Morgunblaðið - 08.12.1957, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.12.1957, Blaðsíða 23
Sunnudagur 8. des. 1957 MORGVISBI 4B1Ð 23 McElroy felur óheppilegt að gera Vanguard-tilraunir með leynd LONDON 7. des.: — Landvarnar- análaráSherra Bandaríkjanna, Mc Klroy, er nú staddur í London til "viöræðna við brezku stjórnina. ViS komuna til London ræddi McEIroy •við blaðamenn og sagði m. a., að bin misbeppnaða tilraun með Vanguard-eldflaugina hefSi valdiS miklum vonbrigSum í Bandaríkj- unum. Unnið yrði að því sleitulaust ®ð flýta fyrir næstu tilraunum, isem mundu gerðar bæði með iVanguard- og Jupiter-eldflaug. Ekki væri enn hægt að segja um iþað hvenær næsta tilraun færi fram, en það væri að mestu háð Iþví, hve langan tíma tæki að gera ivið eldflaugastöðina í Florida. McElroy var spurSur að því livort bann teldi ekki, aS tilraunir ecm þessar ætti aS gera mcS leynd Sagði hann, aS þaS væri vandamál, 8cm alltaf væri erfitt aS ráða fram úr í 'ýSfrjálsu landi, því aS fólkiS ectti aS vissu leyti kröfu að því aS fá vitneskju um gang málanna IMiklu heppilegra væri því aS gera þessar tilraunir fyrir opnum tjöld- um en aS Ieyna þeim. Þá drápu blaðamenn á þá full- yrðingu Krúsjeffs í gær um, að leldflaugarhylkið, sem bar Sputnik 1. út í geiminn, hefði fallið á Ibandaríska grund hinn 1. des. s.l. KvaSst landvarnarmálaráSherr- onn ekki vita neitt um mál þetta annaS en þaS, sem haft hefði ver- iS eftir Krúsjeff. Ef hylkiS hefði ifallið til jarSar-væri ekki um aS ræSa annaS en óverulegt brak. Ef þaS fyndist liins vegar í Bandaríkj lunum, sem McElroy dró þó mjög í efa, mundi vissulega verða hug- leitt, hvorl ekki bæri aS skila Rúss um þvi. Þá var hann spurður hvort Eisenhower mundi fara til París- ar. Kvað hann forsetann mundu ekki fara nema að hann hefði náð fullum bata. Líkurnar væru hins vegar miklar til þess. Sem fyrr segir mun McElroy®’ ræða við bandarísku stjómina —I aðallega um fyrirhugaða sam-1 vinnu Breta og Bandaríkjanna á vísindasviðinu og framleiðslu lang drægra eldflauga. Hann mun fara til nokkurra annarra Evrópulanda í sömu erindagjörðum, áður en xáðherrar NATO-landanna koma saman í París í mánuðinum. Fjölmeimiir fundur Finnlands- vinafélagsins Finnlandsvinafélagið Suomi hélt fjölmennan kvöldfagnað í Tjarn- arcafé, í tilefni af 40 ára sjálfstæð isafmæli finnsku þjóðarinnar 6. desember s.l. Form. félagsins Jens Guðbjörns son bauð gesti velkomna. Eggert Kristjánsson aðalræðismaður Finna, flu-ti ávarp, Karl Isfeld, rithöf., las úr Kalevalaljóðum, við mikla hrifningu. Valur Gíslason leikari las úr verkum Halldórs Kiljan Laxness. Vigfús Sigurgeirs son sýndi kvikmynd af heimsókn forseta íslands, Ásgeirs Ásgeirs- sonar, til Finnlands. Ennfremur frumsýndi Vigfús kvikmynd sem hann tók við komu forseta Finn- lands, Urhu Kekkonen, til íslands á s. 1. sumri. Eru báðar myndirn- ar teknar í eðlilegum litum og hin ar fegurstu. Að þessu loknu sungu þær Kaja Pekkonen og Raili Kuusela finnsk þjóðlög við ihmar beztu undirtektir. Að lok- um var stíginn dans. Skemmtun þessa sóttu nær allir Finnar sem dvelja eða eru búsett ir í Reykjavík og nágrenni. iSkemmtunin fór hið bezta fram og var öllum til ánægju er hana Isóttu. til sölu Atlantshafsráðið rœddi Indonesiumálið PARÍS 7. des.: — Samkvæmt | Obeiðni hollenzku stjórnarinnar kom Atlantshafsráðið saman til Bkyndifundar i dag til þess að tfjalla um ástandið í Indonesíu. — )Var fundurinn lialdinn fyrir lukt- um dyrum. I