Morgunblaðið - 15.12.1957, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.12.1957, Blaðsíða 15
Sunnudagur 15. des. 1957 MORCVWBT 4Ð1Ð 15 Gerast Danir aðilar að sameigin- legum markaði V.-Evrópulanda? Danskir bændur krefjast þess Kaupmannahöfn í nóv. AF HÁLFU danskra bænda hafa upp á síðkastið komið fram sterk ar raddir um nauðsyn .þess, að Danir gerist aðilar að sameig- iniega markaðnum, sem 6 Vestur- Evrópulönd, nefnilega Vestur- Þýzkaland, Ítalía, Fraklcland, Holland, Belgía og Luxemburg, standa að. „Samband danskra bændafélaga“ krefst þess, að á- kvörðun verði tekin um þetta innan skamms. Nálega % hlutar landbúnaðar- framleiðslunnar í Danmörku fara til útflutnings. Hagur bænda er þvi að miklu leyti undir útflutn- ingsverzluninni kominn. í fyrra fluttu Danir út landbúnaðaraf- urðir fyrir 4.500 milljónir d. kr. Þetta var 60% af öllu útflutnings- verðmætinu. En verðmæti innr fluttra vara til landbúnaðarfram- leiðslu nam ekki nema 1.000 millj. kr. Bændur öfluðu þannig land- inu 3.500 millj. kr. í erlendum gjaldeyri. Þeir lita því svo á, að hagsmunir landbúnaðarins hljóti að ráða mestu um það, hvaða afstöðu dönsk stjórnarvöld taka til markaðsáforma þeirra, sem nú eru á döfinni í Vestur-Evrópu. Einn af aðalleiðtogum danskra bænda J. Larsen, forstöðumaður, skýrði á blaðamannafundi frá af- stöðu bænda til markaðsáform- anna. Hið fyrirhugaða norræna tolla- bandalag skiptir litlu sem engu í þessu sambandi. í fyrsta lagi er óvíst, hvort það nær til land- búnaðarafurða, ef það á annað borð verður stofnað. í öðru lagi kaupa hinar Norðurlandaþjóðirn- ar ekki nema 4% af landbúnaðar- útflutningi Dana. Dönsku bændurnir vænta sér ekki mikils af áformunum um fríverzlunarsvæðið, sem ætlazt er til að öll eða flest öll lönd, sem standa að Efnahagssamvinnustofn un Evrópu (OEEC), gerist aðilar að. Leiðtogar danskra bænda ef- ast um, að fríverzlunarsvæðið komist á laggirnar. Og þótt það verði stofnað, þá telja þeir*ólík- legt, að landbúnaðarvörur verði þar tollfrjálsar. Það mætir sem kunnugt er mótspyrnu af hálfu Breta. Á nýlega afstöðnum ráðherra- fundi í OEEC voru Bretar að vísu — á yfirborðinu að minnsta kosti — ekki eins hax-ðir í horn að taka og áður. Þeir geta fall- izt á, að einstakir aðilar fríverzl- unarsvæðisins afnemi landbúnað artollana sín á mlili. En Bretar sjálfir vilja ekki skuldbinda sig til að afnema þá, af því þeir vilja halda uppi tollaívilunum gagn- vart samveldislöndunum. Þegar á þetta er litið, sagði J. Larsen, þá finnst okkur, að við eigum í rauninni ekki nema eina leið færa. Við verðum að gerast aðilar að sameiginlega markaðn- um. Þar er ekki um óviss áform heldur um staðreynd að ræða. Og hann nær ekki aðeins til iðn- aðarvara heldur líka að nokkru leyti til landbúnaðarafurða. Þau 6 lönd, sem að sameigin- lega markaðnum standa, hafa sem kunnugt er gert samning um að sfnema smám saman á 15 árurn tolla og innflutningshöft sín á miili. Sérstök ákvæði gilda þó um landbúnaðarvörurnar. Þær verða tollfrjálsar en ekki