Morgunblaðið - 29.10.1957, Qupperneq 4
4
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 29. okt. 1957
EYDagbók
í dag er 302. dagur ársins.
Þriðjudagur 29. október.
Árdegisflæði kl. 9,36.
Síðdegisflæði kl. 22,05.
Slysavarðstofa Rey'javíkur í
Heilsuverndarstöðinni er opin all
an sólarhrmginn. Læknavörður
L.R. (fyrir vitjanir) er á sama
stað frá kl. 18—8. Sími 15030.
NæTurvörður er í Reykjavíkur-
apóteki, sími 11760. Ennfr. eru
Holtsapótek, Apótek Austur-
bæjar og Vesturbæjarapótek op-
in daglega til kl. 8, nema á laug-
ardögum til kl. 4. Þrjú síðasttalin
apótek eru opin á sunnudögum
milli kl. 1 og 4.
Carðs-apótek, Hólmgarði 34, er
opið daglega kl. 9—20 nema á
laugardögum 9—16 og á sunnu-
dögum 13—16. Sím» 34006.
Kópavogs-apótck, Alfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20 nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. — Sími 23100.
Hafnarfjarðar-apótek er opið
alla virka daga kl. 9—21. Laug-
ardaga kl. 9—16 og 19—21. Helga
daga kl. 13—16 og 19—21.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga frá kl. 9—19, laugar-
daga frá kl 9—16 og helga daga
frá kl. 13—16.
Hafnarfjörður. — Næturlæknir
er Ólafur Einarsson, sími 50275.
Akureyri: — Næturvörður er í
Stjörnu-apóteki, sími 1718. Nætur
læknir er Sigurður Ólason.
□ EDDA 595710297 — 2 Atkv.
RMR — Föstud. 1. 11. 20. —
VS — Fr. — Hvb.
[Hjönaefni
S.l. laugardag opinberuðu trú-
kvfun sína ungfrú Anna Ingólfs-
dóttir, Bakkastíg 5 og Jörgen Sig
urjónsson, Seljalandi við Selja-
landsveg.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína u gfrú Rannveig Krist-
jánsdóttir, Níp, Skarðsströnd og
Theódór R. Einarsson, Hala, Suð-
ursteit.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína Guðmunda Halldórsdóttir,
Suðurpól i'7 og Njörour Jakobs-
son, Hólmgarði 48.
Fyrsta vetrardag opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Ingibjörg
Jónsdóttir, Frakkastíg 7 og Sig-
urður Kristjánsson, Norðurbraut
7, Hafnarfirði.
Helga Pálsdóttir, Lágafelli í
Sandgerði, var sjötug í gær.
Frú Sigríður María Sigurðar-
dóttir, Hlíðarvegi 4, Kópavogi er
60 ára í dag.
70 ára er í dag Guðmundur Gils
son bóndi að Innri-Hjaiðardal í
Önundarfirði. Hann dvelzt í dag
að heimili sonar síns Gils Guð-
mundssonar í Drápuhlíð 31 Rvík.
Skipin
Afmæli
85 ára er í dag Ólafur H. Magn
ússon. Ólafur er fæddur í Reykja-
vík, en fluttist ungur til Þingeyr-
ai, þar sem hann hefur búið
lengst af. í dag verður Ólafur
staddur hjá dóttur sinni og
tengdasyni, í Miðtúni 64.
-með
rr-
me^uweaffmu
OáAGC
Kigutn við nú ekki að skreppa út
of fá okkur etna ölkoilu, ég býð?
★
Systirin heimsótti eitt sinn bróð
ur sinn sem var stúdent.
— Heyrðu, sagði hann, ég vil
ekki að nokkur sjái þig hér inni.
Ef verður bankað, þá verðurðu að
fara inn í fataskápinn.
Rétt á eftir var drepið á dyr.