yfirlýsingu, sem gef- in var út eftir fundinn sagði, að Ihollenzki fulltrúinn hefði gefið ráðinu skýrslu um atburði síðustu daga í Indonesiu ——. og liefði ráðið Bcnt NATO-löndmiuni 15, skýrsl- Una — og mundi liún rædd siðar. O o o 1 dag tó'c Indonesiustjórn þrjá höfuðbankana I Indonesiu eignar- námi, en þeir hafa verið undir stjórn Hollendinga. Þá hafa þrjú skipafélög einnig verið tekiii eignarnámi til viðbót- ar við hin fyrri. Þegar fregnin um eignarnám bankanna barst út, þusti fólk, sem átti innstæður í þeim, til bankanna og hugðist taka allt út. Takmörkuðu stjórnar völdin úttekt hvers og eins. Her- vörður er á götum og gatnamót- um, en Evrópumenn í Indonesiu halda sig innan dyra til þess að komast hjá öllum óþægindum. Hollenzka stjórnin hefur tilkynnt, að annar tundurspillir verði send- ur til Nýju-Guineu nú þegar. Er Krúsjeff hin góða heimild" TASS ? LONDON, 7. des.: — TASS-frélta- 'Slofan rússneska sagðist í dag hafa það eftir góðum heimildum, að ■eldflaugarliylkið frá Sputnik 1. ihefði byrjað að hráðna og leysast upp í kringum síðustu helgi. Hefði íhylkið fallið til jarðar einhvers istaðar í Alaska, eða suður af Al- aska, undan vesturströnd Norður- Ameriku. Ekki endurtók fréttastofan kröfu Krúsjeff frá í gær, að Bandaríkjastjórn ætti tafarlaust að afhenda Rússum hylkið, þar eð það væri fundið. Á það er bent í fréttum, að TASS-fréttastofan þverneitaði því, allt fram á þenn- an dag, að hylkið væri fallið til jarðar. Jafnvel var sagt í Rúss- landi í síðustu viku, að rússneskir vísindamenn hefðu séð flugskeytið á lofti um miðja vikuna. Beittu táragasi NICOSIA, 7. des.: — 1 dag var efnt til fjölmenns fjöldafundar í Nicoisa á Kýpur, í sambandi við það, að á mánudaginn hefjast um- ræður í Allsherjarþinginu um Kýpurmálið. Lét mannfjöldinn í ljós andúð á Bretum, en lögregla dreifði hópnum með táragasi. Víða var vinna lögð niður og ílykktust verkamenn til fjölda fundarins. Um 20 stúdentar hlutu sár í steinkasti, er fólkið gerði að •brezku lögreglunni og byggingum, og brezk blaðakona hlaut einnig mikinn áverka af sömu sökum. Níræð merkiskona BÆ, Hofshreppi, 7. des. — í gær, 6. des., varS merkiskonan. Kristín Þorgrímsdóttir á Hofsósi, 90 ára. Hún er búin að stjórna heimili í 68 ár. Kristín hefur verið ekkja í 38 ár, en stjórnar nú heimili fyrir son sinn, Þorgrím Her- mannsson, útgerðarmann og háta smið á Hofsósi. Kristin les á bók ennþá og heyrir mjög sæmilega. Er hún næstum eins og sjötug mann- eskja. Hún er létt í spori og ern mjög. Hún hefur eignazt 7 börn og á nú um 30 barnabörn. Hún er nú orðin langa-lang-amma. Kristín er mjög vel metin af samtíðarfólki sínu og heimsóttu hana margir á níræðisafmæl- inu. — Björn. Neituðu að undirrita yfirlýsinguna í Kreml Osammála í nokkrum atriðum BELGRAD 7. des. Júgóslavneski kommúnistaflokkuriim hefir gef- ið út tilkynningu þess efnis, að í yfirlýsingu kommúnistaríkjanna 12, sem sátu á fundi í Mþskvu í síðasta mánuði, hefðu koniið fram nokkur röng sjónarmið, sem Júgóslavar væru andvígir og hefði fulltrúi júgóslavneskra kommúnista neitað að undirrita yfirlýsinguna ásamt hinum kom- múnistaríkjunum. ★ Júgóslavar voru einir kommún- istaríkjanna sem ekki undirrituðu yfirlýsinguna, en hins vegar und irrituðu þeir aðra yfirlýsingu ásamt 64 kommúnistaflokkum um allan heim, þar sem lögð var áherzla á að bundinn skyldi endir á vígbúnaðarkapphlaupið. Aðalefni yfirlýsingar landanna 12, var að Vesturveldin voru sökuð um stríðsæsingar — og