með öllu haftalausar. Ætlazt er til, að aðildarlöndin geti verndað inn- lenda matvöruframleiðslu inn- an vissra takmarka. Nánari á- kvæði verða sett um þetta á ráð- stefnu, sem þessi 6 lönd ætla að halda á næsta ári. Danskir bændur telja nauðsyn- legt, að Danir gerist aðilar að sameiginlega markaðnum áður en þessi ráðstefna hefst, til þess að fulltrúar þeirra geti setið hana og haft áhrif á þær ákvarðanir, sem þar verða teknar. Komið hef- ur til mála, að ráðstefnunni verði frestað þangað til í byrjun árs- ins 1959. Ef svo fer, þá fá Danir lengri umhugsunarfrest. Danskir bændur benda á, að þeir misstu álitlegan markað í Belgíu, þegar Benelux-tollabanda lagið var stofnað. Ef Danir ger- ast ekki aðilar að sameigmlega markaðnum, þá eiga þeir á hættu, að þar fari á svipaðan hátt. Land- búnaðarvörur Dana rekast þar á háa tollmúra og önnur höft, en hollenzkar vörur njóta þar toll- frelsis og fleiri ívilana. Hollend- ingar eru þarna hættulegustu keppinautar Dana. Danskir bænd ur sjá þvi fram á, að hinn þýðing- armikli útflutningur danskra landbúnaðarafurða til aðildar- landa sameiginlega markaðsins mundi stöðvast að miklu eða öllu leyti, ef Danir standa utan við þessi markaðssamtök. Þetta mundi hafa í för með sér mjög alvarlegar afleiðingar fyrir Dani, sérstaklega þar sem landbúnaðarútflutningur þeirra er að færast úr vestri í suður, frá Bretlandi til iðnaðarhérað- anna i Vestur-Þýzkalandi og Norður-Ítalíu. Bretar hafa sem kunnugt er lengi verið aðalkaupendur danskra landbúnaðarafurða. En þeir verja stórfé til að auka inn- lenda framleiðslu á matvælum. Brezk framleiðsla á landbúnaðar vörum úr dýraríkinu er nú 40% meiri en fyrir heimsstyi'jöldina síðari, en þó hefur fólki á Bret- landi ekki fjölgað nema um 8% á þessum tíma, og neyzlan á mann aðeins aukizt lítils háttar. Þetta hefur gert að verkum, að þýðing brezka markaðsins fyrir danska bændur minnkar ár frá ári, en um leið hafa þeir fengið sivaxandi markað í þeim lönd- um, sem nú standa að sameigin- lega markaðnum. Fyrir tæpum áratug keyptu þessi lönd 26% af útfluttum dönskum iandbúrx- aðarafurðum en í fyrra 36%. Á sama tíma hefur útflutningur landbúnaðarafurða frá Dan- mö' ku til Bretlands minnkað úr 70% niður í 46%. Og á þessu ári verður líklega jafnvægi milli útflutningsins til Bretlands ann- ars vegar og sameiginlega mark- aðsins hins vegar. Danir hafa safnað ýtarlegum upplýsingum um ástandið og framtíðai'horfur á þessum tveim- ur mörkuðum. Af þessum upplýs- mgum má t.d. sjá, að árleg neyzla af kjöti og fleski er 62 kg. á mann í Bretlandi en ekki nema 48 kg. á mann í löndum sameig- inlega markaðsins. Þar vex kaup geta og um leið neyzla á land- búnaðarvörum úr dýraríkinu miklu örar en á Bretlandi, en landbúnaðarframleiðsla í þessum 6 löndum eykst þó ekki að sama skapi. Af þessu má ráða, segja leið- togar danskra bænda, að fram- tíðarmarkaðurinn fyrir afurðir okkar verður ekki hinum megin Norðursjávarins heldur á hinum sameiginlega markaði megin-1 landsríkjanna. Gerist Danir