Morgunblaðið - 06.11.1957, Síða 6

Morgunblaðið - 06.11.1957, Síða 6
6 MORCV1SBT4Ð1Ð Miðvikudagur 6. nóv. 1957 STJÓRNARKREPPAN í PARÍS OG HÓTUN FRAKKLANDSFORSETA ÞEGAR ‘Stjórnarkreppan í Frakklandi hafði staðið í 28 daga, höfðu nokkrir stjórnmálamenn reynt að mynda stjórn og ýmist ekki fengið traust þingsins eða hætt við all- ar tilraunir í þá átt, þegar sýnt var, að þingið mundi ekki, þegar á átti að herða, veita þeim nauð- synlegan stuðning. Talið hafði verið nokkurn veginn fullvíst, að Guy Mollet mundi takast að mynda stjórn. Það var mjög almennt álit meðal stjórnmála- manna í París að svo mundi fara. En það varð allt annað upp á teningn- um. Hafði ver- búizt við undir lokin, þegar sýnilegt . var orðið að Mollet __ „ . mundi ekki tak Mollet- ast stjórnar- myndunin, að atkvæðamunur mundi hvergi nærri eins mikill eins og raun varð á, en það vant- aði 63 atkvæði upp á að Mollet tækist að fá traust þingsins. — Þessi mikli murxur var talinn fela í sér mikla persónulega van- traustsyfirlýsingu á hendur Mollet, sem er aðalritari Sósíal- istaflokksins, sem svo er kallað- ur. Þegar þessi úrslit urðu ljós, sneri Mollet sér mjög harðlega gegn hægri flokkunum í þinginu og kenndi þeim um ófarir sínar og upplausnarástandið í stjórn- málunum. Meginástæðan til þess að Mollet tókst ekki að mynda stjórnina, var afstaða hinna „óháðu“, en þeir gengu allir með tölu í flokk andstæðinga Mollets. Þar með er talið að þeir hafi ver- ið að hefna sín á sósíalistunum, sem í vikunni áður högðu hindr- að að Antoine Pinay myndaði stjórn. Það bil, sem orðið var milli hægri og vinstri flokkanna, ei orðið enn dýpra en það áður var og ennfremur er á það bent að sundrungin innan flokks Mollets sé nú orðin meiri en áð- ur, eins og kom fram í atkvæða- greiðslunni í flokknum, því þó meirihlutinn væri með því að Mollet gerði tilraun til stjórnar- myndunar, greiddu 11 flokks- menn atkvæði gegn því, en 13 sátu hjá. Það er því talið að Mollet sé ekki eins sterkur nú í flokki sínum og hann var á þeim tíma, sem hann var forsætisráð- herra landsins. Ástæðan fyrir því að hinir óháðu og foringjar hægri flokkanna, svo sem Pinay, Duchet t og Laniel, greiddu atkvæði gegn Mollet, er talin vera sú, að Mollet hafði neitað því að falla frá áætlununum sínum um auk- in rikisafskipti og þjóðnýtingu í landinu. Óháði flokkurinn hélt því fram, að sósíalistar undir forystu Mollets, hefðu tæmt ríkis sjóðinn í sinni tíð og að sá flokk- ur vildi halda áfram með stór- Mollet vildi að þeim fyrirtækj- um, sem gerðust brotleg gagn- vart hinum þunbæru verðlags- Loks var það fært fram, að ákvæðum, væri hreint og beint lokað afdráttarlaust. Fleira þessu likt var fært fram gegn því að unnt væri af hálfu þessara flokka, að veita Mollet stuðning. ★ Þegar hér var komið er talið að Coty Frakklandsforseta hafi orðið ljóst, að hann yrði að beita sér mjög harðlega til þess að fá stjórnarkreppuna leysta. Ástandið var ennfremur þannig, að ríkissjóðurinn var gersamlega tómur og var ekki um annað að ræða en að leita til Frakklands- banka um sífellt meiri og meiri lán, en sá banki gat þó ekki til annarra ráða gripið en að setja seðlapressuna í gang. En þetta allt ýtti undir ört hækkandi verð- bólgu í landinu og vakti ugg og ótta. Auk þess voru svo gjald- eyrissjóðir landsins orðnir tómir, svo þar var ekki til neins að grípa nema sjálfs gullforða Frakklands banka. Verkföll geisuðu í land- inu og var af öllu þessu ljóst að nú dugði ekki lengur að landið væri stjórn- laust að kalla. Er nú talið að Coty Frakk- landsforseti hafi beinlínis hótað stjórn- málaflokkun- um því að segja af sér, ef stjórnarkrepp- an yrði ekki leyst þegar í stað. Ef til þess hefði komið, að forsetinn hefði sagt af sér, hefði landið orðið gersamlega stjórn- laust en á því munu stjórnmála- f’okkarnir ekki hafa viljað bera ábyrgð, enda hefðu afleiðingarn- ar verið alveg ófyrirsjáanlegar. Coty sneri sér nú til Felix Gaill- ards, fyrrum fjármálaráðherra, og bað hann að mynda stjórn og hefur Gaillard nú verið að