Morgunblaðið - 29.10.1957, Side 1

Morgunblaðið - 29.10.1957, Side 1
20 síður Osennilegt, að Mollet fái traust þingsins PARÍS, 28. okt. — í gær- kvöldi hélt Mollet stefnuskrár ræðu í franska þinginu og lýsti því, hvað stjórn hans mundi til bragðs taka, ef hún hlyti traust þingsins. Mollet lagði áherzlu á, að reynt yrði að slá skjaldborg um frank ann og leysa efnahagserfiðleik- ana, en það mundi þó hafa í för rneð sér takmörkun á innflutn- ingi og einhverjar hömlur. Wt skýrði hann frá stefnuskrá sinni í Alsír, en þar vill hann setja á fót sérstaka heimastjórn, ekki ósvipað því sem síðasta stjóm lagði til, áður en hún féll. — Ekki var ræðu Mollets sérlega vel tekið, og óvíst þykir, hvort þingið veitir honum traust. — Möguleikarnir minnkuðu stór- lega í gærkvöldi. þegar íhalds menn ákváðu að greiða atkvæði gegn stjórn hans. Stjórn og varastjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna. — Fremri röð frá vinstri: Arni Grétar Finnsson (ritari), Þór Vilhjálmsson (1. varaformaður), Geir Hallgrímsson (formaður), Magnús Óskarsson (2. varaformaður), Sigurður Helgaso n (féhirðir). — Aftari röð: Grétar Símonarson, Bragi Hannesson, séra Jónas Gíslason, Björn Þórhallsson, Baldvin Tryggvason, Jóhannes Arnason. A myndina vantar Hrein Kristinsson. 14. ungra Sjálfstæðismanna sunnudag Geir Hallgrímsson kosinn formaður þingi lauk Rússar bera fram nýja tillögu um afvopnunarnefndina a MOSKVU, 28. okt. — f dag gerðu Rússar það að tillögu sinni, að sett verði á fót fastanefnd allra aðildarríkja S. Þ. til að ræða um afvopnunarmálin. Kæmi þessi nefnd í stað afvopnunarnefndar þeirrar, sem S. Þ. skipuðu á sín- S í Ð A S T I þingdagur á 14.' þingi Sambands ungra Sjálf- stæðismanna var á sunnudag. Voru þá haldnir 3 fundir, rætt um og gengið frá álykt- unartillögum og kosin sam- bandsstjórn. Formaður sam- bandsins var kjörinn Geir Hallgrímsson, hæstaréttarlög- maður, Reykjavík. — Þá sátu þingfulltrúar á sunnudag há- degisverðarboð miðstjórnar og þingflokks Sjálfstæðis manna, og um kvöldið var þingslitahátíð. Ályktanir ÞINGFUNDUR hófst á sunnu- dagsmorgun. Kl. 12 var boð mið- stjórnar og þingflokks, og töiuðu þar Ólafur Thors og Ásgeir Pét- ursson. Síðan hófst rundur aftur og stóð hann til kl. rúml. 4. Var þá gert stutt kaffihlé, en eftir það var lokafundurinn settur. Var honum lokið kl. rúmlega 7. Á fundunum á sunnudag var gengið frá ýmsum ályktunum m. a. um efnahagsmál og utan- ríkismál. Samþykkt var yfir- lýsing um Ungverjalandsmál- ið og gerð samþykkt þess efnis, að sambandsstjórn yrði falið að athuga, hvort unnt væri að efna til ráðstefnu um sjávarútvegsmál á vegum S. U. S. Auk þessa var rætt um ýmis málefni sambandsins á fundun- um á sunnudag. Umræðurnar Fundarstjóri á sunnudag var Þór Vilhjálmsson, Reykjavík, nema á síðasta fundinum, en þá var séra Jónas Gíslason fundar- stjóri. Þessir þingfulltrúar tóku þátt í umræðum: Jósef Þorgeirsson (Akranesi) og Matthías Johannes *en (Reykjavík) — en þeir voru framsögumenn utanríkisnefndar. Framh. á bls. 2 Ovísl um örlög Sjúkoffs LUNDÚNUM, 28. okt. — Leynd- ardómurinn um Sjúkoff er enn óleystur. Blöð og stjórnmála- rnenn á Vesturlöndum virðast þó ekki í neinum vafa um það leng- ur, að hinn mikli herforingi sé fallinn í ónáð, þó að óvíst sé, hvers vegna hann var látinn víkja fyrir Malinovskí. Franska fréttastofan AFP sagði í kvöld, að hann hefði verið rekinn úr stjórn miðstjórnar kommúnista- flokksins. Þetta hefur þó ekki ver ið staðfest. Pravda hefur ekki minnzt á brottvikningu Sjúkoffs í dag, en í forystugrein blaðs- ins segir, að Rauði herinn hafi unnið sigra sína í styrj- öldinni vegna þess að flokk- urinn stóð á bak við hann. — Fréttaritarar í Moskvu segja, að þessi forystugrein spái ekki góðu um örlög marskálks Kazantzakis lézt í gærkvöldi OSLÓ, 28. okt. — Hinn heims- frægi gríski rithöfundur Nikos Kazantzakis lézt á háskólaklínikk inni í Freiburg í dag. Hann var einn þekktasti