Morgunblaðið - 27.10.1957, Side 15
Sunnudagur 27. okt. 1957
MORCVNBTAÐIÐ
15
SíBasti sumardagur
„Heyri ég sætan svanaklið,
sumarið er að kveðja“.
VALDASTÖÐUM 25. okt.: — í
lok þessa sumars, sem við kveðj-
um í dag, getum við sagt með
sanni, að hafi verið eitt hið hag-
stæðasta, sem komið hefur
hér á Suðurlandi um langt ára-
bil. Munu eldri menn sammála
um það, að þeir muni vart aðra
eins sumarblíðu og góðviðri yfir-
leitt.
Heyfengur hjá bændum mun
yfirleitt mikill og góður. Og ættu
þeir því' að geta öruggir mætt
komandi vetri, jafnvel þó að syrti
ofurlítið að, hvað veðurfar áhrær
ir. Uppskera í görðum mun hafa
verið í meðallagi, en samt nokk-
uð misjöfn. Kenna sumir um of-
miklum þurrkum, sem dregið
hafi úr eðlilegum vexti. Trjá-
gróðri fór fram með allra bezta
móti. Vænleiki dilka var nokk-
uð misjafn. Sumir fengu betri
vigt en sl. ár, aðrir til muna
lakari. En heildaryfirlit er enn
ekki fyrir hendi hér.
I allt vor og sumar hefir verið
unnið að landþurrkun með skurð
gröfu á vegum Ræktunarsam-
bands Kjalarnessþings. Unnið
hefir verið hjá 12 bændum.í Kjós
inni og tveimur á Kjalarnesi. Um
heildarafköst er mér ekki kunn-
ugt ennþá. Einnig var unnið hér
í allt fyrrasumar að uppþurrk-
un, var þá unnið hjá 11 bænd
um. Eru samt eftir nær 20 bænd-
Kvikmynd
ÉG veit ekki hvað mín elskulegu
sóknarbörn fara að haldaummig,
þegar ég hvað eftir annað fer að
skrifa um kvikmyndir og hvetja
þau til að fara á bíó. í þetta skipti
er það amerísk mynd, sem sýnd
er í Nýja bíói. — Annars skil ég
ekkert í forstöðumanni kvik-
myndahússins, að velja myndinni
nafnið „Á guðs vegum“. Slíkt
er óheppileg auglýsing á vorri
tíð. Fjöldi manna heldur nefni-
lega, að um leið og farið er inn
á guðs vegi, fari lifið að vera leið-
inlegt fyrir alvöru. En kvikmynd
in um manninn, að nafni Pétur,
sýnir allt annað. Á vorum dögum
hefir verið gerður urmull af kvik
myndum, sem sýna hið ævintýra-
lega við starf og líf ýmsra stétta.
t. d. sjómanna, lækna, vísinda-
manna o.s.frv. — Þessi kvikmynd
fjallar um líf prests, sem dáinn
er fyrir nokkrum árum, féll frá
á bezta aldri. Hann var skozkur
að þjóðerni, fór ungur til Amer-
íku, ruddi sér braut með líkam-
legu og andlegu erfiði, eins og
gengur. Síðustu árin var hann
prestur Bandaríkjaþingsins. En
það.sem einkenndi þennan mann,
var lífsgleði hans, ferskur þrótt-
ur og heilbrigt lífsviðhorf. Að
honum látnum ritaði kona hans
bók um hann, sem hún nefndi
„A man called Peter“. Sú bók
er uppistaða kvikmyndarinnar.
Einkalíf þeirra hjóna, ástarævin-
týri, barátta við veikindi um
tíma, stríð við það að koma lífi
og fjöri í dauðan söfnuð, _ allt
þetta kemur fram á þann hátt, að
alvaran er blönduð léttri giað-
værð og kímni. Heilbrigt trúar-
líf og lífsspeki er boðuð með
þeim hætti, að það ætti að eiga
greiðan aðgang og hugum ungs,
hugsandi fólks.Til að njóta sumra
kaflanna í myndinni, þurfa menn
að vera sæmilega vel að sér í
ensku, en reykvískir bíógestir
eru eru ekki vanir að setja slíkt
fyrir sig.
Ég skal ekki segja, hvað fólk
almennt kann að leggja upp úr
þvi atriði fyrir sig, en mér finnst
þessi mynd vera til þess fallin
að hjálpa mönnum til að skilja
sinn eigin prest betur en ella. Og
hví ekki að reyna að skilja presta
eins og aðra menn, setja sig inn í
sevintýri, vandamál og líf þeirr-
ar stéttar sem annarra, á þess-
um tímum stéttvísinnar.
