Morgunblaðið - 06.11.1957, Qupperneq 11
Miðvikudagur 6. nóv. 1957
MOKCVISBI 4ÐIÐ
11
RæH við Einar í Sindra um
járnbræðsluhugmyndir á Alþ
framkvæmdir í þessu stórmáli
hefjist, þar sem við máske gæt-
um sparað okkur stóran hluta af
svo dýrmætum innflutningi, sem
járni og stáli.
— Þetta virðist allt liggja beint
við?
Hvað um allan pappírinn?
Hefilspænina, sagið, timbrið, sem
fer til ónýtis? Hvað um full-
komna niðursuðuverksmiðju til
að gera verðmætari og hagnýta
betur afurð'ir frá okkar höfuð-
attvlhnugreinum?
Hvað um landbúnaðarafurðirn-
ar, skinnin, ullina, gærurnar,
garnirnar, ostana, smjörið, kjöt-
ið? Fiskiroð o.fl. Hvað um Faxa-
verksmiðju og glerverksmiðju?
I.M.S.f. telur það ekkert áhorfsmál
Verkstjóri hreppti íhJð
NÚ 1 NOKKUR undanfarin ár
hefur töluvert verið rætt, ráð-
gert og rannsakað hvort tiltæki-
legt þætti að koma upp hér á
landi járnbræðslu og völsun, og
þá sérstaklega tál þess að hag-
nýta það gamalt járn, sem til fell
ur hér innanlands.
Fyrirtækið Sindri hér í Reykja
vík, hefur um nokkuð mörg und-
anfarin ár verið það eina fyrir-
tæki í landinu, sem hefur flutt út
brotajárn reglulega. Það hefur
gert þetta að sérgrein í starfsemi
sinni jafnframt því að flyttja inn
og hafa á lager stóran hluta af
því járni sem notað er til smíða
hér á landi.
Tíðindamaður Mbl. hitti um
daginn Einar Ásmundsson, for-
stjóra og ræddi við hann um
þessa hugmynd.
Á Alþingi
— Hvernig bar þetta mál að
höndum?
— Upphaf þessa máls mun
vera, að Þjóðvarnarflokkurinn
lagði fram tillögu á Alþingi um
að það verði rannsakað hvort til-
tækilegt sé að vinna hér nýtt
járn úr því gamla járni sem hér
á landi til fellur, og þá er átt við
gömul járnskip, úrgang frá
smiðjum o. fl. o. fl„ sagði Einar
Ásmundsson. Þessi tillaga mun
hafa verið borin fram á tveim
eða þrem þingum. Síðast var mál
inu vísað til rikisstjórnarinnar,
eða iðnaðarmálaráðherra til at-
hugunar. Eitthvað um þetta leyti
skrifaði í tímarit grein um stál-
gerð V-íslenzkur maður, Jón Ól-
afsson, sem unnið hefur um ára-
tugi í stálgerð í Ameríku með
mjög góðum árangri að sagt er.
Jón telur að hér geti þrifist
stálbræðsla. Hvetur hann til þess
að það verði hafizt handa í þess-
ari tímaritsgrein sinni og svo
ítrekar hann það nú fyrir nokkru
í blaðaviðtali í Morgunblaðinu.
Um tillögu þjóðvarnarmanna
fór svo að fyrrv. iðnaðarmálaráð-
herra, Ingólfur Jónsson, fól Iðn-
aðarmálastofnuninni að rann-
HIN FRÆGA ópera „Carmen“
eftir franska óperutónskáldið
Bizet, hefur til þessa dags notið
mikilla vinsælda, enda er efni
óperunnar hádramatískt og tón-
listin fögur. Vinsældir óperunnar
má meðal annars marka á því, að
kvikmyndaframleiðendur hafa
lagt sig mjög fram um að gera
kvikmyndir byggðar á óperunni.
Eru þessar kvikmyndir nú orðnar
ekki færri en 16 og er þá þessi
síðasta mynd, Carmen Jones með
talin. Mynd þessi er frábrugðin
öðrum Carmen-myndum að því
leyti, að efni hennar hefur verið
flutt yfir í nútímann og eru ein-
stök atriði myndarinnar í sam-
saka málið. Gerði hún það og gaf
út sitt álit á þessu máli sem svo
var birt í tímariti íslenzks iðnað-
ar og fleiri blöðum.
Álit með meðfylgjandi áætlun
frá I.M.S.Í. gaf ótvírætt til kynna
að hér mætti og ætti að stofna til
járnbrennslu og völsunar að
þeirra dómi með góðum árangri.
— Höfuðgrundvöllurinn, hrá-
efnið, sem allt á að byggjast á,
er allt það gamalt járn, skip o.m.
fl. sem til fellur í landinu, nokk-
ur þúsund tonn árlega.
— Hvað gerist nú?