rithöfundur okk- ar tíma og voru verk hans þýdd Adenauer kemur til Lundúna LUNDÚNUM, 28. okt. — Ráðgert er, að Adenauer kanslari komi til Lundúna í lok næsta mánað- ar og er gert ráð fyrir, að hann muni einkum ræða við brezka stjórnmálaleiðtoga um árangur- inn af viðræðum Eisenhowers og Macmillans. Viðræður þessar verða eins konar undanfari ráð- herrafundar Atlantshafsbanda- lagsins í desember, en fréttamenn gera ráð fyrir því, að Eisenhower muni sækja þennan fund ásamt öðrum leiðtogum NATO-land- anna. á fjölmörg tungumál. Hann hef- ur mjög komið til álita um Nóbelsverðlaun og var í haust skæðasti keppinautur Frakk- anna Camus og Malraux. Kazantzkis var fæddur á Krít 1885 og þar gerðust margar sög- ur hans. Hann varð doktor í lög- um 1907 og ráðherra í stjórn Sofoulis 1946. Hann var viður- kenndur mesta nútímaskáld Grikkja. Kazantzkis var nýkominn heim úr Austurlandaför, en eins og sagt var í fréttum á sínum tíma, lagðist hann veikur í Kaupmanna höfn á leiðinni heim. A5IU-INFLÚENZAN WASHINGTON, 25. okt. — Nú er álitið, að 2% millj. Bandaríkja manna hafi fengið Asíuflensuna, þar af 1 millj. í síðustu viku. Alls hafa 354 menn dáið úr in- flúensunni og afleiðingum henn- ar í Bandaríkjunum. um tima. — Gromyko setur þett* sjónarmið Rússa fram í bréfi, sem hann skrifaði Hammarskjöld 1 dag og biður hann að leggja það fyrir Allsherjarþingið. í aðalstöðvum S. Þ. óttast menn, að Rússar muni hætta að taka þátt í störfum afvopnunar- nefndar S. Þ. og yfirleitt að hætta að ræða afvopnunarmál nema því aðeins að fallizt verði á þessa tillögu þeirra. Þegar síðast frétt- ist, höfðu Bandaríkjamenn hafn- að fyrrgreindri tillögu Rússa. Hreinsanir á döfinni í Póllandi VARSJÁ, 28. okt. — í kvöld var tilkynnt í Varsjá, að miðstjórn pólska kommúnistaflokksins hefði sett á fót sérstaka nefnd manna, sem á að hafa eftirlit með ferli ótryggra kommúnista, eins og það er kallað. — Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum, sagði Gomulka aðalritari frá því í ræðu fyrir helgi, að helming- urinn af þeim Pólverjum, sem væru í flokknum, hefði enga pólitíska köllun, væri ótryggur flokknum og styddi hann aðeins í eiginhagsmunaskyni. í flokkn- um er nú 1,3 millj. manna. Verður mynduð borgara- ms. Menderes sigraði ISTANBUL, 28. okt. — Flokkur Menderes forsætisráðherra, demó kratiskiflokkurinn, hélt meiri hluta sinum í tyrknesku þing- kosningunum, en þó vann republikanaflokkurinn á. Demó- kratar hafa fengið 414 þingsæti af 610, en republikanar 178. Aðr- ir flokkar 8 þingsæti. — Full- víst þykir, að Menderes myndi nýja stjórn. leg stjórn í Erlander gafst upp i dag Svíþjóð? STOKKHÓLMI, 28. okt. — í dag gerðust hinir furðulegustu hlutir í sambandi við stjórnarkreppuna í Svíþjóð. Erlander, fyrrum for- sætisráðherra gekk á fund kon- ungs og tilkynnti honum, að ekki væri grundvöllur fyrir stjórnar- myndun fjögurra flokkanna. Kon ungur sneri sér þá til Jarls Hjalmarson, formanns Hægri- flokksins og Bertils Ohlins, for- manns Þjóðflokksins. Eftir fundinn með Gustafi kon nngi lýslu þeir yfir því, að þeir mundu gcra tilraun til að mynda nýja ríkisstjórn með aðild borg- araflokkanna þriggja. Þeir köll uðu formann Miðflokksins (sem áður hét Bændaflokkurinn), Hed lund innanrikisráðherra í stjórn Erlanders, á sinn fund og ræddu við hann möguleika á myndun borgaralegrar stjórnarmyndunar. Þremenningarnir munu ræðast aftur við á morgun. Stjórnmálafréttaritarar í Stokk hólmi eru þeirrar skoðunar, að þeim muni ekki takast að mynda stjórn og niðurstöðurnar verði þær, að Erlander myndi minni- hlutastjórn jafnaðarmanna, sem starfi fram að nýjum kosningum. Flugslys á Spáni MADRID, 28. okt. — í dag fórst farþegaflugvél 8 km. frá Madrid og með henni 21 maður. Vélin var frá spænska flugfélaginu Iberia. Hún var af Dakota-gerð. Flugvélin var á leið frá Tanger og fórst, þegar hún reyndi að nauðlenda vegna bilunar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.