aðilar að sameig- inlega markaðnum, og verði stofn að fríverzlunarsvæði með þátt- töku OEEC-landanna, þá fá þeir frjálsan aðgang að tveimur stór- um mörkuðum. Margir telja þetta heppilegustu lausnina, þótt Dan- ir yrðu þá að snúa bakinu að fyr- irhuguðu tollabandalagi Norður- landa. Þótt landbúnaðarafurðirnar séu aðalútflutningsvörur Dana, þá skipta hagsmunir iðnaðarins líka miklu máli, þegar afstaða er tekin til markaðsmálanna. Út- flutningur iðnaðarvara vex ár frá ári og slagar nú hátt upp í landbúnaðarútflutninginn, þegar á verðmætið er litið. Við þetta bætist, að það er fyrst og fremst undir iðnaðinum komið, hvernig tekst að halda uppi atvinnu í landinu. Danskir iðnrekendur hafa yfir- leitt ekki tekið ákveðna afstöðu til markaðsmálanna. Þau eru langtum flóknari séð frá sjónar- miði þeirra en bænda. Sumir iðn- rekendur telja frjálsan aðgang að stærri markaði æskilegan. En aðrir óttast, að þeir verði ekki samkeppnisfærir. Þessi ótti kem- ur sérstaklega fram af hálfu þeix-ra, sem framleiða vörur handa danska mai-kaðnum í skjóli innflutningshafta. Á það er líka bent, að danskur ionaður hefur ekkx irukinn mark- að fyrir afurðir sínar í þeim lönd- um, sem að sameigmlega mark- aðnum standa . í fyrrd seldu Dan- ir þessum löndum iðnaðarvörur fyrir 700 milljónir kr. en keyptu af þeim iðnaðarvörur fyrir þrisv- ar sinnum hærri upphæð. Sumir halda, að aðild Dana að sameiginlega markaðnum mundi torvelda viðskipti þeirra við lönd, sem utan við hann standa, en þau kaupa 80% af út- fluttum dönskum iðnaðarvörum. Aðild Dana að sameiginlega markaðnum mundi gera að verk- um, að þeir yrðu að afsala sér nokkru af fullveldi sínu í hend- ur markaðsstjórnarinnar. f öllum stjórnmálaflollkum eru skiptar skoðanir um það, hvaða leið Danir eigi að velja í mark- aðsmálunum. Leiðtogar flokk- anna leggja áherzlu á, að þetta verði ekki gert að flokksmáli. Ríkisstjórnin telur heppilegast að bíða átekta og sjá, hvernig fer með áformin um fríverzlun- arsvæðið. H. C. Hansgn forsætis- og utanríkisráðherra er fylgjandi þátttöku í því, ef það kemst á fót og Dönum bjóðast þar viðunandi kjör. Mörgum jafnaðarmönnum geðj ast ekki að sameiginlega mark- aðnum. Sérstaklega er verka- mönnum ógeðfellt, að þar á að skapa sameiginlegan vinnumark- að og samræma félagsmálalög- gjöf þátttökulandanna. Vinstriflokkurinn, sem er bændaflokkur, hallast sem vænta mátti að sameiginlega markaðn- um. Aksel Möller, formaður þing flokks íhaldsmanna, gerir það líka. Margir flokksbræður hans, en þó langt frá allir, eru honum sammála í þessu. Starkcke, leiðtogi réttarríkis- flokksins, geðjast ekki að sam- eiginlega markaðnum. Kjeld Philip, einn af ráðherrunum úr róttæka flokknum, er þarna sam- mála Starcke. Nú bíða Danir átekta. En verði ekki stofnað fríverzlunarsvæði, sem Dönum finnst aðgengilegt, þá kemst spurningin um þátt- töku í sameiginlega markaðnum fyrir alvöru á dagskrá. Páll Jónsson. TIL JOLAGJAFA: ULPUR EYSUR GEFJUN-IÐU N N

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.