Morgunblaðið - 08.12.1957, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.12.1957, Blaðsíða 22
22 MOKCVTSBl ÁÐIÐ Sunnudagur 8. des. 1957 Bœjarstjórn Reykjavíkur samþykkir að koma á fót fœðingarheimili í Eiríksgötu 37 og Þorfinnsgötu 16 Borgarlæknir og nefnd frá Banda- lagi kvenna hafa undirbúið málið. Framkvæmd þess veltur á afstöðu ríkisstjórnarinnar A FUNDI bæjarstjórnar Reykjavíkur sl. fimmtudag fór fram siðari umræða um tillögu borgarstjóra um stofnun fæðing- arheimilis í húsunum Eiríkisgötu 37 og Þorfinnsgötu 16, en hún var borin fram á bæjarstjórnarfundi hinn 21. nóvember eftir ýtarlegan undirbúning af hálfu borgarlæknis og sér- stakrar nefndar, sem kosin var af Bandalagi kvenna. Eftir nokkrar umræður var tillaga borgarstjóra samþykkt svo og viðaukatillaga frá honum varðandi læknisþjónustu við fæð- ingarheimilið. Með þessari samþykkt hefur bæjarstjórnin fyrir sitt leyti tekið ákvörðun í þessu mikilvæga máli, og er þess að vænta, að hið fyrsta verði unnt að hefjast handa um að lagfæra það sem þarf í húsum þessum, svo að fæð- ingarheimilið geti tekið til starfa. Tlllaga borgarstjóra var á þessa leið: Bæjarstjórnin ályktar að koma á fót, að fengnum nauð- synlegum leyfum, fæðingar- heimili í húsum bæjarins nr. 37 við Eiríksgötu og nr. 16 við Þorfinnsgötu og heimilar nauð synlegar greiðslur úr bæjar- sjóði í því skyni. Bæjarstjórnin ályktar að heimila borgarstjóra að hefja samninga við ríkisstjórnina um siit á sameign og félags- rekstri ríkisins og Reykjavík- urbæjar um fæðingardeilcl Landsspítalans, með það fyrir augum, að fæðingardeildin verði rekin af ríkinu eins og aðrar deildir Landsspítalans. Fæðingardeild Landsspítalans A bæjarstjórnarfundinum var rætt um 3 tillögur um breytingar og viðauka við tillögu borgar- stjóra. Bæjarfulltrúarnir Magnús Ást- marsson, Petrína J. Jakobsson og Gils H.Guðmundsson lögðu til, að síðari liður tillögunnar yrði felld ur niður, en gerð ályktun um, að teknir yrðu upp samnigar um stækkun fæðingadeildar Lands- spítalans. Alfreð Gíslason bæjarfulltrúi sagði, að hann væri eindregið fylgjandi því, að slitið yrði sam- vinnu bæjar og ríkis um rekstur fæðingadeildarinnar, sem hefði lagt gífurlegan bagga á Reykja- víkurbæ. Borgarstjóri benti á, að hinn sameiginlegi rekstur væri óhagkvæmur fyrir bæinn, þar sem hann hefði engin áhrif á stjórn deildarinnar. Borgarstjóri sagði, að það fyrirkomulag, sem gert væri ráð fyrir í upphaflegu tillögunni, hefði verið rætt við landlækni, og væri hann fylgj- andi þessari skipulagsbreytingu. Yrði og að telja eðlilegt, að fæð- ingadeildin væri rekin -á sama hátt og aðrar deildir Landsspít- alans. Borgarstjóri skýrði síðan frá því, að komið hefði til tals, að koma uPP fæðingadeild í heilsuverndarstöðinni, þegar lyflækningadeildin þar verður flutti hið væntanlega bæjar- sjúkrahús. Breytingartillaga þreminganna var að lokum felld með 10 at- kvæðum gegn 5. Hef flutt lækningastofu mína í Vesturbæjarapótek. Viðtals- tími daglega kl. 15—15.30, nema laugardaga. Tryggvi Þorsteinsson, læknir. breiting verður á viðtalstíma barnadeildar Heilsuverndarstöðvarinn- ar í Langholtsskóla, að framvegis verður opið: Fimmtudaga kl. 1—2 e.h. (en ekki 9—10 f.h.) Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Mænusóttarbólusetning s Reykjavík Fyrst um sinn verður opið fyrir mænusóttarbólu- setningar alla virka daga nema laugardaga kL 2—4.30 e.h. Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Þilplötur fyrirliggjandi, stærð 4x9 og 4x8 fet HARPA H.F. Einholti 8 Læknisþjónusta í fæðingar- heimilinu Þá báru bæjarfulltrúarnir Al- freð Gíslason og Ingi R. Helgason fram tillögu um að ráða sérstak- an lækni að hinu fyrirhugaða fæðingarheimili. Magnús Ástmars son og Petrína Jakobsson lögðust gegn þessari tillögu og benti Pet- rína m. a. á, að samþykkt hennar myndi leiða til þess að gera þyrfti ýmsar breytingar á húsunum, sem hér er um að ræða, og væri vafasamt, hvort yfirleitt væri unnt að koma þeim við, og full- víst, að það myndi tefja mjög fyrir því, að fæðingaheimiíið tæki til starfa. Borgarstjóri sagði um tillögu þeirra Inga og Alfreðs, að hann hefði áður bent rækilega á, að hér væri ekki um að ræða stofn- un fæðingardeildar heldur fæð- ingaheimilis. Þær konur, sem þyrftu sérstaka læknishjálp vegna sjúkleika myndu hér eftir sem hingað til fara á fæðinga- deild Landsspítalans. Væri það því tillaga þeirra, sem bezt þekktu hér til, að konur skyldu sjáliar velja sér þann lækni er þær vildu fá til sín á fæðingaheimilið. Loks benti borgarstjóri á, að sam- þykkt tillögunnar myndi hafa mikinn kostnað í för með sér þar sem fullkomin læknisþjónusta yrði ekki veitt nema ráðnir yrðu 3 læknar að heimilinu. Lagði borgarstjóri til, að í stað tillögu Inga og Alfreðs yrði sam- þykkt eftirfarandi tillaga: Bæjarstjórnin felur borgar- lækni og væntanlegri forstöðu konu fæðingaheimilisins að j tryggja eftir föngum nauð- i synlega læknisþjónustu við heimilið. Þessi tillaga borgarstjóra var samþykkt með 10 atkvæðum gegn 3. Loks var hin upphaflega til- laga borgarstjóra samþykkt sam- hljóða. Kemur til kasta stjórnarliðsins Eins og fyrr er sagt hefur bæjar stjórn með þessari afgreiðslu tek ið endanlega ákvörðun um stofn- un fæðingaheimilis fyrir sitt leyti. Er þess að vænta, að nú verði ekkert því til fyrirstöðu af hálfu ríkisins að hafizt verði handa um undirbúning að starfrækslu þess, en nokkrum vafa er bundið hver verður afstaða ríkisstjórnar- innar að því er varðar lögin um afnot íbúðarhúsnæðis.Þau banna, að slíkt húsnæði sé tekið til ann ars en íbúðar.Er þess að vænta,að stjórnarflokkarnir veiti atbeina sinn til að þetta atriði valdi ekki erfiðleikum, en í húsum þeim, sem hér er um að ræða, hefur að undanförnu búið fólk, sem bærinn hefur séð fyrir húsnæði. Tillaga borgarstjóra var eins og áður er frá skýrt borln fram eftir að málið hafði verið undirbúið vandlega af borgar- lækni, dr. Jóni Sigurðssyni, og nefnd, sem kosin var af Banda lagi kvenna í Reykjavík. í nefndinni áttu sæti: Frú Herdís Ásgeirsdóttir formaður, frú Jónína Guð- mundsdóttir, frú Ólöf Sigurð- ardóttir, frú Arndís Einars- dóttir. og frú Kristin L. Sig- urðardóttir. Guðm. Pétursson útgerðarmaður beiðraðinr AKUREYRI, 6. des. — Nýlega var Guðmundur Pétursson útgerðar- maður heiðraður af Vélbátatrygg ingu Eyjafjarðar. Var hanri gerður að heiðursfélaga trygging- arinnar á síðasta aðalfundi. Guð- mundur Pétursson hefur setið í stjórn félagsins frá upphafi en baðst nú undan endurkjöri sakir aldurs. Guðmundur Pétursson var mikill forystumaður á sviði trygg inga hér norðanlands. Verðskuld- ar hann þvi vissulega þann heið- ur sem honum hefur verið sýnd- ur. — vig. Skráin um Fiske- safnið slegin á 1500 kr. Sigurður Benediktsson hélt bókauppboð á föstudag. Selt var m. a.: Bókáskrá Halldó#s Hermanns- sonar um Fiskesafnið í íþöku (kr. 1500), Andvökur, frumútg., 6 bindi (kr. 850). • Gátur, þulur og skemmtanir, teknar saman af Jóni Árnasyni og Ólafi Davíðssyni, útg. 1887— 1898 í 4 heftum (kr. 800). Norsku lög, Hrappsey 1779, (kr. 780). — „Leirgerður", sálmabók, 1. útg., Leirárgörðum 1801, (kr. 400). Árbók Ferðafélagsins 1928, 1930 og 1935—’45 incl. (kr. 900). Sigurður efnir til uppboðs á mál verkum og öðrum listmunum n. k. föstudag, og þyrfti að koma því, sem selja á, á uppboðinu, til hans á morgun eða á þriðjudag. BÆ, Hofshreppi, 7 .des. — In- flúenzan hefur gengið hér og er nú að fjara út í byggðarlaginu. Má segja að marínheilt sé nú hér og ósjúkt. — Björn. — / /ivoð útsvörin fara Framh. af bls. 6. 