Stúlkan flýtti sér inn í fataskáp-
in og lét ekki á sér kræla. Mið-
aldra maður kom inn og sagði að
sig hefði langað til að sjá þetta
herbergi, því þegar hann hefði ver
ið ungur, hefði hann búið í því.
Stúdentinn leyfði honum það. —
Maðurinn svipaðist um í herberg-
inu og sagði:
— Hér er ekkert breytt, sama
gamla skrifborðið, sama rúmið,
sami ofninn og sami skápurinn. —
Síðan opnaði hann skápinn og sá
hina dauðskelfdu stúlku.
— Sama, gamla sagan, sagði
hann.
— Þetta er nú bara systir mín,
stamaði stúdentinn.
— Og sömu, gömlu afsakanirn-
ar, svaraði hinn og orosti.
★
Drekkið ekki áfengi. Fyrir
nokkrum dögum varð danskur
maður 102ja ára. Hann lifði allt-
af reglusömu lífi, drakk aldrei og
reykti aldrei. Bróðir hans aftur á
móti reykti eins og skorsteinn, og
drakk hálfa flösku af konjaki á
dag. Hann varð aðeins 98 ára.
SkipaútgerS ríkisins: — Hekla
var væntanleg til ísafjarðar í
morgun, á suðurleið. Esja er í
Reykjavík, fer þaðan á laugardag
austur um land í hringferð. Herðu
breið fór frá Reykjavík í gær-
kveldi austur um land til Bakka-
fjarðar. Skjaldbreið fer frá Rvík
síðdcgis í dag vestur um land til
Akureyrar. Þyrill er í Reykjavík,
Skaftfellingur fer frá Reykjavík
I kvöld til Vestmannaeyja.
g^Flugvélar
Flugfélag Islands h.f.: — Milli-
landaflug: Hrímfaxi fer til Glas-
gow og Kaupmannahafnar kl.
08,00 í dag. Flugvélin er væntan-
leg aftur til Reykjavíkur kl. 23,05
í kvöld. — Flugvélin fer til Osló,
Kaupmannahafnar og Hamborgar
kl. 08,00 í fyrramálið. — Innan-
landsflug: 1 dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Blönduóss, Egilsstaða, Flateyrar,
Sauðárkróks, Vestmannaeyja og
Þingeyrar. — Á morgun er áætl-
að að fljúga til Akureyrar, Isa-
fjarðar og Vestmannaeyja.
Flugvél frá Pan American kom
í morgun til Keflavíkur frá New
York og hélt áfram til Osló, Stokk
hólms og Helsingfors og er vænt-
anleg þaðan annað kvöld og fer
til New York.
^■jjFélagsstörf
NorrænafélagiS efnir til kvöld-
vöku í Sjálfstæðishúsinu í kvöld
kl. 20.30. Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri, flytur ávarp, Krist-
inn Hallsson syngur einsöng, Gunn
ar Guðjónsson og Kristinn Halls-
son syngja tvísöng. Ivar Orgland,
sendikennaii flytur erindi. Vigfús
Sigurgeirss. sýnir litkvikmyndir
frá Noregi. Ennfremur verður
dans.
Unglingastúkan Hálogaland held
ur fund í kvöld kl. 8,30 í Góðtempl
arahúsinu.
lYmislegt
Kvenfcl. Keflavíkur heldur baz-
ar kl. 9 í kvöld, i Tjarnarlundi.
Barðstrendingar. — Kvenna-
nefnd Barðstrendingafélagsins
heldur kaffikvöld í Garðastræti 8
í kvöld.
Orii lí/ninn: En markmié kenn-
ingarinnar er kærleikur af
hreinu hjarta, góöri samvizku og
hrsef: nis laus ri trú frá þessu eru
sumvr viknvr og hafa sn.úið sér til
hégómamáls. (1. Tím. 1, 5—6.
^æknar fjarverandi
Bjarni Jónsson, óákveðið. Stg
Stefán Björnsson.
Garðar Guðjónsson, óákveðið
— Stg.: Jón Hj. Gunniatigsson,
Hverfisgötu 50.