Það síðasta, sem hefur skeð í
þessu járnbræðslumáli, sagði
Einar, er að nú fyrir nokkru er
að málið er á ný komið fram á
Alþingi. Till. um rannsókn að
hvort tiltækilegt þætti að stofna
hér stálverksmiðju o.s.frv. Er
þetta svipuð tillaga og sú sem
þjóðvarnarmenn báru fram á
sínum tíma og búið að afgreiða
og athuga.
Tillögumaðurinn er að þessu
sinni Pétur Pétursson, alþm.,
fyrrv. verðlagsstjóri og fyrrum
fjármálalegur ráðamaður Lands
smiðjunnar um nokkur ár. Hér
hlýtur að vera maður sem veit
sínu viti í þessu máli, enda til-
lagan sennilega borin fram til að
ræmi við það. — Carmen vinnur
nú í fallhlífarverksmiðju, Don
José, sem Carmen verður fyrst
hrifin af heitir nú blátt áfram
Joe og er liðþjálfi og Escamillo
nautabani hefur vikið fyrir
hnefaleikamanninum Husky Mill
er. — Allar þessar mörgu breyt-
ingar draga síður en svo úr áhrif-
um myndarinnar, enda er hún
afbragðsvel gerð, og ágætlega
sungin og leikin. Sérstaklega er
athyglisverður leikur þeirra
Dorothy Dandridge í hlutverki
Carmen og Harry’s Belafonte í
hlutverki Joe. Og Marilynu
Horne og Le Vern Hutcherson
syngja hlutverk þeirra frábæri-
lega vel. — Leikstjórinn, Otto
Preminger hefur sett myndina
snilldarlega á svið og gefið henni
hina réttu stemningu. — Sem
sé: Afbragðsmynd, sem ég mæli
eindregið með. — Ego.
— Já, því þá ekki að hefjast
handa? Þjóðvarnarflokkurinn
telur að þetta sé hægt. Reyndur
stálgerðarmaður Jón Ólafsson,
hefur þá trú að þetta sé mögu
legt hér á landi. Iðnaðarmála-
stofnunin gefur út álit og áætlun
sem ótvírætt bendir á að hún
telji að stálvinnsla beri sig hér á
landi, og síðast og ekki sízt, Pét-
ur Pétursson, alþm., maður sem
hefur unnið sem meðstjórnandi
í stóru járniðnaðarfyrirtæki og
jafnframt í járninnflutningi i
árabil, víðförull og hefur margt
séð af þessu tagi iðnaðar. Hann
hlýtur að hafa athugað málið
mjög gaumgæfilega svo sem
hann hefur og haft aðstöðu til.
Þá er það fjármagnið, sagði
Einar Ásmundsson. Ef að það er
rétt sem ofangreindir aðilar
halda fram, þá á framkvæmd
málsins að vera einföld, það eru
ávallt til einstaklingar og rík
fyrirtæki, sem vilja leggja pen-
inga í arðvænleg fyrirtæki. Við
skulum hugsa okkur að þetta
yrði hlutafélag til að byrja með.
Vestur-íslendingurinn mundi á-
I iðanlega með sinni einlægu
trú á fyrirtækinu getað safnað
amerísku hlutafé og ef til vill
lagt eitthvað fram sjálfur. Þjóð-
varnarmenn og Pétur Pétursson
geta brugðið sér til Ruhr og hitt
þar að máli einhverja af þýzku
stálkóngunum og bjóða þeim
hluti. Ef þeir kynnu að vera með
einhverjar efasemdir þá ættu
þeir að muna eftir að sýna þeim
plaggið frá Iðnaðármálastofnun
íslands.
— Gæti slík járnbræðsla byrj-
að starfsemi sína fljótlega ef í
þetta yrði ráðizt?
— Þessu veit ég ekki hvernig
ég á að svara svo tæmandi sé.
Eitthvað hefur heyrzt talað um
að nú sem stæði hefðum við ekki
nóg hráefni. Það yrði ekki hægt
að byrja strax að bræða. Safna
yrði járni í nokkur ár og banna
útflutning á gömlum skipum og
jáni.
Það eru til mörg þúsund ef
ekki tug-þúsundir tonna af járni
hér í landinu. T.d. liggur hér rétt
við bæinn uppi í fjöru í Foss-
voginum flak af togara. Það hef-
ur verið boðið til. niðurrifs nú í
nokkur ár. Flakið bíður þarna
eftir að verða ef til vill brætt í
íslenzki bræðslu. Það liggja tug-
ir skipa allt í kringum landið.
þar sem sæmileg aðstaða er til að
brenna þau niður og flytja járn
ið svo á sjó eða landi á þann stað,
sem það yrði endanlega hagnýtt.
í þessu sambandi ættu menn
að muna Dynskógafjörujárnið.
Því er sennilega ávallt hægt að
1 bjarga og yrði þá líklega ekki
kostnaðarsamara miðað við verð
mæti en að skera t. d. togaraflak-
ið í Fossvoginum niður í ofna-
stærð svokallaða.