hvatt var til nánari samvinnu og einingar kommúnistaríkjanna undir forystu Rússa. ★ Hin fyrrnefnda tilkynning var gefin út að loknum miðstjórnar- fundi júgóslavneska kommúnista flokksins, en hann var lialdinn á Brioni-eyju í Adriahafi, en þar dvclzt Tító nú og er undir læltn- ishendi. Sagði og í yfirlýsingunni, að júgóslavneskir kommúnistar væru ekki sammála öðrum kom- múnistum í öllum atriðum, mætti það ekki verða til þess að koma í veg fyrir bróðurlega og einlæga samvinnu þeirra í milli. Júgóslav ar mundu haldi áfram að berjast fyrir friði — og vilja efla sam- vinnu við sósíalista og kommún- ista. Flokkaglíma Reykjavíkur FLOKKAGLÍMA RVÍKUR verð- ur háð kl. 4 í dag að Hálogalandi. Glímt verður í þremur flokkum. Alls eru keppendur 14. Verða tveir þyngdarflokkar og einn ald- ursflokkur. — Ungmennafélag Reykjavíkur gengst fyrir keppn- inni að þessu sinni, en síðast var það Glímufélagið Ármann sem sá um mótið. - - TITO Frh. af bls. 1 að mörgum af okkar heztu flokks mönnum til þess að hvika ekki frá takmarki byltingarinnar — og til þess að vinna fullnaðarsig- ur?“, sagði hann. SLYSAVARNAFÉLAGIÐ aug- lýsti í gærkveldi eftir litlum trillubát, sem farið hafði frá Höskuldsey kl. 16 í gærdag á leið til Stykkishólms. Var báturinn ekki kominn fram, þegar síðast fréttist — og voru skip og bátar á nálægum slóðum beðin að svip ast um eftir honum. Einn maður var á bátnum, Ágætt íbúðarhús, sem nota má jafnt, sem ein- býlishús, sem 2ja íbúðarhús er til sölu. — Hagstætt verð og greiðsluskilmálar. Nánari upplýsingar gefur undirritaður. Gunnar Þorsteinsson, hæstaréttarlögmaður, Austurstræti 5, sími 1-1535. Ungling vantar til blaðburðar við Skerjafjorð fyrir norðan flugvöll Sími 2-24-80 Öllum þeim, sem heiðruðu mig á 60 ára afmæli mínu 23. nóvember, með heimsókn, skeytum og gjöfum, þakka ég hjartanlega. s Guðný Guðnadóttir. Jarðarför konunnar minnar KRISTÍNAR GUÐJÓNSDÓTTUR fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, mánudaginn 9. des. kl. 1.30 e.h. — Blóm vinsamlega afþökkuð. Sigfús Jónsson. Maðurinn minn ÓLAFUR HRÓBJARTSSON verður jarðsunginn frá Neskirkju, þriðjudaginn 10. des. kl. 1,30 e.h. Blóm eru afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hans skal vinsamlega bent á Dvalarheimili aldraðra sjómanna. Karitas Bjarnadóttir, börn og tengdabörn. Jarðarför mannsins míns PÉTURS NJARÐVlK fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 9. des. kl. 1,30. Fyrir hönd aðstandenda. María Njarðvík. ^ Útför föður míns MAGNÚSAR SIGURÐSSONAR frá Skuld fer fram þriðjud. 10. des. frá Þjóðkirkjunni I Hafnarfirði. Hefst athöfnin með húskveðju að heimili hans Hringbraut 73, klukkan 1,30 e.h. Blóm vinsamlega afþökkuð. Fyrir hönd systkina minna. Sveinbjörn Magnússon. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför bróður okkar GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR frá Þjóðólfshaga. Sérstakar þaikkir færum við hjúkrunar- liði Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund fyrir alúð og um- hyggju, sem það veitti honum í veikindum hans. Systkinin. Þökkum innilega sýnda samúð við andlát og útför ÞORBJARGAR ALDfSAR BJÖRNSDÓTTUR Sigurður Guðmundsson, börn, tengdabörn og barnabörn. Hjartanlega þökkum við öllum, sem sýnt hafa samúð og vináttu við andlát og jarðarför föður okkar og fósturfööur TEITS GUÐBJÖRNS SIGURJÖNSSONAR Hulda Teitsdóttir, Þórunn Teitsdóttir, Óskar Teitsson, Eiríkur J. Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.