri manna
hefur fylgið oft sveiflast til á
víxl frá ári til árs, gagnstætt því,
sem um Sjálfstæðismenn er, því
að Vaka hefur stöðugt haldið
forustu, oft ein haft meirihluta
kjörinna fulltrúa og ætíð verið
langstærsti hópurinn. Reynzlan
sker úr því, hvort fylgisaukning
Framsóknarmanna er bráða-
birgða fyrirbæri eða ekki.
Vert er að veita því sérstaka
athygli, hversu Tíminn er ánægð-
ur yfir því að hafa unnið fylgi
einmitt frá sínum eigin samstarfs
flokki, kommúnistum. Hvernig á
samstarf að blessast, þegar flokk-
arnir sitja stöðugt á svikráðum
hver við annan, og hafa það fyrir
sitt æðsta áhugamál að reita
nokkur atkvæði af hinum. Fram-
sóknarflokkurinn hefur aldrei
getað losað sig við þennan hugs-
unarhátt með hverjum, sem hann
hefur unnið. I því er m.a. að leita
skýringarinnar á því af hverju
samstarfsslit Framsóknar við
aðra flokka verða ætíð með end-
emum.
Sjálfsblcklíing
En er það þá ekki gott, að
vinna með kommúnistum í þeim
yfirlýsta tilgangi að koma þeim
á hné? Ekki skal á móti þvi
mælt, að út af fyrir sig er það
til góðs, að fylgi kommúnista
minnki. Hitt er fullkomin sjálfs-
blekking að telja sér trú um, að
vera kommúnista í ríkisstjórn-
inni nú sé þeim til óþurftar. Fylg
istap þeirra meðal íslenzkra
stúdenta er ekkert einstakt fyrir-
bæri. Flokkur þeirra hefur hrun-
ið saman hvarvetna þar er frjáls-
ar kosningar hafa farið fram að
undanförnu. Fylgistap þeirra hér
mundi sennilega hafa orðið mun
meira, ef þeir nytu ekki þess
skjóls að fá að standa innan dyra
í Stjórnarráðinu. Út af fyrir sig
geta þeir látið sér í léttu rúmi
líggja bráðabirgða fylgistap, ef
þeir geta notað tímann til að
búa svo í haginn, að næsta sókn-
arlota verði gerð við hagstæðari
aðstæður en áður. Engum getur
dulizt, að þannig er einmitt farið
hér á landi. Kommúnistar hafa
fengið færi til að búa um sig í
þjóðfélaginu einmitt á sama
tíma og þeir sæta fyrirlitningu
og skömm hvarvetna annars stað-
ar. Er því alger sjálfsblekking,
ef einhverjir Framsóknarmenn
trúa því í raun og veru, að þeir
séu að kema kommúnistum á
hné með því að vinna með þeim.
Uppbót Einars
Kommúnistar láta að visu
marga auðmýkingu yfir sig
ganga bæði í orði og verki.
Sjálfsagt þykir þeim það engin
skemmtun. En þeir vita, hvað
þeir eiga mest að meta. Fram-
koma þeirra hér á landi nú verð-
ur trauðla skýrð með öðum
hætti en þeim, að rússnesk yfir-
völd meti meira hagsmuni sína
af því, að hafa kommúnista í
stjórn á íslandi, en þótt komm-
únistaforingjarnir hér þurfi að
þola margháttaða Htilsvirðingu
af samstarfsflokkunum. íslenzk-
ir kommúnistar fá og sínar upp-
bætur. Einar Olgeirsson er gerð-
ur að forseta neðri deildar elzta
þjóðþings veraldar, eftir að hann
er búinn að dvelja sumarlangt
ásamt fjölskyldu sinni austan við
járntjald, auðvitað á kostnað vald
hafanna þar. Dettur nokkrum í
hug, að Einar dveldist ár eftir
ár mánuðum saman meðal vald-
hafanna í ríkjum kommúnista, ef
þeir teldu hann ekki sinn einka-
vin og verðan sérstakra verð-
launa fyrir það, hvernig hann
hefur komið hinni kommúnist-
isku ár fyrir borð á íslandsmið-
um?
Það fer vel um farþegana með-
an flugvélín ber þá hrati og ör-
ugglega til áfangastaðarins, enda
fjölgar þeim, sem kjósa helzt að
ferðast með flugvélum Loftleiða
milli landa.
HRAÐI
Áætlunarferðir frá íslandi til BANDARÍKJANNA,
STÓRA-BRETLANDS, NOREGS, SVÍÞJÓÐAR,
DANMERKUR og ÞÝZKALANDS
- ÞÆGINDI -