Morgunblaðið - 15.12.1957, Blaðsíða 19
Sunnudagur 15. des. 1957
MORCUNBL4Ð1Ð
19
Námskeið í amerísk-
um bókmennium
AMERÍSKI sendikennarinn ri8
Háskóla íslands, dr. Hjalmar O.
Lokensgard, efnir til þriggja
mánaða námskeiðs í amerískum
bókmenntum á næsta kennslu-
misseri (hefst 1. febr. 1958). —
Námskeiðið, sem verður ókeypis,
er opið öllum stúdentum eða
fólki með hliðstæða enskukunn-
áttu. Þeir, sem áhuga kynnu aC
hafa á að sækja námskeið þetia,
eru beðnir að koma til viðtaU
í VII. kennslustofu Háskólans,
mánudaginn 16. desember, kl
6,30. e. h.
(Frá Háskóla Islands)
Fjörugar umræður
í Sfúdentafélagmu
HINN 10. þ. m. gekkst Stúdenta-
félag Reykjavíkur fyrir fundi
um réttarstöðu Grænlands. Var
stjórn hins nýkjörna Landssam-
bands íslenzkra Grænlands-
áhugamanna boðið að sitja fund-
inn og hafa þar málfrelsi.
Frummælandi á fundinum var
dr. Jón Dúason.
Aðrir ræðumenn voru: Gunn-
ar Helgason, hdl., Þorkeil Sig-
urðsson, vélstjóri, Ragnar V.
Sturluson, verkamaður, Andrés
Kristjánsson, blaðamaður, Henry
Hálfdánarson, skrifstofustjóri,
Örn Steinsson, vélstjóri, Sturlaug
ur Jónsson og Sigurður Ólason,
hrl.
Umræður voru hinar fjörug-
ustu og bar margt á góma. Stóð
fundurinn fram yfir miðnætti.
Fundarstjóri var Barði Friðriks-
son, hdl.
„Af öllum þeim bókum sem út hafa komið um flótta,
njósnir og skemmdarstarfsemi í heimsstyrjöldinni síðari,
er bók John Castle’s um „Greifann af Auschwitz" sú, sem
flestar furður geymir“.
Observer.
Á tæpasta vaði -
Hetjusaga ,Greifans af Auschwitz'
— mannsins, sem í fimm ár háði styrjöld við Þjóð-
verja upp á eigið eindæmi og sífellt lagði á tæpasta
vaðið.
Hann smyglaði vopnum og sprengiefni til hinna dauða-
dæmdu í þrælabúðum Þjóðverja, skipulagði skemmdar-
verk í stórum stíl og olli óbætanlegri eyðileggingu á
hernaðarframleiðslu nazista.
Úr fangabúðunum sendi hann á dulmáli mikilvægar
upplýsingar til hermálaráðuneytisins brezka og varð
fyrstur til að skýra frá leynivopni Þjóðverja — flug-
skeytinu V 1.
Vitnisburður hans við stríðsglæparéttarhöldin í Núrn-
berg gerði 2000 fyrrverandi föngum kleift að höfða
skaðabótamál á hendur I. G. Farben auðhringnum, sem
-þrælkaði fanga í efnaverksmiðjum sínum.
Á tæpasta vað'i er frásögn af einum merkilegasta og
djarfasta skemmdarverkamanm og sjálfskipaða njósn-
ara, sem tók þátt í síðustu heimsstyrjöld. Það er frá-
sögn af manni, sem þorði að voga öllu — og vann.
Á tæpasta vaði er enn ein sönnun þ'ess, að enginn
skáldskapur jafnast á við veruleikann sjálfan.
— Kostar kr. 128.00 í fallegu bandi.
A tæpasta vaði - óskabók allra karlmanna
I Ð U N N — Skeggjagötu 1 — Sími 12923.
Þetta er ein allra glæsilegasta bókin á ]óla-
markaðinum og hefur hlotið frábærar við-
tökur. — 376 blaðsíður með 300 myndum.
Óskabók unga fólksins og iþrótfaunnenda
PETUR HARALDSSON
Ólympíuleikarnir 1896-1956
— NESTI — — BENZlN —
NESTI (Dnve in) Fossvogi
bleikir
bláir
Stærðir 22—35
HECTOR
Laugaveg 11 — Laugaveg 81.
Finnskar
Kven-
bomsur
margir litir og gerðir.
HECTOR
Laugaveg 11 — Laugaveg 81.
Til jólagjafa
Karlmanna-gaberdinebomsur
Verzlið fpar sem úrvalið er mest
Aðalstræti 8 — Laugavegi 20 — Laugavegi 38
Snoitabraut 3<8 — Grarðasti’æti 6