reyna við stjórnarmyndun í um það bil vikutíma, eins og fréttir bera með sér. Gaillard. EITT AF ÞEKKTUSTU BÓKAFOR- LÖGUM DANA - DET SCHÖN- BERGSKE - 100 ÁRA I SUMAR, hinn 23. júlí, átti eitt af þekktustu bóka- forlögum Dana, Det Schönbergske Forlag, 100 ára af- mæli. í tilefni af þvi gaf for- lagið út eins konar afmælisbók, þar sem í voru kaflar eftir ýmsa þekkta höfunda, sem forlagið er útgefandi fyrir og má í því sam- bandi benda á ' Willy Corsari, Nicholas Monsarrat, Agnar Mykle Jules Romains og Francoise Sag- an. Eru þetta allt nútimahöfund- ar, sem mikið ber á. Forlagið hefur allt frá fyrstu tíð fylgst mjög vel með í samtímabókmennt um og gefið út verk eftir fjölda marga heimsþekkta höfunda, eða. höfunda sem voru þekktir í Dan- mörku eða annars staðar á Norð- urlöndum. Stofnandi forlagsins Karl Schönberg, náði útgáfurétti að verkum Grundtvigs, sem þá bar einna hæst af andans mönn- um í Danmörku og var mjög um- deildur maður þar í landi og raunar miklu víðar. Karl Schön- berg stjórnaði forlaginu allt til ársbyrjunar 1905, en þá tóku aðr- ir við og héldu áfram sömu stefnu og stofnandinn hafði mark að. Nú er Paul Monrad stjórn- andi forlagsins en hann hafði áður verið í þjónustu Hasselbergs forlagsins og kennari við verzl- unarháskóla Dana. Det Schön- bergske, eins og það er kallað, gefur út alls konar bækur, en leggur jafnan áherzlu á að mjög sé til þeirra vandað. Nú í haust hefur bókaforlogið gefið út all- stóra skáldsögu eftir franska rit- felldar þjóðnýtingaráætlanir í höfundinn Jules Romains, sem landinu, jafnframt því sem þeir leggðu meiri og meiri höft og hindranir í veg fyrir atvinnu- greinarnar í landinu. Þessu til stuðnings bentu hægri flokkarnir og óháðir á, að Mollet hefði það á stefnuskrá sinni að veita hin- um svonefndu rekstursráðum, innan atvinnufyrirtækjanna, meiri völd en áður, en það mundi aftur leiða af sér að launþegarnir fengju óheppilega mikil áhrif á rekstur iðnaðar og annarrar starf semi í landinu. Auk þess hefur iað valdið deil- im, að Mollet /ildi koma fram xætlunum, eins ionar þjóðnýt- ingu á starfsemi lækna í landinu. Þessi áætlun sem kennd er við Gazier nokkurn Coty. talinn er með merkari núlifandi rithöfundum Frakka. Skáldsag- an heitir: Jerphanions sön. Loks gefur forlagið út bók eftir Chot- zinoff, sem heitir: Toscanini i nærbillede. Höfundurinn var nú- kunnugur hinum mikla hljóm- listarstjóra, sem nú er nýlátinn og dregur hann upp mjög ljósa mynd af þessum fræga manni eins og hann var í starfi og eins í einkalífi sínu. Margar sögur hafa myndast um framkomu Toscanini, sérstaklega gagnvart hljómlistamönnunum og hversu sterkan aga hann hafði í sam- bandi við flutning tónverka og gefur þessi bók mjög skýra og skemmtilega mynd af þessum mikla listamanni, sem talinn er að hafi verið snjallastur hljóm sveitarstjóri meðal samtíðar- manna sinna. Forlagið gefur út og hefur valdið i eins konar bókaflokk, sem kall- miklum deilum. I aður er Obelisk-bækurnar, og nú er nýkomin út ein í þeim flokki, bók sem nefnist: Lyset og havet og er eftir Corrado Alvaro, sem er einn af merkari rithöfundum ftala nú. Hann mun vera lítt þekktur á Norðurlöndum en hér er um að ræða eins konar úrval af verkum hans. Þar eru tvær stuttar skáldsögur ennfremur nokkrar smásögur og loks rit- gerðir. Dönsk bókaútgáfa er á mjög háu stigi. Innan stéttar bókaút- gefenda í Danmörku er mikið um erfðavenjur frá liðnum tíma, sem eru forlögunum verðmætur stuðningur. Forlag, eins og t. d. Det Schön- bergske, fylgist mjög vel með í samtíðarbókmenntum sínum og hefur gerfið út bækur eftir suma hinna þekktustu rithöfunda sam- tíðarinnar. Starfsemi forlagsins ber einnig mjög svip að því, að það hefur alla tíð verið menn- ingarútgáfa, ef svo mætti orða það, og fer þar saman að bæk- urnar eru með vönduðu innihaldi og gefnar út á hina smekklegustu nútímavísu. ísIendÉngar reisi Sngólíi styttu í Dals lirSi Á SÍÐASTL. sumri fór hópur tslendinga fcrð „í fótspor Egils SkalIagrímssonar“ um byggðir Vestur-Noregs, í boði ýmissa