Hjalti Þórarinsson, óákveðið
Stg.: Alma Þórarinsson.
• Gengið •
Gullverð ísl. krónu:
100 gullkr. = 738,95 pappírskr.
Sölugengi
1 Sterlingspund .... kr. 45,70
1 Bandaríkjadollar..— 16,32
1 Kanadadollar .... — 16,86
100 danskar kr.....— 236,30
100 norskar kr........— 228,50
100 sænskar kr........— 315,50
100 finnsk mörk .... — 5,10
1000 franskir frankar .. — 38,86
100 belgiskir frankar.. — 32,90
100 svissn. frankar .. — 376,00
100 Gyllini ..........—431,10
100 tékkneskar kr. .. — 226,67
100 vestur-þýzk mörk — 391,30
1000 Lírur .............— 26,02
Hagnheiður Lárusdóttir Blöndal
Minningarorð
FRÚ Ragnheiður Lárusdóttir
Blöndal andaðist hér í Reykjavik
mánudaginn 21. október að Elli-
heimilinu Grund. Hún var dótt-
ir Lárusar Þ. Blöndal sýslumanns
og konu hans, Kristínar Ásgeirs-
dóttur frá Lambastöðum á Sel-
tjarnarnesi, fædd 19. desember
1876 að Fagradal í Dalasýslu, en
þar var faðir hennar sýslumaður
í 10 ár, frá 1867—1877. Lárus
var sonur Björns Blöndal sýslu-
manns í Vatnsdal í Húnavatns-
sýslu. Árið 1877 var Lárusi
Blöndal veitt Húnavatnssýsla og
var hann sýslumaður Húnvetn-
ir.ga til dauðadags. Hann var
þingmaður Húnvetninga í mörg
ár og bjó að Kornsá. Lárus lézt
12. maí 1894.
Fyrsta árið eftir lát föður síns
dvaldi Ragnheiður á Siglufirði
hjá Sigríði systur sinni og manni
hennar, séra Bjarna Þorsteins-
syni, tónskáldi. Síðan hjá móður
sinni, fyrst að Kornsá, síðan í
Reykjavík, unz hún fluttist til
Eyrabakka, til bróður síns, Ás-
geirs Blöndals læknis. Þar kynnt-
ist hún manni sínum, Guðmundi
Guðmundssyni, sem þá var verzl-
unarmaður hjá Lefolisverzlun.
Guðmundur er sonur Guðmund-
ar bóksala Guðmundssonar frá
Minna-Hofi á Rangárvöllum og
konu hans, Ástríðar Guðmunds-
dóttur frá Kotvelli í Hvolhrepp.
Guðmundur er kominn af merku
og gáfuðu bændafólki í báðar
ættir. Ragnheiður og Guðmund-
ur gengu í hjónaband 16. apríl
1901. Þau eignuðust 9 börn og
eru 6 þeirra á lífi, Ástríður, gift
ist Guðmundi Þorkelssyni kaup-
manni, Kristín, gift Sigurði Óla
Ólafssyni alþingismanni, Krist-
jana Hrefna, gift Arnold Péturs-
syni kaupmanni, Lárus Þórarinn,
Blöndal bóksali, kvæntur Þór-
unni Kjartansdóttur, Kristján
verzlunarmaður, kvæntur Ástu
Ingvarsdóttur og Guðmundur,
verzlunarmaður, kvæntur Gróu
Helgadóttur. Látin eru Sigriður
Lára, fædd 20. júní 1911, dáin
23. okt. sl. ár, Steinn fæddur
1912, dáinn 1935 og Björn
Blöndal, fæddur 1906, dáinn
1938. Ennfremur tóku þau hjón-
in nýfætt barn af deyjandi móð-
ur, Margréti Jóhannsdóttur og
manni hennar, Friðrik Sigurðs-
syni, Gamlahrauni. Þau létu
skíra bernið sínum eigin nöfnum,
Guðmund Ragnar, en hann and-
aðist á öðru aldursári.