Jakob Jónsson.
ur, sem ekkert hefur verið graf-
ið hjá þessi tvö síðustu sumur,
sem skurðgrafan hefir verið hér
að verki. Þó má segja að vinnan
hafi gengið vel. sérstaklega í sum
ar. Það er því vitað að bændur,
sem ekkert hefir verið grafið hjá
þessi tvö síðustu sumur vantar
tilfinnanlega meira af þurrkuðu
ÁRBÆR var opnaður almenningi
sunnudaginn 22. sept. s.l. og hafði
þár verið komið fyrir allmiklu
safni núnjagripa og muna, sem er
vísir að byggðasafni fvrir Reykja
vík. Bæjarbúar hafa sýnt mikinn
áhuga á þessari tilraun, sem
gestabók saínsins ber ljósast
vitni, því að þar hafa skrifað
nöfn sín rétt um 2000 manns þarm
mái aðartíma, sem safmð hefur
ve-jð opið. Eir.nig hafa gjafir
bor?zt safninu, síðar. það var
opmð, flestar frá Magnusi Guð-
bjomssyni, 68 sefnmuni:, og
llaraldi Ólaíssyni rankamanni,
44 safnmunir, en einnig frá þeim
frúnum Sveinbjörgu Guðmunds-
dóttur, Nínu 'Sveinsdóttur, Sig-
ríði Jakobsdóttur, Unu Þorsteins-
dóttur, Margrét: Halldói sdóttur
og Ragnhildi Sigurriardóftur, allt
eigulegir hlutir, frá N.N. tvenn
landi. I ráði mun vera að kaupa
aðra skurðgröfu á sambandssvæð
ið, en eirihverjar hömlur munu
á því vera að svo geti orðið enn
sem komið er eftir því, sem ég
bezt veit.
Tíðarfar er nú nokkuð farið
að spillast, skiptast á bleytuhríð-
ar og frost, þegar léttir
tiL Inflúenza hefir lítilsháttar
s ungið sér niður, en þó ekki
tiifinnanlega. —St.G.
gleraugu gömul, frá Stefáni
Guðnasyni skrifpúlt, sem átt hef-
ur Jón Árnason þjósagnaritari og
landsbókavörður, svo og góðir
gripir frá Ólafi Einarssyni, Hall-
grími Bjarnasyni og Guðmundi
Guðjónssyni. Að meðtöldum
fyrri gjöfum, þar sem stærst var
safn Þorbjargar Bergmann, 378
munir, gefið af Reykvíkingafélag
inu, lætur nærri að safnmunir,
stórir og smáir, séu ovðnir um
800 talsins i Árbæjarsafni.
Áður en safnið var opnað, fór
fram bráðbirgðaviðgerð á bæjar-
húsunum í Árbæ, en þau verður
enn mikið að bæta fyrir næsta
sumar. Mun því safninu verða
lokað eftir helgina og safnmunir
fluttir úr. bænum í geymslu yfir
veturinn. Verður safnið opið á
morgun (sunnudag) kl. 2—5 í
síðasta sinn á þessu hausti.
KÓPAVOGSBÚAR!
I HófgerBi 4 sími 14613
hefur fatapressan VENUS opnað móttöku á fatnaði
í KEMISKA HREINSUN.
— Ennfremur FATAVIÐGERÐIR
Fljót afgreiðsla — Vönduð vinna.
FATAPRESSAN VENUS
Hverfisgötu 59.
Iðja félag verksmiðjufólks |
i
Félagsfundur
Iðja, félag verksmiðjufólks, heldur fund í Iðnó
þriðjudaginn 29. október 1957, kl. 8,30 e.h.
Dagskrá:
1. Uppsögn samninga.
2. Önnur mál. !
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
I
Frá skóútsölunni
LAUGAVEGI 70
Seljum á morgun, mánudag nokkrar tegundir af
kvenskóm allt úr leðri fyrir aðeins kr. 55 parið —
Ennfremur lága strigaskó nr. 35—38, kr. 15 parið.
Uppreimaða strigaskó nr. 37—38—39 kr. 35 parið.
Gúmmístígvél í unglingastærðum kr. 45 parið —
o. m. fl.
Skóutsalan
LAUGAVEGI 70
Árbœjarsafni senn lokaB
SHELL-benzín með I.C.A.
hindrar glóðarkveikju
og skammhlaup í kertum
og kemur þannig í veg
fyrir óþarfa benzíneyðslu
og orkutap í hreyflinum.
— Þér akið því lengri
vegalengd á hverjum
benzinlítra.
BETRI NÝTNI — AUKIN ORKA — JAFNARI GANGUR
Röskur maður
óskast til vinnu strax. —
RúgbrauðsgerÓin
Bifreiðaeígendur
IMotið
Sellzone frostlög
Ef þér viljið vera öruggir
um kælikerfið í bifreið yð-
ar í frostum vetrarins, þá
notið SHELLZONE —
frostlög.
SHELLZONE inniheldur
Ethylene Glycol og gufar
því ekki upp.
SHELLZONE skemmir
ekki málm, leður, gúmmi
eða lakk.
SHELLZONE stíflar ekki
vatnskassa eða leiðslur. _
SHELLZONE veitir ör-
ugga frostvernd allan
veturinn.
Oliufélagið Skeljungur hf.