aðila þar um sióðir. Alþingismenn þeir, sem þátt tóku í förinni, hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar þess efnis, að myndastytta af Ingólfi Arnarsyni verði reist í Rivedal í Dalsfirði. Tillögumenn eru} Bjarni Benediktsson, Gyifi Þ. Gíslason, Hannibal Valdimarsson, Halldór E. Sigurðsson og Pétur Ottesen. Tiliagan er á þessa leið: Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera nauðsynlegar ráðstafanir til, að afsteypa af styttu Einars Jónssonar af Ingólfi Arnarsyni verði reist í Rivedal, Dalsfirði í Noregi og afhent Norð- mönnum að gjöf frá tslendingum sem tákn óbrotgjarnrar vináttu þjóðanna. 1 greinargerð segja flutnings- menn. Fyrsti landnámsmaður íslands, Ingólfur Arnarsoii, átti áður heima í Dalsfirði í Noregi. Þar um slóðir hyggja menn, að heim- kynni hans hafi verið í Rivedal þar í firðinum. Víða í Noj egi verður vart einlægrar vináttu til Islendinga og hvergi þó fremur en í hinum fornu heimkynnum Ingólfs Arnarsonar. Islendingar finna og hvergi betur til hinna nánu banda ætternis og vináttu, er tengja þá norsku þjóðinni. — Þykir fara vel á því, að hin sama myndastytta af Ingólfi Arnarsyni sem gnæfir yfir bæjar- stæði hans í Reykjavík verði einnig reist í Rivedal til merkis um og staðfestingar á vinarhug Islendinga til sinnar norsku frændþjóðar. shpifap up ~) daglega lifinu j B ORGARI skrifar: í grein um nýútkomna bók, þýðingu Tómasar Guðmundsson- ar á „Þjóðbyltingunni í Ungverja landi“, gerir Indriði G. Þorsteins- son sér upp satt að segja ákaflega óviðkunnanlega einfeldni með því að þykjast ekki skilja hvað sé átt við með orðasambandinu „hinn frjálsi heimur“. (sjá Tímann, 3. nóv.). Þetta hugtak er nú notað alls staðar í vestrænum löndum til þess að aðgreina heim hinna frjálsu lýðræðisþjóða frá einræðis ríkjum austursins, heim skoðana- frelsis og athafnafrelsis frá kúg- unarveröld kommúnismans. Les Indriði G. Þorsteinsson engin út- lend blöð? Eða er hann að þókn- ast kommúnistadeild Framsóknar flokksins? Indriði mun vera meðlimur í félagsskapnum Frjáls menning. Skilur hann þá hvað frjáls menn- ing er?“ Fyrir kvenfólk og húsbyggjendur VELVAKANDA berast bréf um margvíslegustu efni. Hér kemur dálítil hugvekja um fyrir- komulag í eldhúsum. „í hinni stöðugu baráttu okkar fyrir auknum þægindum, hefur verið lögð mikil áherzla á að gera eldhús íbúðarhúsa æ fullkomnari. í allri nýjungaleit ber þó sér- staklega að' gæta þess að fara ekki rangar brautir. Eitt af þvi, sem nokkuð er far- ið að tíðkast í tilhögun eldhúsa, er hinn svonefndi þurrkuskápur, sem er staðsettur fyrir ofan mið- stöðvarofninn og er hafður opinn að ofan og neðan, svo að heita loftið geti leikið í gegnum skáp- inn. Á kvennasíðu Mbl. hinn 1. nóv. sl. er sérstaklega rætt um þessa nýjung. Skápar til ryksöfnunar ASTÆÐÁ er til að benda fólki á, að þurrkuskápar eru væg- ast sagt varhugaverðir hvað þrifn að snertir. Allir þekkja hvernig heitir ofnar halda loftinu á sí- felldri hreyfingu og draga til sín ryk, sem síðan þyrlast upp fyrir þá, enda óhreinkast loft og vegg- ir yfirleitt langfyrst fyrir ofan miðstöðvarofna. Allir hljóta að sjá, ef þeir hugsa málið, hve fráleitt það er, að setja rakar þurrkur, sem not- aðar eru til að þerra matarílát, á þ^nn stað þar sem þær hljóta að draga í sig verulegan hluta af því ryki, sem til fellur í eldhús- inu. Þeir, sem þegar hafa sett upp slíka skápa, geta bjargað málinu, með því að setja í þá þunnan botn. En þá mun hitinn frá ofn- inum flýta nokkuð fyrir þurrkun, án þess að þurrkurnar óhreinkist. Það skyldu menn muna að matar- ílát hvers heimilis eru aldrei hreinni, en þurrkurnar sem not- aðar eru. Húsmóðir.“ Góð kvikmynd LESANDI Morgunbiaðsins hefur beðið fyrir orðsendingu til forráðamanna Nýja Bíós um að sýna aftur kvikmyndina Á Guðs vegum, sem þar var sýnd í nokkra daga fyrir skömmu. Tel- ui hann, að sýningar hafi hætt fyrr en fólk hafði gert ráð fyrir og að margir myndu fagna því að fá aftur tækifæri til að sjá rriyndina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.