Morgunblaðið - 29.10.1957, Page 19

Morgunblaðið - 29.10.1957, Page 19
Þriðjudagur 29. okt. 1957 MORCVNBLAÐ1Ð 19 Drimhildur Benediktsdrittir Minningarorb ÞANN 8. maí síðastliðinn lézt í sjúkrahúsi Neskaupstaðar frú Elín Dómhildur Benediktsdóttir frá Bifröst í Reyðarfirði. Hún var fædd árið 1890 þann 14. apríl að Gestreiðarstöðum í Jökuldals- heiðinni. Er talig að sá bær hafi risið úr óbyggð árið 1884. En byggð mun hafa verið þar áður og umferð mikil. eins og nafnið bendir til, enda skárust þar leiðir milli Skjöldólfsstaða á -Jökuldal og Hólsfjalla annars vegar, og Vopnafjarðar og Efra-Jökuldals hins vegar. Gestreiðarstaðir var snoturt býli í fögru dalverpi er nefnist Gestreiðardalur. Var þar gott undir bú, og ekki ýkjamikið vetrarríki. Lifðu búendur þar góðu bjargálna lífi. Nú eru Gest- reiðarstaðir í eyði ásamt öllum — Akureyrarbréf Frh. af bls. 2. víðast hvar annars staðar á land- inu, ríkjandi mikill áhugi á björgunar- og hj álparstarfsemi. Sýnir það glöggt hinn mikli áhugi á byggingu björgunar- og varðskipsins Alberts og hin rausnarlegu framlög ýmissa líkn- arfélaga til þess. Að undanförnu hefur verið unnið af krafti að því að safna fé til kaupa á sjúkra- flugvél og er nú sá sjóður orð- inn nokkuð á annað hundrað þúsundir króna. Nefnd sú er fjár- söfnuninni stjórnar og annast á vélarútvegun hefur þráfaldlega leitað eftir því hjá Innflutnings- nefnd að fá leyfi til kaupa á vél- inni, en einlægt fengið afsvar. Hefur þessi slagur við nefndina staðið frá því 1. júní í fyrrasum- ar. Þó munu öðrum aðilum á sama tíma hafa verið veitt leyfi fyrir slíkum vélum. Við þetta bætist svo að flugvélarnefnd- in fékk gott tilboð um bónda staðarins, Þá mun hún oft sjúkraflugvél frá A ” hinum heiðarbýlunum þar. 16 að tölu, sem að mannfjölda taldi um skeið nokkuð á annað hundrað manns. Benedikt Sigurðsson faðir Dóm hildar og Stefanía Stefánsdóttir kona hans fluttu að Gestreiðar- stöðum árið 1887. Það sama ár missti hann konu sína af barns- förum. Bjó hann eftir það þar í þrjú ár með ráðskonu þar til hann brá búi og fluttist til Vopna- fjarðar árið 1890. Þar giftist hann aftur Margréti ættaðri þar í byggð. Eins og að framan getur fluttist Dómhildur sem barn að aldri með föður sínum til Vopna- fjarðar. Ólst hún upp með föður sínum fram um fermingaraldur. Af móður sinni, sem hét Steir.unn Jósepsdóttir hafði hún litið að segja. Eftir fermingaraldur flutt- ist Dómhildur til Seyðisfjarðar og nam þar klæðskeraiðn og fata- saum. Árið 1917 fluttist hún til Jökuldalsins og dvaldi þar síðan til ársins 1951 er hún futtist alfar in þaðan til Reyðarfjarðar ásamt manni sínum Jóni Stefánssyni frá Norðfirði bróður Páls læknis í Vesturheimi. En þau voru vígð saman til hjúskapar árið 1922. Voru samfarir þeirra hinar beztu. Sjálfstæðan búskap rálcu þau að- eins í tíu ár — bjuggu átta ár á Ármótaseli og tvö ár í Hverfils- dal. Þau ár, sem þau bjuggu í Ármótaseli mun mörgum vegfar- anda minnisstæð. Þar var jafnan að mæta gestrisni eins og þá er bezt getur. Minnist ég þess enn hversu gott var þar að gista eftir erfiða ferð yfir Jökuldalsheiði um hávetur í frosti og hríð. En þótt það væri notalegt að koma utan úr kuldánum inn í baðstofuylinn var þó hitt meira um vert, að þar var ð maður var við þá hjarta hlýju, sem öllu vill fórna íyrir gesti sína. Eftir að þau hjón létu af bús- skap héldu þau mest til í Hverfils dal í eins konar húsmennsku — hún þó stundum sem bústýra aðal ^ frá störfum vegna veikinda. Voru slík störf hennar vel metin og þakkað, því að bæði var það að það var óhætt að trúa