Morgunblaðið - 29.10.1957, Síða 10
10
MORGTJWBT 4ÐTÐ
Þriðjudagur 29. okt. 1957
pttfpSEÍífeM
Útg.: H.í. Arvakur, Reykjavik.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
UTAN UR HEIMI
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480
Askriftargjald kr 30.00 á mánuði tnnaniands.
t lausasölu kr. 1.50 eintakið.
ÆSKAN HEFUR RÉTT SJÁLFSTÆÐ-
ISFLOKKNUM ÖRFANDI HÖND
UM síðustu helgi stóð yfir
hér í Reykjavík þing
Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna og ráðstefna ungra
bænda og annars ungs fólks úr
sveitum landsins, sem haldin var
á vegum Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna. Báðir þessir fundir
voru sóttir af fjölda ungs fólks
úr öllum landshlutum. Báru þeir
þess greinilegan vott, að íslenzk
æska hefur rétt Sjálfstæðis-
flokknum og stefnu hans sína
örfandi hönd.
í skýrslu, sem Ásgeir Péturs-
son, formaður SUS flutti við
setningu þingsins, skýrði hann
m.a. frá því, að sl. 2 ár hefði
verið stofnuð 5 ný félög ungra
Sjálfstæðismanna. Voru þau
stofnuð í þessum byggðarlögum:
Kópavogi, Eyjafjarðarsýslu,
Barðastrandasýslu, Norður-Múla-
sýslu og Suður-Múlasýslu.
Þá hafði stjórn sambandsins
gengist fyrir mótum ungra Sjálf-
stæðismanna víðs vegar um land,
fulltrúafundir höfðu verið haldn-
ir og margskonar annarri út-
breiðslústarfsemi haldið uppi.
Þúsundir æskufólks eru nú í
samtökum ungra Sjálfstæðis-
manna. Þetta unga fólk mynd
ar viðá kjarnann i þeirri bar-
áttusveit, sem berst fyrir
Sjáifstæðisstefnunni til sjávar
og sveita.
Bændaráðstefnan —
merkileg nýjung
Bændaráðstefnan, sem SUS
efndi nú til í fyrsta skipti er
merkileg nýjung í félagsstarfsemi
ungra Sjálfstæðismanna. Þar
fluttu erindi ýmsir þeirra manna,
sem kunnugastir eru hagsmuna-
málum landbúnaðarins og bænda
stéttarinnar. Ungir bændur og
bændasynir víðs vegar frá af
landinu ræddu þar framfaramál
sveitanna og þau vandamál, sem
steðja að íslenzkum landbúnaði
um þessar mundir.
í ávarpi, sem formaður Sjálf-
stæðisflokksins, flutti við setn-
ingu bændaráðstefnunnar, benti
hann á nokkur þeirra stórmála
landbúnaðarins, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði borið fram til
sigurs, þar á meðal jarðræktar-
lögin frá 1923, Ræktunarsjóð-
inn gamla, 6-manna nefndar lög-
in frá 1943, lög um jarðræktar-
og húsagerðarsamþykktir í sveit-
um frá 1945, Ræktunarsjóðslög-
in nýju frá 1947, rafvæðingará-
ætlunina, verðlagningu landbún-
aðarafurða 1942, sem tryggði
bændum stórum réttlátari verð-
lagningu á afurðum þeirra, en
þeir áður höfðu notið. Til við-
bótar þessum stórmálum land-
búnaðarins, benti formaður Sjálf
stæðisflokksins á forystu Sjálf-
stæðismanna um útvegun lána til
rafvæðingar strjábýlisins, bygg-
ingu áburðarverksmiðjunnar,
símalagningu á flesta bæi lands-
ins og stórframkvæmdir í vega-
málum.
Landnámið verður að
halda áfram
Ásgeir Pétursson, formaður
Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna, setti bændaráðstefnuna
og ræddi m.a. um það, hve ríg-
urinn milli stétta þjóðfélagsins
væri hættulegur. Hann minntist
á þýðingu rafvæðingarinnar fyrir
sveitirnar og mikilvægi landbún-
aðarins í starfi þjóðarheildarinn-
ar. Komst hann síðan að orði á
þessa leið:
„Margt er ógert. Þjóðin hefur í
vissum skilningi verið að nema
land síðustu áratugina. Því land-
námi verður að halda áfram. Við
erum einmitt hingað komin á
þessa ráðstefnu til þess að ræða
þá framtið, sem við okkur blas-
ir, ræða um líf og starf unga
fólksins í sveitunum og um það,
hvernig góð afkoma þess í efna-
legum og félagslegum skilningi,
verði bezt tryggð“.
Bændaráðstefnan gerði álykt-
anir um ýmis hagsmunamál
bændastéttarinnar og mun þjóð-
inni gefast tækifæri til þess að
kynnast þeim nánar.