Ragnheiður og Guðmundur
bjuggu fyrst á Eyrarbakka í 4 ár.
Síðan i Reykjavík frá 1905—1910.
Það ár gerðist Gðmundur kaup-
félagsstjóri við Heklu á Eyrar-
bakka og þar bjuggu þau óslitið
til 1927, fyrst í húsi Ingibjargar
Frímanns, siðan í Skjaldbreið, en
eftir að kaupfélagið Hekla keypti
Lefolisverzlun fluttu þau í Húsið,
sem kallað er, þar sem fyrrver-
FERDIiMAND
Vinrtuspariiciður
andi verzlunarstjórar við Lefolis-
verzlun höfðu búið. Þá voru þátta
skil í verzlunarháttum á Eyrar-
bakka. Hin gamla einokunar-
verzlun var að telja út, en kaup-
félögin tóku forystuna í verzlun
og viðskiptum. Guðmundur hafði
álit og traust sem vel gefinn ung-
ur maður og verzlunarvanur. —
Þau settust því þarna að þessi
ungu og glæsilegu hjón og tóku
sæti fyrirrennaranna. Þarna undi
Ragnheiður glöð með fallega og
góða barnahópinn sinn. Hún var
sístarfandi, allt hvíldi á henni,
því maður hennar var oft fjarri
vegna annríkis við verzlunarstörf
in. Ragnheiður var frábær hús-
móðir og móðir. Hún var afburða
dugleg og hlífði sér hvergi í
neinu, en gekk að öllu sjálf, en
þrátt fyrir annir gaf hún sér allt-
af tíma til að gæta að þeim sem
minna máttu. Það var eins og
henni og þessu Blöndalsfólki öllu
væri það í blóð borið, að þíða
frostrósirnar af glugga þeirra
sem áttu við erfið kjör að búa,
svo sólin gæti vermt og sent
geisla sína þangað sem sólar var
vant.
Ragnheiður var fædd í Dölum,
þar sem Auður djúpúðga tók sér
bólfestu. Hún viidi ekki þiggja
af bróður sínum að hann tæki á
móti helming manna hennar.
Menn mínir alHr, sagði Auður.
Þannig var skapeinkenni Ragn-
heiðar. Þetta heilsteypta og
sanna; stórlát og stórhuga, enn
sönn og góð og drengileg í öllu.
Eins og áður er sagt bjuggu
þau Ragnheiður og Guðmundur
á Eyrarbakka frá 1910—1927. Þá
setti Guðmundur upp verzlun á
Selfossi með tengdasyni sínum,
Sigurði Óla Ólafssyni, en Ragn-
heiður flutti til Reykjavíkur með
börnum sínum. Þar gat hún látið
Ijós sitt skína sem móðir. Þá
voru börn hennar að læra og
koma sér áfram til manns og
mennta. Þar var hennar vettvang
ur og þar bjó hún með börnum
sínum. Eftir að hún flutti suður
dóu þeir Steinn og Björn, synir
þeirra hjóna, og þó Ragnheiður
bæri sig vel við sonamissinn heid
ég að eitthvað hafi brostið innra,
svo að hún hafi aldrei orðið söm.
Með djúpri virðingu minnist ég
Ragnheiðar Lárusdóttur Blöndal
og þakka henni allt og allt. Sér-
staklega þó er hún leiddi okkur
öll, mig og börn mín, að breiðu
rausnarborði sínu þegar við flutt-
um suður, út í óvissu örlaganna.
Eg veit að börn hennar, sem á
undan eru farin taka á móti
henni á landi lifenda, og við hana
verður sagt: „Þyrstur var ég og
þér gáfuð mér að drekka, nakinn
og þér klædduð mig. Komið til
mín alHr sem erfiðið og þunga
eruð hlaðnir, ég mun veita yður
hvíld“.
Gakk þú í fögnuð herra þíns.
Klísabet Jónsdóttir,