henni fvrir heimillisforsjá, og eins hitt að henni lét vel í hendi störf öll í þágu sjúkra sökum nærgætni og umhyggju hennar vegi.a þeirra. Dómhildur var friðleiks kona og um margt vel gefin. Hún var tilfinningarík — nökkuð meir- lynd — trygglynd og vinur vina sinna. Þeim hjónum varð ekki barna auðið. En börn höfðu þau á sínum vegum lengri eða skemmri tíma, sum í mörg ár. Reyndust þau hjón þeim sem beztu foreldr- ar. Dómhildur átti tíu hálfsyst- kyni. Eru níu þeirra enn á lífi víðs vegar um landið. Með Dómhildi er hnigin í val- in — hlý og hjartahrein kona. Vagga hennar stóð á háleadi ís- lands, þar sem það er fagurt og gróðiírríkast — þar sem „gengur um grundu gróðurangan og blær af bláum fjöllum“, og loftið ómar af Svanasöng. Svipmót þessa fagra umhverfis bar hún til ævi- loka. En nú leikur um hana blær hinna eilífu hæða, og það er roði yfir sólsetrinu. Sigurgeir Jónsson. Ameríku í fyrra. En það mun nú runnið út í sandinn. Þannig má búast við að þessi dráttur Innflutnings- nefndar skapi beint fjárhagslegt tjón fyrir kaupendur vélarinn- ar. öllum er augljós hin brýna þörf, sem er fyrir vél sem þessa hér á Norðurlandi. Hér á Akur- eyri er nú starfrækt fullkomið sjúkrahús og hingað eru sjúkling- ar fluttir víðs vegar að er þeir þurfa skjótrar hjálpar við. En einasta leiðin til þess að koma þeim hingað er að fá til þess flugvél alla leið sunnan úr Reykjavík. Slíkt er jafnvel ekki alltaf hægt, því svo getur hæg- lega staðið á að ekki sé hægt að fljúga þaðan þótt gott flugveður sé hér fyrir norðan. Hér að framan hafa verið tek- in örfá lítil dæmi um ástand það er við, sem úti á landsbyggðinni búum, sjáum og finnum að ríkir í gjaldeyris- og efnahagsmálum þjóðarinnar. öll eru þessi dæmi tekin úr valdatíð núverandi ríkis- stjórnar og eru óræk sönnun um hið ört versnandi ástand og úr- ræðaleysi stjórnarinnar. vig. Síðastliðinn föstudag komu hingað til landsins tveir rússneskir vísindamenn, Nikolaj Volkov og Vikendi Zaitzev. 1 fylgd með þeim er rússneski rithöfundurinn Nina Krymova, en hún hefur þýtt margar bækur eftir Halldór Kiljan Laxness, á rússnesku. Hún starfar við útvarpsstöðina í Moskvu. Báðir eru þeir Zait- zev og Volkov prófessorar og eru þeir hingað komnir á vegum VOKS, sem hefur á hendi menningarleg samskipti við önnur lönd. Zaitzev mun hér kynna sér hraðfrystingu fisks og fisk- rannsóknir, en hann skýrði svo frá í viðtali við fréttamenn i gær, að Rússar ættu í þeim efnum við sömu vandkvæði að stríða og Islendingar. — Volkov var leiðangursstjóri Norðurheim- skautsstöðvarinnar nr. 5, sem fyrir nokkrum árum gerði víð- tækar rannsóknir við Norðurheimskautið. Hann er hingað kom- inn til þess að kynna sér jarðfræðileg efni. Myndin hér að ofan «r af Volkov þar sem hann er að mata hvítabjörnsunga er leiðangurs- mennirnir náðu og höfðu í haldi hjá sér um hríð við NorðurskautiS hafa hlaupið í skörð á heimiium, þar sem húsmæður höfðu fatlast SKIPAUTGCRfi RIKISINS „ E S J A “ austur um land í hringferð hinn 2. nóv. — Tekið á móti flutningi til Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarð- ar, Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyð isfjarðar, Þórshafnar, Raufar- hafnar, Kópaskers og Húsavíkur, í dag og árdegis á morgun. — Far seðlar seldir á fimmtudag. SKAFTFELLINGUP fer til Vestmannaeyja í kvöld. Vörumóttaka daglega. Satsikomur KFUK — Ad. Saumafundur í kvöld kl. 8,30. Kaffi o. fl. Allar konur hjartan- lega velkomnir. Dagskrá Albingis Efri deild: 1. Eignarskattsviðauki, frv. — 2. umræða. 2. Símahappdrætti lamaðra og fatlaðra, frv. — 1. umræða. Neðri deild: 1. Útsvör, frv. — 1. umræða. 