KVIKMYNDIR Charles Chaplins
vekja ætíð athygli og hafa sumar
þeirra verið hrein listaverk. Síð-
asta mynd Chaplins, „A king in
New York“, hlaut þó mjög mis-
jafna dóma. Þykir sniilingnum
þar hafa brugðist bogp.Iistin
vegna þess áróðurs, sem í mynd-
inni er. Hér sjast Chaplin-hjonin
á flugvelli í lundúnum ásamt tiu
ára gömlum syni sínum, Michael,
sem leikur í þessari mynd föður
Afstaðan mörkuð
Þing Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna gerði ályktanir, þar
sem tekin var afstaða til margra
mála, sem ofarlega eru á baugi
með þjóðinni. Þannig gerði þing-
ið ályktun um efnahagsmál,
menningarmál, félagsmál æsk-
unnar, handritamálið, kjördæma
málið, utanríkismál o. s. frv.
Samþykktir þessa fjölmenna
þings Sambands ungra Sjálfstæð-
ismanna mótast í senn af frjáls-
lyndi og framkvæmdaþrá æskunn
ar. Ungt fólk hlýtur að vera mót-
fallið hafta- og kyrrstöðustefnu
þeirrar stjórnar, sem nú fer með
völd í landinu. Æskan kýs at-
hafnafrelsi til þess að byggja upp
þjóðfélag sitt og treysta eigin hag.
Gegn kúgun og ofbeldi
Hlutverk Sambands ungra
Sjálfstæðismanna og unga fólks-
ins innan félagssamtaka Sjálf-
stæðis æskunnar um land allt er
í dag ef til vill mikilvægara en
nokkru sinni fyrr. öfl kúgunar
og ofbeldis hafa hér meiri áhrif
og sterkari aðstöðu um þessar
mundir en oftast áður. Fulltrúar
hins alþjóðlega kommúnisma
sitja nú i ríkisstjórn á íslandi.
Allir frjálslyndir æskumenn,
allir lýðræðissinnaðir og þjóð-
hollir menn, hljóta að taka upp
harða baráttu gegn áhrifum þess-
ara eyðingarafla. Valdaaðstaða
þeirra hefur þegar haft mikla ó-
gæfu í för með sér fyrir íslenzku
þjóðina. Álit íslands og sómi þjóð
ai þess, hefur orðið fyrir þungu
áfalli í augum frjálsra þjóða.
íslenzk æska vill má þennan
blett af skildi þjóðar sinnar.
Samband ungra Sjálfstæðis-
manna stendur í fararbroddi í
baráttunni gegn ofbeldl og
kúgun kommúnismans. Það
berst fyrir réttlátu og rúm-
góðu þjóðfélagi í Islandi. Þess
vegna skipar stöðugt stærri
hópur íslenzkra æskumanna
undir merki þess.
Rússar gerðu sér mikið far um
að þóknast þeim bandarísku ungl-
lingum, sem sóttu æskulýðsmótið
í Moskvu og að mótinu loknu var
nokkrum þeirra boðið í sæluna
tii Kina. — Hér á myndinni sjást
Ameríkanarnir ásamt Chou En
Lai forsætisráðherra Kína horfa
á hátíðahöld, sem fram fóru á
byltingarafmæli kínversku komm
únistanna.
Gomulka rœðir erfiðleika pólska
kommúnisfaflokksins
VARSJÁ, 25. okt. — Gomulka,
aðalritari pólska Kommúnista-
flokksins hélt ræðu í dag og
boðaði „brottvikningu spilltra
félaga í Kommúnistaflokknum“,
eins og hann komst að orði. —
Ræðan var flutt á fundi mið-
stjórnar flokksins.
Gomulka sagði m. a., að stór
hluti þeirra þriggja milljón Pól-
verja, sem eru i flokknum, hafi
gengið í hann í eiginhagsmuna-
skyni, en ekki vegna ástar á
stefnu kommúnista. — Þessir
menn eru eins og hengingaról
utan um háls flokksins, sagði
( Gomulka. Þá sagði hann, að tveir
I ólíkir hópar manna væru í flokkn
um. Annar hópurinn, bætti hann
við, reynir að gera stefnu okkar
tortryggilega, hvenær sem hann
fær tækifæri til. Þetta ástand
hefur hin skaðvænlegustu áhrif
á alla starfsemi flokksins og rugl
ar óbreytta flokksmenn í ríminu.
— Loks boðaði aðalritarinu
ákveðnari stefuu og meiri flokks-
aga og lét í það skína, að nauð-
synlegt væri að losa sig við hin
óánægðu öfl innan flokksins.
Mótmælt lokuðum réttarhöludm
LONDON, 26. okt. — Brezka
skáldið Stephen Spender og
spanski rithöfundurinn Salvador
Madariaga, sem báðir eru forustu
menn í Alþjóðasamtökum Frjálsr
ar menningar, sendu Janos Kadar
forsætisráðherra Rússa í Búda-
pest í dag símskeyti þar sem þeir
mótmæla lokuðum réttarhöldum
yfir ungverskum rithöfundum.
Hér er um að ræða mál ung-
versku rithöfundanna Dery, Hay,
Zelka og Tardos. Hafa ungversk
kommúnistayfirvöld neitað að
hafa réttarhöldin fyrir opnum
tjöldum.
í símskeytinu segja rithöfund-
arnir, að ákvörðun Kadarstjórn-
arinnar um lokuð réttarhöld
hneyksli menn um víða veröld.