13. Kostnaður við fast- eignir, viðgerðir og end- urbætur, leigugarða til al- mennings, framlag til strætifevagna, vextir og önnur útgjöld samtals 6 Þessir eru meginþættir í út- gjöldum bæjarins. En athug- um nú nánara, til hvers út- svari hvers einstaks útsvars- greiðanda er varið. 4 þús. kr. útsvar skiptizt svo: Tökum dæmi af manni, sem fær 4000 kr. — fjögur þúsund krónur — í útsvar. Af þessu útsvari fara: 1. Til félagsmála kr. 1080 (lesendur eru beðnir að bera þessa málaflokka saman við sundurliðanirnar hér á und- an, til þess að sjá greinilega, hvaða mál falla undir hvern lið). 2. Til gatnagerðar kr. 640. • 3. Til heilbrigðis- og hrein- lætismála kr. 560. 4. Til skólamála kr. 480. 5. Til stjórnar bæjarins kr. 215. 6. Til íbúðabygginga kr. 195. 7. Til löggæzlu kr. 195. 8. Til íþrótta, lista og úti- veru kr. 195. 9. Til afborgana kr. 110. 10. Til áhaldakaupa kr. 100 11. Til brunarvarna kr. 80 12. Til fasteignakaupa kr. 40. 13. Til viðgerða á húsum, leigugarða og annarra gjalda kr. 110. Eftir sama hlutfalli og hér hefur verið greint getur hver maður reiknað hve mikið af útsvari hans fer til hverrar greinar í starfsemi bæjarins. „Voluskjóða“ og þrjár bamabækur frá Iðunni Bókaútgáfan Iðunn hefur nýlega^unna, munu f Völuskjóðu finna sent á markaðinn safn frásagnar- þátta um ýmis efni, ritað af Guð- finnu Þorsteinsdóttur skáldkonu, sem landskunn er undir nafninu Erla. Nefnir hún bók sína Völu- skjóðu, en þar er að finna ýmsar hrakningasögur og mannrauna af fjallvegum Austurlands og marg- ar glöggar lýsingar á hörðum lífs- kjörum heiðabúa. Þeir, sem þjóðlegum fróðleik BAZAR Bazar verður haldinn í Landakots- skólanum í dag kl. 3. Bazarnefnd. NAUÐUIMGARUPPBOD Það, sem fram átti að fara á Ármúla 24, hér í bæn- um, eign Blikksmiðjunnar Glófaxa sf., þann 11. des. 1957, fellur niður. Borgarfógetinn i Reyk.javík. marga mola gulls, sem þeir viidu ekki missa af, enda er bókin vel rituð, en sjólf var ská.dkonan lengi húsfreyja á einu heiðabýl- inu þar eystra. Þá sendir Iðunn frá sé: þrjár skemmtilegar barnabækur nú fyr- ir jólin. Ein þeirra er áttunda og síðasta bókin af hinum vinsælu Ævintýrabókum, og nefnist hún ÆvintýrafljóliS og er skreytt mikl um fjölda ágætra mynda. Höfund- ur þessara bóka, Enid Blyton, mun vera einn víðlesnasti höfund ■ur barna- og unglingabóka, sem ■nú er uppi, en bækur hennar koma út á nálega 20 tungumálum. Eftir sama höfund kemur einnig út hjá Iðunni sagan Fimm á Fagurcy, sem er fyrsta bókin í nýjum flokki barnabóka, er fjalla um 'fclagana fimm, fjögur börn og hundinn Tomma. Bókin er prýdd '30 góðum myndum. Loks er nýkomin út hjá Iðunni ný drengjasaga eftir ungan ís- lenzkan höfund, sem kallar sig Örn Klóa. Sagan heitir Jói í ævin- týraleit og fjallar um ævintýra- ■drenginn Jóa Jóns og vin hans Pétur, sem hann bjargar úr hönd- ■um óknyttastráka og hjálpar síð- an á ýmsa lund. Sagan er hörku- spennandi og holl hverjum dreng.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.