Áður en farið var að hagnýta
brotajárn til útflutnings var það
urðað. Til eru götur í þessum
bæ, sem eru púkkaðar með brota
járni! Síðan farið var að flytja
reglulega út brotajárn hefur ekki
nema helmingur af því brotajárni
sem hér fellur til, komið fram.
í sambandi við þessa hugmynd
um járnbræðslu, er margt fleira
sem hlýtur að koma í huga
manns.
f GÆR var dregið í 7. flokki
Tappdrættis D.A.S., um 10 vinn-
inga eins og vananlega. Stærsti
vinningurinn í þessum flokki er
fullgerð 3 herbergja íbúð í nýrri
sambyggingu að Álfheimum 72
í Hálogalandshverfinu. Kom íbúð
in á miða nr. 18799 og er eigand-
inn Þorvaldur Brynjólfsson verk
stjóri í Landsmiðjunni, til heim-
ilis að Laugateig 58. Þessi miði
er í aðalumboði DAS í Vestur-
veri. Næsti vinningurinn Keilis-
tindur, sem er 414 tonns bátur,
eins og þeir bátar sem verið hafa
í happdrættinu frá byrjun. Vand
að skip og vel búið. Hann kom
á miða 52311 og var eigandi mið-
ans svo óheppinn að láta undir
höfuð leggjast að endurnýja mið
ann og því rennur þessi stóri
vinningur aftur til DAS-happ-
drættisins. Báturinn er metinn á
um 100 þús. kr. Hann var líka
í Vesturvers-umboðinu. 3. vinn-
ingurinn er rússneskur Pobeda-
bíll sem kom á 54500. Eigandinn
er Jóhannes Jónsson Kópavogs-
braut 6 A, prentnemi sem nýlega
hefur fengið próf á bíl. Þessi
miði er líka í Vesturveri. 4. vinn-
ingurinn er Fiat 600 -— Múltipla,
kom á miða 24103. Miðinn er í
Vesturverumboðinu. Ekki hafði
í gærkvöldi þegar þetta er skrif-
að verið haft samband við eig-
andann. Næsti vinningurinn eru
húsgögn eftir eigin vali fyrir
25.000 kr. koma á miða nr. 55760.
Ekki hafði náðst í eigandann, en
hann er væntanlega héðan úr
bænum því miðinn er í Vestur-
veri. Píanó Simmerman kom á
miða nr. 30348 og eigandinn er
Júlía Ólafsdóttir Knoxbúðum
E-23. Miðinn í Vesturveri. 7.
vinningurinn er einnig píanó,
Hornung & Möller og kom á
miða 23435 og hreppti það Akur-
nesingur, Karl Benediktsson, Bæ
á Akranesi. 8. vinningurinn er
heimilistæki eftir frjálsu vali
fyrir 15,000 og kom á miða 35610
og er eigandinn Kristinn Óskars-
son lögreglumaður, sem fékk að
vita um vinninginn þar sem hann
liggur í Landsspítalanum. Næsti
vinningur er einnig heimilistæki
eftir eigin vali fyrir 12.000 kr.
og kom sá vinningur í hlut Sal-
mans Kristjánssonar í Bolungar-
vík og kom á miða nr. 47133 sem
seldug er í umboðinu þar. 10. vinn.
ingurinn voru húsgögn eftir eig-
in vali fyrir 10.000 kr. og komu
á miða 15431 og er eigandinn
Halldór Bernódusson í Bolungar-
vík og miðinn seldur í umboð-
inu þar.
Pípulagningamenn
Tilboð óskast í að leggja hitalögn í húsið nr. 17 við
Hoitsgötu. Uppdrátta og útboðslýsinga skal vitja í
teiknistofu Bárðar Daníelssonar, verkfræðings, í
húsi Slippfélagsins, (vesturdyr), gegn 100 kr. skila
tryggingu. Tilboð verða opnuð kl. 14 laugardaginn
9. nóv. á Vesturvallagötu 1, fyrstu hæð.
SHEAFFERS
WH ITE D OT
S N O R K E L P E N
Enga hluti þarf að fjarlægja..
Aðeins eitt þrýstitak og penninn
er fylltur, en þó hreinn að utan!
Þessi nýjasta fylling ásamt skriftar-
gæðum gera Sheaffer’s White Dot
Snorkel Pen ákjósanlegasta penna
heims. — Sannfærist um gæðin.
Verð frá kr. 253.80
Fæst í helztu bóka- og ritfangaverzlunum.
Einkaumboðsmaður: Egill Guttormsson, Reykjavík.
Viðgerðir annast: Gleraugnaverzlun Ingólfs Gíslasonar,
Skólavörðustíg 5 og Pennaviðgerðin, Vonarstræti 4,
Reykjavik.
KV I KMY N Dl R
tCarmen Jones' i Nýja bíói