2. Jafnvægi í byggð landsins, frv. — 1. umræða. — Verksmiðju- framleiðsla Frh. af bls. 11 um og voru allir nefndarmenn sammála í því efni, hvaða stjórn- málaflokki, sem þeir tilheyra. Hið sama gildir um afgreiðslu á kærum. Hefur enginn borið brigður á að hér væri rétt að farið, fyrr en nú að vissir póli- tiskir flokkar hafa gert þetta mál að áróðursefni fyrir bæjar- stjórnarkosningar. Lokað vegna jarðarfarar klukkan 9—1 í dag. — Bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg 2. Lokað Deildum okkar í Vesturveri verður lokað í dag frá kl. 9—1, vegna jarðarfarar. Bókabúð Lárusar Blöndal. Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur, Sanikoman er í kvöld kl. 8,30 í Mjóstræti 3. Stefán Runólfsson, Litla-Holti. Fíladelfía Ingolf Kolshus hefur biblíu lestra kl. 2, 5 og 8,30, í dag og næstu daga. Allir velkomnir. ZION Vakningarsamkoma í kvöld kl. 8,30. Allir velkomnir. Heimatrúboð leikmanna. 1. O. G. T. St. Sóley nr. 242 Fundur í kvöld kl. 8,30. Vetrar fagnaður: Mörg skemmtiatriði, — kaffi, dans. Mætið réttstundis. — Æ.t. Félagslíf Ungmennafélag Reykjavíkur Kvennadeild Æfingar í Miðbæjarskólanum: Frjálsar íþróttir miðvikudaga kl. 20,00. Körfuknattleiku: föstudaga kl. 21,00. Aðalfu dur sunddeildar K.R. verður haldinn í kvöld kl. 8,45 í Félagsheimilinu. Venjuleg aðal- fundarstörf. Áríðandi að allir mæti. — Stjórnin. Sundfélag Hafnarfjarðar Æfingar félagsins í vetur verða í Sundhöll Hafnarfjarðar, sem hér segir: Yngri flokkur á mánudögum kl. 7-^-8 síðd., og miðvikudögum kl. 7—8 síðd. Eldri flokkur á sunnudögum kl. 9 f.h., mánudögum kl. 8,15 síðd., miðvikudögum kl. 8,15 síðd., og fimmtudögum kl. 8,15 síðd. Dýf- ingar og sundknattleikur á mánu- dögum kl. 9 síðd. — Nýir félags- menn eru velkomnir og geta látið, skrá sig í félagið á ofangreindum j æfingadögum. — Stjórnin. ' Konan mín Dóttir okkar ELIN HAFSTEIN andaðist í gær. Þórhallur Árnason. SÓLEY JOHANNA SIGURÐARDOTTIR andaðist að heimili sínu, Sólheimum, Grindavík, 27. þ.m. Þórlaug Ólafsdóttir, Sigurður Magnússon. Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi KRISTJÁN GUÐMUNDSSON Hólsvegi 15, lézt í Landakotsspítala þann 26. þ.m. Kristín Kristjánsdóttir, Pétur Jónsson, Katrín Kristjánsdóttir, Guðlaugur Jakobsson, Hrönn og Aðalsteinn Thorarensen og barnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir og afi ÁRNI TRYGGVI EBENEZERSON frá Hvammstanga andaðist 28. október að heimili mínu Breiðagerði 27. Fyrir hönd aðstandenda. Bára Árnadóttir. Móðir mín og tengdamóðir SIGRÚN ODDSDÓTTIR andaðist í Elliheimilinu Grund, mánud. 28. þ.m. Ólafia Sigurjónsdóttir, Þórarinn Gunnlaugsson. Móðursystir okkar RAGNHEIÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR Stykkishólmi, andaðist í Landakotsspítala 28. okt. Fyrir hönd okkar systkinanna. Inga Rögnvaldsdóttir. Maðurinn minn, faðir minn og sonur okkar RANDVER ÞORVALDUR GUNNARSSON vélstjóri, verður jarðsunginn frá Fossvogsklrkju, mið- vikudaginn 30. okt. kl. 3 síðd. Þeim, sem vilja minnast hans skal bent á sjóð, er stofnaður verður til minningar um hann við Vélskóla Islands. Hjördís Þorsteinsdóttir, fris Dóróthea Randversdóttir, Dóróthea Ólafsdóttir, Gunnar Jónassoa Móðir mín FRANCISKA OLSEN verður jarðsett frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðviku- daginn 30. október klukkan 10 árdegis. Að ósk hinnar látnu, eru blóm vinsamlegast afbeðin. Fyrir mína hönd, fjarstaddrar systur minnar og ann- arra vandamanna. Hanna Þorsteinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.